Tíminn - 05.08.1962, Page 14

Tíminn - 05.08.1962, Page 14
engar. Hún ók hægt um göturnar. Mario horfði á hverja hennar hreyfingu fullur aðdáunar og taut aði allan tímann við sjálfan sig, að enginn væri jafningi senor- itunnar hans, sem hafði kjark og kunnáttu til að láta þetta farar- tæki aka hvert, sem hún vildi. — Þetta virðist einfalt, sagði hann. — Það er heldur ekki erfitt, þegar maður er búi'nn að læra það, sagði hún — Ætli ég þurfi að fá annað ökuskírteini, meðan ég er hér, eða ætli mitt, sem ég fékk heima, gildi hér einnig? — Verður fólk að fá leyfi til að stýra bíl í yðar landi? hrópaði Mario hissa og hún kinkaði kolli. — En hérna, senorita. Það eru svo fáir bílar. Forsetinn, hann ekur, ég hef séð hann. Líka lögreglu- stjórinn! Eg vildi óska, að ég kynni það! Það gæti komift sér vel, að eitt- hvert hinna gæti ekið líka, svo að Eienor sagði ósjálfrátt: — Kannske ætti ég að kenna þér það. — Þá hef ég náð hátindi frægð ar minnar og upphefðar. Augu Marios ljómuðu af hrifningu. — Þá á ég, Mario, að aka gegnum þessar götur, og ég skal fá þessar lágkúrulegu, aumu persónur til að víkja úr vegi snarlegar en senor- ita getur. Ef þau koma sér ekki undan í tíma, skal ég keyra beint . . . — Þetta er nóg, hrópaði Elenor hvasst, og hann féll aftur í sætið. — Ef þú ætlar a?j hegða þér þannig, kenni ég þér ekki að aka . . . — En senorita var að segja . . . — Eg sagði kannski, ekki, að ég ætlaði. Fimm mínútum síðar leit hún uppgefin á móðgaðan leiðsögu- mann sinn og hrópaði ákveðin: — Og ef þú móðgast, vegna þess að ég ávítaði þig, Mario, leyfi ég þér ekki að koma með, þegar við för- um út að aka. — Ef ég kem ekki með, finnið þið heldur ekki staðinn, þar sem orkídeurnar vaxa, heldur ekki leiðina upp í fjöllin, svaraði hann og var enn móðgaður. — Það getur enginn nema ég vísað veginn þangað. — Ó, Mario, það, sem þú gort- ar, sagði hún mæðulega. — Ég gorta ekki, andmælti hann, — ég segi bara satt. Hún hló enn þegar þau óku upp að hótelinu og sagði hótel- stjóranum, að hún væri mjög á- nægð með bifreið hans. Mario sat kyrr í framsætinu, og eftir að hafa skipað honum að snerta ekki við neinu, en 'gæta aðeins bifreið- arinnar, fór hún inn. Hún hafði tekið bílinn á leigu í viku, kannski tvær, og hún vonaði af öllu hjarta, að að þeim tíma liðnum, hefði h.ún komið fram áformum sínum og gæti farið héðan. Um eftirmjðdaginn óku þau fjögur meðfram höfninni. Mario sat við hlið Elenor, og hin tvö í aftursætinu. Terry lét í ljós, að það væri skömm, að þeim hefði ekki dottið þetta í hug fyrr, þar eð það væri ólikt notalega en ramba um á tveimur jafnfijótum. um. Elenor ók niður að strönd, sem þau höfðu ekki séð fyrr, þar fengu þau sér bað. Elenor buslaði dálít- ið, þar sem grynnst var, undir vernd Marios. Jeffrey Greene drakk kaffi með þeim um eftirmiðdaginn, og siðar stakk Rose upp á að skreppa út á tangann. Henni fannst skemmti- legt að sitja fremst á honum með arma eiginmannsins um sig og stara út í nóttina. Hún og Terry gengu á undan og leiddust, og hin komu á eftir. Elenor vonaði, að Jeffrey myndi nú gefa sig til kynna, þegar þau