Tíminn - 05.08.1962, Qupperneq 2

Tíminn - 05.08.1962, Qupperneq 2
ALDREI ÓHULTER UM LÍF SITT Hvaða menn í heiminum eru í mestri lífshættu? AuS- vitað hefur verið búinn til listi yfir þá, alveg eins og gert er við metsölubækur og óskalög. Tíu efstu menn á þeim lista eru allir vel þekkt- ir, og þeim er raðað á list- ann eftir óvinsældum þeirra hjá atvinnumorðingjum. Allir á listanum geta hvenær sem er átt von á að reynt verði að ráða þg af dögu^m með sprengj um eða skothríð. Þeir tíu, sem eru mest í hættu, eru taldir vera þessir: 1. de Gaulle forseti Frakklands. 2. Konungurinn (Imam) í Jemen. 3. Hussein Jórdaníukonungur. 4. gaud Arabíukonungur. 5. Sukarno, foiseti Indónesíu. 6. Dr. Adenauer, kanzlari Vestur-Þýzkalands. 7. Ikeda, forsætisráðherra Japans. 8. Krustjoff, forsætisráðherra Sovétríkjanna. 9. Castro, forseti Kúbu. 10. Kennedy Bandaríkjaforseti. Þessir tíu menn eru enn á lífi, einungis vegna stöðugra öryggis- ráðstafana og árvekni gæzlumann anna, sem meðal annars beita stuttbylgjutalstöðvum, gegnum- lýsingartækjum til að rannsaka pakka og bréf og fleira af því tagi. Faldar myndavélar taka myndir af grunsamlegum mönn- um og rafeindakerfi eiga að geta komið upp um væntanlegan morð ingja á svipstundu. En aðferðir morðingjanna taka líka framförum. I fyrra var gerð morðlilraun á de Gaulle, þegar hann var á leið til sveitaseturs síns. Sprengju var komið fyrir, sem átti að eyðileggja bíl hans, qg önnur átti að kveikja í öllu saman um leið, svo að undan- koma eð'a björgun yrði ógerleg. Áætíunin mistókst þó sakir þess að þræðir höfðu farið úr skorð- um í útbúnaðinum. Síðas-ta tilraunip til að ráða forsetann af dögum fpr þannig fram, að hundar voru látnir bera sprengjurnar. Ætlunin var að koma þeim í bil hans meðan hann stæði við einhvers staðar á ferð sinni um Frakkland. Þijá- tíu og einn OAS maður, þar á meðal tvær konur, voru handtek- in vegna þessa samsæris, en tuttugu sem voru við málið riðn- ir, tókst að komast undan. De Gaulle er eftur á listanum af þvi að menn vilja hann feig- an af stjórnmálaástæðum, — en stjórnmálamorðingjar eru að jafnaði ofstækisfullir og miskunn arlausir. Forsetinn er þar að auki í séríega mikilli hættu vegna stærðar/ sinnar og frjáls- iegrar framkomu á ferðalögum, þegar hann á það til að hlaupa út í mannþröngina til að faðma föðurlandselskandi kerlingar og annað gott fólk. En hann á yfir höfði sér m. a. OAS-hreyfinguna vegna afstöðu sinnar i Alsírmál- inu. Krustjoff kemur neðarlega á listann, ekki þó vegna þess að hann eigi færri stjórnmálalega fjandmenn. En öryggiskerfið um hann er svo gott, að líkurnar eru litlar að hugsanlegur morðingi nái markmiði sínu.i Stjórnandi Jemenríkis getur aldrei verið öruggur um sig. Hann er miðdepill blóðugra fjöl- skylduátaka. Faðir hans var myrt ur af tengdasyni sínum árið 1948. Morðinginn var hálshöggvinn að skipan hins nýja Imams, sem var Moröinginn lætur tíl skarar skriða — og dagar Asanuma, foringja jafn- aðarmanna í Japan, eru taldir. elíitur fjórtán bræðra. Síðan hafa tveir biæðranna verið teknir af lifi fyrir ráðabrugg um að myrða koniinginn, einn hefur verið myrtur, og annar er horfinn, og nokkrír bræðranna hafa verið reknir j útlegð. Síðasta tilraunin til að syipta Imaminn lífi var nærri því að takast í fyrra, þegar hann var særður á fjórum stöð- um, enda hefur hann ekki náð sér til fulls eftir þá árás. Konungar nágrannaríkjanna, Saudi-Arabíu og Jórdaníu, hafa báðir orðið fyrir mörgum morð- tilraunum. Hussein konungur er skotspónn ofstækismanna, sem eru fjandsamlegir Bretum, en hliðhollir Nasser. Saud konungur er á svörtum lista þeirra afla, sem hafa hug á að komast yfir olíuveldi hans. Sukarno Indónesíuforseti á yf- ir höfði sér Darul Islam hreyfing una, ofstækisfullan séitrúar- flokk, sem fýsir að ýta af stað vopnaðrí uppreisn. Síðasta árás þeirra á Sukarno átti sér stað, þegar forsetinn gekk til bæna- halds, og var það fimmta tilraun- in til að svipta hann lífi. Adenauer gamli i Þýzkalandi er hataður bæði af ofstækisfull- um nazistum og kommúnistum. í september