Tíminn - 03.10.1962, Blaðsíða 3
Fyrir nokkru varð bandárísk flugvél a'ð nauðlenda á Atlantshafi. Með vélinni voru 76 manns. Skip, sem
voru í nánd fóru strax á vcttvang og svissneska skipið Celerina bjargaði 49 manns. Hér er einn af far-
þegum flugvélarinnar, en hann hafðj verig fluttur með þyrilvængju til írlands. Þa'ð má greinilega sjá
á myndinni brunasár á líkama mannsins.
HVÍTU STÚDENT
ARNIR ÞRÁAST
Schirra í geim-
flugið í dag?
NTB—Canaveralhöfða, 2. okt. | orkusprengjur í háloftunum á
í síðustu fréttum frá Cana-|nieðan á geimferð Shilla stæði.
Nkomo
sviptur
NTB-Oxford, 2. okt.
Allt hefur verið með
kyrrum kjörum í Oxford,
Mississippi í dag. Svertinginn
James Meredith sótti fyrir-
lestra við háskólann í fylgd
með 10—15 lögreglumönnum,
og í nótt svaf hann óáreittur
í heimavist háskólans. Þrátt
fyrir þetta er enn mikil
spenna í loftinu i háskólabæn-
um.
Sagt er, að stúdentarnir við há-
skólann hafi enn ekki sætt sig við
Kosnmgu í
Frama lýkur
Fulltrúakjör á þing A.S.Í. í Bif-
reiðastjórafélaginu Frama stend-
ur nú yfir og lýkur f kvöld kl. 9.
Að B-listanum standa frjálslynd
ir lýðræðissinnar, menn, sem hafa
gext sér það Ijóst að öfgaöflin
til hægri og vinstri hafa að jafn-
aði ráðið of miklu í félagsmálum
stéttarinnar. Afleiðingin af þvf er
s'ívaxandi sundrung, og oft hefur
verið hugsað meira um pólitíska
hagsmuni öfgaaflanna en hag
stéttarinnar. Framboð B-listans
er tilraun til þess að sameina öll
þau frjálslyndu og jákvæðu öfl í
félaginu, sem andvfg eru slíkri
þróun.
Bifreiðastjórar, kjósið B-list-
ann og gefið með því hinni dug-
lausu stjórn Frama, áminningu —
sem svar við síðustu málamynda
hækkun ökutaxtans. Hvert at-
kvæði, sem C-listinn — klofnings
listi kommúnista — fær, er óbeinn
stuðningur við öfgaöflin til hægri.
Stuðningsmenn Blistans, kjósið
sem fyrst. Kosið verður frá kl.
13—21 í dag. Á morgun verður
það of seint.
Hafið samband við kosninga-
skrifstofuna, Tjarnargötu 26, sími:
15564.
það, að Meredith fékk inngöngu í
skólann. Hins vegar hafa þeir lát-
ið af öllum óeirðum, enda er nú
10 þúsund manna herlið í borg-
inni, og er því ætlað að halda þar
uppi röð og reglu. íbúar borgar-
innar sjálfrar eru aðeins um 50
þúsund. Aðalstarf lögreglu og her-
liðs er að sjá um að allt fari
friðsamlega fram í borginni, og
p.ð svertingjanum verði á engan
hátt gert mein.
Unnið er að því, að fá fólk til
þess að afhenda vopn, sem það'
hefur undir höndum, og hafa milli
20 og 30 manns verið handtekin
vegna þess. Meðal þeirra, sem lög-
reglan hefur handtekið, er maður
nokkur og 14 ára gamall sonur
hans, en upp komst, að þeir höfðu
undir höndum miki^í vopnasafn,
bæði byssu, veiðihnífa og skot-
færi.
Yfirvöldin hafa gert allt, sem í
þeirra valdi stendur, til þess að
koma í veg fyrir, að Meredith
verði gert mein. Aðfaranótt þriðju
dags lýstu ljóskastarar upp allt
svæðið í kringum háskólann, og
gangarnir, sem liggja að herbergi
hans voru einnig upplýstir, og þar
var hafður stöðugur vörður alla
nóttina.
