Tíminn - 20.11.1962, Side 7

Tíminn - 20.11.1962, Side 7
Utaefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN FramKvæmdastjón: Tómas 4rnason Ritst.iórar Þórannn Þórarinsson lábl. Andrés Kristjánsson, Jón Helgason og indriði G. Þorsteinsson Fulltrúi ritstjórnir Tómas Karlsson Auglýs mgastjóri Sigurjón Daviðsson R.itstjórnarskrifstofur i Eddu húsinu Afgreiðsla, auglýsingar og aðrar skrifstofur i 8:mka stræti 7 Símar: 18300—18305 - Auglýsingasími: 19523 Ai gréiðslusimi, 12323 — Askriftargjald kr 65.00 á mánuði innan lands. í lausasölu kr 4 00 eint - Prentsmiðjan Edda h.f Iildeilusijém Eitt skýrasta einkenni ríkisstjórnarinnar sem nú situr cg kallar sig „viðreisnarstjórn“, er stríðsrekstur hennar á hendur stéttum landsins, sífelld árátta til að standa í ill- deilum við þær og magna stéttaófrið Afleiðingin er að vonum sú, að aldrei hefur ríkt í landinu önnur eins ring- ulreið og upplausn í kaupgjalds- og kjaramálum, sífelld- ar uppsagnir, verkföll og vinnudeilur. Ríkisstjórnin hét því í upphafi að skipta sér ekki af vinnudeilum eða kjaramálum stétta. Stéttirnar eiga að koma sér saman, sagði stjórnin, og starfs.menn og vinnu- veitendur að semja sín á milli frjálsir og óháðir. Þetta heit hefur stjórnin efnt með því að skipta sér sífellt af vinnudeilum til ills eins, til þess aS torvelda lausn í staS þess aS greiSa úr ágreiningi. Hún heíur hvað eftir ann- að lagt stein í götu samkomulags og jafnvel lagt sig fram um að sundra gerðu samkomulagi eins og í járnsmiða- verkfallinu. í sumum tilfellum hefur hún beinlínis efnt til kjaradeilna og hundsað málaleitanir heilla opinberra stétta, svo að það hefur leitt til þess að allir sögðu upp síörfum, og þá fyrst sneypzt til að sýna jákvæða við- leitni til samkomulags, þegar h?etta var á að við misstum þýðingarmikla starfsmenn til útlanda hópum saman. Þessi ríkisstjórn hefur beinlínis eyðilagt gert sam- komulag milli verkamanna og vinnuveitenda með því að skella á gengisfellingu til þess að hrifsa aftur sann- gjarna kauphækkun, sem samið hafði verið um, og ekki hikað við að gera þetta, þó að það kostaði það að vinna stórtjón á viðskipta- og efnahagslífi landsins. Þessi framkoma bætist ofan á óðadýrtíðina og þá of- boðslegu almennu kjaraskerðingu, sem gert hefur ís- land „annað ódýrasta ferðamannaland i Evrópu“, o'g bein- línis neytt stéttirnar til þess að sækja sér leiðréttingu með hörku. Og nú er svo komið að ekki duga minna en tvær uppsagnir samninga á ári. Það er íslandsmet og líklega heimsmet. Hið eina tiltæka ráð þessarar stjórnar hefur verið bráða birgðalög, gerðardómar og önnur þvingun á hinum frjálsa samningsrétti, sem stjórmn hét að virða. Þannig hefur hún unnið með öfugum klónum að viðkvæmasta vandanóáli þióðarinnar — kjaramálum og skiptingu þjóð- artekna — vandamáli, sem hver sæmiJeg ríkisstjórn legg- ur sig alla fram til að stuðla að jákvæðum lausnum á. Slysaferill ríkissfjórnarinnar — aðeins á þessu ári — er varðaður hatrömmum vinnudeilum og verkföll- um. Ríkisstjórnin hélt við síldarverkfalli í sumar og tafði