Tíminn - 14.06.1962, Blaðsíða 6
Sjötug:
Steinþór Þórðarson,
bóndi, Hala
Áslaug og Ásrún Jónsdætur.
(Ljósmynd: TÍMINN, GE).
„Við erum á yng-
ingarferðalagi“
— Við erum eiginlega á
yngingarferðalagi, sögðu Ás-
laug og Ásrún Jónsdætur, sem
komu hingað til íslands 4.
júní s.l. Þær eru báðar fædd-
ar og uppaldar hérlendis, en
fluttust ungar vestur um haf
og hafa ekki ísland augum lit-
ið í rétt 59 ár. Við hittum
systurnar að máli á heimili
Rannveigar Kristjánsdóttur og
Páls H. Jónssonar, en Páll er
einmitt systursonur þeirra.
Yngingaraðferðin er augljós-
lega farin aS bera árangur. Það er
ekki hægt að merkja, að hér séu
á ferð 78 og 69 ára gamlar kon-
ur. Þær leika á als oddi, eru
glettnar og glaðar og fullar til-
hlökkunar að hitta frændur og
kunningja og ekki sízt að heim-
sækja æskustöðvarnar norðan-
lands. Til Reykjavíkur hafa þærj
ekki komið áður um ævina, en
lízt vel á sig hér.
Frá Mýri í Bárðardal
— Hvenær fluttust þið vestur
um haf?
— Það er bezt að Aslaug svari,
hún er eldri, segir Ásrún og hlær
dátt.
— Það var árið 1903, segir As-
laug, Eg var þá 19 ára gömul, en
Ásrún 10 ára. Eg hef oft séð eftir
því, að pabbi skyldi aldrei skrifa
almennilega um þá ferð, við er-
um eiginlega búnar að gleyma
henni. Það var ólíkt að ferðast
þá eða nú. Þá vorum við u.þ.b.
þrjár vikur héðan til Winnipeg í
Manitoba, en nú vorum við aðeins
1% dag hingað frá Vaneouver,
þrátt fyrir sex tíma töf í Labra-
dor.
— Hvað fóruð þið mörg saman
vestur?
— Við vorum sjö systkinin, sem
fórum með föður okkar, Jóni Jóns
syni frá Mýri í Bárðardal. Mýri
er okkar bernskuheimili. Móðir
okkar, Kristjana Jónsdóttir frá
Leifsstöðum í Kaupangssveit, lézt
árið 1900. Móðursystkin okkar
Steingrímur Jónsson og Hallfríð-
ur Þorgeirsson, tóku á móti okk-
ur í Winnipeg. Þau höfðu þá lengi
verið búsett fyrir vestan. Hallfrið
ur kom til íslands, þegar mamma
verið búsett fyrir vestan. Hallfríð
Rætt við Áslaugu og Ásrúnu Jónsdætur frá Mýri í
Bárðardal — nýkomnar frá Ameríku
fóru tvö systkin okkar með henni.
— Eg átti að fara þá, skýtur nú
Ásrún inn í. En ég vildi það ekki,
og raunar var ég aldrei neitt hrif-
in af því að fara vestur. Eg var
svo hrædd við þrumur og elding-
ar, og mér hafði verið sagt, að
þrumuveður væri algengt í Ame-
ríku.
10 barna móðir
— Settust þið svo að í Winni-
peg?
— Ekki var það nú. Arið 1905
keypti faðir okkar jörfi í Saskat-
chewan, sem er næsta fylki við
Manitoba, og þar bjó hann, þar til
hann dó, þá 84 ára að aldri. 1
þeirri byggð var margt islendinga,
og faðir okkar lærði aldrei að tala
enskuna. Fyrir þá sök var lífið
honum á margan hátt erfiðara.
— Þegar foðir minn og systkin
fluttust til Saskatchewan, varð ég
eftir, segir Áslaug, því að þá var
ég farsællega komin i hjónaband-
ið. Maðurinn minn, Þorsteinn
Gauti, var einnig bóndi. Hann
dvaldist lengi á Gautlöndum í
Mývatnssveit, áður en hann flutt-
ist vestur og þess vegna völdum
við okkur eftirnafnið Gauti. Fað-
ir hans var Jón Jónsson frá Reykja
hlíð. Við eignuðumst 10 börn, sem
öll eru búsett fyrir vestan, og eru
fimm þeirra gift íslendingum. Síð
an maðurinn minn dó, hef ég bú-
ið hjá syni mínum, Haraldi, í
Victoria B.C. í Kanada.
Sígræna fylkiS
— Giftist þú einnig íslendingi,
Ásrún?
— Já, ég giftist árið 1910 Jóni
Frímanni Jónssyni frá Munka-
þverá í Eyjafirði. Við fluttumst
þá strax vestur að Kyrrahafsströnd
og bjuggum þar í litlum bæ, sem
heitir Blane, þar til Jón dó fyrir
10 árum. Við eignuðumst þrjú
börn, en misstum elzta drenginn,
þegar hann var 21 árs. Annan pilt
eignuðumst við, sem nú er yfir-
kennari við barnaskóla í Van-
couver, Wash.
