Tíminn - 30.09.1962, Side 12
Einn ðg einn
Framhald af 9 síðu.
hægt að stækka um helming eft
ir vild, þetta er það sem allir
leiikhúsgestir sjá. Og þá er ekki
síður ágfett litla leikhúsið við
' hl.iðina, Intima Teatern, þar
sem minni leikrit og tilrauna-
leikrij eru flutt. Hvemig stend
ur á því, að litla leiksviðið er
aldrei notað í Þjóðleikhúsinu?
Ég vil bara ráðleggja hverjum
þeim, sem kemur til Málmeyj-
/ ar að láta ekki undir höfuð
leggjast1 að skoða Borgarleik-
húsið. /
Nýtt blóð í kvikmyndir
— Það skeður víst sitthvað
nýstárlegt við svona nútímalegt
leikhús. Þar var Ingmar Berg-
man um tíma. Hvað segirðu
annars um hann og sænskar
kvikmyndir?
— ,Það er alveg áreiðanlegt,
að sænskar kvikmyndir eru að
verða meira en Ingmar Berg-
man. Víst er það, að hann er j
snillingur sem leikstjóri og
kvikmyndagerðamaður, og hann
hefir einmitt verið ákaflega
frjór upp á síðkastið. En áreið-1
anlega koma á næstunni fleiri
nöfn, sem gera sænskar kvik-
myndir eftirtektarverðar. Einn
þeirra hefir nú líklega lokið við
mynd, sem nefnist Vaxdockan
og vakti, umtal þegar eftir að
taka hennar hófst. Þar leik-
ur Per Oscarsson aðalhlutverk-
ið. Hanh er einn snjallasti af
ungu leikurunum í Svíþjóð, lék
hjá Dramaten og þeir þóttust
ekki hafa öllu snjallari ungan
mann. En hann hefir fleira á
heilanum en að leika. Þegar
minnst vonum varir, er hann
stunginn af og farinn að pré-
dika í skólum og út um hvipp-
inn og hvappinn. Þó er hann
ekki haldinn ofsatrú, heldur er
það eitthvað heimspekilegt og
þjóðfélagslegt, sem honum ligg
ur mjög á hjarta. Svo sjatnar
í honum og hann snýr sér aftur
að leiklistinni. Nú er hann til
dæmis kominn aftur að Dram-
aten, hve lengi sem hann stend
ur nú við þar. Svo er rétt að
minnast á annan ungan mann,
rithöfund, sém tók sig til og
fór að ráðast á kvikmyndafram
leiðendur í blöðunum fyrir
það, hvílík fásinna það væri að
eyða svo og svo miklu fé í
kvikmyndir. Nær væri að venda
kvæði í kross og snúa sér að
lífinu og gera hlutina einfald-
ari og sannari. Það gerðist þá, t
að einn kvikmyndahöldurinn
bauð þessum unga manni að fá
til umráða helming af einhverri
fjárupphæð, sem var jafnhá
kostnaði einhverrar myndar,
og hann mætti búa til þá kvik-
mvnd. sein honum svndist fyrir
þessa peninga. Piltur lét ekki
segja sér það tvisvar og hófst
handá. Og það er einmitt beðið
með eftirvæntingu eftir þess-
ari mynd þar ytra.
Sænskar kvikmyndir eru tíð-
um listrænn viðburður í aug-
um heimsins, það er tekið eft-
ir þvi. þegar Ingmar Bergman
er með nýja mynd á ferðinni,
og nú eru komnir fram aðrir
ungir menn, sem vilja ekki
láta sitt eftir liggja á þessu
sviði.
Fer út á land
— Svo að við snúum okkur
að þér sjálfum: Áttir þú kost
á starfi þegar þú fórst frá skól-
anum?
— Mér voru boðin tvö hlut-
verk við borgarleikhúsið í Norr
köping, í tveim fyrstu leikrit-
unum í vetur, Andorra og
Jeppa á Fjalli. En ég fékk þau
boð þegar ég var ferðbúinn
heim, og úr því að ég gat ekki
fengið árssamning við leikhús-
ið, lét ég það eiga sig.
— Og hvað ætlarðu svo að
tak þér fyrir hendur hérna
heima?
— Það fyrsta verður að fara
út á land á vegum Bandalags
íslenzkra leikfélaga og setja
nokkur leikrit á svið.
— G.B.
Amgrímur Bjarnason
Framhald af 8. síðu.
ur fjói^ðungssambands fiskideilda
Vestfjarða, og átti því sæti á þeim
samkomum. Hann kom fyrst á
Fiskiþing árið 1919 og átti þar
sæti með nokkru uppihaldi, til
ársins 1955. Hann var þar jafnan
meðal atkvæðamestu fulltrúa,
greiður til framsögu og flutnings
málum og afkastamikill í nefnd-
um. Hann var lengi' varaforseti
Fiskifélagsins. Vart hafa aðrir haft
méiri afskipti af málum Fiskiþings
en hann og mun það sjást, ef saga ;
Fxskifélagsins og Fiskiþinganna
verður einhvern tíma færð í letur.
