Tíminn - 15.06.1962, Blaðsíða 13
SVAMPBLÚSSAN
Fis-létt
Heit í kulda * * * * Svöl í hita
NÝTT FURÐUEFNI * ORLON JERSEY
Vatnsþétt * * * Þolir Jivott
Þolir hreinsun
Söluumboð: * ‘
Solido
Hverfisgötu 32
Sími 18950 — 18860
Hótel Bifröst
opnar gistlngu og
veitingasölu
í dag
Veitingar
á landsmóti hestamannafélaga a3 Skógahólum
við Þingvöll 13.—15. júlí n.k.
Tilboð óskast í tjaldveitingaleyfi, og sé þeim skil-
að fyrir 24. júní í skrifstofu Fáks að Klapparstíg
25—27, sem gefur allar nánari upplýsingar.
-Trúlofunarhringar -
Fljót aígreiösla.
GUÐM ÞORSTEINSSON
gullsmiður
Bankastræti 12.
Sími 14007
Sendum gegn póstkröfu.
TRULOFUNAR
R
1
N
G
A
R
ULRICH FALKNER
AMTMANNSSTÍG 2
PILTAP.
EFÞIÐ E/GIP UNHUSTUNA
ÞÁ Á tO HRINOANA /
Trúlofunar>
hringar
afgreiddir
samdægurs
Sendum um allt land
HALLDOR SIGURÐSSON'
Skólavörðustig 2
Messubók
Framhald af 9. síðu.
úr Messusöngbók Guðbrands
biskups Þorlákssonar frá 1594 og
Kollekturnar úr Handbók Mar-
teins biskups Einarssonar frá
1555. Á þessu má sjá, að þessir
liðir hafa löngu unnið sér tilveru-
rétt í tilbeiðsluformi lúterskra og
annarra kristinna manna bæði hér
á landi og annars staðar, og ber
því að fagna því, að þeim hefir nú
aftur verið fengið það rúm í ís-
lenzkri messu, er þeir áður höfðu
og þeim ber. Eg vil sérstaklega
minnast á Kollekturnar. Þær eru
allar með tölu hreinir dýrgripir,
þær eru það vegna þess, að þær
era í „samhljóman við .Guðs orð
og dýpstu þarfir og þrár manns-
hjartans.“ (J. W. Doberstein).
Þegsar bænir eru tærar í ein-
faldleíka sínum, sannar og hlýj-
ar. Eg tek hér sem dæmi Kollektu
fyrir 3. sd. í Aðventu: „Drottinn,
vér biðjum þig: Hneig eyra þitt
að bænum vorum og lýs upp myrk
ur hjarta vorra með vitjan þinn-
ar náðar. Þú, sem lifir og ríkir
með Guði Föður og Heilögum
Anda. Einn Guð um aldir alda.“
Þegar þesar bænir eru bornar
saman við Kollektur Helgisiða-,
bókarinnar frá 1934, þá er það i
auðsætt, að gömlu kollekturnar |
standa hinum yngri miklu fram-
ar. Eg hefi ekki borið Guðspjöll
og Pistlaraðir saman við Helgi-
siðabókin frá 1934, en mér sýn-
ist fljótt á litið að mismunurinn
sé ekki mikill þegar frá eru skild-
ir textar fyrir miðvikudaga og
föstudaga.
