Tíminn - 22.05.1962, Page 6

Tíminn - 22.05.1962, Page 6
Opið bréf til stjórnar og framkv. stjóra Kirkjugarða Reykjavíkur Mætti ég, fyrrverandi starfsmað ur þeirrar stofnunar, sem þér eig- ið að stjórna og yður hqfur verið trúað fyrir, senda yður nokkrar lín ur, þrátt fyrir, eða öllu heldur vegna þess, að þér hafið ekki svar- að bréfi mínu dags. 20. júlí 19öú, enda mun það vera talið grundvall- aratriði og kurteisisskylda jafnt í viðskiptum sem öðrum samskipt- um manna að svara erindum og bréfum. í þessu erindi mínu óskaði cg eft ir að fá frið til að vinna þau verk við stofnun yðar, sem ég hlaut að bera ábyrgð á að væru forsvaran- lega unnin, en þér kusuð að segja mér upp störfum í stað þess að verða við bón minni. Þessi viðbrögð yðar verða vart skilin á annan veg en þann, að þér teljið vandvirkni minni og verkkunnáttu ábótavant og því gagnstætt hagsmunum Kirkjugarð- anna að nýta þjónustu mína. Margt fleira styður þessa ályktun, svo sem sú staðreynd, að þér hafið veitt svonefndum yfirverkstjóra fulltingi yðar til að stjórna þeim verkum, sem lögum samkvæmt eiga að vera undir umsjón viður- kenndra meistara, þrátt fyrir það, að yður ætti að vera kunnugt, að sumar. af tiltektum þessa verk- KOSNINGASJÓÐUR ÞaS er vinsamleg ábending til stuðningsmanna B-listans, sem geta látið fé af hendi rakna I kosningasjóS, að hafa sam- band við skrifstofuna í Tjarnargötu 26. Öllum slíkum framlög- um, smáum sem stórum, er með þökkum veitt móttaka í kosn- ingaskrifstofunni. B - LISTINN AUGLÝSIR: Kosningaskrifstofur B-listans við borgarstjórnarkosningarn ar í Reykjavík 27. maí n.k., eru á eftirtöldum stöðum: Aðal- skrifstofan er í Tjarnargötu 26. Símar 15564, 24758, 24197 og 12942. — Skrifstofan er opin frá kl. 9 f.h. til kl. 10 að kvöldi, FYRIR KJÖRSVÆÐI MELASKÓLANS í Búnaðarfélagshúsinu v/Hagatorg, sími 20328. — Skrifstofán er opin frá kl. 2 e.h. til kl. 10 að kvöldi. FYRIR KJÖRSVÆÐI MIÐBÆJARSKÓLANS í Tjarnargötu 26, símar 24758 og 12942. Skrifstofan er opin frá kl. 2 c.h. til kl. 10 að kvöldi. FYRIR KJÖRSVÆÐI AUSTURBÆJARSKÓLANS að Baldurs- götu 18, sími 16289. Skrifstofan er opin frá kl. 2 e.h. til kl. 10 að kvöldi. FYRIR KJÖRSVÆÐI SJÓMANNASKÓLANS að Einholti 2. símar 20330 og 20331. Skrifstofan er opin frá kl. 2 e.h. til kl. 10 að kvöldi. FYRIR KJÖRSVÆÐI LAUGARNESSKÓLANS OG LANG HOLTSSKÓLA að Laugarásvegi 17, símar 38311 og 38312. — Skrifstofan er opin frá kl. 2 e.h. til kl. 10 að kvöldi. FYRIR KJÖRSVÆÐI BREIÐAGERÐISSKÓLANS að Mel gerði 18, sími 38313. Skrifstofan er opin frá kl. 2 e.Ii. til kl. 10 að kvöldi. STUÐNINGSFÓLK B-LISTANS! Hafið samband við kosninga- skrifstofurnar. Komið eða hringið og veitið alla þá aðstoð er þið getið í té látið. Upplýsingar varðandi utankjörstaðakosningu er hægt að fá á skrifstofu Framsóknarflokksins, Tjarnargötu 26, símar: 16066 og 19613. — Skrifstofan er opin frá kl. 9—12 f.h., 1,30—6 e.h. og 8—10 s.d. — Hafið samband við skrifstofuna og gefið henni upplýsingar