Tíminn - 20.11.1962, Síða 16

Tíminn - 20.11.1962, Síða 16
BEITTU OXUM A BILINN TIL AÐ LOSA FLUGVELINA IGÞ—Reykjavík, 19. nóv. Það slys varð á Keflavíkur. flugvelli í dag, að flugvél frá Flugsýn og bifreið varnarliðs- manns rákust saman. Munaði minnstu að spaðar skrúfunnar lentu í ökumanni bifreiðarinn- ar, en þeir fóru í gegnuin öku- tækið tuttugu til þrjátíu sentí- inetrum aftan við böfuð lians. Hér var um ag ræða fjögurra manna Stinsonvél, TF-AIM, eins hreyfils. Hún lcnti á Keflavík- urflugvelli um klukkan fimm síðdegis og var að aka inn á stæð ið við flugvallarhótelið, þegar varnarliðsbíllinn varjs fyrir henni. Ók varnarliðsmaðurinn bifreið sinni þvert fyrir vélina, en þótt aka megi bílum þarna yfir, eiiga flugvélar alltaf réttinn, og verða ökumenn skilyrðislaust að stanza séu flugvélar á ferð í nánd. Skrúfa flugvélarinnar gjör- eyðilagðist og bifreiðin er mikið 1 skemmd. Engin meiðsl urðu á mönnum, þótt mjóu munaði með varnarliðsinanninn, er var einn í bílnum. Erfiðlega gekk að losa skrúfuna úr bílnum og urðu brunaliðsmenn að beita öxum á bílflakið til að losa flugvélina. Þriðjudagur 20. nóvember 1962 261. tbl. 46. árg. UB 20 skip eru á síldveiðum KH—Reykjavík, 19. nóv. Síld barst á land í gær á Akranesi, Reykjavík og Hafn- arfirði. Var það yfirleitt góð og falleg síld, að mestu veidd út af Jökli. Flest skipin, en þau eru nú alls um 20 á veið- um, halda sig í Kollálnum. Út af Reykjanesi er talsverð * 1 síld, en afar smá og erfið við-; ureignar. Þrettán skip lönduðu á Akranesi í gær tæplega 9 þúsund tunnum síldar, sem fór öll í salt og ís. Höfrungur II var hæstur með Framh. á 15 síðu YFIR 10 ÞÚSUND FLÖSKUMIÐAR ykjavík, 19. nóv. . ,ar eru ekki við eina tj.dma felldir. — Einu sinni birtum við viðlal við mann, sem safnaði bjórflöskum frá ýmsum löndum og geymdi þær í bókaskápnum sínum. Hann smakkaði aldrei á safninu. í dag hittum við annan safnara viðriðinn bjór. Raunar starfar hann að bjórframleiðslu, en safnar einnig bjórflöskumið- um. Maðurinn er Þórður Jóns- son hjá ölgerðinni. Þórður á 10148 aðskiljanlega bjór- og gosdrykkjamiða hvað- anæva úr heiminum. Safnið er innlímt í 33 bækur og hver miði tölusettur. Auk þess tvi- tök, þrítök og jafnvel títök af sumum þessum miðum, sem er- lendir safnarar hafa sent. Þórður sagði okkur, að hann hefði byrjað þessa söfnun árið 1958, en þá fór hann að vinna í ölgerðinni. Tveir aðrir starfs Framh á 15 síðu Jón Stefánsson listmálari, látinn Jón Stefánsson listmálari lézt á sjúkrahúsi hér í Reykjavík í fyrri- nótt, og með honum er annar þeirra þriggja, sem nefndir hafa verið stórmeistarar íslenzkrar málaralistar, fallinn í valinn, og Framh á 15 síðu Samninganefndirnar í síldveiðideilunni sömdu aðfaranótt sunnudagsins SÍDASTA PRÓSENTINU SKIPT TIL HELMINGA KH—Reykjavík, 19. nóv. Samkomulag náðist með samningsaðilum í síldveiði- deilunni á fundi í fyrrinótt. Stjórn LÍÚ ræðir samkomulag ið á fundi í dag, og sjómanna- félögin greiða atkvæði um það. Verður atkvæðagreiðslu lokið á miðnætti, og úrslit væntanlega kunn annað kvöld, en ólíklegt er talið annað en fullt samþykki fáist á báða bóga, og getur þá síldveiði- vertíðin loksins hafizt. í þriðju grein samkomulags þess, er gert var í fyrrinótt, kveð- ur svo á um skiptakjör á hring- nótaveiðum. Á síldveiðum með Ví!