Slysavarnamálin voru honum og
mjög hugleikin og tók hann mik-
inn þátt í störfum slysavarnasveit-
anna og á þingum félagsins um
langt árabil. Hann hafði atkvæða-
mikil afskipti af málum Iðnaðar-
mannafélags ísafjarðar um fjölda
ára, og var oft formaður félags-
ins.
Amgrímur sinnti jafnan rit-
störfum ýmiss konar. Hér að fram-
an er getið um útgáfu Dags og
hlutdeild hans í ritstjórn Vestra.
Árið 1934 gerðist hann ritstjóri
blaðsins Vesturland og sinnti því
starfi, og þó jafnan í hjáverkum,
til ársins 1942. Hann safnaði og
gaf út allmikið safn af Vestfirzk-
um þjóðsögum, skráði endurminn-
ingar Árna Gíslasonar yfirfiski-
matsmanns, er þeir nefndu „Gull-
kistuna" og hefir að geyma mik-
inn fróðleik um fiskveiðar í ísa-
fjarðardjúpi . frá árabátaöldinni.
Einnig tók hann saman bækling
um leikstarfsemi og leikfélög á
ísafirði, bækling um prentsmiðjur
og prentara á ísafirði og ýmislegt
fleira, hygg ég. Allmikið mun
hann og láta eftir sig í tíandrit-
urri, þár á meðal ævisögu. eða nær
fullgerða ævisögu Torfa Halldórs-
sonar skipherra á Flateyri. Hann
flutti og mörg erindi í útvarpið.
‘ Arngrímur rak verzlun mestan
liluta ævinnar, jafnan í smáum
stil. En þó kunni hann svo með
að fara, að hann hélt fjölmennu
heimili sínu uppi að mestu á þeirri
atvinnu, þótt drjúgar tekjur af
öðru hrykkju og þar til. Hin dug-
mikla kona hans átti þar og mik-
inn þátt í. Hann var maður hag-
sýnn og séður í fjármálum og
fljótur að sjá fjáröflunar-mögu-
leika. Hann átti hlut að stofnun
útgerðarfélagsins Huginn hér í
bænum á sínum tíma. Einnig átti
lrann þátt í stofnun vélsmiðjunnar
Þór hér í bænum og var mörg
síðari árin í stjórn þess fyrirtæk-
is.
Arngxímur kvæntist 21 árs gam
all fyrri konu sinni Guðríði Jóns
dóttur, systur Kristjáns H. Jóns
sonar, þáverandi ritstjóra Vestra
Hún lézt 1922 Þau höfðu eign
ast 8 börn og eru 3 þeirra látin
Síðari konu sinni, Ástu Eggerts-
dóttur Fjeldsteð, kvæntist hann
1923. Börn þeirra eru 11, öll á lífi,
hraustleika og tápfólk til vits og
verka. Það lætur að líkum, að oft
hefur verið þungt fyrir fæti hjá
þeim hjónum með svo fjölmennan
barnahóp — Myndu fáir hafa stað-
ið þár í ístað'inu á borð við Arn-
grím. Hann var sívinnandi og með
hugann fastan við að sjá sér og
sínum borgið. — Hagur þeirra
rýmkaðist og furðu fljótt, og gerð
ist Arngrímur vel efnum búinn að
lokum.
Hér hafa verið týndir til nokkr-
ir þættir úr starfssögu Arngríms
Fr. Bjamasonar og þó aðeins
stiklað á stóru. Maðurinn sjálfur
var um rnargt mjög eftirminnileg-
ur. — Hann var maður mjög fjöl-
greindur, framlegur oft í hugsun,
fljótur að tileinka sér ýmsar nýj-
ungar, er hann las um og átti létt
með að setja fram skoðanir sínar.
