Tíminn - 21.10.1962, Page 15
Kvikmyndavet
líkt og skoða mynd af sjálfum sér.
Tökum t. d. ljósmynd af kunn-
ingjahópi úr ferðalagi. Jú, maður
leitar að sjálfum sér og sínum,
cn það tekur tíma að horfa á
myndina út frá þeim sjónarhóli,
hvort hún sé í sjálfu sér góð eða
vond. Það er vissulega bent á
atriði, sem mér finnst líka, að
mættu betur fara.
Rekkjan ekkert aðalatriði
— Hvernig líkar þér dómarnir
um endurtekna rekkjuatriðið?
— Eg verð að tfegja, að það er
einum of margt. Já, það hefur
verið nefnt oft á prenti og oftar
manna milli. Eg var í húsi um
daginn, og þetta barst í tal. Eg
svaraði, að það væri svo
sem ósköp einfalt að fara með
skæri og klippa endurtekna atrið-
ið úr filmunni. Já, gott og bless-
að, sagði einn. En þó nokkrir við-
staddir, gripu óðara orðið: „Bless’
aður láttu ekki gera það fyrr en
við erum búin að sjá myndina.“
— Sagt hefir verið, að leikstjór-
inn hafi fengið snert af „skandi-
vanisma" hvað snertir þetta at-
riði og myndin beri víðar svip
af því.
— Eg fellst alls ekki á þessa
skoðun. Balling vann af miklum
áhuga sem leikstjóri að þessu
verki, af því að hann var hrif-
inn af sögunni og ég er sannfærð-
ur um, að hann hafi alls ekki haft
í huga að gera neina sensasjón
um ástaratriðin í auglýsingaskyni.
Eg held við séum allir leikararn-
ir þeirrar skoðunar, að Danirnir
með tölu, þeir sem sáu um allt
hið tæknilega og stjórnina, hafi
verið svo einhuga um að gera
þetta að góðri kvikmynd, að því
var hreinasta unun að vinna með
þeim.
— Þetta gekk með furðulegum
hraða. Fannst ykkur verkið ekki
þreytandi?
— Já, skipulagningin var mjög
sterk. Stundum unnum við frá kl.
7 á morgnana ttl 3 og 4 á nótt-
unni. Það var mjög misjafnt, hvað
hvert atriði tók fljótan tíma, sum
þurfti að endurtaka 6—7 sinnum,
sum alls ekki. Æskilegt er að á-
framhaldandi samvinna takist
milli Nordisk Film og Edda Film.
Ótal verkefni framundan
— Og hugsið þið gott til fram-
tíðar íslenzkra kvikmynda?
— Það er ekki áhorfsmál; nú
gildir að búa sig undir framhaldið.
Margir dæma þessa mynd eins og
hún sé unnin við sömu skilyrði
og flestar kvikmyndir, er við horf-
um á, sem sé framleidd í stúdíói j
í kvikmyndaveri, með tilheyrandi
útbúnaði. En hér eru ekki þær
aðstæður fyrir hendi. Hér hefir
af illri nauðsyn verið beitt
dókumentariskri tækni, (sem
venjulega ér notuð við fræðslu-
myndir) til að búa til mynd með
lcikriti og leikurum, í stað þess,
að þetta hefð'i annars staðar verið
unnið við hin fullkomnu skilyrði
stúdíós. Þetta verður að taka með
i reikninginn. Og nú er þessi
mynd komin og flestir segja flest
gott um hana. Þess vegna, það
sem koma þarf næst, er íslenzkt
kvikmyndaver. Og það á að verða
fyrir áframhaldandi íslenzka
kvikmyndagerð og fyrir sjónvarp-
ið þegar það kemur.
— Hafið þið augastað á einhverj
um sérstökum söguefnum fyrir ís-
lenzkar kvikmyndir?
— Því er ekki að neita, að
við leikarar höfum talað um það
í okkar hópi, að tilvalin efni í
kvikmyndir séu sögumar af Nat-
sn og Rósu, Svartfugl eftir Gunn-
ai Gunnarsson, og Atómstöðin og
Brekkukotsannál eftir Laxness.
Hins vegar á ekki einungis að
styðjast við skáldsögur. Með tím-
anum hlýtur að vakna áhugi ungra
höfunda að skrifa beint fyrir kvik-
myndir. — Mér dettur í hug einn
okkar ungu, góðu höfunda, Thor-
Vilhjálmsson, hann hefir mjög
skemmtilegar hugmyndir um kvik-
myndahandrit, og hann hefir mörg
um öðrum íremur einmitt fylgzt
með kvikmyndagerð. Nokkrir ung-
ir íslendingar eru að læra kvik-
myndagerð og töku. Það er ekki
nóg að menntast. Það verður að
íá sérmenntuðum mönnum verk-
svið — á íslandi. — G.B.
Lippmann
Framhald af 7. siðu.
Vestur-Berlín, sem hefur ver-
ið styrkt stórlega, eru uggvæn
legar horfur á því, að yfirvöld
in, bæði Þýzku yfirvöldin sjá.lf
og herstjórnir bandamanna sé
að missa tökin á fólkinu. Við
verðum að minnast þess, að
það eru Þjóðverjar, sem standa
beggja vegna múrsins í Berlín.
