Tíminn - 28.10.1962, Blaðsíða 16

Tíminn - 28.10.1962, Blaðsíða 16
Sunnudagur 28. október 1962 242. tbl. 46. árg BOKSOLUFERÐIN í AFTANÍVAGN- INUM GEKK VEL Veðrið gengur niður MB—Reykjavík, 27. okt. Blaðið spurðtet fyrir um veður og veðurhorfur í dag hjá Jóni Eyþórssyni, veður- fræðingi. Hann kvað norð- anátt um allt land. Klukkan níu í morgun hefði verið stórhríð á Vestfjörðum, all- víða- 9 vindstig og snjókoma, og snjókoma hefði verið með allri norðurströndinni, suður á Dalatanga. Bjóst hann við stórhríð á Norður- og Norðausturlandi seinni partinn í dag. Hann kvað veður vera sæmilegt í inn- sveitum Húnavatnssýslu og Skagafirði- og Eyjafirði, þar eð norðaustanáttin næði ekki inn í dalina. Jón ætlar, að veðrið gangi niður á morgun, einkum um vestanvert landið, en búast mætti við, að það yrði þrálátara á Norðaustur- landi. Sunnanlands mætti búast við hreinviðri með vægu frosti. KH-Reykjavík, 27. okt. Tíminn skýrði frá því í júlí- byrjun í sumar, þegar þrjú börn Ragnars Jónssonar lögðu upp í bóksöluferð um landið á jappa með vagn í eftirdragi. Blaðið talaði við Auði Ragn- arsdóttur í dag og spurði hana hvernig ferðin hefði gengið. — Ferðin gekk vel í heild, sagði Auður. Við. fórum um Snæfells- nes og Suðurnes og austur fyrir fjall, allt austur að Hvolsvelli. — Þetta var mjög skemmtilegt, og við fengum þarna gott tækifæri til að skoða okkur um. Fólk tók okk- ur yfirleitt vel, og salan gekk eft- ir vonum. — Við Erna systir mín skipt- umst á að aka bílnum, þannig að önnur okkar var alltaf í Reykja- vík í vinnu, meðan hin ók. Jón Óttar, bróðir okkar, var með all- an tímann. Við sváfum og borð- uðum í vagninum, og það gekk Framh. á 15. síðu KH-Reykjavík, 27. okt. — Ásgerður Búadóttir, kona Björns Th. Björnssonar, opnaöi í dag sýningu á mynd- vefnaði í vinnustofu sinni að Karfavogi 22. Á sýningunni sem verður opin frá kl. 2—10, til þriðjudagskvölds 6. nóvember, eru 13 stykki, bæði sléttofin og flosuð, þau eru til sölu og kosta allt frá kr. 2000—15.000. — Ásgerður nam myndlist vlð Konunglega Akademíið í Kaupmannahö'n í 4 ár, en þá sneri hún sér að mynd- vefnaði og hefur eingöngu helgað sig þeirri listgrein síðan. Myndvefnaður hennar hefur komið fram á sýn- ingum í Múnchen, Gautaborg, París og víðar. Sýning hennar núna mun vera hin fyrsta hérlendis í mynd- vefnaði eingöngu. — Myndin er af listakonunni í vinnustofu sinni að Karfavogi 22. (Ljósm.: Oddur Ólafsson). SENDIBÆJARSTJORNUM BRÉF UM SVIFBRAUNR KH-Reykjavík, 25. okt. Ungur maður, Harry Vil- helmsson að nafni, þýzkur að uppruna, en hefur búið hér- lendis um 30 ára skeið, hef- ur lagt fram nýstárlegar til- lögur til úrbóta í samgöngu- málum á íslandi. Hann sendi nýlega greinargerð um sam- göngutækið svifbraut til borg- aráðs Reykjavíkur og Bæjar- stjórna Kópavogs, Hafnarf jarð ar, Keflavíkur, Selfoss, Akur- eyrar og Neskaupstaðar. Blaðið sneri sér til Harrys og spurði hann nánar um þetta mál. Sagði hann, að í greinargerðinni væri að finna fróðleik um þetta samgöngutæki, svo og uppdrætti áð lagningu svifbrautar, bæði inn an Reykjavíkur og út um land. — Sagðist hann lengj hafa haft þetta mál í huga og aflað sér um það góðra upplýsinga frá sérfróðum erlendis. Svifbrautir eru nú að ryðja sér VILJA HELDUR GOTuRNAR HÉR EN TILRAUNABRAUTIR JK-Reykjavík, 26. október Frægð hinna afleitu gatna spyrjast út um heim. Nú hef- ur blaðið frétt, að næsta sum- ar ætli Renault-verksmiðjurn- ar að senda hingað bíla af nýrri eða endurbættri gerð og þolreyna þá hérlendis. Flestar bílaverksmiðjur hafa full komnar reynslubrautir þar sem gæðj bílanna eru reynd. Hér til hliðar er mynd af einni slíkri með steypuklumpum, og er hún til þess að reyna, hvernig bílarnir þola hristing. Hinum megin er mynd af einnj götunni hérna í rigninga- tíð, en slíkar götur munu líka vera ágætar til hristingsmælinga. — Renault-verksmiðjurnar munu vita það, auk þess sem slíkar prófanir hafa meira auglýsingagildi heldur venjulegar prófanir. Fyrir skömmu var hér fulltrúi frá verksmiðjunum, og athugaði hann möguieika á þessu. Von er á honum aftur til landsins í vetur. Ekki er vitað hvaða gerð hann vill reyna hér en sennilega er það gerð, sem er sérstaklega ætluð fyr ir erfiða vegi Tíminn hafði í gær samband við . umboðsmann Renault hér, Rein- hard Lárusson, til þess að fá nán- ari upplýsingar, en hann varðist allra frétta. til rúms úti i heimi, en sú elzta hefur verið rekin í borginni Wupp ertal í V-Þýzkalandj í rúm 60 ár. Var hún íundin upp vegna þrengsla, sem ollu því, að ekki var hægt að byggja venjulega járnbraut. Nú síðustu árin hefur þessu samgöngutæki verið æ meiri gaumur gefinn, og eru nú m. a. komnar svifbrautir í New York, Glasgow, Tokíó og víðar. Eins og nafnið bendir til, er hér um að ræða brautarteina í loftinu, borna uppi af stöplum, og neðan í teinunum hangir far- artækið. Hefur svifbrautin m. a. þann kost í för með sér, að til lagningu hennar þarf aðeins pláss fyrir stöplana, en ekki samhang- andi lóðir. Þá er það einnig stór kostur, að brautin teppist aldrei vegna snjóa, og kæmi það sér sérstaklega vel, ef lögð yrði slík braut út um landsbyggðina. Braut in er rafmagnsknúin, og þar eð hún er rekin ofar öðrum sam- göngum, geta lestir hennar farið með mestri stundvísi. Talið er, að stofnkostnað'ur svifbrautar s.é hlut fallslega lítill og reksturinn ódýr. Framhald á 13. síðu

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.