Tíminn - 30.09.1962, Blaðsíða 9
tBWWtWI
Bjarnl Steingrímsson á stéttinni fyrir framan Borgarleikhúsið f
Norrköping. Hjá honum stendur leiklistargyðjan og heldur á grím-
unum tveim. Myndina tók Hörður Gunnarsson skömmu áður en
Bjarni lagði af stað heim frá Norrköping
SLOTASKANI
Ihúsið okkar, en það mundi eng
inn æfla, sem sér það. Þetta
er þeim mun leiðinlegra, sem
fjöldi nýtízuklegra bygginga
ihafa risið í borginni á seinni
árum. En hvað sem bygging-
unni líður, þá er vandað til
alls annars og fyl-gzt vel með
tímanum, bæði { leikhúsinu og
skólanum. T. d. er leikskólinn
þar sá eini, sem tekið hefir
upp frönsku og jazz sem skyldu
námsgreinar.
Svenska skattepengar
— Hvernig stendur annars á
því, hve fáir íslendingar leita
inngöngu í sænska leikskóla?
Er sérstökum erfiðleikum bund
ið að komast þar inn?
— Það er gert mikið fyrir
nemendur í sænsk-um leikskól-
um. Fáir fá inngöngu, en þa?
er búið vel að þei-m. Inntöku-
próf er strangt, en þar tíðkast
ekki að fella menn. Þeir eru
tuktaðir svo til, að þeir eru
fleygir og færir, þegar þeir út
skrifast. En það er sökum
hlunninda þeirra, er allir nem
endur þar njóta, að útlending-
ar eru ekki sérlega vel þegnir
til að njóta góðs af „svenska
skattepengar", sem halda skól
anum auðvitað uppi. Það e
fyrst og fremst ætlað unga fóll
inu í Svíþjóð. Þó eru margir
sem vilja opna þessa skóla
meira útlendingum í anda nor
rænnar samvinnu. Enginn þar'
að greiða skólagjöld, en þeir
gera enn betur. Á fyrsta vetr-
veita þeir ölIUm 300 sænska’-
krónur á mánuði, sem á ?
nægja fyrir húsaleigu. Annar
veturinn eru flestir lá.tn’
vinna fyrir kaupi sem leikar
ar, statistar eða annað og geta
komizt í 600 krónur á mánuði.
Þarna eru öllum gefin tækifæri
á leiksviðinu, en ekki látin
skólakennslan ein nægja. A
loknu námi fylgist skólinn með
nemendum og lætur sér ekki í
léttu rúmj liggja, hvernig þeim
reiðir af í lífinu.
Leikarar dansa ekki á
rósum — nema einn
og einn
— Þetta skýtur eiginlega
skökku við það, sem segir í
greininni í Norrköping-blaðinu
um skólann ykkar. Þar var
ekki gefin nein glæsilýsing á
launakjörum sænskra leikara
og tekið svo til orða, að þeir
dönsuðu ekki á rósum.
—Já, það er svona með Svía,
þeir gera ákaflega vel við þá,
sem eru að mennta sig, spara
ekkert til skóla og styrkja við
námsfólk, en svo er kaupið oft
hlægilega lágt, þegar á vinnu-
markaðinn kemur, og þó raun-
ar mjög misjafnt. Byrjunarlaun
fastrá.ðinna leikara er 800 krón
ur sænskar á mánuði, síðan
hækka þeir árlega, en yfirleitt
komast þeir ekki mikið upp fyr
ir 1500 krónur. En svo er raun-
ar annað mál með „stjörnurn-
ar“. Sænsk leikhús beygja sig
undir lögmálið urn þær. Þeir.
sem eru orðnir frægir, eru yfir
borgaðir svo, að ekki er sam
bærilegt við hina. Til dæmis að
taka fékk Jarl Kulle 500 sænsk
ar krónur á kvöldi fyrir að
leika prófessor Higgins í My
Fair Lady, tók venjulegt mán-
aðarkaup inn á 3 kvöldum, tvö
mánaðarkaup á viku! Hann léV
pjtia hiuiverk í 3 ár, og var
þá orðinn svo forríkur, að hann
gerði sér lítið fyrir og keypti
sér slot og óðal suður á Skáni,
og það jafnvel þótt ríkið væri
búið að taka kúfinn af summ-
unni í skatta. Það er svona
einn og einn, sem getur keypt
slot á Skáni. Kulle fékk frí
frá Dramaten á meðan hann
var að leika prófessorinn og
lék reýndar í nokkrum kvik-
myndum jafnframt, svo að mað
urinn hafði hrikalegar tekjur.
