Tíminn - 20.11.1962, Qupperneq 2

Tíminn - 20.11.1962, Qupperneq 2
1 i ni LÖNDUM FORSETAFRUIN í HVÍTA HÚSINU Jacqueline Kennedy er ekki bara hin fallega eiginkona for- setans, hún er einnig skynsöm og skemmtileg stúlka, sem er fær um að halda fullri skynsemi í hringiðu aðdáunar og hrifning- ar. Enn er of snemmt að segja um það, hvem sess Kennedy forseti muni skipa í mannkynssögunni, en frú Kennedy hefur þegar tek- ið sitt sæti. Hún er einfaldlega ein aðdáunarverðasta og mest að- laðandi kona í heiminum. Og það er engin ástæða til að halda, að síðar meir muni vinsældir hennar dala. Allur heimurinn dáist að henni. Ungar stúlkur hvar sem er rann saka af henni myndir og herma eftir hárgreiðslu hennar, klæða- burði, brosi og framkomu. Þetta er auðvitað mikil upphefð. En þessir hlutir eru eingöngu þeir, sem sjást á yfirborðinu, þeir segja ekkert um hina mannlegu eiginleika, sem mestu máli skipta. Samt er ekki erfitt að koma auga á þá. Ef henni er fylgt með athygli, kemur í ljós, að öðru hverju kemur hin eigin- lega persóna í ljós í gegnum hið flata yfirborð opinberra skyldna. Andagift og menning. Jacqu- eline Kennedy hefur aldrei reynt að fela það, að það eru hin æðri lífsverðmæti, sem mest hafa að segja fyrir hana. Hún hefur jákvæða afstöðu til hlutanna og er í sátt við lífið. Fjölskyldulífið er mikilvægast i hennar augum. Á eftir því koma svo menningarleg áhugamál hennar — saga, list og bókmennt ir eru þau hclztu. Hún hefur lagt ósegjaflQega vinnu i að vernda sögulegar minjar hvíta hússins og jafnframt ag gera það að vistlegu og smekklegu heimili og sýnir það m. a. víðtæk áhuga- mál hennar. En einnig við opin- ber tækifæri, sýnir hún í orði og verki, hvað henni liggur mest á hjarta. í Indlandi talar hún um hið mannlega samfélag á mjög eðli- legan hátt, án þess að grípa tii úreltra orðatiltækja. í Mexico fær hún mann sinn til að breyta út af hinni opinberu dagskrá tii að heimsækja safn, sem er þekkt fyrir sérstaklega fágæta mexi- kanska list. í Mexico City tekur hún ósjálfrátt upp lítinn grát- andi dreng huggar hann og segir glaðlega: Höfum við það ekki gott? Það fer ekki hjá því, að þetta skapi góðvild og ánægju, því þetta er gert af einlægni og í skyndi, án þess að nokkrar stjórnmálaaðstæður standi að baki. Engar einkennilegar hugmynd- ir. Athygli sú, sem hún vekur alls staðar, hefði auðveldlega get að gefið henni einhverjar hug- myndir, en hún hefur til allrar hamingju komizt hjá því að verða of upptekin af sjálfri sér. Meðan á heimsókn hennar til Pakistan stóð, var hún alls stað- ar umkringd af fólki fullu að- dáunar, en þrátt fyrir það viður- kenndi hún, að hún saknað'i manns síns og óskaði þess, að hann hefði verið með henni. — Fyrst þá hefði ferðin verið full- komin, sagði hún. Að hún í því tilfelli, hefði ekki verið miðpunkt ur allrar athygli, skipti hana auð sjáanlega r.ngu máli. Það væru ekki margir, sem af frjálsum vilja mundu afneita því, að vera hylltir og tilbeðnir í svo ríkum mæli. Jacqueline Kennedy er einnig gædd gáfum og kímni, til allrar hamingju, því án þeirra eigin- leika verður persónan ekki aðlað- andi. Blaðamaður sagði henni einu sinni, hvernig Kennedy forseti, Jacqueline Kennedy hefði sagt í viðtali, frá þvi hvern ig hann hitti hana og „ákvað að giftast henni“, ári áður en brúðkaupið fór fram. Hún svar- aði frekar þurrlega: „Mikið var það fallega gert af honum.