um fólk sem verður fjarri heimili sínu á kjördag. Kosomposkrifsteftir óti ó IimhPr Akranesi: Félagsheimili Framsóknarmanna, sími 712. Keflavík: Suðurgötu 24, sími 1905. Kópavogur: Álfhólsvegi 2, sími 38330. Hafnarfjörður: Suðurgötu 35, simi 50067 (Gíslabúð). Vestmannaeyjar: Strandvegi 42 II. hæð. Sími 865. Siglufjörður: Eyrargötu 17, sími 146. Selfoss: Kaupfélagshúsinu, sími 103. < Akureyri: Sími skrifstofunnar 1443. SJÁLFBOÐALIÐAR: Nú er aðeins tæp vika til kosninga, og enn er eftir að inna mikla vinnu af höndum. B-Iistann vantar því sjálfboðaliða til starfa nú þegar. Stuðningsmenn B-listans. Hringið strax í aðalskrifstofuna, Tjarnargötu 26, og látið skrá ykkur til starfa. Allar hjálparhend ur eru vel þegnar .Sjálfboðaliðar, látið B-listanum í té allan þann tíma, sem þið mögulega getið, eftir að daglegum skyldu- störfum er lokið. Munið, að ein vika er skammur tími. Símar skrifstofunnar eru 1-55-64, 2-47-58, 2-41-97 og 1-29-42. Þakkir fyrir ánægju- lega ferð Síðastl. sumar bauð Kvenfélag Sauðárkróks öldruðu fólki á Sauð- árkróki í eins dags ferðalag norður í Eyjafjörð, til Akureyrar, að Grund og víðar. Þetta er orðinn fastur þáttur í starfi kvenfélagsins að gleðja okkur gamla fólkið ■ á þennan hátt á ári hverju. Mörg \ BORGARST JORNAR- KOSNINGARNAR stjóra verða vart taldar til eðli- legra athafna. Þegar ég og aðrir meistarar, sem hjá yður hafa unn- ið, vilja ekki viðurkenna skemmd- arverkin, hafiff þér látið þá þegar víkja úr starfi. Þessi vinnubrögð getur meistari ekki látið óátalin, hvorki af per- sónulegum ástæðum né heldur. vegna skyldna sinna sem meistari og ábyrgðarmaður byggingarfram- kvæmda. Eg get ekki séð, að nokkur skilj- anleg ástæða sé fyrir þeirri afstöðu yðár til þeirrar stofnunar, sem þér stjórnið, að þér teljið æskilegt aö verkum sé þannig hagað, að þau ónýtist að meira eða minna leyti um leið og þau hafa verið unnin og handahóf og kunnáttuleysi látið ríkja um allar framkvæmdir. Með tilliti til þess, sem nú hef- ur verið sagt, fæ ég ekki betur séð en ríkar ástæður krefjist þess, að störfum, sem krefjast fagþekking- ar, sé létt af yfirverkstjóra yðar, enda sýnist mér vera full þörf"á starfskröftum hans við eftirlit með almennum framkvæmdum í kirkju görðunum. Það kæmi þá kannske ekki fyrir, að starfsliðið sé notað við önnur störf, sem virðast kirkju görðunum óviðkomandi, ef til vill gæti hann þá einnig betur fylgzt með meðferð efnis, sem ætlað er til framkvæmda og fleira mætti að sjálfsögðu telja, svo sem það, að ekki mundi saka, ef tími gæfist, að yfirverkstjórinn aðstoðaði við frá- gang reikninga Kirkjugarðanna, því sannarlega mundi almenning- ur ekki hafa neitt á móti því að þqir væru birtir og hægt yrffi að sjá opinberlega, hvernig stofnunin er rekin. Virðingarfyllst, Björn Guðmundsson. Minningarrit Nýlega er komið út minningar- rit á 50 ára afmæli Ungmennasam bands Borgarfjarðar. (UM.S.B.). Þetta rit er um 60 blaðsíður í all- stóru bandi, prentað á góðan