Tíminn - 14.06.1962, Side 14

Tíminn - 14.06.1962, Side 14
Fyrri hluti: Undanhald, eftir Arthur Bryant Heimildir eru STRIÐSDAGBÆKUR ALANBROOKE fundur, þar sem aðallega var rætt um það, hvaða stuðnings mætti vænta frá Möltu við hernaðarað- gerðir gegn Túnis. Allt er undir því komi, að skipalest komist með heilu og höldnu til Möltu og verði affermd þar . . . Fréttir frá Túnis fremur óljósar. Vona bara, að Anderson sæki nógu hratt fram. Svo virðist sem Benghazi muni verða hertekið innan næstu tutt- ugu og fjögurra klukkustunda. 20. nóvemiber: Skipalestin til Möltu, samtals fjögur skip, komst slysalaust á leiðarenda. Þetta tryggir öryggi eyjarinnar enn um skeið. Árásir á Túnis og Bizerta ekki eins fljótvirkar og ég hefði viljað, ag;. þær væru og þýzkir og ítalskir liðsaukar sendir tiltölu- lega hindrunarlaust . . . 21. nóvember: Venjulegur her- foringjaráðsfundur og ráðherra- fundur klukkan 12 til að ræða um hið fyrirhugaða samkomulag þeirra Eisenhowers og Darlans. Að mínum dómi er ekki um neitt annað að ræða en samþykkja starf Darlans og halda áfram að hrekja Þjóðverja út úr Túnis . . . Mánudagur 23. nóvember. Kom aftur til hermálaráðuneytisins klukkan rúmlega 8 f. m. Mikill fjöldi af símskeytum, landakort- um og skýrslum, sem athuga þarf fyrir klukkan 10,30 f. h. Því næst herforingjafundur til hádegis. Eftir hádegisverð nokkur viðtöl. Ráðherrafundur frá klukkan 5,30 e. h. til 7,30, þar sem ég varð að leggja fram langt og nákvæmt yfirlit yfir gang stríðsins síðast liðna viku. Loks viðræður við forsætisráðherrann frá klukkan 10 e. h. til 12,45 e. m. um skipa- ferðir til Rússlands, sendingu flug vélamóðurskips til Kyrrahafsins o. s. frv. Hernaðaraðgerðir í Túnis ekki eins 'Skjótar og þær ættu að vera. Auk þess hefur Monly orðið fyrir tilfinnanlegum töfum vegna óhag stæðrar veðráttu. Af því leiðir svo það, að Rommel fær lengri tima en æskilegt er til að undjr- búa sig. Ég var farinn að hafa áhyggj- ur af seinaganginum í Norður- Afríku. Eis'enhower virtist ekki gera sér grein fyrir nauðsyn þess ag flýta aðgerðunum í Túnis, áð- ur en Þjóðverjar styrktu varnir sínar þar, enda þótt skjótar og ákveðnar aðgerðir hefðu einmitt þá verið ómetanlegar. Eisenhower var þá of niðursokkinn í hin stjórnmálalegu sjónarmið. Hann hefði átt að láta fulltrúa sinn, Clark, annast þau atriði, en helga sig sjálfan þeim hernaðarlegu . . . Þess verður að minnast, að Eisen- hower hafði ekki svo mikið sem stjórnað einu herfylki í stríði, þegar hann var skipaður yfirmað- ur herliðs í Norður-Afríku Því var engin furða, þótt hann vissi naumast, hvag gera skyldi og ein- beitti sér að hinum pólitísku at- riðum á kostnað hinna hernaðar- legu. Ég hafði litla trú á hæfileik- um hans til að fást við þær hern aðarlegu aðstæður, er við honum blöstu og hafði miklar áhyggjur hans vegna. Hann lærði mikið í stríðinu, en herlist og herstjórn voru aldrei hans sterka hlið . . 25. nóvember: Langur og mjög erfiður herforingjafundur, þar sem við reyndum að komast að SÚ einhverri niðurstöðu með væntan legar aðgerðir á Miðjarðarhafinu. 