“ (Þýtt). ZSAZSA GIFTIST14. Leikkonan Zsa Zsa Gabor var að gifta sig í fjórða skipti fast- cignasala að nafni Herberl Huth- er 53 ára að aldri. Sjálf gaf hún upp aldur sinn sem 37 ára við hjónavígsluna, sem fram fór í Nevt York. E^yrsti eiginmaður hennar var tyrkneskur sendiráðs maður, annar var hóteleigandinn Conrad Hilton og sá þriðji Ge- orge Sanders. Hinn nýbakaði eig inmaður hennar skildi við fyrri konu sina mánuði fyrir gifting- una. Þau hittust á dansleik fyrir góðgerðarstarfsemi og eins og hún sagði frá: Hann var að dansa við aðra konu. Eg horfði á Her- bert og hin konan hefur aldrei séð hann framar, vona ég. ☆ Elzta dóttir grínleikarans Charlie Chaplin. af átta börnum sem hann á með fjórðu konu sinni Oonu, hefur sameinað feg- urð móður sinnar og leikhæfi- leika föður síns. Mynd þessi er tekin er Geraldine Chaplin ásamt öðrum ballettnemendum dansaði ■ ■ fyrir Elísabetu drottningarmóð- ur í Cpent Garden, London. My^rdir, sem birtust af henni í l £> Slöu UTVARPIÐ I KVOLD Þag ei' alis ekki nema hálfsögð sagan, að tala um útvarpið í kvöld, þegar það stendur því sem næst „frá árdegi til sólarlags" og rúm- lega það. Auk morgunandaktar, morgunleikfimi, morgunfrétta, tónleika o.s frv. af hinu daglega brauði, þá hefjast blandaðir dag- skrárliðir strax upp úr hádeginu Á eftir hádegisútvarpi taka við óskalagaþættjr undir ýmsum nöfn um, þótt lögin virðist vera þau sömu í þeim öllum. Aftur á móti eru nýbyrjaðir síðdegisþættir, sem ég kann því miður ekki svo mikil skil á, þar eð ég hef ekki verið nærri útvarpi, þegar þeir eru fluttir, það er í vinnutíma þeirra, er vinna utan heimilisins, en einn þátturinn heitir einmitt „Við, sem heima sitjum", og kvað sá vera býsna girnilegur til fróðleiks og skemmt unar. Hsí.in er fyrst og fremst sniðinn við hæfi húsmæðra, og að- allega eru það tvær konur, sem láta til sín heyra í þessum þætti, Sigríður Thorla- cius og Svandís Sigríður Jónsdóttir. Ekki þarf að kynna frú Sigríði fyrir Tímalesendum, svo oft sem hún hefur skrifað hér í blaðið, grein- ar og viðtöl og hún hlýtur að gera þennan nýja útvarpsþátt skemmtilegan, svo víðförul kona sem hún er í dag er dagur Sig- ríðar að skemmta þeim, sem heima sitja. í kvöld verður einsöngur í út- varpssal, og það er Þuríður Páls- dóttir, sem syng- ur þar bæði ís- lenzk og erlend lög með undir- leik Fritz Weiss- happels. Þ v í næst kemur fram haldsleikritið, og það má vera lé- legt framhalds- leikrit, sem ekki Mér virðist gleypt við öllu, sem er í framhaldsformi Þetta þykir mörgum firnaspenn- andi leikrit einkum börnum og unglingum Annars finnst mér eitthvað bogið við það, að fram- haldsleikrit þurfj endilega að vera aldargömul ensk rómantík Von andi misminnir mig, en mér finnst þetta einhvern veginn hafa verið Þurfður er hlustað a eíntöm 19 aldar rómantík frá Bretlandi. Kortéri yfir náttmál heldur dr Jón Gíslason áfram ag segja ferða- sögu sina frá Grikklandi. Nú er hann sem sagt