Tíminn - 30.09.1962, Qupperneq 14
— Eg veit af tilviljun, að hana
langar ákaflega mikið til þess að
komast hingað. Mig langar til að
tala nokkur orð við Trevallion
ofursta um hana. Viljið þér spyrja
hann, hvort hann hafi tíma til
þess?
Hanna rétti sig upp, eins og ég
hefði gefið henni utanundir. Og
andlit hennar varð grafalvarlegt.
Að lokum sagði hún svo virðu-
lega, að ég klökknaði:
— Eg myndi láta hann vera í
friði, ungfrú Browning, ef þér
viljið hlíta mínu ráði. Eg er viss
um, að þér viljið vel, en ofurst-
inn hefur orðið að þjást nóg.
— Eg ver að fá að tala við
hann um dóttur hans, sagði ég
og fann reiðina stíga upp í mér
aftur. Öi.1 þr-ssi leyndarmál, þessi
dularhjúpur hér. — Viljið þér
gera mér þann greiða að minnast
á það við hann, Eg skal ekki tefja
hann lengi.
— Gott og vel. Hanna yppti
öxlum. Svo sneri hún sér að mér
og sagði:
— Reynið ag gera hann ekki
áhyggjufullan, sagði hún seinlega,
og ég skildi, að hún unni bæði
Oliver og- Carolyn. — Þér eruð
svo ungar, að ég býst ekki við,
að þér hafið heyrt það, góða mín,
en hér urðu miklir sorgaratburð-
ir fyrir tveimur árum. Og allt gerð
ist á einni nóttu, Bezti vinur
ofurstans dó af voðaskoti og frú
Trevallion gekk í svefni og drukkn
aði. Það var voðalegt... og ofurst-
inn, sem elskaði hana svo inni-
lega! Hann sendi barnið og Jane
til ömmunnar og móðursystur
barnsins í London. Hann þoldi
ekki einu sinni að hafa málverkin
af þeim uppi. Það er ekki fyrr en
alveg nýlega, að hann er aðeins
að rétta við, svo að ég bið yður
að gera hann ekki hræddan.
— Það er dálítið, sem ég held,
að hann verði að vita um Carolyn,
sagði ég þverlega og Hanna and-
varpaði og fór.
Eg stóð kyrr og horfði á sjálfa
mig í speglinum um stund. Eg
vorkenndi manninum, sem hafði
misst Serenu, ungu, fögru konuna
sína, svo skyndilega og á svo
sviplegan hátt. Eg skildi ekki,
hvað Hanna hafði átt við ... En
þetta var allt voðalegt. En hvern-
ig stóð á því, að hann vildi ekki
hafa barnið hjá sér? Hann hafði
þó elskað það og móður þess af
öllu hjarta.
Hanna kom ekki fyrr en all-
löngu síðar og sagði, að hann væri
í bókaherberginu. Hann reis upp
af 'Stólnum við arininn, þegar ég
kom inn. Oliver Trevallion horfði
á mig, kuldalega og ópersónulega.
Hann heilsaði ekki, andlit hans
var svipbrigðalaust.
— Hanna segir mér, að þér
viljið tala við mig um Carolyn,
sagði hann, eins og ég væri þjónn
að sækja um stþðu hjá honum.
— Viljið þér cklci fá yður sæti,
ungfrú Browning, og segja mér,
hvað yður liggur á hjarta.
7. KAFLI.
— Fyrst og fremst, sagði ég
hikandi og settist í stólinn, sem
hann benti mér á, hinum megin
við arininn —-verg ég að biðja
afsökunar á því .. á því, að ég
sagðis^ koma hingað eingöngu til
þess að sjá staðinn.
Mark ■'hafði lagt sig ánægður á
gólfið milli okkar. Eg tók eftir
bókahillunum, sem þöktu alla
veggi, þetta var mjög' þægilegt,
karlmannlegt og notalegt herbergi
og undir öðrum aðstæðum hefði
ég glaðzt yfir öllu þarna.
— Já? Oliver horfði fast og
spyrjandi á mig, og þag örlaði á
fyrirlitningu j rómnum, ég fann,
að ég roðnaði undir augnaráði
hans. — Fyrst látig þér eins og
þér séuð ung barnfóstra, sem hef-
ur ferðazt alla leið frá London
til að sjá Mullions. Svo segir
Hanna, að þér þekkið Carolyn og
verðið að tala vig mig um hana.
