Tíminn - 15.06.1962, Blaðsíða 14

Tíminn - 15.06.1962, Blaðsíða 14
Fyrri hluti: Undanhald, ettir Arthur Bryunt Heimildir eru STRIÐSDAGBÆKUR ALANBROOKE urvígstöðvar á árinu 1943. „Við verðum að mynda vesturvígstögv- ar eins fljótt og við getum“, sagði hann á þessum síðdegisfundi, — „enda hétum við Stalín að gera það, þegar við vorum í Moskvu“. Þessu svaraði ég: „Nei, við hétum því ekki“. Hann starði þá á mig nokkur andartök og hefur þá sennilega minnzt þess, að hafi nokkurt loforg verið gefið, þá hafi það verið síðasta kvöldið, þeg ar hann fór til að kveðja Stalin og þegar ég var ekki viðstaddur. Hann sagði ekkert meira og virt- ist, samkvæmt dagbókinni, fús til að veita Miðjarðarhafsstefnunni fylgi sitt að nýju. Eg þekki hann samt nógu vel til þess að vita, að engin vissa væri fyrir því, að hann ætti ekki eftir að skipta enn um skoðun. Það voru nú þegar of margir, sem hvöttu til myndunar vestur- vfgstöðva. Stalin, að sjálfsögðu, Marshall, Stimson, BeaJverbrook og fleiri. 9. desember: Clark Kerr, am- bassador í Moskvu, kom að finna mig í kvöld og við ræddumst lengi við. Ifann staðfesti allt það, sem ég hef mest ótíazt, sérstaklega það hve erfitt okkur muni veitast að komast undan því að efna þau loforð, sem Winston gaf Stalín, þ. e. um stofnun vesturvígstöðva á árinu 1943. Auk þess óttast Clark Kerr þann möguleika, að þeir Hitler og Stalín kunni að gera með sér friðarsamning, ef við bregðumst hinum síðarnefnda. Persónulega gæti ég ekki hugsað mér slíkt samkomulag. Stalín myndi krefjast endurnýjunar gamalla landamæra, auk baltisku ríkjanna, hluta af Balkanskaga og margvíslegra trygginga, sem Þjóð verjar geta ekki látjð af hendi. Hvað Þjóðverja snertir, þá geta þeir ekki haldið áfram án korns frá Ukrainu og olíu frá Kákasus og Rúmeníu. Eg held því, að mjög lítil hætta sé á friðarsamningum milli Rússlands og Þýzkalands í náinni framtíð 4. desember 1942: Iierforingja- fundur þar sem við athuguðum aftur tilmæli foisætisráðherrans um innrás í Frakkland í stað hern aðaraðgerða á Miðjarðarhafssvæð- inu . . . Fréttir frá Túnis ekki sem beztar og mér lízt ekki á stefnu atburðarásarinnar þar . . . 7. desember: Rólegri mánudag- ur en venjulega. Ástandið í Norð- ur-Afríku ekki sem bezt. Eisen- hower alltof upptekinn af pólitísk um málum f sambandi við Darlan og Boissan; og fylgist ekki nægi- lega vel með framsókn Þjóðverja í Túnis og Bizerta. Ráðherrafund- ur klukkan 5,30 e. m. . . . 8. desember: Herforingjafundi lokið tiltölulega snemma. Rætt var um rág til þess að fá forsætis- ráðherrann til að hafna hugmynd inni um innrás í Frakkland 1943, vegna nauðsynlegri og vænlegri aðgerða á Miðjarðarhafi . . . 11. desember . . . Fékk í kvöld símskeyti frá Dill, með nánari skýringum á skoðunum Marshalls. Bersýnilega er skoðun hans sú, að við ættum að hætta öllum að- gerðum á Miðjarðarhafi, þegar Þjóðverjar hafa verið hraktir það an, og einbeita okkur því næst við undirbúning að innrás í Frakk- land. Eg held, að þett.a sé rangt hjá honum og as Miðjarðarhafið 31 veiti okkur langtum meiri mögu- leika til að sigra Þjóðverja bæði á sjó og í lofti . . . 