Tíminn - 09.08.1962, Blaðsíða 12
._ 1 . 1, t 1 H , , • J h . ip i-r*r ■JP Íllilll lill illiilll
•‘. ÍÞF 1 r #11 11:1 ÉIÍil! 1111 <3
RITSTJÓRI HALLUR SÍMONARSON
Eftir heimsmeistarakeppn- ((
ina í fimleikum, sem háð )
var í Prag, hélt japanski (
flokkurinn til Sviss og sýndi /
þar við mikla hrifningu 15 \
þúsund áhorfenda. Og í þess /
ari keppni skeði nokkuð, \
sem aldrei hefur komið fyr- (
ir í Sviss á'ður. Harahiro \
Yamasitha átti svo glæsilegt í
stökk á hesti, að aliir fjórir )
dómararnir gáfu honum 10 (
fyrir það — en tíu er það )
mesta, sem gefið er í fim- (
leikum. Stökkið var sem /
sagt algerlega fulkomið að \
áliti dómnefndarinnar . — /
og á myndinni hér er Yama- \
sitha í sínu fræga stökki. — 4
Ljósmynd: Polfoto.
.
.
Spijfe^öi'
BNGONGU LEIKMENN UR ENSKUM
ATVINNULIÐUM I IRSKA LIÐINU
írska knattspyrnusamband-
ið hefur valið landslið það í
knattspyrnu sem leika á við
íslenzka landsliðið í Dublin á
sunnudaginn kemur. Þetta
verður fyrri leikurinn í
Evrópukeppni landsliða og er
greinilegt, að írar leggja mikla
áherzlu á leikinn, því þeir
hafa eingöngu valið leikmenn
í það úr enskum atvinnuliðum,
þannig, að það verður hreint
atvinnumannalið, sem íslend-
ingar leika við á sunnudaginn.
Síðari leikur þjóðanna verður
hér á Laugardalsvellinum
sunnudaginn 2. september.
írska landsliðið er þannig skip-
að, talið frá markmanni að vinstri
útherja. Kelly (Preston), Dunne
(Manch.Utd.), Traynor (Southamp
ton), Saward (Huddersfield), Hur
ley (Sunderland), McGrath
(Blackbum), Hale (Doncaster),
Giles (Manch-Utd.), Nomel Cant-
well (Manch.Utd.), Fogarty (Sund
erland) og Tuohy (Newcastle).
Eins og sjá má á þessari upp-
talningu er hér um mjög sterkt
lið að ræða. Langfrægustu menn
liðsins eru Noel Cantwell og
Charlie Hurley._ Cantwell lék um
langt árabil sem bakvörður með
West Ham í Lundúnum en var
seldur fyrir um tveimur árum til
hins fræga liðs, Manch. Utd., fyrir
30 þúsund sterlingspund. Hann
lék framan af bakvörð í því liði,
en meiddist og tókst ekki að vinna
bakvárðarstöðuna aftur, en Matt
Busby reyndi hann síðar í fram-
línunni með góðum árangri. Cant
well leikur miðherja á sunnudag
inn og er jafnframt fyrirliði liðs-;
ins. Hann er hættulegur með
skalla og hefur hreinar spyrnur,
en er ekki sérlega fljótur, enda
kominn nokkuð á fertugsaldurinn.
Charlie Hurley hjá Sunderland
hefur nú um nokkuð árabil verið
talinn einn af þremur bezty mið-
vörðunum á Bretlandseyjum, enda
mjög sterkur leikmaður. Hann
byrjaði kornungur að leika með
Sunderland og hefur verið traust-
asti maður þess liðs Þó hann sé
varnarleikmaður skorar hann allt-
af talsvert af mörkum á hverju
leiktímabili. Þegar lið hans fær
hornspyrnur fer Hurley yfirleitt
fram og er þá mjög skæður á
skallknetti — og er þetta nokkuð,
sem íslenzka liðið þarf að varast
og sjálfsagt, að setja leikmenn
honum til höfuðs, þegar hann
nálgast vítateiginn.
Tveir aðrir leikmenn liðsins eru I
frá Manch. Utd., þeir Tommy
Dunn, sem er varamaður með
írska landsliðinu, sem lék hér á
landi 1958, og hinn kor'nungi inn-
herji Giles. sem er einn af beztu
mönnum félags síns. Útherjinn
Tuohy frá Newcastle er eini mað
ur liðsins, sem tók þátt í lands-
leiknum 1958 og hann er þá einn
ig á vinstra kanti eins og nú Hann
<?r mjög. fljótur á sprettinum. en
fær einnig fljótan, _ harðskeytt.an
mótherja þar sem Árni Njálsson
er.