í heild er það að segja um þenn
an þátt bókarinnar, að hann er
mikill fjársjóður. Því miður hafa
slæðzt inn í þennan hluta bókar-
innar nokkrar prentvillur, sem ég
læt vera að tína fram. Þriðji þátt-
ur bókarinnar inniheldur Messur
á minningardögum. Eg geri ráð
fyrir að þessum þætti verði lang
minnstur gaumur gefinn í fram-
tíðinni, þó vil ég ekki gerast neinn
spámaður í þeim efnum. Artíð-
ardagur, Þakkargjörð fyrir upp-
skeru, Kristniboðsmessa og Kirkju
dagsmessa eru þó liðir, sem vert
er að gefa gaum. í sambandi við
efni þessara tveggja þátta, Breyti-
legu liði Messunnar og Messur á
minningardögum er sérstaklega
getið um liti á skrúða prestsins
á hinum mismunandi tímum
kirkjuársins. Hér er um sjálfsagð-
an hlut að ræða. Kirkjur landsins
hafa margar hverjar auðgazt af
kirkjugripum á undanfömum ár-
um, og er allt útlit fyrir að áfram
hald verði á því í framtíðinni, og
ætti að vera hægt að sjá til þess
að kirkjurnar eignist fleiri en einn
hökul og þeir verði þá ekki allir
rauðir. Gaman væri að ræða um
breytingar á íslenzkum prests-
skrúða á öðrum vettvangi.
Þeir hlutar bókarinnar, sem
ótaldir eru, eru þessir: Kirkjuárs
rímtal, þ.e. tafla yfir sunnudaga
og hátíðir frá 1961—1981. Bókar-
kynning, þar sem efni bókarinnar
er kynnt mjög ýtarlega, og síðan
gefnar ráðleggingar um notkun
hennar.
Allur ytri frágangur bókarinnar
er mjög til fyrirmyndar. Hún er
prentuð á kremgulan pappír í
tveimur litum, svörtum og rauð-
um, þar sem he^gisiðareglumar
eru prentaðar í rauðum lit en ann-
að í svörtum. Uppsetningin er öll
hin greinilegasta. Á titilblaði er
tákn Heilagrar þrenningar, tekin
af silfurpatínu frá fyrri hluta 14.
aldar, og er það vel viðeigandi.
Ekki kann ég þó við efnið, sem
bókin er bundin í, og gott hefði
verið að hafa i henni bókmerk-
isborða. En slíkt eru smáatriði.
Þessi bók séra Sigurðar er mik-
ið þrekvirki og veglegt verk til
dýrðar Drottni vorum. Utgefend-
urnir eiga einnig þakklæti skilið
fyrir framtak sitt, og megi það
verða þeim til blessunar. Þessi
bók þarf að komast í hendur allra
sóknarpresta íslenzkra sem fyrst,
einnig sóknarnefndarformanna og
annarra áhuga og áhrifamanna um
íslenzk kirkjumál. Messuformið,
sem bókin flytur, þarf þannig að
komast rétta boðleið til safnað-
anna, svo þeir geti farið að nota
það í kirkjum sínum og læra með
því að syngja Drottni sínum lof
og gefa Guði alla dýrð'ina.
Laufási, pálmasunnudag 19621
J. B.
Ferðafólk
Eins og að undanförnu, starfræki ég sumargisti-
húsí Kvennaskólanum, Blönduósi.
Matur og aðrar veitingar eru á boðstólum allan
daginn.
VeriS velkomin.
Steinunn Hafstað.
Aðalskoðun bifreiða
í DALASÝSLU 1962
Aðalskoðun bifreiða í Dalasýslu fer fram sem hér
segir:
Búðardal miðvikudaginn 20. júní kl. 10—12 f.h.
og 1—5,30 s.d.
Búðardal fimmtudaginn 21. júní kl. 10—12 f.h.
og 1—5,30 s.d.
Skriðulandi i Saurbæ föstudaginn 22. júní kl.
10—12 f.h. og 1—4,30 s.d. .
Allir eigendur eða umráðamenn bifreiða skulu
færa þær til skoðunar á tilskildum tíma, greiða
af þeim lögboðin gjöld, sýna gild ökuskírteini og
skoðunarvottorð ennfremur kvittun fyrir greiðslu
á afnotagjaidi útvarps.ef það er i bifreiðinni.
Vanræki einhver að færa bifreið sína til skoðun-
ar verður hann látinn sæta ábyrgð lögum sam-
kvæmt.
Skrifstofu Dalasýslu, 4. júní 1962.
Sýslumaður Dalasýslu.
T f MI N N , föstudaginn 15. júní 1962
13