15. desember: . . . Clark Kcrr, ambassador í. Moskvu lýsti því fyrir okkur, hvernig hann byggist við, að viðbrögð Stalíns yrðu, ef við gerðum engar tilraunir til inn rásar í Frakkland. Hann tók það fram, ag slíkt kynni að leiða til þess að Stalín gerði sérstaka frið arsamninga við Hitler. Eg neita algerlega að trúa á slíkan mögu- leika . . . 16. desember . . .Sátum fund með forsætisráðherranum klukk- an 6 e. m. Anthony Eden var þar líka. Winston mælti með nýjum vesturvígstöðvum, en við vorum eindregið fylgjandi hernaðarað- gerðum á Miðjarðarhafssvæðinu. Eg óttaðist það versta. Fundur- inn fór samt vel fram og mér tókst að telja honum hughvarf. Eg býst vig að hann sé nú orðinn nokkurn veginn öruggur, en ég á enn eftir að sannfæra Bandaríkja menn fyrst og því næst Stalín“. „Þetta“, skrifaði Brooke, „var mikill sigur og við höfðum komið i veg fyrir þann alvarlega mögu- leika, að Winston styddi Banda- ríkjamenn. Það gat auðvitað allt- af komið fyrir, að hann skipti aftur um skoðun, en ég var til- tölulega óhræddur um það. Af skrifum Dills til min var mér Ijóst, að það myndi verða mér mjög torvelt að telja Marshall frá fylgi hans við nýjar vesturvíg- stöðvar. Eg gerði mér heldur ekki sérlega glæstar vonir um mögu- leikann á að sannfæra Stalín, þar sem það myndi ekki samrýmast stjórnarstefnu hans að láta sann- færast ..." Samt vildi Marshall ekki láta yfirgefa Þjóðverja í Túnis. Þrem- ur dögum fyrir jól, þegar allir vegir voru orðnir að botnlausum fenjum og birgðaflutningar urðu fyrir sí-endurteknum töfum vegna loftárása á alsírskar hafnarborgir, byrjuðu Bandamenn árásir sínar á hálendi Túnis. En nú hafði 50 þús. manna her Öxulveldanna skagann á valdi sínu og hinir jlla samræmdu herir Breta, Banda- ríkjamanna og Frakka gátu ekk- ert aðhafzt. Eftir þriggja sólar- hringa lát.lausar rigningar ákvað Eisenhower að fresta öllum frek- ari aðgerðum. Alger stöðvun var nú óumflýjanleg, þangað til aftur kæmi þurrviðri meg vorinu eða Montgomery gæti hertekið Tripoli og gert árás á Túnis úr suðaustri. Frá því í enduðum nóvember hafði sú tillaga verið til athugun- ar, að hinir stjómmálalegu og hernaðarlegu leiðtogar lýðræðis- ríkjanna tveggja og Sovétríkjanna hittust á nýja árinu, ef slfkt reynd ist gerlegt. En Stalín neitaði al- gerlega að yfirgefa Moskvu og Roosevelt, sem hafnaði þeirri til- lögu Churchills að velja fsland sem fundarstað, féllst loks á það, að hitta brezka leiðtogann og ráð- gjafa hans á einhverjum vel vörð um stað í franska ríkinu. Þann 22. desember skrifaðj Brooke í dagbókina: „Roosevelt hefur sent vVinston orðsendingu, þar sem hann legg- ur til að þeir hitt.ist í Norður- Afríku, einhvers staðar nálægt Casablanca, þann 15. janúar. Þess verður því ekki langt að bíða, að við leggjum aftur af stað í ferða- lag . . . “ 11. knfl'i. Alla fyrstu vikuna voru bæði Bretar og Bandaríkjamenn að fullgera þær áætlanir, sem þejr hugðust leggja fram á sameigin- legum fundi í Casablanca. Bret- um var fullkomlega ljóst, hvað þeir vildu. Þeir lögðu það til, að strax, þegar búið væri ag sigra her Möndulríkjanna i Afríku og enduropna Miðjarðarhafið fyrir skip Bandamanna, skyldi brezkur og bandarískur land-, sjó- og flug- her gera árás á Suður-Evrópu — þar sem Möndulríkin væru veik- ust fyrir. Það mundi brjóta niður 71 Þag sáu líka allir. Og því var það, að innan stundar