Tíminn - 22.11.1962, Side 1
TQTALIA
roiknivolnr
HV Ottó A Michelsen
klapparstfg 25-7
Sfmi 20560
BERJAST ÞOTT ÞEIR
VOPNAHLÉ
NTB—Nýju Dehli og London,
21. nóv.
í dag var enn barizt á víg-
stöðvunum í Indlandi, þrátt
fyrir vopnahléstilboð Ktnverja
Ekkert
tilboð
borizt
IÞG—Reykjavík, 21. nóv.
I NTB-frétt í dag segir,
að forráðamenn SAS, séu nú
á fundi með yfirmönnum
SWISS AIR í Zurich, og þar
hafi Loftleiða-málið borið á
góma. NTB fcalaði við Nils-
son í síma, en þur sem fund-
ur stóð yfir, kvaðst hann
ekki geta skýrt frá umræð-
unum í smáatriðum. Hann
kvaðst ekki vilja láta hafa
neitt það eftir sér, sem yrði
til trafala í vænfcanlegum
vfðræðum við Loftleiðir.
— Það, sem við höfum á-
huga fyrir, er eins konar
samvinna við Loftleiðir, og
minnsta koSti, að SAS fái
að keppa við Loft'leiðir á
sama grundvelli. Við höfum
gert Loftleiðum tiiboð, sem
ekki var sinnt, og nú er það
Loftileiða .að leggja eithvað
til í málinu. Við hjá SAS
erum reiðubúnir að taka
hvers komar tillögur frá Lof-
leiðum til umræðu, sagði
Nilsson,
Tíminn sneri sér í dag
til Sigurffar Magnússonar,
b'laðafulltrúa Loftleiða, og
apurði hvaða tillögur SAS
hefði boðið upp á. Sigurður
sagði, að frá SAS hefðu ekk
Framhald á 15 síðu
í gærkveldi. Vopnahléið átti
að ganga í gildi kl. 3 síðdegis
í dag eftir íslenzkum tíma, en
ekkert benti til þess, að hern-
aðaraðgerðum hafi þá verið
hætt. Indverskir stjórnmála-
menn virðast sannfærðir um,
að tilboð Kínverja sé aðeins
gildra, og ætlunin með því séj
að vinna tíma til að undirbúa j
næstu sóknarlotu. Vesturveld-;
in senda nú Indverjum dag-
lega auknar birgðir hergagna.
Indversku ^stjórninni barst íj
kvöld staðfesting á vopnahléstil- j
boði kínversku stjórnarinnar, frá:
sendiráði sínu í Peking, en allt
var á huldu um það, hvort Nehru.
og stjóm hans myndi ganga að í
skilmálum þeim, sem Kinverjar
höfðu sett fyrir vopnahléinu. I
Vopnahléið átti að ganga í gildi!
um miðjan dag í dag eftir íslenzk- j
um tíma.
Þá var tilkynnt í dag, að fjöldi
kínverskra hermanna hefði haldið j
áfram framrásinni frá Bomdila í
áttina að borginni Tezpur, en 80
km leið er á milli þessara borga.
í nánd við bæinn Foothillt á norð-
Framhald á 3. síðu.
ÞESSI MYND er tekin af nokkrum fulltrúum Verzlunarmannasambandsins í þingsal ASÍ-þingsins f gær. —
Maðurinn, sem stendur, er Sverrir Hermannsson, formaður sambandsins. Meðal hinna má þekkja Hörð Fel-
Ixson knattspyrnukappa. (Ljósm,: TÍMINN-RE).
KOMNIRINN, EN FA
EKKI KOSNINGARÉTT
MB-Reykjavík, 21. nóv.
Fundur var settur á þingi
ASÍ klukkan 16.05 í dag að
viðstöddum fulltrúum LÍV,
sem fengið höfðu inngöngu á
þingið. Fundarritari, Þórir
Daníelsson, las upp fundar-
gerð síðasta fundar og voru
ekki gerðar við hana neinarí
athugasemdir. Því næst hóf- ]
ust umræður um mesta hita-j
mál þingsins, kjörbréf LÍV, i
og voru fluttar langar ræður
og allheitar á köflum og stór-
skotaliði teflt fram á báða
bóga. Var loft lævi blandið og
sumir forystumenn á þinginu
höfðu bak við tjöldin allstór
orð um aðgerðir, ef ekki færi
að vilja þeirra.
Snorri Jónsson hafði framsögu
fyrir meirihluta í kjörbréfanefnd.
Hann taldi ýmsa mdnbugi á kjör-
bréfum fulltrúa LÍV og að ekki
hefði fengizt tími til þess að rann
saka þau til hlýtar. Væri nauðsyn-
legt að fá til þess lengri frest og
kvaðst Snorri leggja til, að vænt
anlegri miðstjórn yrði falið _að
kynpa sér málið en fulltrúar LÍV
sem mættir væru til þingsins,
fengju leyfi 'til þingsetu með mál-
frelsi og tillögurétti, en ekki at-
kvæðisrétti.
Næstur tók til máls Óskar Hall
grímsson, sem er minnihluti kjör-
bréfanefndar. Hann hóf mál sitt
með því að kvarta yfir því, að
Framh á 15. síðu
Gleðst innilega
MB-Reykjavík, 21. nóv. — Klukkan laust fyrir fjögur í dag, komu
þeir til þings í KR-húsinu við Kaplaskjólsveg, Hannibal Valdi-
marsson, forseti ASÍ, og Sverrir Hermannsson, forseti LÍV, en
verzlunarmönnum voru afhentir í morgun aðgöngumiðar að ASÍ-
þinginu. Fréttamaður Tímans náði stuttu tali af þeim Sverri og
Hannibal. Sverrir Hermannsson, forseti LÍV sagði: Ég gleðst inni
lega yfir því að verzlunarmenn skuli vera komnir inn í þessi sam-
tök, og ég vona að það verði alþýðusamtökunum til heilla. Ann-
SVERRIR ars hef ég ekkert um þetta mál að segja að svo stöddu.
Sama aðstaðá
HANNIBAL VALDIMARSSON, forseti ASÍ, sagði: Eftir ákvörð-
un þingfundar í gærkvöldi, tel ég fulltrúa LÍV nú í sömu aðstöðu
og þá fulltrúa. sem í upphafi þings ASÍ höfðu ekki fengið sam
þykkt kjörbréf sín. Þingið hefur enn enga afstöðu tekið til kjör
bréfa fulltrúa LÍV. Það hefur alltaf verið álit ASÍ að hið láglaun-
aða verzlunarfólk ætti bæði rétt á aðild að ASÍ og aðstoð þess,
og hefur hvort tveggja ávallt staðið til boða. En á síðasta þingi ASÍ
var ljóst, að innan samtaka verzlunarmanna voru menn með at-
vinnurekendahagsmuni og ennþá er augljóst, — (Fi-amh. á hls. 15).
HANMibAL
< * .
1 » « » * \ ; » 1 , * » * /■ » • , i. * 1 * «