27. nóvember: Aftur langur fundur, þar sem aðallega var rætt um yfirráð á Miðjarðarhafinu o.g æðstu herstjórn þar. Eina lausn- in held ég, að sé sameinug her- stjórn í Norður-Afríku undir stjórn yfirhershöfðingja (Eisen- hower) og þrískipting Austur-Mið jarðarhafssvæðisins, með marka- línu yfir Tripoli-Túnis landamær- in, framlengda allt til Corfu, svo að hún nái þannig yfir Möltu 30. nóvember: Herforingjafund- ur, þar sem við rannsökuðum nýj ustu hugmynd forsætisráðherrans um innrás á meginlandið árið 1943. Eftir hádegisverð samtal við ráðherra um hinar nýju tillögur forsætisráðherrans. Hann er aldr- ei háður raunveruleikanum: Aðra stundina vill hann láta fækka í hernurn, en hina stundina hvetur hann til .innrásar á meginlandið með svo miklum her, að við gæt- um aldrei útvegað nægan skipa- kost til að flytja hann ... Hann er alveg óforbetranlegur, og ég er gersamlega örmagna . . Ráðuneytis'fundur frá klukkan 5,30 til 8 e. m., og nú hefst annar fundur með forsætisráðherranum klukkan 10,30 til þess að ræða um enn ómögulegri áform viðvíkjandi endúrvinning Burma, og gug má vita, hvenær þeim fundi lýkur Nú er klukkan 1 e. m og ég er nýkominn frá fundinum í dag er ég búinn að vera eitt ár í núver- andi starfi mínu, og það er ekki mín trú, að ég muni verða það fullt ár til viðbótar. Aldur eða þreyta mun neyða mig til að hætta því, áður en annað ár er liðið. Þetta hefur verið eitt erfið- asta ár ævi minnar, en einnig dásamlegt á margan hátt. Við lok þriðju vikunnar hélt ég, að ég væri búinn að vera og að mér myndi aldrei takast að gegna starf inu á viðunandi hátt. Forsætisráð herrann var stundum óskaplega erfiður og þreytandi, en vegna hinna frábæru kosta hans og eig- inlcika getur maður fyrirgefið honum allt. Strangur húsbóndi og sá erfiðasti maður að vinna hjá, sem ég hef nokkru sinni kynnzt, en það eru ómetanleg for- réttindi að fá að starfa með slík- um manni . . . Og þrátt fyrir alla erfiðleikana, þá byrja ég þetta nýja ár með miklum og björtum framtíðarvonum 3. desember: Herforingjafund- ur, þar sem lagt var fyrir okkur nýtt skjal frá forsætisráðherran- um. Hann er nú aftur farinn að berjast fyrir myndun vesturvíg- stöðva á árinu 1943. Eftir að hafa hvatt til árása á Sardiniu og Sik- iley, er hann nú að hverfa frá þvi til hugsanlegrar innrásar í Frakk- land árið 1943. Snæddi hádegisverð með de Gaulle. Hann var í tiltölulega góðu skapi, en mjög beiskyrtur um Darlan . . . klukkan 5,30 um kvöldið fundur með forsætisráð- herranum, Attlee, Eden og Leath ers. Mér var það fullkomlega ljóst, að enn var ekki kominn tími til myndunar nýrra vestuirvígstöðva og myndi ekki koma á árinu 1943. Ég fann, að við yrðum að halda okkur við hina upphaflegu stefnu mína, sem ég hafði aldrei hvarfl- að frá, þ. e. að byrja með því að hernema Norður-Afríku, svo að hægt yrði að enduropna Miðjarð- arhafið og frelsa því næst Frakk- land. Auðvitað var allt undir því komið, að Rússland skærist ekki úr leik, en í árslok 1942 virtjst mér slíkt ekki beinlínis líklegt. Rússar höfðu nú staðizt árásirnar á Moskvu, Leningrad og Stalin- grad og urðu öflugri og betur út- búnir með hverjum deginum sem leið. Það virtist ólíklegt, að upp- gjöf þeirra væri á næstu grösum. Til þessa hafði mér tekizt að tryggja mér samþykki Winstons, en nú var hann skyndilega alger- lega