var hún orðin gleði ættarinnar og stolt Þeirri reisn hélt hún til æviloka. Það vakt.i athygli og umtal, er Jónas kom að Aurum með aðra heitmey en ætlað var. Marga fýsti að sjá Sólveigu. Og allir, sem sáu hana, luku upp einum munni. Sólveig væri með falleg- ustu stúlkum, snmir sögðu falleg asta stúlkan, sem þeir höfðu aug um litið. Hafi Guðrún í Ási verið svona falleg, þá var ekki að furða, að margir yrðu til þess að biðja hennar, sagði fólkið. Saga Guð- rúnar í Ási hafði spurzt um öll nálæg héruð. Og var enn í fersku minni. Það var kirkja að Aurum. Var það forn kirkja, sterk viðuð og vel vig haldið. Séra Tómas var sóknarpresturinn. Næst er hann messaði, var kirkjan fjölsótt, var þó skammt til hvítasunnu og ferm ingar. Hefur það óefað dregið , margan til kirkjunnar, fréttin um hina ungu, efnilegu mey, sem Jónas hafði fastnað sér gegn vilja stjúpföðurins, héraðshöfðingjans Sigurðar dannebrogsmanns. Þótti sá stutti, eins og sveitungar Jór.- asar kölluðu hann nú í gamni, hafa skotið margföldum skjólstæð ingi, stjúpa, frænda og fjárhalds- •manni, ref fyrir rass. Margir hældu Jónasi óspart, þótti dugur hans, einurð og þor ganga ævin-. týri næst. Það var álit flestra, að gegn Sigurði þyrði enginn að rísa. Nú hafði Jónas hafið sókn og sigrað. Séra Tómas var í Aurum hina næstu viku við spurningar ferm- ingarbarna. Var þá oft glatt á hjalla; sungið, spilað og jafnvel riðið út sum kvöldin, er vel viðr- aði. Tók Sólveig þátt í gleðskap þessum og þótti þó jafnvel stund um um of, enda óvön slíku heim- an að. Seinna er séra Tómas fermdi á heimakirkju sinni, fóru þau þangað Jónas og Sólveig, gistu hjá presíi og nutu hinnar beztu risnu. Þá var það eitt sinn, að séra Tómas sagði við vin sinn Jónas: — Nú fer ég í Hvamm og bið mér Valgerðar, fyrst þú fórst svona að ráði þínu. — Já, gerðu það vinur, sagði Jónas. — Þar færð þú góða konu sem Valgerður er. — Nei, vinur minn. Eg sagði þetta í gamni, til þess að sjá hvort þér brygði. Eg hef þegar horft í aðra átt. En vel má vera, að ég hefði hugsað mig um, ef ég hefði vitað, að Valgerður var laus. — Nú var það Jónasi sem brá lítilsháttar. — Eg hélt ekki að prestar legðu það í vana sinn að gaspra eins og almúginn, sagði hann. — Við prestarnir erum menn eins og þið. En ég þakka þér þó fyrir vitnisburðinn, sem fólst í orðum þínum. Það er vel, að prest arnir skuli njóta almennrar virð- ingar. Þeir hafa, vona ég, almennt staðið sig sómasamlega. Þeir þögðu um stund Líklega ætlaðist prestur til þess að sam- talinu væri þar með lokið. Þessu samtali. En Jó'nas tók upp þráð- inn að nýju. — Þú sagðir, að þú hefðir horft í aðra átt. Ef þar er, átt við sjón- skynjan eina, þá segi ég við þig eins og Abraham: „Liggur ekki allt landið opið fyrir þér?“ Prestur brosti. — Kannske, vin ur. Féll svo talið niður. XXXV. Á sólstöðum um vorið var brúð kaupsveizlan í Hvammi. Stóð hún í þrjá daga. Voru brúðhjónin gefin saman á kirkjustaðnum, en veizlan hald- rn í Hvammi. Þar var saman kom- ið margt slórmenni, frænd-, vina- og venzlafólk beggja aðila. Auk þess var ýmsum helztu bændum héraðsins boðið með húsfreyjum sínum. Meðal þeirra voru báðir bændurnir í Ási. Frú Sólveigu var einnig boðið, en hún kom ekki. Eins var um Guðmund Björnsson á