voru ein og eng- inn heyrði á tal þeirra. Allt í einu fór hann að hlæja, og hún leit undrandi upp á hann. — Þetta gæti sannarlega ekki betra verið, útskýrði hann. — Tvö pör, sem fá sér göngt i :rð og njóta hitabeltisnæturinnar. Hvað er eðlilegra? Við skulum láta þau fara út á end-t tangans, ef þér haf'ið ekkert á inóti því, þá skul- um við stanza hér. Hann lát i kringum sig cg gekk að nokkrurn flötum steinum. — Við getum setzt hér, héðan sést í allar áttir, svo að enginn getur læðzt að okkur og heyrt, hvað við tölum um. Hún brosti, þegar hún tyllti sér niður. Hann settist við hlið henn- ar, dró pípu úr pússi sínu, svo leit hann glaðlega á hana: — Jæja, ungfrá Penny? — Já? — Eg býst við, ,að þér séuð hissa á þvi, hvað ég kem seint? — Hví skyldi ég vera það? spurði hún gætnislega. Hann leit á andlit hennar. — Vegna þess, að þér hafið átt von á mér, staðhæfði hann rólega. — Sagði Ray Evans yður ekki, að ég myndi koma? Leyfið mér að kynna mig, ég er John Graham. — Eg vonaði það, sagði Elen- or og varp feginsamlega öndinni. — Eg hafði það á tilfinningunni, frá því að ég sá yður á gistihús- inu, og yður er óhætt að trúa, að ég er fegin, að þér komuð loksins. Hann andvarpaði innra með sér. Don Manuel hafði getið sér rétt til, hún hafði fengið boð um að bíða þessa Johns Graham. Það gerði hans eigið verk mun ein- faldara, en hann varð að fara gætilega af stað. — Mér þykir leitt, að ég skyldi ekki koma fyrr, en það var svo margt, sem þurfti að koma í kring . . útvega myndavélar, leyfi og allt því um líkt. Bakgrunnur minn varð að sýnast réttur gagnvart þeim, sem ef til vill myndu rann- saka hann nánar. — Svo að þér kunnið þá að taka myndir? — Eg myr.di ekki vera hér, ef ég kynnj það ekki, svaraði hann. — Maður verður að taka þetta föstum tökum. Eg hef eytt öllum deginum í dag að taka myndir af litlu börnunum og mömmum þeirri niðri ; borgirmi. Hún dró kjóiinn betur yfjr hnén og leit á hann. — Hversu lengi þurfið þér að halda því áfram? — Eg get byrjað að fara í smá- ferðir, hvenær sem er, um fjöllin og ekrurnar — hvað sem mér dettur i hug, en í hreinskilni sagt, því fyrr, sem óg kémst út úr bæn- um, því öruggári verði ég. Það er ein af á:stæðunuin fýrif Því, að ég er feginn, að yður tókst að ná í bifreið. Hún leit spyrjandi á hann. — Hafið þér nokkra hugmynd um, hvar mannsins er að leita, sem við þurfum að finna? — Því miður ekki, svaraði hann dapurlega. — Það verður erfiðast af öllu. Fjöllin ná yfir mestan hluta þessarar eyju, og í þeim eru óteljandi hellar og 'Sprungur, þar sem gull fannst í gamla daga. Vinur vor getur verið hvar sem er .Þér hafig ekkert heyrt? — Nei, og ég hef ekki þorað að spyrja. Eg hef bara verið hér sem skemmtiferðamaður, en nú vil ég helzt reyna að ljúka þessu sem fyrst. Eg veit, að það er stöð- ugt fylgzt með mér — Don Manu- el veit, að ég er hér. Hann veit líka um yður. Elenor rétti sig upp skyndilega. — Hann bauð mér upp í höll- ina einn morgun og kom því að í samræðunum, hvort ég þekkti mann að nafni John Graham. Hann blístraði. — Fóruð þér aleinar? — Með Mario, sem var frá sér numinn að fá að sjá forsetann. 