Tíminn - 07.10.1962, Síða 2
Fjölhæfasta farartækið
á Sandi
Vegna þeirra mörgu, sem hafa í huga kaup á landbúnaðarbíl-
um (fjórdrifsbílum) viljum við benda á nokkur atiiði, er hinir
800 eigendur Land Rover bila álitu að skiptu miklu máli þegar
þeir völdu sér landbúnaðarbifreið.
1. Stór liður í viðhaldskostnaði bifreiða eru ryðskemmdir á
yfirbyggingu og undirvagni. Yfirbygging og hjólhlífar á
Land Rover er úr aluminium blöndu. GrinS er öll ryðvarin
að innan og utan.
2. \Heppilegt er að bilar sem mikið eru notað'ir í vatni og aur-
bleytu, og þurfa þar af leiðandi nokkra eftirtekt hvað smurn-
ingu viðvíkur, hafi sem fæsta smurstaði. Land Rover hefur
aðeins 6 smurkoppa og auðvelt er fyrir eigendur að smyrja
í þá sjálfir með þrýsti-smursprautunni sem fylgir hverjum
bfl.
3. Bændur, sem nota þurfa bíla síria við heyvinnu vita það vel,
hvað áríðandi það er, að sem fæstir óvarðir snúningsöxlar
séu í drifbúnaði bílsins, og að auðvelt sé að verja þá fyrir
heyi. Með Land Rover getið þið fengið ódýrar hlifar fyrir •
hjöruliðina sem verja þá fyrir heyi, háu grasi eða þara-
bunkum.
4. Allir, sem eitthvað hafa ekið í torfærum og brattlendi, vita
hvað áríðandi er að handhemill sé traustur, endingargóður
og vel varinn fyrir öllu hnjaski. Handhemilsbúnaður Land
Rover er vel varinn upp í grindinni og verkar á hemlaskál á
drifskafti. Stilling er gerð með einni skrúfu og er það bæði
fljótlegt og auðvelt.
Það er margt fleira, sem benda mætti á, t.d. mætti nefna að
Land Rover hefur mjög rúmgóð framsæti og er skráður sem 7
manna bifreið. Einnig ættu menn að athuga að auðvelt er að
koma fyrir keðjum á Land Rover, bæði á fram- og afturhjól,
og að sporvídd hjólanna er sú sama.
Skrifið, hringið eða hafið tal af okkur og við munum ieysa
úr spurningum yðar og veita yður allar nánari upplýsingar.
Heildverzlunin Hekla h.l.
Hverfisgötu 103 — Sími 11275
REYKVÍKINGAR HAFA tekið
eftir því, að allmiklar breytingar
liafa verið gerðar á lóð hins aldna
og fagurgerða Safnahúss á horni
Hverfisgötu og Ingólfsstrætis. Við
þetfca hefur hornið oig húsið óineit-
anlega breytt um svip, og flestir
segja, að þarna hafi rýmkað og
fríkkað við aðger&irnar. í miðri
vikunni sem leið heyiðist önnur
rödd um þetta, er eitt borgarblað-
anna ræddi má’iið og taldi, að hér
hefðu afglöp átt sér stað, og sagði
m. a.:
„Alþýðublaðið harmar þá með
fcrð, sem Safnahúsið hefur feng
ið. Hú,n sýnir átakanlega, að
íslendingar kunna ekki gott að
meta og haga sér eins og ný-
ríkir smckkleysingjar“.
Af því að þetta er raunar mál,
sem er meira en eitt hús og ein
girðing, er við hæfi að ræða það
,nokkru nánar oig reyna að gera
sér Ijóst, hvorfc réttmætt _er að
harma það, sem hér liefur verið
gert. Garðar og girðingar eru
gamalt fyrirbæri í borg og byggð,
og smekkvísi eð,a smekkléysi í
þeim- efnum hefur oft úrslitaþýð-
ingu um útlit hverfa og húsa.
4
FYRR Á ÁRUM og allt fram
á þriðja og fjórða tug þessarar
a'ldar þótti sjálfsagt að sctja ramm
gerða girðingu utan um hús og
garð.a, alveg eins og bóndi girti
tún sín og engjar. Það kom jafn-
ve'l fyrir, að gaddavírinn skartaði
um garða í bæjum, meira að segja
í Reykjavík. Þéir, sem meira höfðu
við, Iétu gera stcingirðingar, j,afn-
vel steyptar í skrautmynztrum.
Fínast þótti þó að hafa rammlegar
járngirðingar, helzt með hringj-
um og víravirkjum, eins og tíðk-
anlegt var við dönsk slot og kon-
unglegar byggingar. f Reykjavík
voru gerðiar nokkivar slikar járn-
girðingar, og mun stærst og fræg
ust járn-gaddagirðingin u.mhverfis
Austurvöll. Þessi girðing var engu
óveglegri en sú, sem sjá má við
sjálfa Amalíenborg í kóngsins
Kaupmannahöfn. Þetta þótti bæði
skrautlegt og traust, enda var eng
um fært yfir þessa girðingu nema
fuglinum fljúgandi, enda þótti
þetíia góð girðing fyrir sauðnáut-
in, þegar þáu komu. Þannig var
Bíla- og
búvélasalan
Ferguson '56 diesel með
ámoksturstækium
Massey-Ferguson '59 með
ámoksturstækjum
Dauts ’53 II hp Verð 25 þús
1 Amoksturstæki a Dauts
alveg ný
Sláttutætan
Fahr 51 diesel rtieð sláttuvél
Hannomae '55—’59
John Dere '52
Farma! Cub '50—'53
Hjólamúgavélar
Hús á Ferguson
Heyhieðsluvél
Tætarai a Ferguson og
Fordson Major
Buk dieselvé) 8 hp
Vatnsfurbina '4—’6 kv
Bíla & búvélasalan
við Miklatorg Sími 2-31 3t
hjarta Rcykjavíkur varðveitt og
þótti vel hæfa frarn eftir ö'Idinrii.