Ástandið er þannig, að þarna
er fyrir hendi allt, sem til
borgarastyrjaldar þarf, og inn
í hana gætum við dregizt öll
gegn vilja okkar.
Þeir, sem segja okkur, að
vísa Rússum frá og hafast svo
ekki fleira að, eru að leika sér
að eldi. Við verðum að vona,
að kanslaranum sé þetta jafn
Ijóst og vaxandi fjölda sam-
landa hans.
Víðivangur
(Framhald af 2. síðu).
synlegur vegna þcss geysimikla
undirbúniingsstarfs, sem áður
Jrarf að vinna. Þótti þá ýmsum
biðin lönig. En það sýnir þjóð-
fé'lagsþroska opinberra starfs-
manna, að þcir féllust á og
sömdu um iað þrauka þennan
biðtíma.“
Þetta er réttileiga mæ'lt um
þjóðfélagsþroska opinberra
storfsmanna og verðugt að
halda á loft. En hvað er að
segja um „þjóðfélagsþroska"
fjármálaráðherrans, sem átti
að leggja drögin að þessu
„geysimikla undirbúnings-
starfi“ á biðtínMnum? 'Hann
kom fram í því, að fjármála-
ráðherrann la.gði fram fjárlaga
frumvarp fyrir næstia ár, þeg-
ar 'launahækkanimar eiga að
kom.a til framkvæmda, án þess
að æt'la einn einasta eyri til
þeirra. Hváð segir Gunnar um
þann „þjóðfélaigsþroska"?
Vilja ísland
Framhald af 16. síðu
að því með öllum ráðum að fá
ísland með í sameiginlega áætlun
Norðurlandanna um ódýra ferða-
þjónustu. Sagði hann, að ferða-
manna hefði nú beinzt mjög að
Norðurlöndunum.
Á ferðum sínum hefur Bönding
tekið fjölda litmynda, sem sýndar
hafa verið víða um Danmörku,
og hafa íslandsmyndirnar vakið
mikla athygli og áhuga á nánari
upplýsingum um landið. Næsta
sumar verð'ur gerð tilraun með
skiptiferðir milli Norræna félags-
ins á Mið-Fjóni, sem Bönding er
formaður, og Ferðaskrifstofu rík-
isins í Reykjavík. Dönsku gest-
irnir munu búa á einkaheimilum
á íslandi, og tilsvarandi fjöldi ís-
lenzkra á fjónskum heimilum.
Skáka stórþjóðum
Framhald af 1. síðu.
væri að senda út 1000 tonn til við-
bótar. Þetta magn verður að öllum
líkindum selt fyrir nóvemberbyrj-
un, þegar hið glfurlega framboð
frá Nýja-Sjálandi, Ástralíu og
Argentínu kemur.
Agnar sagði, að jafnframt sölu
freðkjöts í heilum skrokkum væri
verið að gera tilraunir með sölu
I neytendaumbúðum. Kjötið er
sagað niður hér heima eftir full-
kælingu og selt í hlutum. Bráðum
verða sendir um þúsund sextíu
punda kassar af þessum pökkum
til Evrópu, og minna til USA
Áður hafa tilraunir verið gerðar
með þetta, en þær hafa ekki tek-
V agnst jórinn
brá við hart
með hníf sinn
BÓ—Reykjavík, 19. okt.
Um kl. 13 í dag urðu tvær
kindur fyrir jeppabifreið á
Miklubraut, skammt frá Háa-
leitisveg. Jeppinn var á vest-
urleið, er kindurnar hlupu í
veg fyrir hann. Var önnur því
i nær dauð og hin stórlöskuð
eftir áreksturinn.
Lögreglan fór með byssu til að
stytta kindunum aldur, en stræt-
isvagnabíls'tjóri varð á und^n
með vásahníf sinn. Ekki taldi lög-
izt vel, en engu skal spáð um
árangur þessara tilrauna núna.
Innyfli eru flutt út með freð-
kjötinu og er góður markaður fyr-
ir þau núna í Bretlandi. Venjuleg
ar gærur eru nú á góðu verði, og
er búið að ganga frá sölum þeirra
allra, langmest til Vestur-Þýzka-
lands. Gráar gærur er erfitt að
j selja núna. Garnir eru í mjög háu
verði núna miðað við fyrri ár.
Agnar sagði óhætt að segja al-
. mennt, að útflutningur landbún-
aðarafurða sé hagstæður í haust,
enda er freðkjötið og gærurnar
meira en helmingur verðmætis
útflutnings þeirra. Bæði magn og
verð er meira en var í fyrra.
Sfríð á landamærum
Framhald at 1. síðu.
verjar séu með þessuni aðgerð-
um að eyðileggja möguleika til
þess að samningar megi nást
með friðsamlegum viðræðum.