125 Harbour, til þess að hefja hern- aðaraðgerðir, sem að afrekum og afli jöfnuðust á vig þær, er kennd- ar eru við Trafalgar. Herskipa- floti, stærri og öflugri, en nokk- ur annar á evrópskum höfum, var þegar samankominn út fyrir Marc us-eyju og Tarawa Atoll, sem fyrirvari þess er í vændum var. Samtímis sótti her Mac Arthurs, mörg þúsund mílum sunnar, hratt fram vestur á bóginn, meðfram strönd Nýju-Guineu. Salamaua var tekin þann 11. september, Loe 2. október. Samanlagt tóku nítján þann 16. s.s. og Finchhafen, þann bandarískar og ástralskar her- deildir, 12 orrustuskip og næstum fjörutíu móðurskip þátt í þessum árásaraðgerðum . . . Skoðun Brookes var sú, að án miklu meiri flugvélakosts og fleiri innrásarskipa, en Bretar eða Bandaríkjamenn gátu sent til Ind- lands, yrðu hvorki aðgerðirnar á Burma, sem forsætisráðherrann sá í hillingum, né í fjöllunum og frumskógunum, sem Bandaríkja- menn mæltu með, framkvæman- legar. Hann fullyrti að Banda- ríkjamenn myndu ekki geta fram- kvæmt nógu öflugar árásarað- gerðir til að endurtaka Rangoon pg mynni Irravaddy — lykilinn að stjórn Burma — fyrr en árið 1945. Það, sem ef'tir væri ársins 1943, átti að nota allt, sem ekki væri beinlínis bráðnauðsynlegt til eflingar þess hers, er gera skyldi árásina yfir sundið til að viðhalda árásarþunganum á Þjóðverjum í ítalíu og halda varaliðssveitum þeirra dreifðum meðfram öllu Miðjarðarhafi, Adríahafi og Aeg- ean-strandlengjunni, eins fjarri rússnesku vígstöðvunum og strönd Ermarsunds og mögulegt væri. Rússar gátu ekki fremur en Bandaríkjamenn skilig mikilvægi þess takmarks, sem Brooke keppti eftir. Að dómi hershöfðingja Rauða hersins var eina hjálpin, sem hinir vestrænu bandamenn þeirra gátu veitt þeim, sú, að senda sem fjölmennastan her til árásar yfir sundið, eins fljótt og frekast mætti. Það virtist aldrei hvarfla að þeim, ag slík herferð yfir sundið væri meiri erfiðleik- um bundin en ferð yfir Volgu eða Dnieper. Enda þótt þeir væru nú lausir undan árásarþunga tveggja þriðju hluta þýzka flughers'ins og þriðjungs þýzka ríkisher.sins, þá héldu þeir áfram að þvinga Breta og Bandaríkjamenn með því að gefa það í skyn að „þeir myndu ekki geta haldið stríðinu áfram, nema því aðeins að nýjar víg- stöðvar yrðu myndaðar í Frakk- landi sem skjótast. Jafnframt kröfðust þeir hluta af ítalska flotanum, enda þótt þeir hefðu enga hlutdeiLd átt f hertöku hans og heimtuðu loks, án minnsta tillits til áhætunnar, að hafnar yrðu aftur sendingar skipalesta yfir Norður-íshafið. Til allrar hamingju var þetta síðasttalda nú ekki lengur jafn áhættusamt og það hafði verið, þar eð brezkir kafbátar höfðu gert árás á orr- ustuskipið Tirpitz, seint í sept- ember og gert það ónothæft í all- imarga mánuði. Þess vegna var því hægt að senda skip umhverfis North Cape, án fylgdar herskipa- flota. Þrátt fyrir hina áberandi sigra sumarsins, var Brooke þannig hvarvetna fyrir hjndrunum, þeg- ar hann hugðist notfæra sér hina hernaðarlegu möguleika, sem hin langa strandlína ítalíu hafði að bjóða. í byrjun októbers, þegar herir Eisenhowers og Al- exanders komu