Tíminn - 15.06.1962, Blaðsíða 16
1 •
Á myndinni getor að líta langa biðröð fólks fyrir utan heilsuverndarstöðina í Kaupmannahöfn, en fólkið bíður eftir bólusetningu. Eins og kunnugt er af fréttum, var fjögurra ára gamall
drengur, sem nýkominn var frá Nigeríu með foreldrum sínum, lagður inn á sjúkrahús í Kaupmannahöfn fyrir nokkrum dögum, þar sem grunur lék á, að hann vaeri með bólusótt. —
VKSbrögð fólks urðu mjög svipuð þeim, sem urðu hér á landi, þegar fréttirnar um bólusótt i Þýzkalandi bárust til landsins, þ.e. nokkurs konar bólusetningaræði greip fólkið.
\
133. tbl.
Föstudagur 15. júní 1962
46. árg. |
I
NÝR KILJAN OG ÞÚRBERG-
UR Á 25 ÁRA AFMÆLINU
BrennsJugas
í bifreiðar
Volvoverksmiðjurnar í Sví-
þjóð hafa nú hafið framleiðslu
á tækjum til gasknúningar
bifreiða. Kallast tæki þetta
„landi", og er komið fyrir í
bifreiðum jafnhliða benzin-
kerfi. Bílar með þessum út-
búnaði hafa þannig tvöfalt
brennslukerfi, og er hægt að
flytja milli þeirra með hand-
taki I mælaborðinu. Skiptin
gerast svo liðlega, að þeirra
verður naumast vart í bílnum.
Gasið, sem notað er til að
knýja bifreiðir, er blanda úr pro-
pan og butan, en þau efni eru úr
hópi hinna s.k. mettuðu kolvetna
eða votu gasa. Alþjóðleg skamm-
stöfun gassins er LPG (liquefied
Petroleum Gas), en meginkostur
þess er, að tiltölulega lítill þrýst-
ingur kemur því í fljótandi form,
og er það flutt og geymt í þeirri
Framhald á 15. síðu.
í tilefni af 25 ára afmæli
bókmenntafélagsins Máls og
menningar. 17. júní næstkom
andi, hefur verið ákveðið að
stofna til afmælisútgáfu 12
bóka eftir nokkra helztu rit-
höfunda og skáld þjóðarinnar.
Allar bækurnar eru frumsamin
verk íslenzkra höfunda, og er ætl
unin að vanda sérstaklega til
bókagerðarinnar. Má nefna, a'ð 12
listamenn verða fengnir til að
gera kápurnar og sjá um útlit
bókanna.
70 seld af 100 árituðum
Ákveðið hefur verið, að afmæl
isútgáfan verði aðeins í 500 ein-
tökum og verða allar 12 bækurn
ar seldar í einu lagi. 100 eintök
verða i sérstaklega vönduðum
búningi, tölusett og árituð af höf
undum, og verða þau dýrust. Hin
400 eintökin verða seld öll inn-
bundin í shirting á 2400,— krón-
uj samtals, en þær munu einnig
fást í skinni og óbundin. Nú er
hafin söfnun á kaupendum að
þessum bókum, og má nefna, að
rúmlega 70 af 100 árituðu bókun
um eru þegar seldar.
Bækurnar munu sennilega koma
allar út í einu í haust. Jafnframt
verður gefið út sérstakt afmælis
hefti af tímariti Máls og menn-
ingar og einnig ag öllum líkind
um haldin bókasýning.
Bækurnar í afmælisútgáfuni
verða þessar: Minningar úr Unu-
húsi, sem Þorbergur Þórðarsson
hefur skráð eftir Stefáni frá Hvíta
dal, og eru þessar minningar frá
þriðja og fjórða tug aldarinnar.
Skriftamál uppgjafaprests eftir
Gunnar Benediktsso11, en það er
safn elztu fyrirleslra og ritgerða
hans. Prjónastofan Sólin eftir
Kalldór Kiljan Laxness, en það er
nýtt leikrit, sem lýsir öldinni í
grímubúningi. Tuttugu erlend
kvæði, þýdd og stæld af Jóni
Helgasyni prófessor. Ný ljóðabók
eftir Jóhannes úr Kötlum. Blakk-
ar rúnir, smásögur eftir Hal'ldór
Stefá«sson. Vegurinn að brúnni,
skáldsaga eftir Stefán Jónsson.