Hann leikúr í mynd, sem Nýja
Bíó er að sýna þessa dagana.
Annars var viðtal við Jarl
Kulle í sænska sjónvarpinu
fyrir nokkru. Þar sagði hann
ýmislegt frá leikaraferli sínum
og m4 a. það, að þegar hann
hefði sótt um inngöngu í leik-
skóla á unga aldri, hafi honum
verið vísað frá hvað eftir ann-
að. Hann hefði bara komizt á-
fram á þrjózkunni einni.
Sá ekki prófdómarana
— Varð þér enginn fótaskort-
ur á sænskunni?
— Það er svo víst um það.
að ekkj þýddi fyrir neinn að
sækja um inngöngu í sænsku
leikskólana sem ótalandi væri á
sænsku. Ég stóð vel að vígi’
hvað þetta snerti, því að ég átti
heima nokkur ár í Svíþjóð á
bamaskólaárunum,- gekk þar i
skóla og lærði að tala málið
eins og innfæddur.
— Hvað er annars um sviðs-
óttann, gerir hann ekki oft vart
við sig hjá ykkur, sem eruð að
stíga fyrstu sporin á leiksvið-
inu?
— Það er nú upp og niður,
en flestir, sem leggja þetta fyr-
ir sig, harka það af sér. En þeg-
ar þú minnist á þetta, dettur
mér í hug einn, sem gekk und-
ir inntökupróf í skólann okk-
ar. Hann átti að flytja kafla
úr Pétri Gaut, og hann kunni
hann reiprennandi. En þegar
hann var tekinn upp í salnum
í leikhúsinu, varð piltinum svo
mikið um, að honum sortnaði
gersamlega fyrir augum. Próf-
dómararnir sátu við borð uppi
a. svimnu ug tjald á bak
við þá. Salurinn var alveg tóm-
ur og myrkur nema fremst. Þeg
ar vinurinn kom upp á sviðið,
sá hann hreint ekki prófdóm-
arana. Hann heyrði orðin, að
honum var sa“t að byrja. Hann
lét ekki segja sér það tvisvar
og byrjaði að þylja. En allan
tímann sneri hann sér út í
myrkrið og hélt þó að hann
stæði andspænis prófdómurun-
um, af því að hann vissi, að það
átti að vera svart fyrir aftan
þá. Og hann’ sá aðeins svart. En
hann féll á prófinu. Það kann
ekki góðri lukku að stýra að
byrja á þvi að sjá svart. Við-
staddir áttu erfitt að halda
niðri i sér hlátrinum.
Það vantar eitthvað
á borðið!
•— Eiga leikarar það oft til
að vera kvikindislegir hver í
annars garð?
— Tæpast held ég, að leikar
ar séu með því marki brennd-
ir fremur en aðrar manneskj-
ur. Þó fer það orð af einum
mesta leikhúsmanni Svía. Það
er Olof Molander, sem er lík-
lega stærsta nafn í leiklistar-
heimi Svía á þessari öld, Hann
hefir verið hæstráðandi á Dj-am
aten í Stokkhólmi áratugum
saman, réðist þangað fyrst sem
leikari fyrir nærri hálfri öld,
var lengst af og er enn leik-
stjóri, kominn um sjötugt, og
leikhússtjóri í mörg ár. Faðir
hans og bróðir voru einnig
kunnir leikstjórar. Þetta ligg-
ur í ættinni. Við fórum nokkr-
ir frá leikskólanum í Norrköp-
ing í vetur til Stokkhólms til
að sjá sýninguna á Andorra eft
ir Max Frisch. Olof Molander
var leikstjóri, sýningin var á
Litla leiksviðinu á Dramaten.
