Tíminn - 15.06.1962, Blaðsíða 15
Annar hver bíll
Framhald af 1. síðu.
selst talsver t af öllum gerðum
þeirra, en mest af Consul 315 og
Zephyr 4. Sennilega hafa yfir 200
bílar verið fluttir inn af þeim á
árinu. Frá Þýzkalandi er Opelinn
langvinsælastur, en bifreiðadeild
SÍS hefur flutt inn tæplega 70
slíka þessa mánuði. Mercedes Benz
hefur einnig selzt vel, eða yfir 40
samtals af hinum ýmsn geiðum
hans. Af öðrum vel seldum tegund
um má nefna Vauxhall og Hill-
man, sem báðar eru enskar teg-
undir.
Dragnótaveiðin
Framhald af 3. síðu.
línu úr Hafnarnesvita að sunnan
í Vattarnes að norðan, 3) inn-
fjarða á Vestfjörðum. Þá hefur
ráðuneytið ákvarðað, að bátum
innan lögmætra stærðarmarka,
sem skráðir eru og gerðir hafa
verið út frá verstöðvum á þess-
um svæðum, skuli veitt leyfi til
an veiða hvar sem er á svæðun-
um.
Brennslugas
Framhald af 16. síðu.
mynd. Gasknúning er talin vera
bæði ódýrari og tækin endingar-
betri en við venjulegan benzínkún-
ing. Einkum kemur þetta fram við
akstur í stórborgum, þar sem farið
er stuttar vegalengdir í einu.
Oktavatal gassins er 110. Það er
litar- og lyktarlaust, en til þess að
hægt sé að verða vart við það, hef-
ur lytarefni verið bætt í það. Það
efni brennur ekki, og kemur því
sama lykt fram í úrgangsefnunum,
en hún er á engan hátt óþægileg.
Gasið er ekki eitrað, og eldhætta
í sambandi við notkun þess er tal-
in vera um fjórðungi minni en í
sambandi við benzínnotkun.
Blað'ið hefur frétt á skotspónum,
að einhverjir íslendingar hafi sótt
um umboð fyrir gasútbúnað fyrir
bíla, og enn fremur, að einn bíll
hérlendis hafi þegar útbúnað til
að brenna gasi.
Nýr Kiljan
Framhald af 16. síðu.
Vort land er í dögun, útdrættir
úr ritgerðum eftir Einar Olgeirs-
son. Ræður og riss, eftir Sverri
Kristjánsso11. Andlit Asíu, en það
er ferðasaga eftir Rannveigu
Tómasdóttur, myndskreytt af Bar
böru Árnason. Elztu hetjukvæði
Eddu með inngangi og skýring-
um eftir Jón Helgason prófessor,
og loks tólfta bókin, sem ekki er
enn fyllilega ákveðin.
Bridge
Framhald af 12. síðu.
um eftirmiödaginn. — Mótið mun
standa yfir í fimm daga — og er
mjög erfitt, einkum í opna flokkn-
um, þar sem spilaðar eru tvær um-
ferðir á dag flesta dagana. Margir
kunnir bridgespilarar taka þátt í
mótinu og má þar til dæmis nefna
Jan Wohlin, sem spilar i A-sveit
Svíþjóðar, en hann er einn kunn-
asti bridgespilari heimsins. Félagi
hans í sveitinni er Per Lundell,
en einnig spilar í A-sveitinni hinn
kunni spilari Lars Zachrison. —
Norsku spilararnir eru flestir ný-
liðar í keppni erlendis, en þó má
nefna þar Stang-Wollf og Per Enge
bretssen, sem spila í B-sveitinni.
í dönsku A-sveitinni eru tvær
konur. þær Otti Dam og Rigmor
Frænckel — en í B-sveitinni Werde
lin-bræðurnir.
Sítja alþjóðajjing
Framhald af 3. síðu.
mun verða haldið áfram, ef vel
tekst til. Fararstjóri erlendu stú-
dentanna hefur verið ráðinn Árni
Stefánsson, skólastjóri.
