Tíminn - 28.10.1962, Blaðsíða 3
SÝNING HHMSFRÆGRA
USTA VERKAPRENTANA
GB-Reykjavík, 27. okt. erlendra listaverka, er hér
Mesta sýning hérlendis á hefir verið haldin, verSur
endurprentunum frægra opnuð í Listamannaskálan-
um n.k. miðvikudag. HiS
nýstofnaSa Samband ísl.
stúdenta erlendis gengst
fyrir sýningunni, og renn-
ur allur ágóði af sölu mynd
anna til aS koma á fót upp-
lýsingaþjónustu fyrir stú-
denta, er hyggja á nám er-
lendis.
Flestar eru myndirnar prent
aðar í París, undir ströngu eftir
liti sérfræðinganefnd UNESCO
(Menningarstofnunar Samein-
uðu þjóðanna). Þær eru eftir
listamenn frá lokum síðustu
aldar og fram á okkar daga,
eftir impressionistana Degas,
Monet, Pisarro og Renoir,
expressionistana van Gogh,
Gauguin og Munch, fauvistana
og kúbistana Matisse, Braque
og Picasso, súrrealistana Chag-
all og Chirico, abstraktmálarana
Kandinsky, Klee og Mx Ernst,
svo að nefnd séu nokkur nöfn
af hundruðum. Ekki komast
fyrir nema á annað hundrað
mynda á veggjum skálans, en
hægt er að velja úr meira en
tvö þúsund myndum, og eru
þær allar til sölu. Myndirnar
eru fengnar hingað fyrir til-
stilli Minervastudenternes rep-
roduktionsimport, og hafa
danskir stúdentar um árabil afl
að fjár í margvíslegu menning
arskyni með innflutningi og
sölu eftirprentana af heims-
kunnum listaverkum. Verði
myndanna er mjög í hóf stillt,
en aðgangur að sýningunni
verður ókeypis.
Hlé á Kúbu-
unni næstu da
INDVERJAR OTT-
AST VETURINN
NTB — Nýju Dehli, 27. okt.
Hernaðaryfirvöldin í Ind-
landi hafa látiS í Ijós ótta um
það, að erfitt muni verða fyr-
ir indverska herinn, að fram-
kvæma miklar hernaðarað-
gerðir í Himalayafjöllunum í
vetur. Indversk dagblöð rita
nú mikið um ástandið við
landamærin, og segir blaðið
Indian Express, að ólíklegt
sé, að hægt verði að hafa
meira en 30 hermenn saman
á hverjum stað.
Óháð indversk blöð ráðast nú
hart að stjórnirini fyrir það, að
henni skuli nokkru sinni hafa dott
ið í hug, að Sovétríkin yrðu hlut-
(aus í landamæradeilunni við Kín-
Verja. En Sovétstjórnin hefur nú
stutt kínversku stjórnina og til-
lögu hennar um að nú sé timi til
þess að hefja samningaviðræður.
Málgagn kínverska kommúnista-
flokksins vísar í dag algerlega á
bug 'skilyrðum Indverja um samn-
Ingaviðræður. í leiðara blaðsins
segir, að skilyrði þessi séu alger-
lega óaðgengileg fyrir Kína. í
Peking er talið, að hér sé um að
ræða hið opinbera svar kínversku
stjórnarinnar til yfirlýsingar Ind-
verja frá því á miðvikudaginn, en
þar var frá því skýrt, að Indverjar
væru fúsir til þess að halda áfram
viðræðum við Kínverja, ef herlið
þeirra flytti sig aftur til þeirra
staða, er það hafði á valdi sínu 8.
september.
Blaðið segir enn fremur, að
gengju Kínverjar að þessum s'kil-
yrðum, væri það sama og gefa sig
á vald hernaðarhættunni. Þar seg-
ir enn fremur, að Chou En-Lai
hafi sent Nehru boðskap sinn, og
yfirlýsing Kínverja um viðræð'ur
Fundur ráð-
herranefndar
EBE
NTB—Brussel, 27. okt. — Ákveð
ið hefur verið, að fundur ráð-
herranefndar Efnahagsbandalags-
ins með Per Hækkerup utanríkis-
ráðherra Danmerkur, verði 12.
nóv. n.k., en fyrst munu fara fram
viðræður við Halvard Lange utan
rikisráðherra Noregs.
Verður þetta í fyrsta sinn, sem
rætt er við Lange síðan hann lagði
fram umsókn Noregs um inngöngu
í EBE, og hinar sérstöku kröfur,
sem Noregur gerir í sambandi við
inngönguna.
milli landanna, annaðhvort í Pe-
king eða Nýju D'ehli, þegar báðir
aðilar teldu heppilegt.
NTB-New York, 21. okt.
Kennedy forseti hefur sent
U Thant annað bréf, og er tal-
ið líklegt, að þar skýri hann
framkvæmdastjóranum frá
því, að enn sé haldið áfram
að byggja eldflaugastöðvar á
Kúbu. En Bandaríkjamenn
hafa áður tilkynnt, að verði
ekki hætt við byggingu þess-
ara stöðva verði þeir að grípa
I til alvarlegri aðgerða. Hins
| vegar hefur Pierre Salinger
| blaðafulltrúi forsetans til-
I kynnt, að ekki þurfi að búast
við neinum nýjum aðgerðum
í Kúbumálinu í nánustu fram-
! tíð. Bandaríkin munu þó láta
bandamenn sína fylgjast ná-
kvæmlega með allri framþró-
un málanna, og því hvort
Sovétríkin halda áfram að
byggja eldflaugastöðvar á
eyjunni.