— Síðan maðurinn minn dó hef
ég búið hjá Önnu, dóttur minni,
í Bellingham i Washingtonríki,
sem er næsta við Kanada. Anna
er gift Halldóri Kárasyni, sem er
doktor í heimspeki við Washing-
ton State College. Hann hefur
einnig kennt ensku og sálarfræði
og langar mikið til að komast heim
til íslands. Það er gott að búa
í Bellingham, og þar er afar
fallegt. Washingtonríki hefur verið
kállað „The ever greeh State“,
eða sígræna fylkið.
Verða hér í 3 mánuði
— Ilafa ekki einhverjir afkom-
enda ykkar komið til íslands?
— Nei, ekkert þeirra. Það þyk-
ir nú talsvert fyrirtæki að taka
Sig upp og ferðast alla leið til ís-
lands. Við höfum verið að undir-
búa þessa heimsókn okkar í lið-
lega tvö ár.
— Og hvað ætlið þið að dvelj-
ast hér lengi?
— Það fer nú eftir því, hvað
við verðum vinsælar, segir Ásrún
og hlær. En ætli við verðum ekki
eina þrjá mánuði. Hérna í Reykja-
vík búum við hjá vinkonu okkar,
Guðbjörgu Oddsdóttur á Aragötu
12, og þar verðum við4 líklega
fram yfir miðjan mánuðinn. 13.
júní er von á hóp Vestur-íslend-
inga-til landsins og hefur verið
boðuð veizla fyrir þá á Hótel
Borg 19. júní. Við viljum helzt
ekki verða af því.
— Og svo liggur leiðin væntan-
lega norður?
— Já. Sjálfsagt dveljumst við
lengst af norður í Bárðardal á
bernskustöðvunum. En við eigum
víða frændfólk og vini, á Akureyri,
Húsavík og viðar. Við höfum sem
sagt nóg með þessa þrjá mánuði
að gera.
Hittu forsetann s.l. haust
— Þið talið ágæta íslenzku,
þrátt fyrir margra ára fjarveru.
— Það hefur alltaf verið töluð
íslenzka á heimilum okkar, og
það liðu í rauninni nokkur ár, áð-
ur en ég lærði enskuna að nokkru
marki, segir Áslaug. En Rúna
lærði hana strax, enda var hún
yngri og móttækilegri fyrir mál-
inu.
— Svo hittum við oft íslendinga,
bæði þá. sem búsettir eru fyrir
ves'tan, og svo íslendinga. sem eru
þar á ferð. Það jafnast ekkert á
við það að fá landa í heimsókn.
Þegar forsetinn heimsótti byggðir
íslendinga í Vesturheimi s.l. haust,
Þann 10. júní verður Steinþór
Þórðarson, bóndi á Hala í Suður-
sveit, sjötugur.
Eg veit að það verða margir
sveitungar og fleiri, sem senda
þessum heiðurmanni hlýjar kveðj-
ur í ræðu og riti.
Eg get ekki látið hjá líða að
senda honum afmæliskveðju á
þessum merku tímamótum, þó ég
viti að ég færist of mikið í fang
með því.
Steinþór er fæddur á Hala 10.
| júní 1892 sonur hjónanna þar
Önnu Benediktsdóttur, d. um 1940
og Þórðar Steinssonar d. 1926.
. Anna var dóttir hjónanna Guð-
nýjar Einarsdóttur d. 1901 frá
Brunnum og Benedikts Þorleifs-
sonar d. 1915 frá Hólum í Nesj-
um.
Þórður Steinsson var sonur hjón
anna Luciu Þórarinsdóttur frá
Breiðabólsstað og Steins Þórðar-
sonar frá Kálfafelli.
Steinþór ólst upp á Hala hjá
foreldrum sínum.
20. júní 1914 gekk hann að eiga
heitmey sína Steinunni Guðmunds
dóttur, hina ágætustu konu. Hafði
hún alizt upp á Reynivöllum hjá
móðurbróður sinum Þorsteini Ara
syni og konu hans Elínu Jónsdótt-
ur.
En Steinunn er fædd á Borg á
Mýrum dóttir hjónanna Sigriðar
Aradóttur frá Reynivöllum og Guð
mundar Sigurðssonar Borg.
Bjuggu þau hjón síðar á Skála-
felli.
Tóku þau Steinþór og Steinunn
við búsforráðum á Hala og hafa
búið þar síðan. Eiga þau tvö börn,
Torfa, skólastjóra við heimavist-
arbarnaskólann á Hrollaugsstöðum
í Suðursveit, kvæntan Ingibjörgu
Zophoniasdóttur frá Hóli í Svarf
aðardal og Þóru, gifta Ólafi Guð-
jónssyni trésmið, búa þau í Reykja
vík.
Snemma hneigðist hugur Stein-
þórs að félagsmálum, meira en al-
mennt gerist og enn í dag er hann
I sami ótrauði baráttumaðurinn fyr-
ir félagsmálum og öllu því er til
framfara horfir og hann var á
' blómaskeiði ævinnar.