komst upp um sprengju, sem var send til hans í pakka í pósti. Fasistaflokkur einn, andsnúinn samvinnu við Bandaríkin, hefur dæmt forsætisráðherra Japans til dauð'a. Sömu aðilar stóðu að morðinu á Asanuma, foringja jafnaðaimanna í Japan fyrir tveimur árum. Castro er með á listanum, þar eð morð er algengur dauðdagi valdamanpa í Suður- og Mið- Ameríku, ekki sízt þeirra, sem komizt hafa til valda með ofbeldi. Kennedy forseti ,er vinsæll stjórnmálamaður, en samt hafa þegar verið gerðar á honum tvær morðtilraunir. Forseti Bandaríkj anna getur alltaf átt von á slíku í landi, þar sem allt veður uppi í sértrúarflokkum og minnihluta- hreyfingum. Flestar tilraunirnar eru þó hættulitlar. En kúla getur drepið, hver sem heldur um gikk inn. Og fari svo, að einhver þessara tíu falli út af listanum áður en varir, eru nógir til að bætast í skarðið. Fleiri en þessir tíu hafa nefnilega orðið fyrir árásum ný- lega, t. d. Ngo Dinh Diem í Suður Viet Nam, Nasser forseti Egypta lands og Ulhricht í Austur-Þýzka- landi, svo að einhverjir séu nefndir. Verzlunarmannahelgin Nú er verzlunarmannahelg- in upip runnin. Hún er óum- deilanlega orðin ein mesta ferða- og skemmtanahelgi árs- ins. Sú gleði hefur þó óneitan- lega ærið oft haft sínar skugga hliðar hin síðari ár, því að menn hafa ekki kunnað sér hóf í þeim Ieik. Unga fólkinu er a'ð verulegu leyti um kennt og sagt, að það sleppi fram af sér beizlinu þcnnan dag. Sá dóm- ur er ekki með öllu réttmæt- ur. Þar kemur fleira til en óstýrilæti æskunnar. Um þessa hclgi hafa undan- farin sumur oftast orðið ýmsir geigvænlegir atburðir, svo að nú er svo komi'ð, að fólk híður þess með öndina í hálsi, hvort lielgin líði hjá, án þess að slys verði og stórskemmdir. Við vonum hið bezta í þessu efni núna og væntum þess, að hver og einn stuðli að því, a'ð við lifum gleðilega verzlunar- mannahelgi. . Samkomubann Frá því hefur verið skýrt í fréttum, að sýslumaður Þing Ieyinga hafi gripið til þess ráðs að setja á sainkoinubann í hér- aðinu. Það er ekki skemmti- legt að setja á samkomubann í heilu héraði um þá helgi, sem menn vilja helzt skemmta sér, en til þess eru vítin að varast þau. f fyrra urðu áflog, , meiðingar og skemmdir á ein- um fegursta samkomustað sýsl unnar, Vaglaskógi, og ef til vill Ivíðar, og samkomuba,nnið nú er réttmætt svar við því. Sýslu- maður Þingeyinga á þakkir skilið fyrir röggsemina, og ef til vill verður þetta til þess, að unt verður að leyfa samkomur um vcrzlunarmannahelgi síðar, og menn kunna sér þá betri brag. Það er venjan, að ólæti þessi og spjöll stafi ekki af heima- mönnum nema að Jitlu leyti, heldur aðkomufólki, sem virð- ist ekki hafa eins góða gát á sér, af því að það er í óbunnu umhverfi. Hvar er fólkið? Menn vona, að Þingvöllur sleppi vel að þessu sinni. Hvort tveggja er, að almennar samkomur eru þar ekki, og þótt vafalaust verði þar mannmargt, eru skát-ar þar fyrfr á fjöl- mennu þingi, og munu gæta staðarins. Öllum ber saman um, að skátamótið sé alveg til sér- stakrar fyrirmyndar, eins og von cr og vísa þeirrar miklu og ágætu hreyfingar, sem þjóð in ætti að efla að miklpm mun. Vafalaust verður nokkur mann fjöldi á Hreðavatni, en þó mun straumurinn beinast einkum inn í Þórsmörk og i Vestmanna eyja á þjóðhátíð'ina. Er von- andi, að Þórsmörk verði ckki illa úti, en erfjðam mun um gæzlu þar en í Vestmannaeyj- um. Meiri héfstillingu En löggæzla og hart eftirlit kemur aldrei fyllilega að haldi, og skemmtana-'Og útilíf I þeim viðjurn er allt annað en ánægju legt. Það, sem við verðum að stefna að, er hófstilling fólks- ins sjálfs, •umgengnismenning þess og sem allra minnst á- fengi í förinni. Það cr þetta, sem um er beðið. Það er þetta, sein er skemmtanamenning en |j ekkl fast spenntar greipar lög- E regluvalds, sem þó er sjálf- 1 sagt að spenna fast að því fólki, B sem gengur úr mannlegum ham og aðra. Við óskum öllum W gleðilegra verzlunannanna- l hclgi, góðrar skemmtunar án B slysa, tjóns og mannskemmda. 2 TÍMINN, sunnudaginn 5. ágúst 1962

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.