kominn til Grikk lands, og í kvöld ætlar hann að segja frá Aþenu, sjálfri Akrópolis og umhverfi. Það hlýtur að vera þess vert að hlýða á, þar sem frá segir annar fróðasti maður á ís- landj uro 'and fornaldar, er haft hefur meiri áhrif á menn og mennt ir nútímans en nokkur önnur þjóg til forna. ^ Erlent lán Fyrir helgina lagði ríkis- stjórnin fram á Alþingi frum- varp um heimild fyrir ríkis- stjórnina að taka erlent 'lán að upphæð 240 millj. króna. Fénu á að verja til framkvæmda, og skal ríkisstjórnin ákveða skipt- inigu fjárins, segir í frumvarp- inu. Að sjálfsögðu er það eð'Iilegt, að íslendingar taki nokkurt fjármagn að láni erlendis til nauðsy.nlegra og arðbærra framkvæmda. Það hafa flest- ar stjórnir gert. Hitt er al- ger nýlunda, að mælast til lántöku vi'ð Alþingi, án þess ■að það sé nokkurn veginn á- kveðið, hvernig skal verja fénu. Venjan hefur verið sú, að þcigar f.astráðið hefur verið að ráðast í ákveðin verk, sem mik- ið lánsfé þarf til, t.d. virkjanir, þá er sótt u.m heimi'Id Alþingis og síðan leitað eftir láninu. Sú venja er sjálfsögð og engin á- stæða til að bregða út af henni. Hvað dvelur fram- kvæmdaáæflunina? Þegar ríkisstjórnin fer fram á svona stóra og óbundna láns- heimjld 'til framkvæmda, hlýt- ur mönnum að verða hugsað til framkvæmdaáætlunarinnar, sem ríkisstjórnin boðaði með fögrum orðum. Ékkert bólar á henni enn, og er oft búið að spyrja um hana hér í blaðinu, en engin svör fást. Menn Iiö'fðu vænzt þess, að Alþingi fengi frumvarp að svo mikilvægu plaggi með góðum fyrirvara, svo að því gæfist kostur á að ræða það og fjalla um það á ábyrga.n h'átt. Nú er sýnt, að annaðhvort á ag fleygja þcssu í þingið seint í vetur, eða hætta með öilu við þessa áætlunar- gerð. Líklegast er þó, að stjóm- arflokkarnir setji saman upp á eindæmi einhverja „áætlun“ og veifi síðan í kosningunum í vor. En heilladrjúgar fram. kvæmdir verða aldrej byggðar á slíkri „áætlun“. Ef nokkur skynsemi hefði ráðið í má'lum og hlítt væri viðteknum þingræðisvenjum, hefði fru.mvarp að framkvæmda áætlun nú legið fyrir þinginu um sinn, og að samþykkt hcnn- ar lokinni þar, hefði verið lagt fram frumvarp að heimiid til lántöku vegna þeirra fram- kvæmda. Þar hefði verið skýrt fnam tekið, til hvers féð ætti a'ð fara, hverniig því skyldi var- ið. Þetta er sú aðferð, sem ís- lenzkar ríkisstjórnir hafa haft til þessa. Stjórnin skal skammta „Viðreianarstjórnin" fer að þessu öfugt eins og flestu öðru. Fjármálaráðherra játar í þing- ræðu, að gerð fnamkvæmda- áætlunar sé svo skammt á veg komin, að ekki sé unnt að kveðá á um það nú, ekki einu sinni í stórum dráttum, hvernig láns. fénu skuli varið. Sýnir það, að þetta er skrum eitt og tómt tal hjá stjórnarflokkunum. Samt liggur svo mikið á að fá lánsheimildina, að frum- varpið verður að fara með af- brigðum gegnum þingið. Þó er ekki farin sú sjálfsagða Ieið að gera ráð fyrir ráð- stöfun fjárins síðar með sér- stökum löigum eða af þing- nef.nd. Nei, ríkisstjórnin heimt. ar þcnnnn viðtekna rétt Al- þinigis í sínar hendur og krefst Frarnhald á 13. siðu T í M I N N, þriðjudagurinn 20. nóv. 1962.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.