Stúdentablaðið, sem stúdentaráð
gefur út, hefur nú breytt um bún-
ing og er léttari blær yfir því en
áður. Næsta hefti blaðsins mun
koma út 17. júní og verður þá selt
á götum borgarinnar. Ritstjórar
Stúdentablaðsins eru nú Steingrim
ur Gautur Kristjánsson, stud. jur.,
og Þorvaldur G. Einarsson, stud.
jur.
Stúdentaráð hefur að nokkru tek
ið þátt í aðstoð til vanþróaðra
landa heims. Hefur nokkurt fram-
lag frá því verið veitt til baráttu
gegn ólæsi í Bólívíu. Þá hefur ráð-
ið í hyggju að bjóða hingað til
lands einhverjum stúdentaleiðtoga
frá Afríku til þriggja mánaða dval
ar, og skal hann kynna sér þjóð-
félagsmál, menntamál og félagslíf
háskólastúdenta og annað slíkt.
Þetta er þó enn á undirbúnings-
stigi, en vonir standa til að af
þessu megi verða.
Annars háir húsnæðisleysi mjög
starfsemi ráðsins og telja forráða-
menn þess byggingu félagsheimilis
vera eitt brýnasta verkefnið á næst
unni. Formaður stúdentaráðs er
eins og áður segir Jón E. Ragnars-
son og framkvæmdastjóri þess Ás-
laug Qttesen, stud. jur.
Alsír
Framhald af 1. síðu.
OAS-samtökin í Alsír gáfu í dag
út áskorun til allra Evrópumanna
í Alsír þess efnis, að þeir flytjist
til fimm ákveðinna bæja í Alsír,
sem yrðu eins konar bækistöðvar
Evrópumanna, verndaðar með her
afla OAS-manna.
Áskorun þessi var lesin upp í
leynilegri útvarpsstöð samtakanna,
og var þar sagt, að bæirnir Oran,
Mostaganem, Perregaux, Arzew og
Sidi Bel Abbes, hefðu orðið fyrir
valinu.
í áskoruninni var sagt, að ef
fólk vildi fara að þessum ráðum
samtakanna, myndu verða stofn-
aðar þarna eins konar Evrópu-
mannanýlendur, sem yrðu tryggi-
lega varðar árásum utanaðkomandi
aðila.
Skólar brenndir
OAS-menn héldu áfram hryðju-
verkum sínum í dag og er kunnugt
um 11 Serki, sem myrtir hafa ver-
ið, og sex særðust hættulega í ár-
ásum grímuklæddra nianna í út-
jaðri smábæjar, skammt frá Sidi
Bel Abbes.
í Mostaganem og Sidi Bel Abb-
es voru sjö skólar brenndir til
grunna og í Oran mátti heyra
sprengjudyn og skothríð nær lát-
laust fyrri part dagsins.
Fólksflótti
Frá Túnis berast þær fréttir, að
alsírskir þjóðernissinnar, sem þar
hafast við í útlegð, séu nú farnir
að hugsa sér til hreyfings og und-
irbúi af kappi ferð sína til Alsír,
er þjóðaratkvæðagreiðslan er um
garð gengin.
Fréttir herma, að ekkert lát sé
á fólksstraumnum U1 Frakklands,
og í dag mátti sjá biðraðir fólks
fyrir utan skrifstofur franska flug-
félagsins Air France, en flugfélag
ið byrjar nú reglulegar flugferðir
frá Alsír að nýju, en starfsemi
flugfélagsins í Alsír hefur legið
niðri síðan 1. apríl, að skrifstofun-
um var lokað, vegna endurtekinna
hótana OAS-manna.
Erlent yfirlit
Framhald af 7. síðu.
átt þar sæti síðan. Ilann hélt
þá málflutningsstörfum sínum
áfram allt til ársins 1958, er
hann gerðist innanríkisráðherra
stjórnarinnar í Nordrhein-West
falen. Á seinustu árum hefur
hann látið stjórnmálin í vaxandi
mæli til sín taka og unnið sér
slíkt álit, að hann hefur nú ver
ið settur í eitt vandasamasta
embætti flokksins. Þetta á hann
ekki cízt að þakka því, að hann
er ræðumaður góður, laginn
samningamaður og snjall skipu
leggjari.