Breytinn þótti hann stundum í
skoðunum og háttum. Og eins og
títt er um ýmsa vitmenn, var hann
ekki lesinn niður í kjölinn, sem
kallað er, við fyrstu viðræðu. —
Ymsir ætluðu honum því aðrar
hvatir, en hann bjó yfir. Hann var
alla ævi velviljaður öllum fram-
kvæmdum í verklegum efnum og
studdi fast framfaraviðleitni ein-
staklingsins í ræðu jafnt sem riti,
þar sem hann mátti því við koma,
þótt slíkt væri honum að öðru leyti
óviðkomandi. Hann hafði ríka
löngun til að verða góðu máli að
liðl. Það sýndi sig meðal annars í
afskiptum hans af bindindismálum
og þó einkum af slysavarnarmál-
unum hér vestra. Þar var hann um
skeið duglegur liðsmaður og
áhrifamikill. — Hann var mjög
hraðvirkur við störf sín og éinatt
afkastamikill. Var því ekki furða
þótt sitt hvað. er hann lét frá sér
fara á prenti, væri eigi jafn vand-
lega unnið og ýmsir æsktu, og er
slíkt alltítt. Hann fylgdist jafnan
vel með öllum viðburðum á stjórn-
málasviðinu, lika því, sem á bak
við tjöldin gerðist og ræddi um þá
atburði án flokkshyggju. Síðari
árin tók hann lítt eða ekki þátt í
flokkadeilum. — Lengstum var
Arngrímur hraustur til heilsu og
hlífði sér lítt. Fyrir rúmu ári fékk
hann magnleysi í fætur, er ágerð-
ist brátt svo hann steig ekki á
fætur úr því. Tók hann því með
rósemi og ræddi við kunningja
sína, er sóttu hann heim og fylgd,
ist nákvæmlega með viðburðum ut
an lands og innan.
Við Arngrímur höfðum um
langa hríð, fyrr á árum, margt
saman að sælda. Valt á ýmsu um
f.vlgi við menn og málefni í kosn-
ingum og á öðrum vettvangi, en
ekki svo að til langvarandi þykkju,
því síður óvildar. drægi. — Og
fieiri voru fyrr á árum sameigin-
leg hugðarmál okkar beggja. —
Nú að leiðarlokum flyt ég honum
þakkir fyrir atfylgi hans í þeim
efnum og þau spor, sem hann skil-
ui eftir í ýmsum framfara- og
menningarmálum ísfirðinga.
ísafirði. 20. sept. 1962.
Kristján Jónsson,
frá Garðsstöðum,
Börn éskast
til að bera Tímann út í eftirtalin hverfi frá 1. okt.
Ægissíða
Grímsstaðaholt
Múlakamour
Barórtsstígur
Langholtsvegur
T I M I
afgreiðsla
Bankastræti 7
sími 12373
Frá barnaskólum
Reykjavíkur
Börnin komi í skólana mánudaginn 1. október n.k.
sem hér segir:
12 ára börn kl. 9 f.h.
11 ára börn kl. 10 f.h.
10 ára börn kl. 11 f.h.
4
Kennarafundur verður í skólunum kl. 15.00 sama
dag.
Fræðslustjórinn í Reykjavík
Stúlka óskast
til að selja happdrættismiða í bíl.
Upplýsingar á skrifstofu félagsins, Skólavörðustíg
18.
Styrktarfélga vangefinna
Takið eftir. Takið eftir
Þið fjármálamenn og peningamenn
Þið fjármála- og peningamenn.
Hvað er betra 1 dag en gulltrygg verðbréf?
Talið við okkur hvar sem þið búið á landinu (al-
gjört einkamál).
Allar upplýsingar gefur
Upplýsinga- og viðskiptaskrifstofan
Laugaveg 33B,
Reykjavík.
Box 58.
Til viðtals kl. 3—5 alla virka daga.
BARNASKÓLI HAFNARFJARÐÁR
Barnaskóli Hafnarfjarðar verður settur. í Hafnar-
fjarðarkirkju þriðjudaginn 2. október kl. 5 síð-
degis.
Kennarafundur verður í skólanum mánudaginn 1.
október kl. 9 árdegis.
Skólastjóri.
Kvennadeild Slýsavarnarfélagsins
í Reykjavík
í Reykjavík heldur fund mánudaginn 1. okt. n.k.
kl. 8,30 að Hótel Borg. Gengið um suðurdyr.
Þar sýna listdans, Guðrún, Guðbjörg og Heiðar
Ásvaldsson.
Félagskonur sýnið skírteini.
Stjórnin
Móðir okkar og tengdamóðir
VILBORG S. GUÐMUNDSDÓTTIR
frá Grjótnesi,
sem dó 25. þ.m., verður jarðsett frá Fossvogskirkju 2. okt. kl.
10,30.
Börn og tengdabörn.
Eiginmaður minn,
GUNNLAUGUR SIGURÐSSON
frá Stafafelli
andaðist í Landsspítalanum 27. sept. s.l. — Minningarathöfn í
Hallgrímskirkju f dag, sunnudag 30. sept. kl. 4 eftir hádegi.
Guðrún Guðjónsdóttir.
Útför konu minnar,
INGILEIFAR INGIMUNDARDÓTTUR
Suðurgötu 5, Keflavik,
fer fram frá Keflavikurkirkju þriðjudaginn 2. okt. kl. 2,30 s.d. —
Fyrir mina hönd, dætra minna og annarra vandamanna,
Jón Páll Friðmundsson.
J2
T í M I N N, sunnudagurinn 30. sept. 1962.