mótfallinn minni stefnu og vildi fyrst og fremst stofna vest- 70 án ára strákur gæti teymt einn hest á sléttu túni, þótt viljugur sé. Þér gerið svo vel að ganga i bæinnf‘. Fylgdi hún nú Jónasi til stofu. Er Sólveig frétti, hver kominn var, flýtti hún sér á fund gests- ins. Það varð fagnaðarfundur með þeim Jónasi. — Nú er ég kominn til þín fyrir fullt og allt, ef þú vilt við mér taka, sagði Jónas. — Guði sé lof, mælti Sólveig. — Vertu velkominn. Þau settust á sama bekkinn, héldust í hendur og hölluðu sér hvort að öðru. Og Jónas fór að ■segja henni frá sýslumanninum í Hvammi. Hvað hann hefði fyrir þau gert og ætlaði að gera. Jónas var í engum vafa um, að sýslumað ur hefði greitt úr flækjunni. Þá sagði hann henni frá Valgerði og hversu vel hún hefði brugðizt við um það er lauk og frú Ragnheiði, kveðju hennar og árnaðaróskum. Sólveig blessaði allt og alla. En mest fannst henni til um gjöf Val- gerðar. Hún hét sér því að launa henni vel, ef þess væri kostur. Og það setti að Sólveigu óljósan grun um, að Valgerður kenndi djúpra sárinda, þó að hún léti sem ekkert væri. Það hvarflaði að henni vísuhelmingur, sem amma hennar og nafna raulaði stundum: Getur undir glaðri kinn grátið stundum hjarta. En nú var gleðistund hennar sjálfrar runnin upp, og hún gekk henni á hönd með lífi og sál. í þessu gekk Þóroddur í stofuna. — Pabbi minn, kallaði Sólveig. Elskhugi minn er kominn. Jónas spratt úr sæti, heilsaði Þóroddi og sagði til nafns síns. — Jónas Friðriksson frá Aur- um, endurtók Þóroddur. — Vertu velkominn. — Ég er kominn til að biðja um hönd dóttur þinnar. — Svar hennar er svar mitt, sagði Þóroddur hrærður. — Þá er hún mín, sagði Jónas. Hann dró öskjuna úr vasa sínum og hringinn á fingur Sólveigar. Setti hinn upp. — Ég fastna mér hér með hina fögru mey, sagði sveinninn með sigurgleði í rómn- um. — Drottinn blessi ykkur bæði tvö, sagði Þóroddur. —Elsku pabbi, sagði Sólveig. — Blessun þín eykur fögnuð minn og sælu. Jónas rétti tengdaföður sínum höndina. Þóroddur þrýsti hönd hans. Hann fann, að höndin var þétt, heit og sterk. Hann dró sveininn ag sér og kyssti hann. Þann veg var Jónas leiddur inn í fjölskylduna í Ási. — Hvar er hnakktaskan mfn? sagði Jónas. Nú fyrst veitti hann því eftirtekt, að hann stóð enn í reiðfötunum, hafði aðeins farið úr yfirhöfninni og losag sig við fótabúnaðinn og tekið af sér vettlingana. — Hérna er hún, sagði Þórodd ur og sótti töskuna fram í gang- inn. Sólveig fór nú fram eftjr þvottavatni, en Jónas skipti um föt. Meðan Jónas var að búast fór Sólveig til nöfnu sinnar og flutti henni tíðindin. — Almáttugur guð blessi þig, barnig mitt, sagði gamla frúin |: grátandi. — Þú lofar mér að sjáj mannsefnið. Á ég að koma fram? | — Nei, við komum hingað inn- an stundar, sagði Sólveig. — Hér vil ég hann taki á móti blessun! þinni. Hér áttu allt. Hér ex ríki þitt. — Hér er ríki mitt, segir þú, barnið gott. Já, hér er ríki mitt. Og gamla frúin hélt áfram ag end urtaka það. — Hér er ríki mitt. Hér er ríki mitt. Jæja, þá jæja. En það var þó ekki í ríki gömlu frúarinnar, sem hún óskaði Jónasi til hamingju. Þegar hér var komið, hafði Kristveig borið á borð miðdegis- verðinn, mikinn og góðan veizlu- kost, og