Tíminn - 23.05.1962, Síða 5
Vorið er löngu komið,
enginn ber lengur á móti
því. Göturnar eru löngu
orðnar fullar „ . . . af Ást-
um og Tótum með nýja
hatta og himinblá augu".
Allar stúlkur fagna þvi,
þegar þær geta hengt kulda
úlpuna inn í skáp og stung-
ið sokkabuxunum niður i
skúffu og tekið fram létt-
ari fatnað. Skapið léttist,
göngulagið léttist, og stúlk-
urnar verða fallegri. Aldrei
er meira hugsað, skrifað og
talað um fegurð en á vorin.
íslendingar hafa löngum gum
að af því, að þeir eigi fallegar
stúlkur, og útlendingar. sem
búning starfseminnar, sem nei„
ast mun í næsta mánuði, varð
frú Andrea fúslega við þeirri
beiðni blaðsins að svara nokkr-
um spurningum viðvíkjandi
námi sínu erlendis og væntan-
legu starfi.
í því skyni lagði blaðamaðui
Tímans leið sína að Brekkulæk
1, þar sem Andrea býr, ásamt
manni sínum, Halldóri Þor-
steinssyni, kennara. Heimili
þeirra er í senn glæsilegt og
vistlegt og ber vitni um góðan
smekk húsráðenda. Sem sagl.
hýbýlin hæfa húsmóðurinni.
sem kom til dyra í látlausum,
en glæsilegum kjól, augsýnilega
sniðnum samkvæmt nýjustu
Parísartízku.
Óvíða betri tízkuskólar
— Þú ert nýkomin að utan,
leg. Eg vil ekki halda því fram,
að Parísarstúlkurnar séu fal-
legri en t.d. íslenzkar stúlkur.
En hvergi í heiminum hafa
stúlkur fallegri og skemmti-
legri hreyfingar og framkomu.
— En svo að við snúum okk-
ur að íslenzkum stúlkum, hvað
viltu segja um þær? Eru þær
svo fallegar, sem sumir vilja
vera láta?
— Vissulega er mikið af fal-
legum stúlkum hér á íslandi.
En það er líka ýmislegt i fari
þeirra, sem er ábótavant, og til
gangurinn með tízkuskóianum
. er meðal annars sá, að sniða
þessa vankanta af.
— Og hvað finnst þér sér-
staklega til lýta hjá íslenzkum
stúlkum?
— Ja, t.d. sýna þær ekki
nógu mikla smekkvísi í klæða-
Veitir frönsku lofti ínn
' >
tízkuheim bæjarins
ferðast hér um, taka gjarnan í
sama streng. Hér skal ekki lagð
ur neinn mælikvarði á fegurð
íslerizkra kvenna, eða hvort þær
eru fegurri hér en í öðrum lönd
um. Hitt leýfum við okkur að
fullyrða, að eins og það er ör-
uggt, að lengi getur vont versn-
að, þá er það jafnvíst, að Iengi
getur falleg stúlka fríkkað.
Hýbýlin hæfa hús-
móSurinni
Hinir svonefndu tízkuskólar
eru alveg ný fyrirbrigði hérlend
is. Flestum mun kunnugt af
blaðaskrifum, að hér er starf-
andi einn tízkuskóli, og af frétt
um að dæma fara vinsældir
hans sífellt vaxandi. Ýmsir
segja, að þegar megi sjá áhrif
skólans hér í bænum, megi
þekkja þær stúlkur úr, sem
fengið hafa tilsögn í framkomu
þar. Það ætti því að verða mörg
um gleðiefni að frétta, að nú er
annar slíkur skóli í uppsiglingu.
Þeim skóla mun frú Andrea
Oddsteinsdóttir stýra, og þrátt
fyrir mikið annríki við undir-
Andrea Oddsteinsdóttlr
Andrea?
— Já, ég dvaldist í vetur í
París, þar sem ég stundaði nám
í skóla fyrir sýningarstúlkur.
Það er mjög góður skóli, sem
stjórnað er af Lucky, einhverri
frægustu sýningarstúlku
Frakka. Hún er bæði stofnandi
og formaður félags franskra
sýningarstúlkna.
— Hefurðu starfað sem sýn-
ingarstúlka?
— Nei, það hefur mér aldrei
dottið í hug. Eg lærði þetta ein
göngu með það fyrir augum að
setja á stofn tízkuskóla hér
heima.
i
— Þótti það ekki einkenni-
legt, að kona frá íslandi stund-
aði nám í tízkuskóla í París?
— Nei, því þá það? Þangað
koma konur frá öllum löndum
heims. Með mér voru t.d. kon-
ur frá Noregi, Spáni, Englandi,
Mexicó og víðar að úr heimin-
um. Eg álít, að óvíða séu til
betri tízkuskólar en einmitt í
París, sem með sanni má kalla
höfuðborg tízkunnar.
Aðeins misheppnuð
eftirlíking
— Hvernig stendur nú á
þessu? Því er ekki alveg eins
gott að læra í London, New
York, Róm eða einhverri ann-
arri stórborg?
— Ja, það er nú eúrn sinni
svona. Frakkar, og þá fyrst og
fremst Parísarbúar hafa mótað
smekk kvenna og karla allt frá
dögum Lúðvíks XIV. Fengi
hann eða hirðmeyjar hans sér
nýja flík, þá barst sú fregn um
alla álfuna á skömmum tíma.
Þannig var það á þeim tímum,
og þannig er það í rauninni enn
þá í vissum skilningi.
