Tíminn - 09.12.1962, Blaðsíða 4

Tíminn - 09.12.1962, Blaðsíða 4
Þáttur kirkjunnar Konugurinn kemur „Sjá hann stendur við dymar og knýr á“. Listamaður að nafni Holman Hunt hefur málað fræga mynd, altaristöflu eftir orðum sjáand ans í Opinberunarbókinni: „Sjá hann stendur við dyrn- ar og knýr á“. Það eru til tvær frummyndir af þessu listaverki, önnur í Oxford, en hin f Pálskirkjunni í London. Kristur sést á myndinni í konunglegum skrúða úti fyrir dyrum, sem hafa sjáanlega ekkl verið opnaðar lengi, því að við þröskuldinn er allt vax- ið Qlgresi og þakið í drasli. Á hurðinni að utanverðu er held- ur enginn lás. Hún opnast því aðeins Innan frá. Á höfði ber konungurinn geislandi kórónu. En sé betur athugað, kemur í Ijós, að þetta er þyrnikórónan, sem hefur verig sett fram á myndinni sem skínandi gimsteinn, sem geislar frá sér í allar áttir. Þyrrtámir mynda geislastafi umhverfls gullbauga kðrónunn- ar. Stóru, höfgu rúbínsteinarnir, sem eru aðalsferautið, breytast í stóra blóðdropa, þegar betur er skoðað. Þymamir hafa stung izt ítta ThoMið. Hann var pínd ur og sál hans harmi lostin allt til dauða, svo að mannlegu hjarta mætti veitast fró og friður. Það er hinn óttalegi leyndardómur sjálfsfórnarinn- ar. En einungis þannig opnast himins hlið. Það er næturstemmning yf- ir myndinni allri. En í hendi sér ber Kristur Ijósker og bjarmi frá því fellur á dyrn- ar, svo að þær vekja fyrst og mest athygli þess, sem mynd- ina skoðar. Nafn myndarinnar er: LJÓS HEIMSINS. Hver stendur í skugganum við luktar dyr hins særða og harmþrungna hjarta. Þótt eng- inn hafi opnað þær lengi og Iamirnar séu ryðgaðar og lyk- illinn finnist hvergi og lokan sjáist ekki, þá er samt einn, sem bíður við dyrnar og knýr á. Það er andi kærleikans, andi Krists, sem vill gjöra gleði þína sanna og hreina, harma þína heilaga og fagra. Hann vill nema brott synd þína, sekt þína og galla, gefa þér frið. „Sjá, konungur þinn kemur til þín“, er boðskapur aðvent- unnar. Þú þekkir hann kannske ekki. Það gæti verið einhver vinur þinn eða ástvinur. Hann gæti líka komið sem faliegt lag, ljóð, tónn eða mynd. Kannske sem hughrif í bæn eða á helgistund. Opnaðu. „Veiztu, hann er alla, alla ævi þína að leita að þér, láttu hann ekki lengur kalla líður á daginn, skuggar faila fyrr en varir aldimmt er“. Hlustaðu á boðskap konungs ins. Tak þér í munn orð hans sem sagði: Ég opna hlið míns hjarta þér, ó, herra Jesú, bú hjá mér, að fái 'hjálparhönd þín sterk þar heilagt unnið náðarverk. „Sjá hann stendur vig dyrn- ar og knýr á“. Árelíus Níeisson. Húsfreyjan á Fossá Jólagjafakort á Dýrin í Hálsaskðgi NÚ ERU til sölu í Þjóðleikhús- inu mjög smekkleg og skemmti- leg jólagjafakort á barnaleikrit- inu Dýrin í Hálsaskógi. Handhafi kortsins getur svo val- ið um á hvaða sýningu á „Dýrun- um“ hann kýs að fara. Þar, sem barnaleikurinn Dýrin í Hálsaskógi verður sýndur um jólin og nýár- ið, þá er þetta tilvalin jólagjöf fyr ir börn. Síðasta sýning á bamaleiknum fyrir jól verður n. k. sunnudag, en sýningar hefjast svo aftur milli jóla og nýárs. Teikningin á jólakortinu er gerð af Halldóri Péturssyni og er af Bessa Bjarnasyni og Árna Tryggvasyni í hlutverkum sínum. [SKIPAUTGCRÐ RIKISINS Ms. Herðubreið I fer austur um land í hringferð 12. þ.m. Vörumóttaka á mánu- dag til Djúpavogs, Breiðdalsvík ur, Stöðvarfjarðar, Mjóafjarðar, j Borgarfjarðar, Vopnafjarðar, Bakkafjarðar, Þórshafnar og j Kópaskers. — Þetta er síðasta ferð austur fyrir jól. HVÍTU DRENGJA- SKYRTURNAR komnar Allar stærðir frá nr. 2—16 Rauðu matrósafötin