Eg held, að það sé bezt að þér út-
skýrið hvag þetta á allt að þýða,
alveg frá upphafi. Hamingjan má
vita, hvers vegna þér sögðuð mér
það ekki strax, þegar við hittumst.
Mér gezt ekki að krókaleiðum.
— Eg var óttaslegin... .sagði
ég barnalega, og ég sá hann lyfta
brúnum. — Eg óttaðist, að þér
mynduð reiðast ag ég skipti mér
af einkamálum yðar. Eg hef svo
lítið til ag fara eftir....ég veit,
að ég er uppáþrengjandi — en
mér þykir reglulega vænt um
böm, og ég hef afskaplega mikl-
ar áhyggjur af Carolyn.
Engin svipbrigði vóru sjáanleg
á andliti hans, en það var eins og
dökkur skuggi hvíldi yfir andliti
hans, þegar hann ieit inn í eld-
rnn. Það var léttir, að hann hvarfl
aði frá mér þessum rannsakandi
augu.m.
Mér til mikiliar furðu sagði
hann næstum vingjarnlega.
— Við höfum öll haft afskap-
lega miklar áhyggjur af Carolyn,
en ég efast um, ag það sé nokkuð,
sem þér getig gert fyrir hana. Er
ekki hyggilegast, ag þér segið
mér, hvar þér komið inn í málið,
ungfrú Browning?
Eg sagði honum, ag ég væri út-
lærð Greystone-barnfóstra, ég
sýndi honum meira að segja skil-
ríki og prófskírteini mín. Þag er
bezt, að hann sjái með eigin aug-
um, ag ég hef reynslu í að hugsa
um börn, hugsaði ég með sjálfri
mér. Hann Leit kurteislega á það,
braut blöðin snyrtilega saman og
rétti mér aftur. Rödd hans var
eilítið hæðnisleg, þegar hann
sagði:
— Það lítur út fyrir, að þér
hafið staðið yður vel í þeirri stöðu,
sem þér vöiduð yður. En ég verð
að tjá yður, að Carolyn hefur sína
eigin barnfóstru -r- hún heitir
Jane Polvern. Áreiðanleg, ung
stúlka, sem hefur verið hjá henni
síðan hún var smábarn. Ekki sér-
staklega greind, en þar sem
svona er í pottinn búið .. hann
yppti öxlum.
Eg blóðroðnaði. Hann hélt
hreint og beint, að ég væri að
leita mér að nýrri stöðu.... eins
og nokkur Greystonebarnfóstra
þyrfti að bera sig eftir því á þenn
an hátt! Eg sagði honum í flýti,
að ég væri ráðin hjá BeLlington-
hjónunum og mér þætti afar vænt
um Marty og Dwight. Og þar sem
ég var bæði utan við mig og feim
11
| in, sagði ég honum líka, að þau
hyggðust íara .til Ameríku á næst
I unni, en gat þess þó ekki, ag þau
! vildu, að ég kæmi með þeim.
! — Ef þér viljið hringja til frú
Bellington, sagði ég hreykin og
skrifaði niður heimilisfangig og
símanúmerið, þar sem þau ætl-
uðu að dvelja yfir helgina og
rétti honum — getur hún sagt
yður, ag ég er áreiðanleg í alla
staði. Maður fær ekki Greystone
méðmæli fyrr en við erum búnar
að taka hjúkrunarpróf líka, ég get
vel annazt um sjúk börn eins og
frísk, og ég veit sannarlcga heil-
mikig um þau.
— Það efa ég ekki. Þér hljótið
að hafa lagt hart að yður, þar
sem þér getið lagt fram jafn góð
meðmæli, svona ungar, og nú
brosti Oliver Trevallion loksins.
Hann sagði mér síðar, ag ég hefði
setig þarna meg eldrauðar kinnar
og augu, sem lýstu af stolti og
reiði.
— Eg hafði ekki Iiugsan m»r
að biðja yður ag ráða mig, Tre-
vallion ofursti, sagi ég kuldalega.
— Eg big yður bara um, að þér
leyfið Carolyn ag koma aftur hing
að, þar sem hún þráir að vera.