|a látá breyta af- urðasölulögunum Á fulltrúafundi allra búnað- arsambandastjórna landsins, sem haldinn var í Reykjavík í vikunni, sem leið, var sam- þykkt samhljóða ályktun um breytingar á afurðasölulög- gjöfinni, þar sem meðal ann- ars er rætt um yfirdóm í störf um sex manna nefndar og um sölustöðvunarrétt bænda. I Fundurinn var haldinn 14. og ' 15. nóvember í húsi Slysavarna- félagsins. Mættir voru 30 fulltrú- ar frá öllum búnaðarsambands- stjórnum landsins, skv. fundar- j boði stjórna Búnaðarsambands ; Austurlands og Búnaðarsambands ; Suður-Þingeyinga, til þess að ræða j breytingar á afurðasölulöggjöf- j inni. i Að lokinni framsöguræðu Þor- , steins Sigfússonar á Sandbrekku, | tóku margir til máls. Voru fund- | armenn á einu máli um, að land- i búnaðurinn væri í mikilli og vax ; andi hættu staddur, o.g hefði af- urðasölulöggjöfin ekki tryggt bændum þær tekjur, sem þeir ' eiga rétt á samkvæmt henni. Því væri nauðsynlegt að breyta lög- ! gjofinni til hagsbóta fyrir landbún aðinn, en nokkuð voru skoðanir j skiptar um það, hvort þær breyt- , ingar, sem nauðsynlegar kynnu að þykja, fengjust nú samþykktar á i Framh a 15. siðu hringnót skal hlutur skipverja af heildaraflaverðmæti skipsins (brúttó) vera með hér segir: a) Á skipum undir 60 rúml. 39,0%, er skiptist í 10 staði, b) Á skipum 60 til 120 rúml. 37.5%, er skiptist í 11 staði, c) Á skipum 120 til 130 rúml. 36,5%, sem skiptist í 11 staði, d) Á skipum 130 til 240 rúml. 36,5%, er skiptist í 12 staði, e) Á skipum 240 til 300 rúml. 36,5%, er skiptist í 13 staði. Með þessu samkomulagi hafa báðir samningsaðilar gefið eftir %% frá síðustu kröfum, og er tal- ið liklegt, að allir aðilar fallist á þá málamiölun. Stjórn LÍÚ heidur fundi í dag um málið, en hún hef- ur fullt umboð til samþykkis fyrir hönd útvegsmanna. Atkvæða- greiðslur um samkomulagið hófust hjá sjómannafélögunum þegar i gær, og verður þeim að fullu lok- ið á miðnætti í kvöld. Atkvæða- greiðslan er sameiginleg, þannig að ekkert eitt félag getur fellt. Úrslit verða væntanlega kunn annað kvöld. Hvað Akranessamningunum við víkur, þá var samið um Vz % lægri kjör, en þar er skipt í færri staði, svo að útkoman er mjög svipuð. Bridge í dág, þriðjudag, hefst önnur tví-' menningskeppni á veguni félags- ins. Góð verðlaun verða veitt. Spii að verður í Tjainarg. 26. Aú* brjdgeáhugafólk velkomið. 1 (Frá stjórn F.U.F.) BÓ—Reykjavík, 19. nóv. Blaðið talaði við Guðlaug Rósin- kranz í dag og spurðist fyrir um gang kvikmyndarinnar 79 af stöð inni. Guðlaugur sagði, að um 46 þúsund manns væru þegar búin að sjá hana og bjóst við, að talan yrði komin upp í 50 þúsund fyrir jól. Hún hefur nú verið sýnd á Sel- fossi. Hellu, Akureyri og Kefla- vík og hlotið prýðiiega aðsókn á öllum þessum stöðum. Önnur filman verður nú að líkindum send til Akraness og þaðan á Aust firði, en hm fer um Norðurland og þaðan til Vestfiarða.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.