pappír. Það flytur fjölda ágætra mynda, þó einstaka lélegar einnig. Ritið flytur mikið af greinilegum fróðleik, þótt smávillur og dálítil hlutdrægni óprýð'i það á einstaka stað. Það er gott að þetta rit varð- veitir ýmsan merkan fróðleik varð andi hálfrar aldar starf þessa á- gæta Ungmennasambands og það sýnir á ýmsan hátt, hve U.M.S.B. hefur átt mikinn og merkan þátt í framsókn Borgarfjarðarhéraðs undanfarin 50 ár. Þótt ritið varði aðallega Borgar- fjörð og Borgfirðinga, þá er skemmtilegt fyrir ýmsa, lestrar- félög o.fl. víðsvegar um land, að eignast ritið. Það fæst hjá Fálkan- um í Reykjavík og hjá U.M.S.B. í Borgarfirði. V.G. Videy Ekki verður hér rakin saga Viðeyjar. En hún á merka sögu og þar hafa búið öndvegismenn á ýmsum tímum. Og þar bjó Skúli Magnússon landfógeti, sem stundum hefur verið tal- • inn faðir Reykjavíkur í núver- andi mynd borgarinnar. Þessi eyja liggur við túnflöt höfuðborgarinnar. En hún má muna sinn fífil fegri. Nú standa þar enn gömul hús, sem áður voru stórmyndarieg, en eru nú lirörleg mjög, enda lítt við hald ið. Landið í eyjunni mun nytj- að til heyöflunar. Stundum hefur verið rætt um að Reykjavík sinnti málefnum Viðeyjar og hefði forgöngu u.n að endurvekja virðuleika henn- ar. Enn þá hefur þó ekkert orð ið úr framkvæmdum annað en snotrar ræður, sem fljótlega hafa gleymst. En það er tími til koutinn, að hefjast handa. Sögufrægð eyjarinnar höfðar til metnaðar höfuðborgarinnar um að sinna endurröisn hennar og halda við fornum bygging- um. Viðeyjarstofa, sem Skúli Magnússon lét reisa, er forn- minjar, sem ekki er vansalaust fyrir Revkjavík að láta grotna niður hjá garði sínum. Samhliða sögufrægð sinni er Viðey mjög skemmtilegur stað- ur og dýrmætur til eignar fyrir höfuðborgina. Þar er gott að vera á góðum sumardegi. Þar er kyrrlátt og friðsælt og svo f jarri ys og þis • borgarlffs'ns, þótt stutt vegalengd sé á milli. Við leitum oft langt vfir skammt til hvíldar að sumrinu. Ekki verður hér rakið nánar hvað hægt er að gera við Við- ey. Það er svo margt. En höfuð- atriði. að Reykjavík skilii sinn vitjunartíma. Og því fyrr, því betra. Ráfhús Oft hefur verið rætt um, að Reykjavík byggði sér ráðhús. Eitthvað hefur verið safnað í svonefndan ráðhússjóð, sem kjósendur /ita nú ekki um, hvort er meira en nafnið. En hitt er víst, að fyrir noklcr um árum var ráðhúsinu valinn staður í norðanverðri Tjörninni. Talið var, að samkomulag væri um staðinn. En síðan virðast mjög margir vera óánægðir með staðinn. Staðurinn er raunar falleg- ur, en mjög dýr og aðþrengdur. Skal ekki frekar rætt um hann hér. Nokkrir færir menn voru ráðnir til að teikna húsið og sýndist mönnum sitthvað um það val. En þetta voru færustu menn, og þó virðist verkið hafa gengið seint og kunnum.við eng ar fréttir að segja af uppdrátt- um þeirra. Og ekki heldur, hvað búið er að borga þeim stórar fjáúrhæðir fyrir þeirra vanda- sama verk. En eitt er víst og öllum ang- Ijóst. Enn er ekki byrjað á