Teigi og konu hans Sigþrúði. Hvorugt þeirra kom. Sýslumanns- hjónin tóku boðsgestum öllum með miklum innilegheitum, eink-- um frú Ragnheiður. Sumir töldu líklegt, að henni hefðu þótt van- höldin úr nágrenninu lakari. Feður brúðhjónanna höfðu hitzt nálægt sumarmálum á ákveðnum stað og komið sér sam an um boðsgestina. Jónasi og Sólveigu var og boðið, en hvorugt kom. Þau komu frá Aurum rétt fyrir brúðkaupið og riðu í Ás. Jónas var löngum í Ási hin næstu misseri. Gömlu frúnni gazt eftir því betur að honum sem þau! kynntust meira. Hún vildi fá! hann til að taka við_ þeirrj hálf- lendu jarðarinnar í Ási, sem enn var talin í hennar umsjá, og láta ráðsmanninn fara. Það vildi Jónas ekki Hann vildi reisa bú á föður- leifð sinni í átthögunum. Þar kunni hann bezt vig sig. Enda var jörð sú, er faðir hans átti og bjó á úrvalsjörð. Landkostir miklir og góðir og lax og silungsveiði í ánni. En áður en Jónas settist þar að lét hann reisa bæ.iarhús öll og vanda hvað eina. Er þau Jónas höfðu verið tvö ár BJARNI UR FIRÐI: Stúdentinn í Hvammi í festum, voru þau gefin saman í sóknarkirkju Áss og veizlan hald- in í Ási. Ekki var sú veizla fjöl- menn miðað vig það, sem brúð-í kaupsveizlan í Hvammi. Og nokk| ur vanhöld urðu þar einnig á boðsj gestum. Sigurður dannebrogsmað ur, stjúpi Jónasar og föðurbróðir, sat ekki þá veizlu. Ekki heldur sýslumannshjónin í Hvammi né dætur þeirra. En móðir Jónasat kom og eins Jóhann frændi hans og stjúpbróðir. Frú Sólveig, gamla frúin í Ási eins og hún var almennt kölluð, var þrátt fyrir háan aldur, hin virðulegasta í veizlunni. Sat hún á aðra hönd brúðinni og virtist una sér vel. Gaf hún nöfnu sinni í brúðargjöf fornan silfurborð- búnað, hið mesta gersemi og ánafnaði henni allt kvensilfur sitt, að sér látinni. Þar var margt stórágætra muna. Hannesi, bróður Sólveigar, ánafnaði hún þá muni úr eigu sýslumanns, sem töldust skartgrip ir hans En þeir voru orðnir fáir og verðminni en hennar gripir. Hafði Sveinn fóstursonur hennar fengið áður þá gripi úr eigu fóst- urföðurins, sem verðmestir voru. Frúin geymdi að vísu tvo þeirra. Hún hafði óskað þess, að varð- veita þá meðan hún lifði, en við þá hafði hún fest spjöld, er helg uðu þá Sveini. Er Solveig bjóst frá Ási, var gömlu frúnni ákaflega brugðið. Grét hún þá með svo miklum sár- indum, að Sólveig gat meg naum- indum horfið frá henni. Bauð Jónas henni að koma með þeim og eyða þar ævikvöldinu. En hún gat ekki slitið sig frá Ási. Loks var þag ráðsmaðurinn gamli, sem tók frúna tali. Og enn sefaðist hún við fortölur hans, og gat kvatt nöfnu sína nokkurn veginn hress og mælt blessunarorð skiln aðarins með þeirri rödd, er henni var lagin, er hún hafði fullt vald á skapsmunum sínum. Sólveig naut sín vel á nýja heim ilinu. Hún náði þegar tökum á hússtjórninni og þótti hin myndar legastá húsmóðir og hjúum sínum góð. Hnjúkur hét jörðin, sem hún bjó á. Var hún í sömu sveit og Aurar, nokkuð innar f dalnum. Jóhann og Signý bjuggu á þriðj- ungi Aura. Var heimili þeirra all stórt og hjónabandið farsælt. Þau eignuðust einn son. sem Sigurður hét. Var það efnisdrengur, en eft irlætisbarn svo mikið, að það T I M I N N , föstudaginn 15. júní 1962 14

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.