Nú hafði ég sagt það. Þegar ég
sá, hvernig andlit hans — já,.þók-
staflega lokaðist — hefði ég get-
að bitið úr mér tunguna fyrir að
hafa bunag út úr mér erindinu
á þennan hátt. Eg hafði reitt
þennan mann til reiði, ég hafði
sært hann, ég vissi ekki einu
sinni, hversu djúpt ég hafði sært
hann.
— Sagði .. móðursystir henn-
ar....sagði ungfrú Donovan yð-
ur það? spurði hann skyndilega.
— Þér skuluð annars sleppa titl-
inum, ég fór úr hernum fyrir
fjölda ára. Þetta er bara vani'
Sigur vesturveida, eftir
Arthur Bryant Heimildir:
STRIDSDAGBÆKUR
165
þoli áreynslu og erfiði ferðar-
innar.
í kvöld bárust þær fréttir, að
herdeildir okkar væru í Briissel
og sæktu fram í áttina til Ant-
werpen. Það er mjög erfitt að
trúa þvf . . .
5. september. Queen Mary. Fór
að heiman í morgun laust eftir
klukkan 9 f.h. og ók til Addison
Road. Þar fór ég í einkalest for-
sætisráðherrans. Litlu eftir að
lagt hafði verig af stað, sendi for-
sætisráðherrann eftir okkur til
ráðstefnu. Hann virðist enn vera
þeirrar skoðunar, að það væri í
fyllsta máta réttlætanlegt, að við
sendum fallhlífar-stórfylki . (um
2000—3000 menn) til nágrennis
Aþenu, enda þótt enn séu a.m.k.
150,000 Þjóðverjar í Grikklandi.
Eg varð að sannfæra hann um
það, að slfk áætlun kæmi alls ekki
til greina . . .
Um klukkan 7 e.h. komum við
til CLyde og fórum tafarLaust um
borð í Queen Mary.
6. september. Queen Mary. Þegar
ég vaknaði, var Queen Mary á Leið
yfir sundið, með strönd írLands í
augsýn. KLukkan 10,30 héldum vig
herráðsforingjafund, til þess að
ræða um stefnu okkar í viðræðun-
um við Ameríkumenn. Við rædd-
um einnig möguLeika á brottflutn-
ingi herafla frá Evrópu, vegna
styrjaLdarinnar við Japan, og kom
umst að þeirri niðurstöðu að rétt-
ast myndi að bíða atburða nokk-
urra næstu daga, áður en við
tækjum nokkra endanlega á-
kvörðun . . .
8. september. Queen Mary. Við
höfum verið í Golfstraumnum í
allan dag og hitinn j skipinu er
óþægilegur og mollulegur. Sátujn
fund með forsætisráðherranum
frá klukkan 12 á hádegi til kl.
1,30 e.h. Hann var ellilegur, las-
inn og dapurlegur. Hann byrjaði.
á því að saka okkur um skipu-
Lagða mótspyrnu gegn sér og vilja
sínum. Samkvæmt fullyrðingum
hans, vorum við að fara til Que-
bec í þeim tilgangi einum, að
fá Löndunarskip hjá Ameríku-
mönnum, til þess að hernema Tri-
este. Hann sagði að við Legðum
það til ag fluttur yrði her frá
Evrópu til Burma, en hefðum aldr-
ei sagt sér, að þessi herflutningur
væri undir ósigri Hitlers kominn
— aigerlega fölsk ásökun! Hann
fullyrt einnig að við hefðum sagt
sér ag það þyrfti éinungis eina
herdeild á Burma, og nú töluðum
við um fimm — ein'nig hér alger
rangfærsla á staðreyndum: Það
var erfitt að stilla sig við hann,
en ég gat ekki annað en vorkennt
honum.
Árangurinn varð enginn og við
ákváðum að halda áfram á morg
un. Að lokum sagði hann. „Hér
erum við og eigum að hitta Ame-
ríkumennina innan 72 klukhu-
stunda og höfum enn ekki kom-
izt að samkomulagi um eitt ein-
asta atriði . . . . “
En ráðstefnan reyndist árangurs
ríkari en Brooke hafði búizt við
þegar brezku og bandarísku her-
ráðsforingjarnir hittust hinn 12.
september, höfðu herir beggja
ríkjanna unnið margra vikna sigra
á öllum vígstöðvum. Fyrsta dag
mánaðarins hafði Áttundi herinn
rofið gotnesku línuna og Ameríku
menn voru komnir inn í Pisa. Dag
inn eftir báðu Finnar um skil-
yrðisbundið vopnahlé og Bretar
frelsuðu Lille. Sunnudaginn 3.
september frelsuðu hinir síðar-
nefndu Briissel og hinn 4. s.m.
