Tíminn - 09.12.1962, Síða 2
GREIÐSLUSLOPPAR ® NÁTTKJÓLAR
UNDIRKJÓLAR # NYLONSOKKAR
NYTSAMAR JÓLAGJAFIR
ÚTBOÐ
Óskað er eftir tilboðum í að byggja leikvallaskýli.
Útboðsgögn eru afhent í skrifsfofu vorri, Tjarnar-
götu 12, III. hæð gegn 1.000, — króna skilatrygg-
ingu.
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar
*
Friðrik Olafsson skrifar um
t NDATARSSNIL UNGURINN
ÞEIR, sem lásu síðasta skák-
þátt, mmnast þess eflaust enn,
hvernig Botvinnik tókst með klók-
indum og óumdeilanlegri snilli að
bjarga sér frá tapi í skák sinni við
Fischer á Olympíuskákmótinu í
Varna. Þetta er ekki í fyrsta sinn,
sem Botvinnik leikur þennan leik
og er mér í því sambandi einkum
minnisstæð skák, sem hann tefldi
við þýzka stórmeistarann Unzicker
á Olympíumótinu í Amsterdam
1954. Unzicker hafði hvítt og náði
bráðlega frumkvæðinu. Er skákin
fór í bið höfðu stöðuyfirburðir
hvíts aukizt mjög og þeir voru víst
fáir, sem töldu, að Botvinnik tæk-
ist að hanga á jafntefli. En undrin
skeðu. í framhaldinu lagði Bot-
vinnik meistaralega gildru fyrir
andstæðing sinn og Unzicker gein
við agninu. Upp kom staða, þar
sem Unzicker hafði tvö peð yfir
í hróksendatafli, en staðan var
þess eðlis, að enginn vegur var
fyrir Unzicker að knýja fram vinn
ing. Ég mundi vel eftir þessari
skák, þegar þeir Botvinnik og Fis
cher tóku til 'við biðskák sína í
Varna og þess vegna kom mér
ekkert á óvart, þó að Fischer tæk-
ist ekki að nýta yfirburði sína. —
Sennilega mun enginn skákmeist-
ari í heiminum í dag standa Bot-
vinnik á sporði, hvað endatöfl
snertir, og enginn vafi leikur á
því, að Botvinnik á það mikið
endataflssnilli sinni að þakka, —
hversu lengi honum hefur tekizt
að halda heimsmeistaratitli sínum.
Ég ætla nú til gamans að birta
hér skákina frá Amsterdam, þar
sem Unzicker á vinning, en finn-
ur hann ekki. Síðan birtist skák
þessara sömu aðila frá Olympíu-
mótinu í Varna, þar sem Unzicker
hefði átt að ná jafntefli, en tókst
það ekki!
Hvítt: Unziscker.
Svart: Botvinnik.
FRÖNSK VÖRN.
1. e4, c6. 2. d4, d5. 3. Rc3, Bb4.
4. e5, c5. 5. a3, Ba5. 6. b4, cxd4.
(Eftir 6. — cxb4. 7. Rb5, bxa3f 8.
c3 fengi hvítur góð sóknarfæri).
7. Dg4, Kf8. 8. bxa5, dxc3. 9. Rf3,
Re7. 10. Bd3, Rd7. (Botvinnik tel-
ur þennan leik lélegan og mælir
í staðinn með 10.—Rbc6). 11. Db4
Dc7. 12. o-o, Rc5. 13. Dxc3, Bd7.
14. a4, Hc8. 15. Ba3, Rxd3. 16.
Dxc7, Hxc7. 17. cxd3, f6. 18. Hfcl,
Hxclf. 19. HxH, Kf7. 20. Hc7, Ild8.
21. Bxe7, Kxe7. 22. Hxb7, Hc8.
23. Kfl. (Fljótlegri leið til vinn-
ings taldi Botvinnik vera 23. g4,
Hc3. 24. exf6f gxf6. 25. Kg2, Hxd3.
26. g5). 23. — a6. 24. Ha7, Hc2.
25. Hxa6, Ha2. 26. Ha7, Hxa4. 27.
Ke2, d4. 28. Rd2, Ila2. 29. Kdl,
Kd8. 30. exf6, gxf6. 31. Re4, Bc6.
32. Rc5, Bd5 (?). (Sennilega hefði
32. — Hxf2 veitt meira viðnám).
33. a6, Ilalf. 34. Kc2, Ha3.35. Kb2,
Ha2f 36. Kbl, Ha5. 37. Rb7f Bxb7.
38.*axb7, Hb5f 39. Kc2, Kc7. 40.
b8=Df, Kxb8. 41. Hxh7, Kc8. 42.
He7 (?). (Eftir 42. g4 fylgt eftir
af 43. h4, hefði svartur vart átt
viðreisnar von). 42. — Ile5. 43.
Kd2, Kd8. 44. Hf7, Hf5. 45. Ke2,
Ke8. 46. Ha7, He5f 47. Kfl, Hb5.
48. h4. — (í þessari stöðu fór
skákin í bið. Botvinnik taldi að
sjálfsögðu stöðu sína tapaða). —
48. — f5. (Nauðsynlegt til að koma
í veg fyrir að hvítur geti stutt h-
peð sitt með g-peðinu. Botvinnik
segist hér hafa rannsakað stöðuna
heila nótt, án þess að finna nokkra
viðunandi vörn). 49. g3, Kf8. 50.