Það mun og ekki heldur hafa
spillt fyrir honum, að hann hef-
ur sýnt við ýmis tækifæri, að
hann þorir að segja Adenauer
meiningu sína. Þ. Þ.
Ný andatjörn
Framhald af 8. síðu.
Eru það ákafir eggjasafnarar,
sem þannig fara að ráði sínu,
en einnig leikur grunur á, að
menn fari á „andafund" í morg
unsárið til þess eins að afla sér
eggja í morgunmatinn. — Svo
langt er nú gengið í sparnaðin-
um.
Vel aldir fuglar
Þegar andaflutningar miklu
urðu árið 1956, var ráðinn um-
sjónarmaður við Tjörnina.
Hann heitir Sigurður Samúels-
son.
Fréttamenn voru beðnir að
leiðrétta þann leiða misskilning,
sem virðist ríkjandi meðal
þorra fólks, að fuglarnir á
Tjörninni séu vannærðir. Raun-
in er sú, að þeir eru allt að
þrisvar sinnum feitari en frænd
ur þeirra, sem annars sttðar
búa.
Umsjónarmenn sjá þeim allt-
af fyrir nægum mat, fiskúr-
gangi, korni, brauði og krækl-
ingi. Æðarfuglinn er sérstak-
lega hrifinn af kræklingnum,
og er hann sóttur inn í Grafar-
vog á sumrin, en alla leið upp
í Hvalfjörð á veturna. Má af
því marka, að nokkuð er fyrir
þeim haft.
Starf þessara ágætu manna
við Tjörnina er þakkarvert. Það
er ánægjuauki öllum þeim
mörgu, sem unna fögru um-
hverfi og fjölbreyttu fuglalífi.
— k.
Snjór á Austurlandi
Framhald af 16. síðu.
un. Nokkur beygur er nú í fjáreig-
endum, að lömb krókni, ef þessu
hrakviðri heldur áfram. — V.S.
Eskif jörSur
Hér hefur verið stórrigning og
stormur í sólarhring, en miklu
verra í dag en í nótt. Mikill vöxtur
er í lækjum. Vegaskemmdir eru
ókannaðar enda fáir á ferli. Má
gera ráð 'fyrir, að talsvert hafi runn
ið úr vegum. — Á.J.
ReyðarfjörSur
Vatnsveðrið hefur s-taðið í dag
og nótt, aurskriður hafa fallið á
vegi og Oddsskarð lokaðist vegna
snjókomu. Þá er farið að renna úr
vegum, en um stórskemmdir er þó
varla að ræða enn sem komið er.
— M.S.
Djúpivogur
Óveðrið skall yfir um klukkan 1
í nótt. Síðan hefur verið látlaus
vatnskoma. í dag hefur verið ófært
upp á Hérað, strax á Berufjarðar-
ströndinni er slíkur vöxtur i óbrú-
uðum lækjum, að bílar komast
ekki yfir þá Nýbornar ær eru
heima við hjá flestum bændum,
, svo að ekki er gert ráð fyrir lamba-
í dauða vegna illveðurs. — Þ.S.
Þökkum hjartanlega auðsýnda vinsemd og virðlngu vi3 and-
lát og jarSarför
Bergsteins Sveinssonar,
Brennu, Eyrarbakka.
Einnig þakkir til þeirra, er auðsýndu ómetanlega hjálp í
veikindum hans. Aðstandendur.
Frá A-Berlín
Framhald af 4. síðu.
að hið bezta er selt til útianda.
Auk þess er langur biðtími eft-
ir þeim flestum, kæliskápum,
sjónvarpstækjum, þvottavélum
o.f. Stundum er heldur alls
ekki tekið á móti pöntunum.
Þeir fáu, sem hafa efni á að
kaupa sér bíla, verða að bíða
í um tvö ár eftir afhendingu og
er auðvitað ekki um aðra bíla
að ræða en austur-evrópska, er
þykja misjafnir að gæðum.
Svipuð laun en minni
kaupmáttur
— Hvernig eru launin?
— Satt að segja veit ég það
ekki svo vel af eigin reynd,
enda lítið reynt að kynna mér
þau mál nákvæmlega. Þó veit
ég, að iðnaðarmenn í þungaiðr,-
aði og prentsmiðjum eru launa-
hæstir. Sonur minn er prent-
ari og f.ær hann eitthvað á
fimmta hundrað mörk að greidd
um tryggingagjöldum og skatti.