U Thant framkvæmdastjóri
Sameinuðu pjóðanna hefur hvatt
Krustjoff forsætisráðherra per-
sónulega til þess, að koma í veg
fyrir að sovézk skip bjóði banda-
rískum herskipum byrginn við
Sýnir í nýja
húsinu sínu
GB — Reykjavík, 27. okt.
í gær opnaði Hafsteinn Aust-
mann málverkasýningu í hinu
nýja húsi sínu, Kastalagerði 7 í
Kópavogi.
Þetta er önnur myndlistarsýn-
ing, sem haldin er í Kópavogi,
hina fyrstu hélt Magnús Á. Árna-
son fyrir tveim árum. Hafsteinn
hefur undanfarig verið ag byggja
sér hús, sem stendur við götuna
Kastalagerði, sem er á Borgar-
holti, rétt vestan við Kópavogs-
kirkju. Þetta er allstór sýning,
25 olíumálverk og 30 vatnslita-
myndir. Sýningin er opin dag-
lega kl. 14—22 til 3. nóv., og er *
aðgangur ókeypis.
Kúbu. Því að með því mætti ef
til vill koma í veg fyrir, að ástand
ið versnaði í heminum.
Krustjoff svaraðj tilmælum U
Thants, og segir hann, að ölium
sovézkum skipum, sem flytja
vopn hafi verið skipað að halda
sig í nokkurri fjarlægð fyrir ut-
an siglingabannsvæði Bandaríkj-
anna. U Thant undirstrikaði það í
tilmælum sínum, að héldu skipin
sig utan þess svæðis, sem banda-
ríski flotinn gætir nú væri það
friðsamleg lausn á málinu, um
stundar sakir, i samræmi við sátt-
mála SÞ. Þá hefur stjórn Banda-
ríkjanna einnig heitið þvi, að gera
það sem í hennar valdi stendur
til þess að til. beinna átaka komi
ekki við sovézk skip næstu daga,
Kennedy forseti hefur nú svar-
að bréfi því, er heimspekingurinn
Bertrand Russel skrifaði honum
vegna aðgerða hans í Kúbumálinu.
Segir forsetinn, að ríkisstjórn
Bandauíkjanna muni gera það,
sem í hennar valdi stendur til þess
að forðast heimsstyrjöld. Segir
Framh. á 15. siðu
Hafsteinn Austmann.
RITSTJORAR DER SPIEGEL
TEKNIR FYRIR LANDRÁÐ
NTB — Hamborg, 27. okt.
Lögfræðingur sá, er fer með
mál hins stóra þýzka tíma-
rits Der Spiegel, skýrði frá
þvf í dag, að 14 meðlimir rit-
stjórnar blaðsins hefðu verið
handteknir sakaðir um land-
ráð. Síðan hefur útgefandi
blaðsins tilkynnt, að aðeins 3
menn hafi verið handteknir,
og séu það tveir aðalritstjór
arnir og yfirmaður skrifstofú
Der Sniegel í Bonn.
Sagt er, að út hafi verið gefnar
16 handtökuskipanir, ein þeirra
fyrir útgefandann Rudolf Aug-
stein, og á hann að mæta hjá lög-
reglunni síðdegis í dag. Einnig er
handtökuskipun fyrir einn af rit-
stjórunum, sem um þessar mund-
ir er á ferðalagi erlendis.
Einn af fulltrúum Der Spiegel
hefur haft tal af stjórnarfulltrú-
um þeim, er gerðu húsleit á rit-
stjórnarskrifstofum blaðsins. Segja
þeir, að ástæðan fyrir þessum að-
gerðum sé sú, að 10. október hafi
birzt grein í blaðinu, sem fjallaði
um vestur-þýzka herinn.
Lögreglumenn stóðu vörð fyrir
utan skrifstofur blaðsins í dag.
Útgefandi Der Sgiegel skýrði
síðar frá því, að aðeins þrír af
ritstjórn blaðsins hefðu verið
handteknir. Væru það aðalrit-
stjórarnir Claus. Jacobi og Johann-
es Engel í Hamborg, og svo hefði
yfirmaffur skrifstofunnar í Bonn,
| Hans Dieter Jaehne einnig veriff
' handtekinn.
' Greinin. sem leiddi til þessara
, handtökuskipana, var um herstyrk
I Vestur-Þýzkaiands í sambandi við
ráðagerðir innan NATO. Þar seg-
ir, að við æfingar NATO-herjanna,
sem stóðu yfir, þar til fyrir
skömmu, hafi þýzka hernum verið
skipað í lægsta hæfnisflokk, og
hefffi honum veriff gefin sú eink-
unn, aff hann væri hæfur til varn-
ar „affeins undir vissum kringum-
stæðum‘‘.
Eftir því sem segir í Der Spieg-
el, sýndu æfingarnar, að viðbúnað-
ur Vestur-Þjóðverja, ef til alvar-
legra átaka kæmi, væri algerlega
ófullnægjandi, og læknaþjónustan
yrði það, sem fyrst léti undan.
Skortur væri á læknum, sjúkra-
stöðvum og lyfjum. Einnig myndi
eftirlit með flóttamönnum fara út
um þúfur, og samgöngukerfið færi
forgörffum eftir stuttan tíma, sagði
Der Spiegel. Þar segir einnig, að
sovézka herforingjaráðið reikni
Frainh. á 15. slðu
IÍMINN, sunnudagurinn 28. október 1962
3