Verða rakin hér í stórum drátt-
í um þau störf sem Steinþóri Þórð-
arsyni hafa verið falin af sveitung
| um sánum og sýslubúum.
Árið 1911 stofnaði hann lestrar-
félag í Suðursveit og var formað-
ur þess félags frá 1912 og þar til
það var gert að hreppsbókasafni
um 1940. Stofnaði ungmennafél.
Vísi í Suðursveit 1912 og var for-
maður þess í 30 ár. í stjórn Kaup-
félags A-Skaftfellinga hefur hann
setið frá stofnun félagsins 1920 og
er enn þá. Þá átti hann sæti í
stjórn Menningarfélags A-Skaft-
fellinga í nær 20 ár. Formaður
ræktunarsambands Mýra- og Suð-
ursveitar í 14 ár eða þar til á s. 1
ári, að hann baðst undan endur
kosningu. Formaður Hrossarækt
arfélags Suðursveitar lengi, enn
fremur formaður Bílfélags Suður
sveitar meðan það starfaði. For
maður Búnaðarsambands A-Skaft-
fellinga hefur Steinþór verið frá
stofnun þess 1950. Formaður Bún-
aðarfélags Borgarhafnarhrepps í
nær 40 ár og er það enn. Þá á
hann sæti í hreppsnefnd síðan
i 925 og í skattanefnd hátt á fjórða
áratug. Formaður skólanefndar um
aldarfjórðungsskeið. Var á því
tímabili byggður heimavistarbarna
skóli í sveitinni á árunum 1947—
1950. Þá var og líka byggt félags-
heimili í sveitinni upp úr 1940 og
vígt 22. júlí 1945. Var Steinþór
aðaldriffjöðrin í þessum bygginga
framkvæmdum.
Hann hefur mætt á fundum
stéttarsambands bænda frá stofn-
un þeirra samtaka sem annar full-
trúi A-Skaftfellinga.
Þá átti Steinþór frumkvæði að
fulltrúafundum bænda í sýslunni
1944 og hefur setið þá fundi síð-
an sem einn af fulltrúum Suður-
sveitar. Á meðan A-Skaftfellingar
voru í Búnaðarsambandi Austur-
lands sat Steinþór marga fundi
sambandsins.
Af þessari upptalningu má sjá
að þau eru ekki svo fá störfin sem
Steinþóri Þórðarsyni hafa verið
falin, og í öllum félagasamtökum
er hann hinn virki starfsmaður
sem vill leysa öll verkefni á sem
beztan máta. Það verður aldrei
tjáð með orðum, hve mikill feng-
ur það hefur verið ókkar fámennu
sveit að hafa slíkan mann sem
Steinþór á Hala í fylkingarbrjósti
svo lengi.
En slíka þjónustu sem Stein-
þór hefur innt af hendi fyrir okk-
ur í þessari sveit, getur aðeins sá
einn veitt, sem elskar sveitina sína
og hefur óbilandi trú á framtíð
hennar.
Steinþór er vel ritfær, þá getur
hann líka sett hugsanir sínar í
bundið mál. Eins og að líkum læt-
ur hefur hann haldið fleiri ræður
en nokkur annar hér í sveit, bæði
á skemmtisamkomum og á fund-
um, einnig við líkbörur sveitunga
sinna fyrr á árum.
Er það ætíð mikil unun að hlýða
á mál hans sem einkennist af þeim
eldi sem innra brennur.
Eg óska Steinþóri innilega til
hamingju með sjötugsafmælið og
ég þakka honum og hans ágætu
konu og fjölskyldu góð kynni. Von
mín er sú að við öll fáum að njóta
starfskrafta hans enn um mörg ár.
H.
þá hittum við hann báðar, systurn-
ar. Því munum við aldrei gleyma
og áreiðanlega enginn, sem átti
þess kost að hitta þau hjónin í
þeirri heimsókn.
Heillaóskir í vegarnesti
— Hvernig er nú að vera kom-
in heim til íslands eftir svona
langa fjarveru?
— Það er alveg dásamlegt.
Reyndar trúum við því naumast
enn þá að við séum komnar heim.
Við höfum svo mikið að gera að
skoða okkur um og hitta frænd-
ur og kunningja, og allir eru okk-
ur svo góðir og taka okkur svo
vel. Við verðum áreiðanlega ekki
í vandræðum með að eyða þessum
tíma, sem við höfum til umráða.
— Við erum búnar að hlakka til
þessarar ferðar í tvö ár og höfum
enn ekki orðið fyrir vonbrigðum.
Enda hlýtur allt að ganga vel, því
að við fengum svo margar heilla-
óskir í vegarnesti, sögðu systurn-
ar, Áslaug og Ásrún, að lokum.
— k.
Sænsk
AGA
koksvél
í góðu standi til sölu.
Verð: 5.000,00 kr.
Upplýsingar í síma 36232.
TÍMINN, fimmtudaglnn 14. júní 1962
f l'(
t / 1 J
! t .»
(i i
i I i i
i i i i i f