boðið ráðsmanninum og konu hans og þá vitanlega gömlu frúnni. Kristveig vildi sýna það, að hún hefði af nokkru að taka enda þótt þetta borðhald bæri að höndum fyrirvaralaust. Það var ekki við það komandi hjá Kristveigu að Sólveig færi með elskhuga sinn til gömlu frú- arinnar, áður en setzt var að borg um. Frú Sólveig var sótt og leidd til sætis á aðra hönd sveininum. Frúin óskaði honum til hamingju og bauð hann velkominn. Og fórst henni það virðulega mjög. BJARNI ÚR FIRÐI: Stúdentinn í Hvammi Undir borðum ríkti hógvær gleði, er hæfði heillastund. Jónas,, sem ag jafnaði var fremur orðfár, | talaði hér ótrúlega mikið. Bæði j var það gleðin, sem lagði honum I orð á tungu og eins hitt, ag hér; hitti hann fólk, sem var fremur' hlédrægt eins og títt er um alþýðu j fólk. Þeir, sem helzt töluðu undir borðum auk Jónasar var ráðs- maðurinn og Kristveig. Rödd hennar há og hressileg skar sig úr og heyrðist langt út fyrir veggi stofunnar. Þag var ekki fyrr en seint um kvöldið, áður en gengið var til náða, að Sólveig kom með manns efni sitt inn í herbergi gömlu frúarinnar. Þar endurtók gamla frúin árnaðaróskir sínar. Bað þeim báðum velfarnaðar. Spurði frúin Jónas margs úr heimahögum. Aurar höfðu lengi verið mikilsmetinn staður. Átli merka sögu ag baki sér. Þar hafði setið að búi sama ættin öldum saman, rík ætt og ríklunduð. Og kom það nú á daginn, að frú Sól- veig vissi ekki minna ujn forsögu Auraheimilisins en sjálfur prins- inn frá Aurum, eins og hún nefndi Jónas. Meira að segja 'Spurði hún um ættargripi, sem Jónas bar engin kennsi á En margt gat hann sagt hennj samt, sem henni var fengur ag fregna um. Þau gleymdu tímanum við samræðurnar. Loks kom húsmóð- irin Kristveig og sleit samræðun um, þar sem nótt var komin Einn af góðu gleðidögum Ás- heimilisins var liðinn. xxxiv. Jónas var tæpa viku i Ási. En er hann frétti ag Aurahjónin hefðu komið skyndiferð í Hvamm,, hefðu haft þar stutta viðdvöl, snú- ^ ið svo heim aftúr án þess að heim , sækja hann i Ási. Fór Jónas nærri um erindig í Hvamm Auð- vitað hafði stjúpi hans neytt móð- ur hans með sér þessa ferð. Nú átti að buga hann. En þau komu of seint, og mættu öðrum undir- tektum í Hvammi en Sigurður hafði búizt við. Nú sá Jónas, að vegna móður sinnar þurfti hann nauðsynlega að hverfa heim. Sólveig vildi fara með honum, og varg það að ráði. Þau bjuggust við erfiðri heim- komu að Aurum. En það fór á ann an veg. Þeim var vel tekið. Og móðir Jónasar vafði Sólveigu örmum og bauð hana hjartanlega velkomna. Enda fór ekki fram hjá henni, atgjörvi ungmeyjarinn- ar. Sigurður var hress. — Ég verð að kyssa á hönd drottningarinnar, sagði hann, er hann heilsaði Sólveigu. — Eg sé það, eins og strákurinn, að þú ert gullfalleg, vonandi fylgja þér mannheillir inn í Auraættina. Sólveigu var ekkert um Sig- urð. En við svona óvæntar mót- tökur mátti það ekki koma fram. Og aldrei. Því hét hún sjálfri sér. Hún var því einarðleg og kurteis í senn. Og kannske aldrei frem- ur en nú, reis æskublómi hennar í fullum skrúða. Við móttökurn- ar í Aurum bar hún það með sér, að hún var vís til ættarheilla. 14 T í M I N N , fimmtudaginn 14. júní 1967

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.