Molander telur það ekkert eft-
ir sér að vinna með ungu fólki
sá gamli jaxl. Eftir sýninguna
vorum við í fagnaði með leik-
urunum, og þar voru sagðar
margar sögur af Molander
gamla. Hann hefir alla tíð ver-
ið alveg fádæma harðstjóri, og
meira en það. Iðulega beitti
hann leikara slíkri hörku og nið
urlægði þá iðulega svo, að þeir
gengu stuhdum grátandi út af
sviðinu. Og samt hélt hann um
sig sama leikarahópnum lengur
en flestir aðrir. Svona var fram
koma hans við nálega alla, að
ég ekki tali um þjónustufólk-
ið. Einu sinni, þegar hann kom
að matborðinu heima hjá sér,
horfði hann snöggvast yfir borð
ið, eins og hans var vani. Allt
í einu öskrar hann: Það vantar
eitthvað á borðið! Þjónustu-
stúlkan kemur auðmjúk og
skjálfandi, lítur yfir borðið or
finnur ekkert að. Enn öskrar
Molander: „Það vantar á borð-
ið!“ Og aumingja stúlkan veit
ekki sitt rjúkandi ráð. Þá æpir
karlinn: „Sækið þér hrein-
gerningastigann!" Og stúlkan
kemur með hann á augabragði.
„Klifrið þér efst í stigann!" Og
stúlkan þorir ekki annað en a?
hlýða. En kallar hann: „Þa8
vantar á borðjð“. Og þá seg;
loks stúlkan: „Já, herra. Það
vantar á borðið. Það vantai
saltið“. Hljóp svo niður stig-,
ann og sótti saltið. Þá loks sett
ist karl.
Aðgöngumiðar á
hálfvirði
— Ferðuðust þið mikið til
annarra borga á leiksýningar?
— Við notuðum okkur það,
að nemendur í leikskólum fá
ókeypis aðgöngumiða á sýning-
ar allra stóru leikhúsanna. —
Annars er mikið gert til að fá
fólk til að sækja leikhúsin. AU-
ir, sem gerast áskrifendur að
öllu leikárinu ,fá aðgöngumiða
á hálfvirði eða jafnvel minna.
Miðar kosta annars frá 7—12
sænskar krónur. Þetta hefir gef
izt ákaflega vel. Hvernig væri
að taka þetta upp hér, að hafa
sérstakt áskriftarverð á mið-
um?
Malmö Stadsteater
— Þú minntist áðan á leik-
húsið í Málmey. Er enn litið á
það sem mesta nútímaleikhús-
ið?
— Já. Það eru reyndar liðin
'■íiærri 20 ár síðan það var full-
gert. Þá vakti það athygli fólks
hvaðanæfa að úr heiminum,
þótti nýtízkulegasta leikhús í
Evrópu, og það stendur enn að
mestu í gildi. Við vitum, að
kóróna leiklistarinnar er á
Dramaten í Stokkhólmi, en
Malmö Stadsteater er það lang-
fullkomnasta í augum leikara
og vildu víst flestir óska þess,
að slík siklyrði, sem þar eru,
væru sem víðast. Aðalsalurinn
í hálfhring um sviðið, það er
(Framhald á 12. síðul.
Borgarleikhúsið í Málmey, Malmö Stadsteater. Leikhúsgestir eru að
streyma inn á sýningu. Þá logar alltaf á kyndlinum við innganginn.
'Hann er skúlp'túrverk eftir Níls Sjögren, með myndum af persónum
úr fraegum leikritum að fornu og nýju, Appollo, Bacchus, Grafarann
og Hamlet, Charlie Chaplin og blindu stúlkuna og marga fleiri.
T í M I N N, sunnudagurinn 30. sept. 1962.
9
i