síldveiðar í þrjár vikur en flúði svo á náðir gerð- ardóms, sem hleypti slíkri hörku í málið, að ný og enn torleystari deila blossaði upp í haust og eyðilagði að verulegu leyti síldarvertíð og síldarmarkaði. Togara- verkfall stóð 5 mánuði. Þá má nefna prentaraverk- fall, járnsmiðaverkfall, læknadeilu og fjölmargar aðrar kjaradeilur, sem enn standa yfir, þó að ekki hafi enn komið til vinnustöðvana. Og gamla vísitalan hefur hækkað um 82 stig. StaTfsmenn og vinnuveitendur ná oftast s^mkomulagi, ef ríkisvaldið torveldar það ekki. En það er ekki nóg, að þessar stéttir semji með sér, ef ríkisstjórnin eyðilegg- ur slikt samkomulag jafnótt, t.d. með gengislækkun. Öngþveitið, sem nú ríkir í þessum málum, stafar að verulegu leyti af þeirri tilefnislausu gengisfellingu, sem gerð var í fyrra til að eyðileggja samkomulag. Hún er eitt versta skemmdar- og fólskuverk. sem íslenzk ríkis- stjórn hefur nokkurn tíma unmð. eitt dæmi þess, að ferill þessarar stjórnar í þessum viðkvæmustu vanda- málum þjóðarinnar er með öllu fordæmislaus — og algert ófarnaðarmet. T í M I N N, þriðjudagurinn 20. nóv. 1962. Stjórnmálamenn nútímans séð ir með augum Rembrandts FYRIR rúmlega einu ári, keypti Metropolitan Museum of Art í New York eitt af þekkt- ustu verkum Rembrandts „Ari- stoteles virðir fyrir sér brjóst- líkneski af Hómer“. Fyrir þetta málverk greiddi safnið hærra verð en áður hafði verið greitt fyrir nolckurt málverk eða 2.300.000 dollara. Margir töldu þetta hreint óráð, en þetta hefur hins veg- ar reynzt safninu annað. Að- sókn hefur stórlega aukizt að safninu, því að mönnum hefur Ileikið forvitni á að sjá þessa dýru mynd. Til þess að draga aukna at- hygli að myndinni, hefur safn- ið fengið skopteiknara til að mála ýrnsa þekkta menn eins líklegt er, að þeir hefðu komið Rembrandt fyrir sjónir í hlut- verki Aristotelesar. Hugh Hay- nie, hinn þekkti teiknari Louis- ville Courier-Journal, hefur teiknað Kennedy forseta, að virða fyrir sér höggmynd af John W. McCormack, forseta fulltrúadeildarinnar, en talið er, að grunnt sé á því góða milli þeirra síðan bróðir for- setans sigraði frænda McCor- mack í haust, er þeir kepptu um framboð. Norman Mans- bridge, teiknari Sunday Times í London, hefur teiknað mynd af Krastjoff, sem virðir fyrir sér brjóstlíkneski af Stalin. Þá hefur franski teiknarinn Luois Mittelberg (Tim), sem teiknar fyrir L’Express, teiknað mynd af de Gaulle, þar sem hann virðir fyrir sér höggmynd af sjálfum s’ér. Mjög mikið aðsókn hefur verið að þessum skopmyndum. Síðan áðurnefnt málverk eftir Rembrandt var sett upp i safninu, hefur aðsóknin að saí'n- inu aukizt um 40%. Á því ári, sem síðan er liðið, hefur tala sýningargesta orðið 4.711.019. Sala bóka með mynd- um af málverkum Rembrandts, hefur margfaldazt. " Það getur þannig stundum borgað sig að kaupa dýrt. I ' CASTR0 0G MIK0JAN Mynd þessi var nýlega tekin á Kúbu. MIKIL AÐSÓKN AÐ DÝRASTA MÁLVERKI REMBRANDTS Kennedy meS höggmynd af McCormack. Krustjoff meS höggmynd af Stalin,

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.