Tíminn - 07.10.1962, Qupperneq 16

Tíminn - 07.10.1962, Qupperneq 16
 M ■ i 99 Sunnudagur 7. október 1962 224. tbl. 46. árg. boða kirkjtsþingið I sumarleyfi á iolum GB—Reykjavík, 6. október. ÞAÐ líður að annarri frumsýn- ingu Þjóðleikliússins í haust. N.k. miðvikudag verður í fyrsta sinn flutt ástralskt leikrit hér á landi, „Sautjánda brú'ðan" eft\r Ray Lawler, og leikur víst mörgum forvitni á að heyra og sjá hvers- konar leikrit þeir setja sammn hinum megin á hnettinum. Tveir félagar, Barney og Rue, hafa lifag saman súrt og sætt í tuttugu ár, unnið á sykurekrun- um í Ástralíu, tekið sér sumar- Ieyfi sitt um jólin, og það nær hápunkti á gamlárskvöld. Fyrstu þrjú árin hafa þeir borið niður hér og þar, eignazt IllJlegar skemmtikonur hér og þar, en í sautján sumur hafa þeir eytt sum arieyfihu í sama stað, gist hjá vinkonunni Olive, eytt þar stund um vig glaum og gleði og jafn- Framh. á 15. síðu 200 MENN I EFSTU 7 LAUNAFLOKKUNUM MB-ReyAjavík, 6. okt. Eins og sagt var frá í blað-i inu í gær, var þing Bandalags starfsmanna ríkis og bæja sett þann dag í Hagaskólanum í Reykjavík. Þingið sitja 138 fulltrúar frá 28 félögum, sem eru meðlimir að samtökunum, en félagatala þeirra er um 5000 manns. Þetta þing er mjög þýðingarmikið, en með- al mála, sem þar verður fjall- að um, eru lagabreytingar og breytingar á launaflokkum op- inberra starfsmanna. Samkvæmt tillögum Kjararáðs, sem lagðar hafa verið fyrir þingið, er gert ráð fyrir geysilegum breyt ingum á launakerfi opinberra starfsmanna. Lagt er til, að launa flokkar verði 31 og gert er ráð fyrir mun meiri mismun á laun- um opi'nberra starfsmanna. Sem daðni um launamismuninn má nefna það, að byrjunarlaun í iægsta flokki eru 5050 krónur á mánuði, en í 31. flokki 32828 krón ■ ur. Hækkun milli launaflokka er 15,5% brúttó, en nettóhækkun er ; nokkuð mismunandi, vegna skatta og annarra opinberra gjalda, eða frá 4,6% niður í 3,5%. Brúttóárs- kaup einbleyps manns í fyrsta launaflokki yrði, samkvæmt til- Rænulaus í 14 sólarhringa Jódís Björgvinsdóttir, sem varð fyrir bifreið 23. sept. síðastl., ligg ur enn meðvitundarlaus á Hand- lækningadeild Landspítalans, og er ástand hennar óbreytt. Hún hef ur nú verið meðvitundarlaus í fjórtán sólarhringa,. lögum kjararáðs, 79.200 krónur en nettóárskaup hans 63.015 krónur. Brúttóárskaup einhleyps manns í KRISTJAN THORLACIUS 30. flokki yrði 373.404 krónur, en nettóárskaup hans 202.278 krónur. Nettóárslaun fjölskyldumanns með þrjú börr) yrði í 1. flokki 75.040, en í 31. flokki 233.609 kr. Mörgum mun finnast þessar töl ur nokkuð háar. Hins vegar munu ekki allir gera sér grein fyrir því, að launagreiðslur til opinberra starfsmanna hérlendis hafa yfir- leitt verið mun lægri hingað til en gerist á hinum frjálsa vinnu- markaði. Má þar til dæmis nefna laun verkfræðinga. Riki og bær hafa ekki viðurkennt kröfur þær, sem verkfræðingar gerðu í síðustu kjaradeilu, en á almanna vitorði Framh. á 15. síðu í þessari viku hefst 21. kirkjuþing kaþólsku kirkj- unnar í borginni leilífu, Róm- arborg, og er að sögn páfa guð sjálfur, sem hefur boðað til þess. Á 20 öldum kristinnar kirkju hafa aðeins verið haldin 20 lög- gilt kirkjuþing. Venjulega hefur ákvörðunin um að halda kirkju- þing átt sér langan aðdraganda, og síðast, þegar kirkjuþing var háð, 1869—1870, tók það Píus páfa tuttugu ár að ákveða sig. í þetta sinn kom hugmyndin um kirkjuþingið eins og Þruma úr heiðskíru lofti. Á kirkjuþingum mæta biskupar og kardinálar kaþólsku kirkjunn- ar auk yfirmanna klaustrareglna og annarra prelá.ta. Kirkjúþingin eru haldin til þess að taka ákvarð anir í deilumálum kristinnar trú- ar og kristins aga. Samkvæmt upplýsingum Vati- kansins gerðist undrið 19. janúar 1959. Jóhannes 23. páfi var að undirbúa sig undir lokaþátt bæna vikunnar fyrir einingu kirkjunn- ar, þegar hann varð aðnjótandi „skyndilegrar og óvæntrar reynslu“. Hann segir svo sjálfur frá: Himnesk rödd sagði honum, að vegurinn til einingar kirkjunn ar lægi um nýtt kirkjuþing. Jóhannes páfi hefur sjálfur lýst því yfir, að hér hafi verið um beint samband við guð að ræða. Hann segir: „Þegar við vorum sokknir niður í auðmjúka bæn, fengum við guðlegt kall um að kalla saman kirkjuþing“. Meðan á • þessu stóð, varð páfinn greinilega var við nærveru guðs. Jóhannes varð Þá bæði hræddur og hrærð- ur. Fáum dögum síðar lýsti Jóhann es 23. yfir því, að kirkjuþing yrðí haldið, og varð það stórfregn í öllum hinum kaþólska heimi. Framh. á 15. síðu BRADABIRGÐALA USNIN VAR íKKI NÍINLAUSN Reykjavík, 5. okt. Tíminn hefur margsinnis tekið verzlunarhallærið í Háaleitishverf- inu til umræðu, enda hin mesta skömm að, hvernig afgreiðsia þess máls hefur verið. Og nú fyrst er tekið til við að reisa þar verzl- un, þó að liðin séu nú um þrjú ár, síðan veruleg byggð var ris- in í þessu fjölbýla hverfi. í morgun sáu íbúar hverfisins, hvar skrautmálaðir veggir þutu | Byggingamennirnir sögðu, að ekki upp með ævintýralegum hraða á i yrði seld mjólk í þessari verzlun. lóðinni, þar sem hin marguni-1 Þessi bráðabirgðalausn kemur rædda verzlunarhöll á að standa ] ærið seint, og er raunar engin einhvern tíma í framtíðinni. Tím-' lausn, ef ekki verður seld mjólk ir.n gerði ferð á vettvang og fékk þarna, því að þá þurfa íbúar hverf- þá vitneskju. að framkvæmda- i isins eftir sem áður að sækja stjórar verzlunarhallarinnar væru mjólkina niður á Grensásveg. Ósk- að láta reisa þarna bráðabirgða- ] andi er, að þessar „stórfram- skúr til að selja þar helztu mat-: kvæmdir“ dragi ekki mjög úr vörur, og skyldi skúrinn tekinn í framkvæmdum við verzlunarhöll- r.otkun um næstu mánaðamót.' ina langþráðu.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.