Pat Saward, sem nú leikur með
ekki gengið sérlega vel á knatt-
spyrnusviðinu. Þeir voru með
Tékkóslóvakíu og Skotlandi í riðli
í undankeppni heimsmeistara-
keppninnar og máttu þar þola
stór töp, t.d. töpuðu þeir leiknum
í Prag með 6—1. Undirritaður sá
iþann leik í sjónvarpi og þótt írar
hefðu lítið að gera í hina vélrænu
Tékka, sem síðar komust í úrslit
í heimsmeistarakeppninni, var þó
tapið of mikið og Haverty hjá
Arsenal fór þar mjög illa með góð
tækifæri. Aðeins fjórir af þeim
leikmönnum, sem léku gegn Tékk-
um, eru nú í liðinu, það er Hurley,
sem var langbeztur í Prag, Cant-
well, Saward og Giles, og má því
segja, að frar hafi að undanförnu
gert róttækar breytingar á liði
sínu, þar sem hinir yngri leikmenn
hafa tekið við stöðum hinna eldri,
ÚRSLIT
nema þeirra Saward og Cantwell.
En greinilegt er á valinu nú, að
írar leggja mikla áherzlu á það
að komast áfram í Evrópukeppn-
inni og sækja því eingöngu leik-
menn til enskra liða. Þetta lið er
miklum mun sterkara en þau írsku
landslið, sem við höfum leikið við
áður. Við höfum tapað fyrir írum
í báðum leikjunum með litlum
mun, en á sunnudaginn má búast
við að tölurnar verði stærri.
Eins og áður hefur verið skýrt
frá, verður leikurinn í Dublin og
hefst kl. 2,30 eftir íslenzkum tíma.
Báðum hálfleikjunum verður út-
varpað hingað heim.
—hsím.
B B
Noel Cantwell, fyrirllði írlands og
miðherii á sunnudaginn
Huddersfield, var fyrir nokkrum
árum þekktur leikmaður með
Aston Villa og var meðal annars
með því liði, þegar það sigraði
Manch. Utd. í bikarkeppninni
1957. Saward er kominn á fertugs
aldurinn og er ekki sami góði leik
maðurinn og áður, en þó ómiss-
andi fyrir írska landsliðið. Aðrir
leikmenn liðsins eru ekki eins
þekktir — enda flestir ungir að
árum. McGarth leikur þó með 1.
deildar liðinu Blackburn en .hinir
eru úr 2. deildar liðum, nen^ út-
herjinn Hale, sem leikur með 4.
deildar liðinu Doncaster.
Síðustu tvö árin hefur írum
íslandsmótið í útihandknatt-
leik ikvenna heldur áfram í
kvöld í Kópavogi, fer þá fram
í meistaraflokki kvenna sá
leikurinn, sem sennilega ræð-
ur úrslitum á mótinu, en þá
keppa Ármannsstúlkurnar við
FH. Bæði þessi lið eru tap-
laus í keppninni, en önnur lið
hafa tapað meira en einum
leik. Má búast við mjög
skemmtilegum leik milli þess-
ara aðila, en FH er sem kunn-
ugt er núverandi íslands-
meistari.
Þá fer fram einn annar leikur
í kvöld og verður hann í 2. flokki
kvenna og leika Fram og KR. Á
laugardaginn verður einn leikur
á fsafirði í keppninni, en þá leika
KR og Vestra-stúlkurnar. Á sunnu
dag lýkur mótinu með leik milli
FH og Breiðabliks í meistaraflokki
kvenna.
Nokkrir leikir hafa farið fram ■
að undanförnu í mótinu. Víkingur
og FH fóru til Vestmannaeyja og
léku þar á þjóðhátíðinni. Víking-
ur sigraði Vestmannaeyjástúlkurn ,
ar með 15—0 og daginn eftir vann
FH Vestmannaeyjar með 13—0.
Voru þetta mjög ójafnir leikir eins
og tölurnar gefa til kynna, og
voru Vestmannaeyingar ekki mjög
hrifnir af liði sínu.
Á þriðjudaginn fór fram einn
'eikur í meistaraflokki og sigraði
Ármann þá! KR með 5—2. Ár
mann er því i ef=ta sæti í mótin"
með 10 stig. en FH er næst 010*
8 sti.g Þess ber að geta. að Ár
mann hefur leikið ýinum leik
meira en FH, sem enn á eftir tvo
leiki í mótinu.
/ ■
12
TÍMINN, fimmtudaginn 9. ágúst 1962