Nehru forsætisráherra Ind-
lands sagði fyrir nokkrum dög-
um, að Indverjar óskuðu ekki
eftir ag berjast við Kínverja,
en þeir yrðu að reka þá af
höndum sér. Ef það væri ekki
gert vissi enginn hvar ind-
verska þjóðin ætti eftir að
lenda. Nehru kvað samninga-
viðræður ekki koma til mála á
meðan Kínverjar væru innan
landamæra Indlands.
Fréttamaður BBC á þessum
slóðum, segir menn ekki vita
hvort síðustu árásir Kínverja
séu aðeins tilraunir til þess að
koma upp öruggum bækistöðv-
um fyrir veturinn, eða hvort
hér sé um að ræða upphaf að
umfangsmeiri hernaðaraðgerð-
um.
Snjór kingir nú niður á hinu
umdeilda landamærasvæði í
Himalayafjöllunum, og brátt
mun vetur ganga þar í garð.
reglan neitt athugaveit við akst-
ur þess, sem var með jeppabif-
reiðina.
Blaðið hafði tal af einum sjón-
arvotta í dag. Honum sagð'ist svo
frá: — Þegar ég kom þarna að, var
verið að skera kindurnar, sem
lágu hreyfingarlausar í aurnum
utan brautarinnar. Lögreglumað-
ur var kominn á vettvang, en hann
aflífaði ekki kindurnar, heldur
strætisvagnabílstjóri, sem hafði
slöðvað vagn sinn er hann sá
slysið. Hann hafði meðferðis
vasahníf og kunni sýnilega að
bera sig til við þetta. Hann greiddi
ullina vel frá hálsi kindarinnar
áður en hann brá hnífnum og var
fljótur að þessu. Meðan blóðið
isnn enn úr kindunum, fór stræt-
isvagnabílstjórinn upp í bíl sinn
og ók af stað. Var hann svo snögg
ur, að ýmsir farþegar urðu
strandaglópar, en margir höfðu
fylgt honum út úr vagninum til
að sjá vegsummerkin.
25,5 kg, dilkur
TF-Flateyri, 18. okt.
Gæftir hafa verið hér lélegar að
undanförnu og lítið um atvinnu.
Á vertíðinni munu róa héðan 4
stórir bátar, 60—100 tonn.
Hér er búið að slátra 4600 fjár,
lömb eru sæmileg og betri en í
fyrra, meðalvigt þess fjár, sem
hér hefur verið slátrað, er fimmt-
án og hálft kíló. Bezta meðalvigt
fékk Garðar Þorsteinsson, Kot-
um, e nhann lagði inn 70 dilka
og var meðalþungi þeirra 17,2
kg. Þyngsta dilkinn átti Magnús
Guðmundsson í Tröð, vóg hann
25,5 kílógramm.
Veður er nú tekið að kólna hér
og hefur gránað í fjöll og niður
fyrir kletta, en í byggð hefur ringt
mikið undanfarna daga.
Það sem mest hrjáir okkur hér
er hve margt gott fólk flytur
burtu. Á þessu ári hafa sex fjöl-
skyldur flutzt brott. Nú fyrir tæp-
um hálfum mánuði flutti héðan
brott Þóra Guð'mundsdóttir, sem;
verið hefur hér ljósmóðir í tutt-
ugu ár og lekið á mót; um 400
börnum. Héldu konur hér henni
samsæti laugardaginn 6. okt.
Hingað er nýráðinn sveitarstjóri
iieitir hann Gísli Brynjólfsson og
er úr Reykjavik.
' í Tímanum
Ásgríms-
myndir sýndar
í 7 sinn
f dag hefst 7. sýningin í Ás-
grímssafn'i, síðan það vnr opnað
fyrst fyrir tveimur árum,, og verða
þar sýndar 17 olíumálverk og 17
vatnslitamyndir, sumar sýndar nú
í fyrsta sinn oig þeirra á meðal
er sú, er hér birtrst mynd af,
„Böm að hnoða snjókúlur". Safn-
ið er opið á sunnudögum, þriðju-
dögum og fimmtudöigum kl. 13.30
til 16, og er aðgangur ókeypis.
Dr. HANS HASS
Vegna fjölda áskorana verður
hin fróðlega og skemmtilega
kvikmynd „Töfraheimar undir-
tjápanna" sýnd einu sinni enn í
Stjörnubíói kl. 5 í dag.
Myndin gerist að mestu neðan-
sjávar í Karribahafinu og greinir
frá leiðangri, sem farinn var und-
ir stjórn hins fræga þýzka neðan-
sjávarkönnuðar dr. Hans Hass, og
hann er framleiðandi myndarinn-
ar. Kona hans, Lotta var með í
förinni. Kvikmyndatökumenn
voru Irmen Tehet og Jimmy
Hodges. Hann fórst í leiðangr-
inum, og er myndin tileinkuð hon-
um.
LEIKHOS æskunnar
sýnir
Herakles og Agías-
fjósið
Leikstjóri:
GÍSLI ALFREÐSSON
í kvöld kl. 8,30
í Tjarnarbæ.
Sími 15171
Miðasala frá kl. 4 í dag.
TÍMINN, sunnudaginn 21. október 1962
15