í iðnaðinum tíðkast mjög á-
kvæðisvinna, sem menn revr.d-
ar kenna að sumu leyti um
slæm vörugæði, og er því erf-
itt að segja nákvæmlega til urn
laun. Annars munu laun hér
vera að jafnaði eitthvað lægri
að markafjölda en í Vescur-
Þýzkalandi. Aðalmunur lífskjar
anna er fólginn í því, hve kaup-
máttur marksins er raunveru-
lega mun lægri hérna, oæði
vegna vöruskorts og minni vö'u
gæða. Meðan eðlilegt samband
var milli borgarhlutanna, var
eitt vestur-þýzkt mark selt íyrir
fjögur austur-þýzk á frjálsum
markaði. Mikill flóttamanna-
straumur kann að einhverju
leyti að hafa valdið þessu lága
gengi austurjþýzka marksins, en
þetta gengi gefur samt nokkra
hugmynd um hlutfallið milli
hins raunverulega kaupmáUsr
markanna.
— Hvernig er sjúkraþjón-
usta hcr og tryggingar, sem alls
staðar er mesta ágæti hinna
sósíalistísku ríkja?
— Eitt verð ég að fá að segja
gott um austur-þýzka ríkið.
Læknaþjónusta er hér með á-
gætum og öll ókeypis, lyf,
sjúkrahúsvist og allt, sem að
læknismeðferð lýtur. Einnig
gleraugu getum við fengið, ef
þörf_ er á, ókeypis þriðja hvert
ár. Á tveggja ára fresti er hér
líka ókeypis röntgenskoðun,
sem allir fara til, og fleira er
gert af slíku tagi, sem til fyrir-
myndar er.
— Og ellilaun?
— Ellistyrkur er lágur miðað
við Iaun, venjulega aðeins 125
mörk á mánuði. Karlar fá elli-
styrk eftir 65 ára aldur, en kon-
ur eftir sextugt. En vinni
menn fram yfir þann aldur, fá
þeir full laun og ellistyrk að
auki, greiða skatt af vinnulaun-
um sínum, en þurfa ekki að
borga þann 10% tryggingaskatt,
sem allir borga annars af laun-
um sínum. Geti menn ekki sótt
vinnu vegna veikinda, fá menn
fyrst í stað 90% launa, en hve
lengi veit ég satt að segja ekki.
Hermannaekkjur frá síðasta
stríði, en fjöldi þeirra er mikill,
fá hins vegar engan styrk, sem
þær fá vestan megin, hvort sem
þær vinna úti eða ekki, og þyk-
ir mörgum ekkjum þetta slæmt
hér. Ekkjur fallinna kommún-
ista eða manna úr andspyrnu-
hreyfingunni fá hins vegar há-
an ekknastyrk.
Sá, sem er réttum megin i
stjórnmálunum og vinnur vel
fyrir flokkinn, hann nýtur allt-
af einhverra beinna eða óbeinna
forréttinda og hjá þjóð minni
virðast því miður alltaf vera
nokkuð margir, sem vilja nota
sér slík tækifæri. Hitlerstíminn
sýndi það, þótt nú þykist auðvit
að enginn hafa nálægt þeim fé-
lögum komið.
Framhald í næsta blaði.
TRIUMPH HERÁLD
• Brezkur bíll
• 93% útsýni
• Kraftmikill
• Ryðvarinn
• Sérbyggð grind
• Standard gæði
Almenna
I
verzlunarfélagið
Laugavegi 168
Sími 10199.
h.f.
Akið AKIÐ
nýjjum bíl SJÁLF
Almenna bifreiðaleigan h.t. Hringbraut 106 — Sími 1513 NÝJUM BÍL ALM. BIFREIÐALEIGAN
KLAPPARSTÍS 40
KEFLAVIK SÍMI 13776
Kaaherskaffi
Braga —
Santons —
Rydens —
Frimacokaffi
Kvikk —
Nescafe —
Maxvell —
Sími 20270
lt>
T í M I N N , föstudaginn 15. júní 1962