Antwerpen. í lok þeirrar viku
hafði Ostend fallið í hendur Kana
damannanna. Ameríkumenn og
Frakkar sem sóttu fram eftir
Rhone-dalnum voru komnir til
Burgundy og Rússar höfðu ráðizt
inn í Búlgaríu. Daginn áður en
í ráðstefnan hófst fóru fyrstu ame-
rísku hermennirnir yfir þýzku
landamærin og næsta dag gafst
hafnarvorgin Le Havre upp.
„12. september. Quebec. Her-
ráðsforingjafundur klukkan 10 f.h.
sem var hinn ánægjulegasti og
fullt samkomulag ríkti milli okk
ar og amerísku herráðisforingj-
anna. Þeir voru fúsir að láta ame
rískar herdeildir vera kyrrar á
Ítalíu, þar til Alex hefði lokið
sókn sinni.
13. september. Langur fundur,
þar sem forsætisráðherrann flutti
langa ræðu um það, hvernig styrj
öldin skyldi háð. Samkvá;mt hans
skoðun höfðum við tvennt til að
keppa eftir; í fyrsta lagi var það
sókn til Vínar og í öðru lagi
hernám Singapore.
Mér er nú miklu rórra í skapi.
Þessi fundur er senn á enda. Ár-
angur hans hefur orðið góður,
þrátt fyrír skap og skoðanir
Winstons . . . “
ÞÆR ÁKVARÐANIR, sem
teknar voru á ráðstefnunni virt-
ust nu samkvæmar einlægum
vilja beggja aðilanna. Sú ákvörð
un að fela æðsta hershöfðingja
stjórn allsherjar-hernaðaraðgerða,
hafði verið samþykkt frá upphafi
og það var ómögulegt fyrir brezku
herráðsforingjanna á slíkum sigur
tíma, að efast um hæfileika þess
hershöfðingja sem bæði ríkin
höfðu trúað fyrir stjórn herja
sinna. Um hernaðaraðgerðirnar
bæði á Ítalíu og Burma reyndist
þeim auðvelt að ná samkomulagi.
Tilkynna átti Winston hershöfð-
ingja að engar herdeildir yrðu
kallaðar frá Ítalíu fyrr en árang-
urinn af sókn Alexanders væri orð
inn kunnur Yfirhershöfðingi Suð-
austur-Asíu skyldi hreinsa Burma
áður en tími sumarmonsúnanna
1945 byrjaði og áður en hafin
yrði innrás á Malaya-skagann síð-
ar á árinu, jafnframt átti Fjórt-
ándi herinn brezki að stefna yfir
Chindwin í áttina til Irrawaddy og'
Mandalay. meðan sex brezkar og
indverskar herdeildir, sem flutt-
ar yrðu frá Miðjarðarhafssvæðinu
og Mið-vestur-Evrópu, gerðu inn-
rás í Rangoon.
„15. september. Quebec. Herráðs
foringjafundur klukkan 10 f.h'. til
þess að ganga frá endanlegri
skýrslu okkar til forsetans og
forsætisráðherrans. Þegar á allt
er litið, getum við verið ánægðir
með þann árangur sem náðst hef
ur og Ameríkumennirnir hafa ver
ið aðdáanlega samvinnufúsir og til
slökunarsamir.
16. september. Fórum klukkan
3 e.h. frá gistihúsinu til flugvall
arins og lögðum af stað þaðan í
tveimur flugvélum, Cunningham,
Portal, Leckie og ég. Flugum í
eina klukkustund í norð-vestur frá
Quebec með stefnu á Hudsons-
flóann. Eftir u.þ.b. 150 mflna vega
lengd komum við að Oriskany-
vatninu, þar sem við ætluðum að
dvelja í nokkra daga og veiða í
| vatninu.
18. september. Fór á fætur kl. 6
f.h. Eftir hádegisverð lagði Cunn-
ingham af stað til Quebec og New
York en við Partal héldum til
14
T f M I N N, sunnudagurinn 30. sept. 1962.