Tíminn - 09.12.1962, Blaðsíða 8

Tíminn - 09.12.1962, Blaðsíða 8
s PÆt (/> K LJODAGERD Á 20. ÖLDINNI Ógæfan mikla 1898 Árig 1898 náði frelsisbaráttan á Kúbu gegn nýlendustjórn Spán- verja hámarki sínu. Snemma það ár sendu Bandaríkjamenn orrustu- skipiff „Maine“ til Havana til að vernda eigmr og líf bandarískra þegna þar. Sprenging varð í skip- inu og 266 menn fórust með því. Ekki var vitað með vissu um or- sök slyssins, enda skiptir þag litlu máli. Kröfur McKinleys, forseta Bandaríkjanna, jafngiltu því að Spánverjar sendu flota sinn, und- ir stjórn Cervera aðmíráls, til að' berjast fyrir ströndum Kúbu. Bandaríkjamenn króuðu hann inni í Santiago-höfn og þegar hann reyndi að komast út missti hann öll skip sín. Dewey flotaforingi eyddi öðnim spönskum flota við Filippseyjar, og Manila var her- tekin hinn 12. ágúst sama ár. Spánverjar urðu að hverfa frá Kúbu og afhenda eyna ásamt Puerto Rico sem skaffabætur. Jafn vel þó að Manila hafi ekki fallið fyrr en eftir að samið hafði ver- ið um frið, voru óskir Spánverja að engu hafðar og urðu þeir einn- ig að yfirgefa Filippseyjar. Fengu þeir aðeins 20 millj. dala í skaða- bætur. Zulu- og Karólínueyjarnar höfðu þegar verig seldar Þjóðverj- um þetta sama ár. Hið mikla sjó- veldi Spánverja var því liðið und- ir lok. Frá stjórnmálalegu sjónarmiði var þetta aðeins lokaáfallið, það hafði vofað yfir um skeið og hlaut að koma að því fyrr eða síðar. Á tlmabilinu 1868—’73 höfðu lýð- ræðisöflin beðið ósigur og hið pólitíska frelsi var afnumið, og voru það glöp undanfarinnar kyn- slóðar; hrun spánska heimsveldis- ins leiddi beinlínis af þessum or- sökum. Þessi „ógæfa“ var aftur á móti þag afl, sem hratt af stað einu djarfasta og áhrifamesta skeiði í sögu spánskrar menningar, myll- an þar sem riddarinn braut lenzu og við höggið vaknaði hann um leið upp af dagdraumum sínum. Ósigurinn mikli var sá skurðhnif- ur sem hleypti greftri úr gamalli meinsemd. Hann opnaði augu beztu manna fyrir raunveruleik- anum, hvatti þá alla til þess að endurheimta Spán, reisa landið úr rústum draumanna og byggja Spán nútímans. Og þessir menn gáfu sig óskipt- ir að verkinu. Þeir komu úr öll- um áttum, úr öllum landshornum, úr öllum stéttum, þeir voru æði sundurleitur hópur innbyrðis, en þó áttu þeir allir í sameiningu þessa einu hugsjón: algera stefnu- breytingu. En þeir voru ekki sam- mála um neitt annað. Engin ein- ing, engin stefna, þetta voru allir stórbrotnir menn. máttugir hver í sínu lagi, frjálsir einstaklingar, konungbornir menn andans. Þessi einstaklingshyggja er, og hefur alltaf verið, höfuðmein spánskrar menningar. Það er kannski erfitt fyrir útlendinga að glöggva sig á þessum regingalla Spánverja og afleið'ingum hans. Margt mætti tína til, ef rúmið leyfði, en hér er ég neyddur til ag stikla á stóru. Fyrst og fremst verður að varast alla hleypidóma og jafnframt að forð'ast of einfald- ar og víðtækar yfirlýsingar: al- hæfingar. Aðeins þannig er hægt ag komast að kjarna málsins. Mig langar aðeins að nefna eitt at- riði hér sem dæmi: „Ein höfuðsynd Evrópulandanna er að halda að Spánn sé kúgað land, að frjálsir hugsuðir fái þar ekki að dafna í friði. Samt vitum vig allir að það er tvennt ólíkt að hafa frelsi og vera frjáls. Að vísu getur maður ekki verið frjáls án þess að hafa frelsi, að vissu marki a. m. k., en maður hefur ávallt eins mikið frelsi og hann getur sjálfur skapað sér, því að frelsi er sköpun hvers einstak- lings, ekki síður en náðargjöf milds stjórnarfars eða þjóðfrels- isafla. Og á Spáni voru þannig til fáeinir menn frjálsir í anda, og ég þori jafnvel að segja, nokkr- ar frjálsustu