Á vetrum var sprautað vatni á
völlinn, og svo léku menn sér á
sk.autum innan við jár.nvirkið, en
bongarbúar söfnu.ðust að á kvöld-
in og teygðu sig inn yfir gaddana.
Þetta var kunnug vetrarmynd úr
Reykjavík á fjórða tug aldarinn-
ar. Eg ma,n það t. d., hvað Bene-
dikt Waage var sprækur þarna
innan við gaddana. En annars
gcngu menn um miðbæinn vetur,
sumar, vor o,g haust fram hjá Aust
urvelli á þessum árum án þess að
sjá hann.‘Þétta hefðu alveg eins
getað verið fangabúð'ir.
EN EINHVERN VEGINN viar
það svo, að menn kunnu ekki vel
við jámgaddagirðinguna, þótt
virktasmíð væri. Loks kom þar
öðru hvoru megin við miðja öld-
ina, að ráðamenn í borgjnni létu
rífa girðinguna og lagfæra Aust-
urvöll. Umskiptin voru svo miki'l,
að furðu sætti. Aldinn og hrif-
næmur Reykvíkingur varð svo
g/aðu.r, að hann lyft’ist á tá og
sagði: „Þarna kom að því, að
Reykjavík liætti að kafna undir
höfuðborgar,nafninu“. Og fleiri
munu hafa hugsað likt.
En fóik var enn fastheldið við
l igarffia sína og girðingar, og ríkið
hélt í sitt. Safnahúsið hafði lengi
verið fegursfca og traustasta hús
Reykjavíkur. Þar hafði verið gerð
járngadda-skrautgirðing fyrir
framhlið við Hveríisgötu. En
þetta var mikið verk og dýrt, og
hún komst eiginlega aldrei fyrir
hor.n'ið, hvað þá kringum liúsið.
Þessu átti víst að ijúka síðar, þeg-
ar ríkið yrði ríkara. Allir gátu
fótum troðið' g,arð Safnahússins að
vfld eftir sem áður með því að
fara fyrir giringarendann — og
gerðu það óspart áratugum sam-
an. Þetta var þvi ciginlega ckki
girðing um garð, heldur líkast J
loníettu.m á ásjónu lnissins. Þessu
undu menn iengi vel og sáu engin j
m'issmíði á.
LOKS KOM ÞAR sumarið 1962, j
að húsbóndinn í þessu húsi ákvað
að svipta loníettunum burt. Hann
lét rífa girðinguna og slétta og
lagfæra lóðina. Þetta var mikið
fremdarverk og þakkarskylt, þótt
seint væri. Og menn námu staðar
á Hverfisgötunni og sögðu: En
hvað þetta hús er fallegt, ég hef
eiginlega ekki tekið eftir því fyrr.
Og sannleikurinn var sá, að nú
'loks naut Safnahúsið sín sem
skyldi. Línur þess blöstu við hrein
iar, hlutföll þess • nutu sín. Boga-
gluggarnir komu fram í réttri
mynd á miðju húsi. Þarna á götu-
horninu hafði rýmkað að mun.
Húsið var fríálsara eins og fólkið,
sem gekk kringum það. Hurð hafði
verið oipnuð og innilokun rofin-
Ilús'ið h.aföi risið og stækkað. Að'
vísu mátti um það deila, hvort
settar skyldu steinþrærnar á gras
feldinn við húsið, en það eru smá-
munir, sem ekki fela svip húss-
ins, oig hægt að taka þær hvenær
sem er.
ÉG HELD, að þegar við höfum
horft á Saf.nahúsið svo sem eitt
ár j'árngaddalaust muni þeir verð.a
fáir, sem „harma“ það, sem gert
hefur verið. Eða hver mundi nú
óska sér járngrindanna kringum
Austurvöll að nýju? Girðingar
mu.nu senn víkja úr borginni, og
sú kemur tíð, að fnargur húseig-
andinn tekur sér slegigju i hönd
og ræðst á steingarðinn fyrir fram
an húsið sitt — þennan steinigarð,
sem hann keypti dýrurn dómum og
taldi skrautvirki hú'ss síns. Og
fólkið mun hugsia: Skepnur þurfa
girðingar en ekki menn.
Að vísu má segja, að lausleg
girðing geti verið nauðsynleg,
meðan verið er að fóstra upp Við-
kvæman gróður í görðum, og með
an gatan er aurflag og malar-
syrpa, svo að verjast þarf fyrir
henni. En þegar gatan er fullgerð,
gangstéttir komnar og gróður vax-
inn í garðinum, munu menn sj'á,
að 'girðingin er óþörf. Skjólbelti
fljótvaxinna oig þóttra runna eða
sterkra trjáa eru m'iklu betri vörn
blómagróðursins í hjarta garðSins.
Þannig mun Reykjavík breytast á
komandi árum. Garðyrkjumenn
og umsjóuarmenn þessara mála f
borginni stefna yfirleitt í rétta
átt í þessu efni. Húsíin, sem nú
eru byggð, eru flest reisuleg og
falleg. Vel gerðar götur og ryk-
bundnar ásamt fallegum, girðing-
ariausum görðum eiga að full-
komna það verk að skapa fagra
borg. — Hárbarður.
Frá Jfekhá
Austurstræti 14 Sími 11687
Sendum hvert á land sem er
Góðir greiðsluskilmálar
\
i
2
T í M I N N , sunnudaginn 7. október 1962