— Detti t.d. Yves-Saint-Laur-
ent í hug að síkka pilsin, þá
síkka þau líka samstundis um
allan heim. Snjöllustu tízku-
meistarar í London og New
York hafa gert ítrekaðar tilraun
ir til að brjóta á bak aftur al-
ræðisvald tízkukónganna í Par-
ís, en árangurslaust. Enda er
fatnaður sá, sem á boðstólum
er i London og New York, oft
og einatt ekki annað en mis-
heppnuð eftirlíking á verkum
beztu tízkuteiknarnnna 1 Paris
Lucky, frægasta sýningarstúlka
Frakka.
Njóta sín hvergi,
nema í París
— En hver heldurðu nú að
sé ástæðan fyrir því, að Parísar
búar ráða þannig lögum og lof-
um í tízkuheiminum?
— Ein skýringin á yfirburð-
um þeirra er áreiðanlega sú. að
þeir hafa nú svo langa reynslu
að baki. Franskir gullsmiðir
hárgreiðslumenn og fatateiknar-
ar bera af, hvað smekkvísi, hug
myndaflug og dirfsku snertir
Þeim er öllum sú list lagin að
gleðja konur. Það kemur að
vísu fyrir, að slíkir snillingar
fæðast meðal annarra þjóða,
en það er eins og hæfileikar
þeirra njóti sín ekki, nema beir
séu búsettir í París.
— í þessu sambandi væri t.d
ekki ófróðlegt að geta þess, að
enski tízkuteiknarinn C. F
Worth og Eugéne, keisarafrú,
sem var af spönskum ættum.
komu krínólínunni í tízku á sín
um tíma og aftur úr tízku 20
árum síðar. Þetta hefði verið ó-
hugsandi, þrátt fyrir þokka keis
arafrúarinnar og listfengi Eng-
lendingsins, hefðu þau verið bú
sett annars staðar en í París.
Vilja sníða van-
kantana af
— En hvað um stúlkurnar i
París, eru þær fallegri en ann
ars staðar?
— Ja. fegurð er svo margvís-
burði. Mér finnst ódýr, amerísk-
ur smekkur vera of mikils ráð-
andi hérlendis, og ég skil ekki
almennilega, hvað veldur þvi.
Eg vona, að ég geti haft áhrif
á mína nemendur, hvað þetta
snertir, og í því skyni hef ég i
hyggju að hafa saumastofu í
sambandi við skólann minn, þar
sem stúlkurnar geta látið sauma
á sig, og þa mun ég leiðbeina
þeim um efnisval og snið.
Tilhneiging til þess
aS ýkja
— Hvað um snyrtingu?
— Það er nokkuð það sama
að segja um snyrtingu íslenzkra
kvenna og klæðaburð. Það, sern
einkennir hana, er, hverSu yfir
drifin hún er. T.d. finnst mér
voðalegt að sjá, hvað kornur.gar
stúlkur mála sig mikið hérna.
þær kunna ekkert til þeirra
verka, mála bara yfir æskuna.
ef svo má segja. Þetta þurfa
stúlkur að læra eins og annað
— Sania er að segja um hár-
greiðslu. Það er einkennilegt,
að þegar íslenzk stúlka fer á
hárgreiðslustofu, vill hún endi-
lega, að það sjáist sem mest.
að hún sé með nýlpgt hár. Þetta
er hin mesta firra, það á ein-
mitt ekki að sjást. Þarna kemur
einnig fram tilhneiging ís-
lenzkra stúlkna til að ýkja. Það
sjáum við m.a. á „túpering-
unni“, sem er að hverfa víðast
í Evrópu, en hér rís hún hærra
og hærra á höfði íslenzkra
stúlkna.
— Hvað finnst þér um þann
sið, sem virðist ríkja meðal
ungra stúlkna hér, að sýna sig
á strætum úti með rúllur í hár-
inu?
— Eg á eiginlega engin orð
yfir það, þetta er svo ósmekk-
legt. Eg get bara ekki skilið.
hvernig nokkur stúlka getur
fengið af sér að láta sjá sig
þannig úti „ götu Það er eng-
in afsökun til fyrir slíku.
Kennir konum
á öllum aldri
— Hvenær tekur skólinn ti)
starfa hjá þér?
— Ætlunin er, aö hann taki
lil starfa um miðjan júní. Mér
tókst að fá prýðilegt húsnæði
á Skólavörðustíg 23 Það er gam
alt hús, og ég er að láta breyta
Framhaio a nls ift
ISOPON er margviðurkennt
til „boddy“ viðgerða og hvers
konar þéttinga.
Það smyrst sem smjör og
harðnar sem stál.
Nýkomið
. Stuðaratjakkar
Tjakkar venjulegir, lyftuþol
lVz til 20 tonn
Viftureimar
Bilaperur allar gerðir
Útvarpsstengur
Stefnuljós
Álímdir bremsuskór
Koparfittings
Hjólbarðar og slöngur, flestar
stærðir.
Væntanlegt
í VIKUNNI
Kúplingsdiskar í flestar gerð-
ir bifreiða.
Sprautulökk
Bílabónið margeftirspurða
Vinsamlegast, hringið.
Sendum í póstkröfu um land
allt.
STAPAFELL
Keflavík. — Sími 1730.
- Trúlofunarhringar -
Fljót afgreiSsla.
GUÐM. ÞORSTEINSSON
gullsmiður
Bankastræti 12.
Sími 14007
Til sölu
rúmgóð íbúð við Stóra-
gerði.
Félagsmenn, sem vilja nota
forkaupsrétt að íbúðinni,
snúi sér til skrifstofunnar
Hafnarstræti 8, fyrir 29.
maí n.k.
B.S.S.R., Sími 23873
TIMINN, miðvikudaginn 23. maí 1962
5