(Framhald á 15 síðu)
SNJ0R TEPPIR
A
Ganga til Reykja-
víkur ofan úr Kjós
Blaðinu barst í gær fréttatil-
kynning frá samtökum hernáms-
andstæð'inga, þar sem segir að mið-
nefnd samtakanna hafi á fundi s.l.
miðvikudag ákveðið að hefja sum-
arstarfið með mótmælagöngu úr
Hvalfirði til Reykjavíkur um Jóns-
messuna, og „er gangan farin í því
skyni að' vekja athygli landsmanna
á fyrirætlunum Bandaríkjamanna
um kafbátastöð og flotalægi í Hval
firði,“ segir í tilkynningunni. Fyr-
irhugað er, að leggja af stað frá
Reykjavík nokkru eftir hádegi,
laugardaginn 23. júní, og ,aka að
Hvítíinesi í Kjós og halda þar
fund. Að lokum verð'ur gengið suð-
ur á Kjalarnes, þar reistar tjald-
búðir, en síðan gengið það sem
eftir er til Reykjavíkur daginn eft-
ir. Öll leiðin er tæpir 70 kílómetr.
ar.
Á miðvikudagsnóttina snjó-
aði í fjöll á Austurlandi, og á
miðvikudaginn gekk á með
krapaéljum allt niður í byggð
á fjörðunum. Nóttina eftir
byrjaði að rigna með hvass-
viðri af aust-norðaustri, og í
gær færðist veðrið í aukana
með stórfelldri vatnskomu.
Oddsskarð tepptist af snjó og
Fjarðarheiði var aðeins fær bílum
með drifi á öllum hjólum. Mikill
vöxtur er hlaupinn í ár og læki,
aurskriður afa fallið á vegi, en
skemmdir eru víða lítt kannaðar,
enda fáförult milli byggðarlaga
í þessari veðráttu. Flugferðir til
Þórshafnar og Kópaskers féllu nið
ur í gær og flugvöllurinn á Egils-
stöðum var lokaður fram eftir deg-
inum. Áætlunarvélin, sem átti að
fara til Egilsstaða klukkan þrjú,
lagði upp klukkan hálf sex.
Blaðið hafði tal af fréttariturum
í nokkrum kaupstöð'um á Austur-
landi í gær, og fer umsögn þeirra
hér á eftir:
Þórshöfn
Hé: hefur verið austan ruddaveð
ur með vatnskomu og krapa til
heiða í fyrradag. Upp úr hádegi í
gær fór að rigna á láglendi, og í
Siglufjarðarskarð
lokaðist í gær
Hofsósi, 14. júnl.
Siglufjarðarskarð lokaðist um
tíma í gær vegna fannkomu.
Komst þá ekk. nema annar áætl-
unarbíllinn út fyrir skarðið. I
morgun hafði færð batnað, og fóru
þá jeppar um skarðið. I dag er
varið að moka þar og ýta.
20 tonna þilfarsbátur var keypt-
ur hingað nýlega, og verður hann
gerður út á handfæri. Eigendur
bátsins eru Jóhann Eiríksson og
Einar Jóhannsson. N.H.
dag hefur vatnskoma haldizt með
6—7 vindstigum af aust-norðaustri.
Tjáreigendur eru smeykir um lörrib
í þessu veðurlagi. — H. G.
Vopnaf jörður
Austlægt vonzkuveður hefur
staðið hér yfir í nær tvo sólar-
hringa. Allar ár eru í hrokavexti,
en spjöll hafa ekki orðið. Gera má
ráð fyrir, að unglömbum sé hætt,
ef veðrinu fer ekki að slota. — KV.
Seyöisf jörður
Austan stórviðri með geypilegri
vatnskomu hefur staðið hér yfir í
nótt og dag. Enn hafa ekki orðið
íkemmdir, en hér eru fjórar nýjar
bryggjur i smíðum, og vita menn
ekki, hvað kann að gerast á næsta
flóði. í fyrrinótt og í gær snjóaði
í fjöll, og var Fjarðarheiði þá að-
eins fær bílum með drifi á öllum
hjólum. — I.H.
Neskaupstaður
Úrfellið er nú meira en í morg-
(Framhald á 15. síðu)
STOKKHOLMUR
- REYKJAVÍK
Svart: F. Ekströni
Svartur lék síðast 40. .. a5—a4.
Hvítur svarar með 41. Hdl—al