Hd7, e5. 51. Kg2, Kg8. 52. h5,
Ha5. 53. h6, Hb5. 54. Hg7f, Kg8.
55. He7, Ha5. 56. Kf3, Hd5. 57.
g4, e4f 58. dxe4, fxg4f. 59. Ke2.
(Ef 59. Kxg4 þá d3l). 59. — d3f
60. Kd2, Hd4! (Hér leggur Botvinn
ik gildruna. Hvítur hefði nú getað
unnið með því að leika 61. e5, Hf4.
62. Hg7, Hxf2f 63. Kxd3 og svart-
ur getur ekki komið í veg fyrir,
að e-peðið hvíta renni upp. Hvítur
telur leið þá, er hann velur einfakl
ari). 61. He8f?, Kh7. 62 He6. —
(Hvítur telur andstæðing sinn nú
vera leiklausan, en Botvinnik á
snjallan leik í fórum sínum). 62. —
Ha4! (Þessi leikur ber óneitan-
lega vott um snilli meistarans).
63. Kxd3, Ha3f. 64. Ke2, Hf3.
(Þessa stöðu getur hvítur ekki
unnið, þótt ótrúlegt megi virðast).
65. e5, Hf5. 66. Kel, Hf4. 67. Hf6,
He4f 68. Kfl, Ilxe5. 69. Kg2, Ha5.
70. Kg3, Hg5. 71. Kh4, Hg8. 72.
Kh5, g3. — Hér sömdu keppendur
um jafntefli.
í seinni skákinni færir Botvinn-
ik enn betur sönnur á endatafls-
snilli sína.
Hvítt: Unzicker.
Svart: Botvinnik.
PIRC-VÖRN.
1. e4, g6. 2. d4, Bg7. 3. Rf3, d6. 4.
Rc3, Rf6. 5. Be2, o-o. 6. Bf4, Rc6.
7. d5, e5. 8. dxe5. frlil. Bxe6. (Bot-
vinnik hefur þegar jafnað taflið
og stendur jafnvel ívið betur). 9.
t)-o He8. 10. Hel, h6. 11. h3, g5.
12. Be3, d5. 13. exd5, Rxd5. 14.
Rxd5, Dxd5. 15. c3, DxD. 16.
IlexD, Had8.17. Bb5, Bd5. 18. Rd4,
Bxd4.19. Bxd4, a6. 20. Bxc6, Bxc6.
(Margir mundu álíta þessa stöðu
„dautt“ jafntefli, en Botvinnik hef
ur fyrr þurft að glíma við jafntefl-
islegar stöður og honum tekst að
skapa sér ýmis færi með undra-
verðri lagni). 21. Hel, f5. 22. f3,
Bb5. 23. b4, b6. 24. Hxe8f, Hxe8.
25. a4, Bc4. 26. a5, He6. 27. axb6.
(Það er dálítið varhugavert að
gefa svarti þannig kost á að mynda
sér frelsingja á a-línunni). Engu
að síður ætti skákin að vera jafn-
tefli). 27. — cxb6. 28. Kf2, Kf7.
29.. Hel, Hxel. 30. Kxel, a5. 31.
bxa5 (?) (Hvers vegna ekki 31.
Bxb6?). 31. — bxa5. 32. g3, a4. 33.
Kd2, a3. 34. Kc2, h5. 35. h4, Í4.
36. Be5, Ke6. 37. Bc7, gxh4. 38.
Bxf4, h3. 39. g4, h4. 40. Bh2, Be2.
Ifvítur gafst upp. Svartu^ vinnur
einfaldlega með því að færa kóng
sinn til g2.
TlMARITIÐ
ÚRVAL
Desemberhefti tímaritsins
ÚRVAL er komið út, einkar
fjölbreytt að efni. — Meðal
greina má nefna: „Kjarnorka í
þágu sakamálarannsókna" —
„Ilraustustu hermenn heims“
— Könnun á heila lifandi
manna“ — „Sannleikurinn um
krabbamein og vindlinga" —
„Morð ínnan fjölskyldunnar"
— „Sannleikurinn um Moby
Dick“ — „Hin dularfulla reiki-
stjarna, Plútó“.
Úrvalsbókin er „Læknir land
nemanna" eftir Robert Tyre“
og einnig má nefna fasta þætti
svo sem „Má ég kynna, svona
er lífið og „Ógleymanlegur mað
ur“, sem Helgi P. Briem am-
bassador skrifar um Vilhjálm
Stefánsson.
Tímaritið er um 200 blaðsíð-
ur í mjög vönduðum búningi
og kostar kr. 25,— heftig og
hefur verð þess haldizt óbreytt
þótt önr.ur blög hafi nýlega
hækkað.
BYLTINGIN
ÁK0BU
Athygli alls heimsins beinist að Kúbu.
Kynnizt því sem er að gerast þar í hinni skemmti-
legu bók Magnúsar Kjartanssonar, en hann dvaldist
á Kúbu í sumar.
Verð í bandi kr. 220,—
Óbundin kr. 180,—
2