Meredith hlustaði á fyrirlestra
við skólann í dag, og var hann í
fylgd með 10—15 lögreglumönn-
um. Mættu honum alls staðar hat-
srsfullar augnagotur frá hinum
hvítu samstúdentum hans. Því er
nú haldið fram 1 Oxford, að 76%
kvenstúdenta hafi horfið á brott
frá skólanum og helmingur allra
pilta, sem stunda þar nám. Yfir-
menn skólans hafa neitað að stað-
festa þessar tölur, en viðurkenna
þó, að nokkur hluti nemenda hafi
fengið viku leyfi frá fyrirlestrum.
veral-höfða segir, að veðurút-
lit fari stöðugt batnandi, og
allt útlit sé fyrir, að hægt!
verða að senda Walter Schirra !
út í geiminn á morgun, eins og
ákveðið hafði verið. Schirra á
að fara 6 hringi í kringum
hnöttinn.
Miklir stormar hafa verið á
Kyrrahafinu, en þar á Schirra að
lenda, og hafa vísindamenn ótt-
azt, að fresta yrði geimskotinu,
þar eð vindurinn gæti haft óþægi
leg áhrif á lendinguna. Nú hefur
stormurinn breytt sér, og ætti því
öllu að vera óhætt segja þeir.
Walter Schirra og aðstoðarmaður
hans, Gordon Cooper eru báðir
reiðubúnir, og hafa þeir verið að
kynna sér ýmis tæknileg atriði
í sambandi við geimferðina. Ef
allt fer samkvæmt áætlun á ferð
Schirra að taka 9 klUkkustundir
11 mínútur, og á hann þá að fara
6 hringi umhverfis hnöttinn. —
Geimfari hans verður skotig á loft
frá Canaveralhöfða og lendir hann
síðan á Kyrrahafinu um 440 km
norðaustur af Midway-eyju, sem
er í norðvestur frá Hawaii.
Verður þetta í fyrsta sinn sem
geimfari Bandaríkjanna lendir ut
an Atlantshafsins, en ef til þess
kynni að koma, að Schirra færi
aðeins 3 hringi í stað 6 er ætlun
in, að hann lendi í Atlantshafinu.
Mikill fjöldi manna er kominn
af stað til þess að vera viðbúinn
lendingu geimfarans, einnig eru
30 skip á leig til lendingarstaðar
ins og fjöldi flugvéla.
í dag var síðan sendiherra Sovét
ríkjanna í Washington afhent
bréf, þar sem bandaríska stjórnin
fór þess á leit við Sovétstjórnina,
að hún léti ekki gera neinar kjarn
Sviss iánar SÞ
2 milli. dollara
NTB—Bern, 2. okt.
Sviss'neska þingið hefur sam-
þykkt að veita Sameinuðu þjóð-
unum lán að upphæð 1.900.000
dollarar, og er það gert, þrátt fyr-
ir það, að Sviss er ekki aðili að
Sameinuðu þjóðunum.
Lánveitingin var samþykkt með
93 atkvæðum gegn 11, en 50 sátu
hjá. Ætlunin er að skipta fjár-
hæðinni á milli stöðva S.Þ. í
Genf, en alþjóðadómstóllinn í
Haag mun fá 225 þúsund dollara.
Til Genfar fara 1.500.000 dollarar,
en afgangurinn fer til annarra
deilda S.Þ., scm aðsetur hafa í
Evrópu.
Margir fulltrúarnir á þinginu
héldu því fram í umræðum um
lánveitinguna, að með þessu væri
hlutleysisstefna Sviss brotin. Ut-
anríkisráðherra Sviss, Friedrich
Wahlen, heldur þó hinu gagn-
stæða fram.
VARA VIÐ RÖNT-
GENLÆKNINGUM!