til Napoli og þeir vonuðust enn til að geta hernum- ið Róm innan fárra vikna, tókst Kesselring, þýzka yíirflotaforingj- anum, ekki aðeins að flytja her síns burt frá Sardiníu og Korsíku, án mikils mannfalls, heldur hafði hann líka næstuim alveg unnið bug á ótta sínum, sem til þessa hafði háð honum^ við landgöngu á Mið- og Norður-Ítalíu. Um miðj- an mánuðinn sáust þess merki, að Þjóðverjar höfðu í hyggju að nota hinar sterku, náttúrlegu hindr- anir frá austri til vesturs, yfir fjallshrygg Ítalíu, til þess að tefja fyrir framsókn Bandamanna, eins lengi og þess yrði nokkur kostur. Á þeim tíma voru nítján þýzkar herdeildir á skaganum, enda þótt þær væru ekki allar vopnfærar, á móti aðeins sex brezkum og fimm amerískum herdeildum. Enda þótt það áform Brookes hefði til þessa heppnazt, að draga varalið óvin- anna suður á bóginn, þá var samt vaxandi hætta á því, ag Þjóðverj- ar kynnu, ef ekki væri hægt að senda Alexander liðsauka til ítaliu hið bráðasta, að hefja gagn- sókn, sem hrekti bandamenn aft- ur úr landi og umturna öllum næs!a-árs-áformurrr þeirra. TIL ALLRAR óhamingju hafði forsætisráðherrann síðasta mán- uðinn hvatt Bandaríkjamenn til stefnu í Miðjarðarhafs'miálumum, sem einungis gerði þá enn tor- tryggnari en ella, um áform þeirra á þeim slóðum. Menn höfðu vonað, að meg uppgjöf ítalíu, myndu allar eyjar, er ítalir réðu yfir, lenda undir stjórn Banda- manna. En meðan Sardinfa og Korsíka hlutu sömu örlög og Sikil- ey, þá yfirbuguðu Þjóðverjar fljótlega hina stríðsþreyttu for- félaga sína á eyjunum í Grikk- áður en brezkur her frá Mið- Austurlöndum, sem skorti bæði landshafi og náðu yfirráðum þar skip og flugvélar, gat komizt þangað. Þrátt fyrir landgöngu fá- menns brezks herflokks, þá var Rhodes, helzta eyjan í Grikklands- hafi i höndum Þjóðverja, þremur dögum eftir uppgjöf Badoglio- stjórnarinnar. Aðeins á smáeyj- unum Cos, Seros og Samos, var nokkrum hundruðum brt^-kra her- manna komið á land ur litlum strandferðabátum og seglskipum. Að dómi forsætisráðherralis virtist svo sem ágætu tækifæri hefði verið sleppt. Þetta var svæð- ið, sem hann hafði ávallt litig á sem lykilinn að Austur-Evrópu og Litlu-Asíu. „Þetta er tíminn“, sagði hann þann 13. september — „til að hugsa um Clive og Peterborough og töku Gíbraltar“. Því að þegar staðsettur hefði verið brezkur flug her á Rhodes, var flotinn fær um að ná aftur stjórn yfir Grikklands hafj og 'Siglingaleiðunum til Tyrk lands, og það land, sem þá væri laust undan ógnun Luftwaffe, gæti farið í stríðið sem bandalags- ríki Breta og Ameríkumanna. Brátt, fullyrti Churchill, yrði all- ur Balkanskaginn „örugg siglinga leið opin til Rússlands og her vesturveldanna gæti gert áhlaup á fylkingarhlið þýzka hersins og fylgifiska þeirra, sem börðust gegn sókn Rauða hersins. En, enda þótt ákvarðanirnar, sem teknar höfðu verið í Quebeck um að takmarka árásaraðgerðir á Miðjarðarhafi, drægju á engan hátt úr áformum forsætisráðherr- ans um árás á eyjarnar þar, þá höfðu þær þó gert þau ófram- 14 T f MI N N, sunnudaginn 5. ágúst 196?

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.