sálir í allri Evrópu". Eitthvað á þessa leið farast Spánverjanum Julián Marías orð, en hann er aðallærissveinn Ortea y Gasset og mesti núlifandi spánski heimspekingurinn, hann hefur kennt vig ýmsa bandaríska liáskóla (Wellesley, Harvard og Yale). Jafnrangt væri því að álíta að þessir msnn hafi ekki verið ó- háðir í sínum mikla starfi og að kenna einstaklingshyggju þeirra um öll síðari mistök og árangurs- leysi á sviðj þjóðfélagslegra fram kvæmda. Sú hyggja var þó ekki alveg neikvæð: frelsi og andstæð- ur méðal einstaklinganna eru und jrstaða andlegra framfara og hvort tveggja var til i ríkum mæli hjá þessum mönnum Og þá skorti allra sízt sjálfs- þekkingu. ,.Menn ósigursins" (la generación del 98) beindu kast- Ijósunum inn í djúp þjóðarsálar- innar, að öllum hennar kostum og löstum. Áhrif þessara manna lifa ? Spáni enn þann dag í dag, þótt siðan hafi mikið vatn runnið til sjávar. „Kynslóð ósigursins" var þannig engin ákveðin stefna i list- um né bókmenntum, heldur alls herjarviðhorf á öllum sviðum cpánsks lífs. Helztu nöfnin, mörg þeirra kunn erlendis, voru: Miguei de UNAMUNO. Pío BARO.TA Ramón-Maria del VALLE INC LÁN, AZORÍN MACHADO-bræð urnir (Manuel ug Antonio). José ORTEGA Y GASSET, Jaeinto BENAVENTE (Nóbelsverðlauna- hafi 1922), Angel GANIVET, Eug- onio d’ORS, Ramiro de MaeZTU, og fleiri. Tveir menn skera sig úr i þess- um hópi, sem fulltrúar andstæðra sjónarmiða: Unamuno og Ortega, eða eins og Madariaga kallaði þá, Dostojrrfski og Tufrgeneí Spán- verja. Ortega vildi gera Spán evrópskan (europeizar a Espana) og áleit að til þess þyrfti skipu- lag, vísindi, tækni og félagsanda; í einu orði að Spáni færi fram. Unamuno — sem var sterkasti per sónuleiki þessarar aldar á Spáni —, var svo spánskur í eðli sínu að hann hélt því fram ag það, sem ætti að gera, væri að gera Evrópu spánska (espanolizar a Evropa), en til þess burfti, að hans dómi, skapfestu, reynslu og sjálfstján- ingu, frelsi einstaklingsins og skap andi ímyndunarafl, í stuttu máli, að miða ætti hátt frekar en fram. Þessir menn voru leið'togar, en vissu samt ekki hvernig né hvert ætti ag leiða, andstæðurnar voru allt of sterkar, eins og ávallt í sögu Spánar þegar mest reynir á; báðir höfðu rétt fyrir sér á sinn hátt, baðir skírskotuðu jafn- mikið til vitundar landa sinna. Og þó . . . Unamuno bar sennilega sigur af hólmi, því að þégar slík- ar andstæður takast á — trú og skynsemi, sköpun og gagnrýni, frumleiki og skólun, leitin að himneskri sælu annars vegar og starf í þá itt að skapa hina jarð- nesku paradis hins vegar hefur saga Spánverja sýnt glöggt hver úrslitin hljóta að verða. Spánskur andi á þessari öld er enn mótað'ur af þessum átökum. Alltaf var stefnt að því að sam- eina þessa krafta, harmleikur spánskrar menningar stafar af því ag þeir hafa ekki getað sam- einazt og starfað saman. Mér flýg- Juan Ramon Jemenez ui í hug nautaatið, þó að ég hefð'i ásett mér að fara ekki út í þá ■sálma, en maðurinn og nautið . . . ei þag ekki einmitt sama sagan? Ef svo er hafa þeir Picasso og Hemingway skynjað það rétt sem Beaumarchais, Bourgoing, Victor Hugo, Merimée, Gautier, Washing ton Irving og margir aðrir, sem hafa skrifað um Spán, skildu aldrei tii hlítar. Þetta er sviðið, úr þessum þráð- um var ofinn hinn margslungni vefur ljóðagerðarinnar á 20. öld, en ekkert tímabil síðan á gullöld okkar hefur verið auðugra, þegar á gæði, kraft og fjölda skáldanna er litið, og það er engin ofrausn að tala um gullöldina nýju. Modernisminn (E1 modernismo) (1895-1925), Samtímis þessum tveimur megin- straumum, sem reyna ag ná sam- an í einn spánskan faiveg, eru