bygg ingu ráðhúss. Reykjavík býr enn við svo rýran hlut í húsnæðismálum sínum, að hún verður að leigja hús fyrir flestar aðalskrifstofur sínar. Flestir íbúar borgarinnar kljúfa til þess þrítugan hamar- inn að eignast eigið húsnæði, Þar kemur fram þróttur og dugnaður íbúanna. En ráðamenn borgarinnar hafa ekki tileinkað sér þennan þrótt og dugnað kjósenda sinna. Það þarf raunar alveg sérstakt metnaðarleysi til að geta sætt sig við það ár eftir ár og áratug eftir áratug, að búa í leiguhús- næði, — og það fyrir höfuðborg íslands. Fyrir alllöngu síðan átti Reykjavík kost á að kaupa Nat- han og Olsens-húsið, þar sem borgarskrifstofurnar eru nú. Húsið var selt fyrir lítinn pen- ing, en boðinu var hafnað. Framsýnn lyfsali keypti Iiúsið og Ieigði Reykjavík síðan veru- Iegan hluta af því. Þessari ráðdeild mun ekkert verulega verið haldið á lofti í blöðum borgarstjórnarmeiri- hlntans. f þeim mörgu kosningaloforð- um, sem Mbl. greinir frá að eigi að efna á næsta kjörtíma- bili, sést ekkert minnzt á ráð- hús eða skrifstofuhúsnæði fyrir borgina. Hvað veldur? Er það ný sönnun þess, að í Reykjavík búi dugmiklir ein- staklingar, sem keppist við að byggja yfir sig og starfsemi sína. En forystan sé heldur slök, og hafi hvorki áhuga né dug til að byggja yfir aðalskrif stofur borgarinnar, hvað þá annað? B^a^arnir Borgarstjóri upplýsti nýlega, að það byggju enn 776 Reyk- víkingar í braggaíbúðum, þótt 17 ár séu liðin síðan styrjöld- inni lauk. Hverju hafa Sjálfstæðismenn lofað: „Að gerð verði ákveðin áætl un og hinar óheilnæmu íbúðir rifnar niður jafnóðum og aðrar eru til og þær nýju látnar í té með viðráðanlegum kjörum“ — Bláa bókin 1946. „Að unnið sé að því af kappi, að sem allra fyrst verði útrýmt braggaíbúðum og öðrum heilsu spillandi íbúðum í bænum.“ — Bláa bókin 1950. „Að útrýma sem fyrst bragga íbúðum og öðrum lélegum íbúð um og greiða sérstaklega fyrir þvi, að fólk, sem þar býr, kom ist í betra húsnæði.“ — Bláa bókin 1954. „Að megináherzla sé lögð á að hraða svo sem mest má verða framkvæmd áætlana bæj- arstjórnar frá 17. nóv. 1955 um byggingu íbúðarhúsa í þeim til- gangi, að útrýmt verði herskál um og að öðru leyti bætt úr húsnæðisþörf þeirra, sem verst eru settir“. — Bláa bókin 1958. lokkar eiga ekki annan kost en : þennan til að njóta þess að ferðast um sumarfögur héruð okkar kæra 1 lands, og er því þetta mjög vel hugsað af kvenfélaginu að veita okkur þessa gleði. Ferðin í sumar tókst með afbrigðum vel. Valdist saman gott veður. góður farkostur og góður félagsandi í hópnum. Vor um við öll sérstaklega þakklát, sem nutum þessarar ánægjulegu ferðar. Ég hef þó hvergi séð þakklæti fyr- ir h&na á prenti og sendi því þess- ar fáu línur fyrir mína hönd og áreiðanlega allra hinna, sem ferð- arinnar nutu. — Hafið kæra þökk, kvenfélagskonur. Guð blessi allt ykkar starf. Guðrún Jónsdóttir frá Hofsstaðaseli. 6 T f M I N N, þriðjudaginn 22. maí 1962.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.