Nefnd vísindamanna á veg-
um SÞ, sem starfar að rann-
sóknum á áhrifum af völdum
atómgeisla, lagSi nýlega fram
víðtæka skýrslu um þá
reynslu, sem fengizt hefur
í þessum efnum á undanförn-
um 4—5 árum. í skýrslunni
er m. a. staðhæft að nú sé
fyllsannað, að geislun — jafnl
vel í smærri skömmtum en
þeir, sem framkalla áberandi
sjúkleg áhrif — geti orsakað
illkynjaða sjúkdóma, svo sem
krabbamein, hvítblæði og arf-
genga sjúkdóma, sem í vissum
tilfellum er ekki auðvelt að
oreina, hvort stafa af geislun
eða eigra sér eðlilegar 'jrsakir
í skýrslunni segir, að í náttúr- i
unni eigi sér alltaf stað geislun,
meiri en sú, sem vísindatilraunir
með kjarnorkuna skapa. En vert
sé að gefa fyllsta gaum hinni
a.uknu geislun, sem mannkynið
verður fyrir af skamm- eða lang-
þfum geislavirkum efnum í and-
rúmsloftinu, sem stafa frá kjarn-
orkuvopnatilraununum.
Ástæðan til þess, að hér þarf
•yllstu varúðar við er sú, að áhrif
lrá aukinni geislun koma fyrst fyr
Framh. á 15. síðu
frelsi
NTB—Salisbury, 2. okt.
Afrlkanski þjóðarleiðtog-
inn Joshua Nkomo var í dag
sviptur frelsi sínu, er hann
kom hingað frá Nairobi í
Kenya. Lögreglulið beið for-
ingjans á flugvellinum, og um
leið og hann steig út úr flug-
vélinni, var hann fluttur yfir
í lögreglubifreið, sem flutti
hann á brott.
Nkomo er foringi Zahu-flokks-
ins, og hefur nú sá flokkur verið
bannaður, en þetta er þriðji stjórn
málaflokkurinn, sem bannaður er
í Suður-Rhodesíu. Flokkurinn var
bannaður 20. sept. s.l. og þá voru
fjölmargir flokksmeðlimir hand-
teknir.
Stjórnin kennir Zahuflokknum
um íkveikjur og skemmdarverk,
sem framin hafa verið, en flokk
úrinn hefur neitað því, að hann
eigi nokkurn þátt í þeim. Á þeim
tíma, sem þau voru framin var
Nkomo sjálfur staddur í Norður-
Rhodesíu, og nokkrum dögum síð
ar fór hann til Tanganyka, og síð
an til Nairobi.
Um 150 menn biðu Nkomo á
flugvellinum, þegar hann kom frá
Nairobi, en þeir sáu honum að-
eins bregða fyrir, áður en lög-
reglar færði hann yfir í lögreglu-
bifreiðina og fluttí hann til Bola-
waya í Plumtree-héraðinu.
ÞjóSkjörinn forseti
NTB—París. 2. okt.
De Gaulle Fnakklandsfor-
seti hcfur laigt fyrir franska
þingið tillögu um að forseti
verði framvegis kjörlnn í
þjóðamtkvæðagreiðslu.
Fram ti'I þessia hefur for-
setinn verið kosinn af nefnd
úr þiniginu, ef tillaga for-
setans nær fram að ganga,
verður þessu breytt, er kjör
tímabili de Gaulle lýkur. A-
kveðið hefur verið, að fram
fari þjóðaratkvæðagreiðsla
28. október n.k. Þar fá menn
tækifæri fil þess að ákveða,
hvort þeir vilji heldur fá
að kjósa forsetann sjálfir,
eða hafa þann háttinn á,
sem verið hefur fmm til
þessa
Hræðast áhrif Kúbu
NTB—Washington, 2. okt.
Utanrflcisráðherrar Ame-
ríku'landanna hafa nú kom-
ið samian á óopinberum
fundi í Washington, og er
ráðgert, að þar verði rætt
um kommúnistahættuna,
sem ógnar hinum vestrænu
löndum frá Kúbu.
Fundurinn er haldinn i
ut.anríkisráðuneyti Banda-
ríkjanna, og Dean Rusk ut-
anríkisr'áðherra er f forsæti.
TÍMINN, miðvikudaginn 3. október 1962
3