tveir aðrir straumar: annar, sem er undirstraumur. á upptök sín í þjóðsögum, kvæðum og dönsum (en við munum víkja að honum í sambandi við Lorca), og loks hin erlendu áhrif, sem leika um yfir- borðið. Spánn opnaði sína andlegu dyr upp á gátt, hreinsaði sig af leifum hinnar úrkynjuðu rómantíkur og hleypti nýju lofti inn. Og eins og vindurinn ’olés frá ítalíu eftir 1500 þegar Boscán og Garicilaso ortu fyrstu kvæði gullaldarinnar fyrri, eins streymdu nú áhrifin að utan, að þessu sinni frá Frakk- landi, og fyrir milligöngu Rubén Darí'o, skáldsins frá Nicaragua, sem fékk nafnbótina faðir modern 'smans og var fyrsta stórskáld nú- Lmans á spánskri tungu Modernisminn var engin sérstök stefna í ljóðagerð heldur var hann eins konar andrúmsloft, lífsskoð- un eða viðhorf, og því féll hann vel í þennan jarðveg sem fyrir hendi var á Spáni, í jarðveg „ósig- ursins“. Hann færði ljóðagerðinni nýja hrynjandi, ný form, nýjan anda, nýja bragarhætti; og var hið nýja blóð í æðunum, hig nýja vín. En hann var ekki frumlegur, og hann byggði ekkert nýtt; að'alkost- ir hans voru ag vega á móti böl- sýni, sem fylgdi ósigrinum, að lvfta huganum os glæða hugsun- ina. um leið og hann hreinsaði til, ng hann veitti einnig einstakling- ’m ný og betri skilyrð'i til að njóta ■ n Reyndar voru aðeins ti.l mod- n'-nistar, enginn modernismi, eng- ar reglur. engin samræmd stefna, heldur bylting á öllum sviðum. í listum og iljórnmálum, trúmálum cg vísindum. Hinn nýi andi birtist í spönsku ljóðagerðinni í búningi symbólis- mans og Parnasstefnunnar frönsku. 9g hann fæddist ekki með Ruben Darío. í Ameríku (:Hispanoamér- ica) voru aðrir modernistar á und an honum, og mesta rómantíska skáld Ameriku, José Asunción Silva, hefur verið kallaður af sum um fyrstj modernistinn. Og meðal Spánverja er Salvador Rueda fyr- irrennari Rubén. Sigurför modernismans hefst á Spáni með útgáfu Ijóðabókarinnar . Prosas Profanas" (Leikmanns- þankar) eftir Rubén, 1896. En modernisminr; varð skammlífur. Hanu var aðeins ný rómantík, eða haustrómantík. En er sólarlagið ekki oft fegurra en morgunroð'inn? Bírta hans og kraftur, ofsinn og öfgarnar, uiðu honum að aldur- tila. Menn urðu þreyttir á ham- förunum og öfgunum, og tvær aðr ar skáldskaparhreyfingar taka við af honum. Þó eru þær ekki and- spyrnuhreyfingar. heldur er frem- ur reynt að virkja hann, halda í honum ufi am sinn. Þessar hreyf- ingar eru i’ostmodernismo (1905 — 1914) og Ultramodernismo a914—1920) Þrjú stórskáld hófu feril sinn s m postm jdernistar: Unamuno, Antonio Maeha ’t og Juan Ramón Iiménez, en þeir fóru síðan sínar eigin leið'ir. Um þá verður sér- taklega fjaliað ' eftir. Meðal ann FYRRI GREIN arra sem reyndu ag fresta enda- lokum modernismans má nsfna Pérez de Ayala Díez-Canedo og Marquina. Rubén Darío (1867—1916) fæddist í Metapa (Nicaragua). Fyrstu ljóð hans birtust 1880 í timaritinu ,EI Ensayo“ (Tilraun- in) og ,,E1 Termómetro“ (Hitamæl irinn). Hann starfaði við bókasafn íg í Managua, var síðan forsetarit- ari í E1 Equador, fluttist seinna til Chile og skrifaði þar fyrir blöð- in ,,E1 Mercurio" (Merkúr) og „La Época“ (Tíminn), og vann við tollgæzlu um skeið. Árið 1881 komu út Epístolas y Poemas“ (Bréf og kvæði) 1887 „Abrojos" (Þyrnar), 1888 „Rimas (Ljóðmæli) og „Azul“ (Blámi). Þrjár fyrstu þessara bóka voru ómerkilegar, en með ,.Azul“ losaðí hann sig undan áhrifum spánskra rithöfunda og ick að halla sér ag Parnassstefn- unni frönsku sem var með öllu óþekkt á Spáni. Árið 1889 starf- aði hann sem blaðamaður við „La Nación“ (Þjóðin) ? Buenos Aires 8 #

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.