komin — frá tveggja til fimm ára Drengjajakkaföt frá 6—14 ára. Margir litir. Gamalt og nýtt verð ÆÐARDÚNSSÆNG er nytsöm og vegleg jólagjöf Póstsendum Sími 13570. Vesfurgötu 12 KAFFIBREGZT NÝLEGA er komin út ný skáld- saga eftir Árna Ólafsson frá Blönduósi og er þag fjórða bókin, sem kemur út eftir hann. Áður hafa birzt: Æskuminningar smala drengs, Glófaxi og Fóstursonurinn. Bækur þessar hafa allar orðið mjög vinsælar, eins og sjá má á því, að Æskuminningar og Gló- faxi hafa komið út f tveim útgáf- um. Æskuminningar eru algjör- lega uppseldar og hinar eru senn á þrotum. Og ekki þarf að efa það, að þessari nýju skáldsögu Árna verður fagnað af hinum mörgu lesendum fyrri bóka hans. Húsfreyjan á Fossá er eins og nafnið bendir til sveitalífssaga og gerist á hernámsárunum um og eftir 1940. Setuliðsmenn koma nokkuð við sögu. Annars gerist sagan á sömu slóðum og fyrri bæk ur höfundar. M. a. kemur Kári í Vindheimum við sögu, en hann var aðalsðguhetjan í Fóstursonur- inn. Sigríður á Fossá, dóttir Jóns bónda þar, er glæsilegasta heima- sætan í Laxárdalnum. Ungu pilt- arnir í dalnum gefa henni hýrt auga, en hún sinnir þeim ekki og bíður eftir draumaprinsinum sín- um, sem birtist líka einn sólfagr- an sumarmorgun, kominn úr fjar- •'lægri sveit. Kjartan er karlmann- legur og fríður sýnum, en hann er draumóramaður og skapgerð hans langt frá því að vera eins heilsteypt og Sigríðar, sem er bú- in sérstöku atgervi jafnt andlega sem líkamlega. Sagan greinir frá lífsbaráttu þeirra Sigríðar og Kjartans, sigrum þeirra og ósigr- um. Og þag má fyrst og fremst þakka það mannkostum húsfreyj- unnar, að allt endar farsællega að lokum. Sigríður er fulltrúi hinnar heil- brigðu lífsskoðunar, sem er höf- undi eiginleg. Ást höfundar á ís- lenzku sveitunum leynir sér ekki. Hann er sannur vinur manna sem málleysingja. Megi sem flestir lesa þessa bók. Hún hefur boðskap að flytja og gerir hvern og einn að betri manni. G. El. Vetrarhjálpin hefur jólastarfsemi sína Vetrarhjálpin berst árlega i Síðasta ár söfnuðust alls 199.103,- fjöldi hjálparbeiðna, einkum frá 35 kr. og þar af söfnuðu skátar öldruðu fólki og barnafjölskyld- 126.088,35 kr Nú sem fyrr munu um. í fyrra bárust rúmlega 750 skátar ganga um bæinn og safna j hjálparbeiðnir og var þeim sinnt gjöfum, en þeir hafa ætíg unnið meg matvæiagjöfum, mjólk, kol- frrnfúst starf í þágu Vetrarhjálp- um og fatnaði. í ár verður byrjað irinnar. að taka við gjöfum 7. des. að Thor- Vetrarhjálpin vill um leið og valdsenstræti 6, frá kl. 10—5, — tuin hefur jólastarfsemi sína þakka sími 10785 — Við fatagjöfum er oorgarbúum velvild og skilning tekið á móti í samvinnu við Mæðra undanfarinna ára og væntir góðs styrktarnefnd að Ingólfsstræti 28 samstarfs við þá í ár sem endra- frá kl. 2—6. i nær. LÆKNINGASTOFA mín er frá 1. des. a3 Lækjargötu 2 (yztu dyr til vinstri). Viðtalstími mánudaga, þriðjudaga, miðvikudaga og föstudaga kl. 10—11, fimmtudaga kl. 18—19, laug- ardaga kl. 9—10. Tekið á móti vitjanabeiðnum í síma 20442 alla virka daga til kl. 13 nema laugardaga til kl. 10. — Heimasími 19369. — Símar eru ekki skráðir í símaskrá. Tek einnig á móti sjúklingum eftir fyrirfram beiðni. EINAR HELGASON Sérgrein: Lyflæknisfráeði. Efnaskipta- og hormónasjúkdómar Vinsamlegast geymið auglýsinguna. Útför móður minnar, tengdamóður og ömmu PÁLÍNU BJÖRGÚLFSDÓTTUR Ásbúðartröð 9, Hafnarfirði, verður gerð frá Fossvogskirkju, þriðjudaginn 11. des. kl. 1,30 e.h. Ester Kláusdóttir Árni Gíslason og börn 4

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.