Tíminn - 18.12.1962, Qupperneq 1
235. tbl. — Þriðjudagur 18. desember 1962 — 46. árg.
Oitó a Mlchelaen
klapparslí<) 25-7
Simi 20560
32
SÍÐUR
eldavélai*
GUHH/IR/ISGEIRSSaUHr
í blaði 2 er m.a. þetta:
Bls. 1 Grein um Péturs-
ey og byggðasafnið að
Skógum.
Bls. 4—5 íþróttafréttir.
Bls. 8—9 Læknishjálp
við Berufjörð.
OLIUFELAGID GREDIR NÆR
6 MILLJ. I LANDSðTSVAR
•.................
llMlti
SLÖKKVILIÐSMENN í svælu og reyk á þilfarl Hrefnu beina vatnsslöngu niður í iúkarinn. Þetta er eina mynd-
in, sem tekin var af brunanum. Ljósmyndari Tímans var vakinn meS hringingu klukkan eítt um nóttina
Báturlnn er vist alelda, sagði sá sem hringdi án þess að kynna sig. Ljósmyndarinn var kominn á s'taðinn eftir
fáar mínútur. --- (Ljósm.: TÍMINN-GE).
MB-Reykjavík, 17. des.
Nýlega hefur verið lokið
við að jafna niður hinum svo-
nefndu landsútsvörum á þá
þrjá gjaldendur, sem þau eiga
að greiða, þ.e.a.s. olíufélögin
þrjú. Alls nema landsútsvörin
f ár tæpum 12 milljónum
króna, þar af greiðir Olíufé-
lagið h.f. nær helminginn.
Annars skiptist landsútsvarið
þannig milli félaganna:
Olíufélagið h.f. greiðir 5.680.418
krónur, Olíufélagið Skeljungur
h.f. greiðir 2.779.353 krónur og
Olíuverzlun íslands h.f. greiðir
3.327.706 krónur. Alls nemur upp-
hæðin 11.787.477 krónum.
Landsútsvarinu er síðan skipt
milli sveitarfélaga. Skattstofan í
Reykjavík hefur þegar skipt ein-
um fjórða upphæðarinnar milli 199
sveitarfélaga. Er við þá skiptingu
miðað við það, hver velta félag-
anna var á hverjum stað. Þrír
fjórðu hlutar fara aftur á móti
í svokallaðan jöfnunarsjóð; úr hon-
um úthlutar svo Félagsmálaráðu-
neytið til sveitarfélaga eftir höfða-
tölu þeirra.
Af þeim fjórðungi, sem þegar
hefur verið úthlutað, fékk Reykja
vík að sjálfsögðu mest, eða
1.103.156 krónur. í hlut Njarðvík-
ur koma 458.439 krónur og þriðja
í röðinni er svo Akureyri með
134.406 krónur. Það sveitarfélagið,
sem minnst fær í sinn hlut af þess
um fjórðungi fær ekki háa upp-
hæð í sinn hlut: aðeins 18 krónur!
EKKERT GRANDAR
HREFND RE. 186
BÓ-Reykjavík, 17. des.
í nótt kviknaði í Hrefnu
RE 186 sem lá við Granda-
garð, framundan húsi Slysa-
varnafélagsins, og brann lúk-
arinn innan og þilið framan
við lestina.
Skemmdir voru ekki fullkann-
aðar í dag, en líkur benda til, að
Hrefna komist á veiðar eftir þetta
síðasta óhapp. Hrefna tapaði stýr-
inu og skrúfan laskaðist suðaust-
ur af Grindavík 15. fyrra mánaðar
og var dregin inn. í næsta róðri
bilaði pakkningin á skrúfuöxlin-
um og báturinn var dreginn inn
með flóðleka. Má segja, að hvorki
eldur né vatn fái grandað þessari
fleytu, sem er 42 rúmlestir, byggð
1917 og stækkuð 1939.
Slökkviliðið var kvatt út kl. 0,35.
Þá lagði mikinn reyk upp úr lúk-
arnum. Slökkviliðið notaði vatn
af háþrýstibíl og einnig af bæjar-
kerfinu og gekk slökkvistarfið til-
tölulega fljótt, þar sem jafnan er
erfitt um vik að slökkva eld í
bátum.
Eigandi Hrefnu, Jón Sigurðs-
son, Túngötu 43, sagði slökkvilið-
inu, að hann hefði farið um borð
eftir hádegið í gær og kveikt upp
í eldavélinni. Kvaðst hann hafa
ætlað að hlýja lúkarinn því að
viðgerð átti að fara þar fram dag-
inn eftir. Fjórum klukkustundum
Framhald á 15. síðu.
DÓMUR HÆSTARÉTTAR GEKK DANÍEL í VIL
Dæmdar hæstu miska-
bætur í ségu réttarins
MB-Reykjavík, 17. des.
í DAG gekk dómur í Hæsta-
rétti í máll því, sem Daníel
Ágústínusson höfðaði á bæjar-
sjóð Akraness vegna hins til-
efnislausa brottreksturs hans
úr bæjarstjórastöðu á Akranesi
í ágústmánuði 1960. Var bæjar-
sjóður dæmdur til að greiSa
Daníel 35 þúsund krónur í
miskabætur, vegna rangra sak-
argifta, er bornar voru á hann
við brottvikninguna, 114 þús-
und krónur í laun og 25 þúsiund
krónur í málskostnað auk vaxta
frá 13. marz 1961, sem var
stefnudagur. Munu miskabæt-
urnar vera hinar hæstu, sem
Hæstiréttur hefur dæmt.
Forsaga þessa máls mun enn
flestum í fersku minni. Skal
hún þó rifjuð hér upp að
nokkru. Á miðju sumri 1960
tókst samvinna um það milli
íhaldsmanna og krata á Akra-
nesi, að hinir síðamefndu slitu
samvinnu þeirri um stjóm bæj-
arins, sem tekizt hafði milli
allra flokka, nema íhaldsins, ag
loknum bæjarstjóraarkosning-
um 1958. Liður þessa samkomu
Framhald á 3. 6lðu.
DANÍEL ÁGÚSTÍNUSSON
— honum hafa verið dæmdar
hæstu mlskabætur i sögu Hæsta-
réttar. Hann segir á öðrum stað
í blaðinu aS hann vænti þess aS
démurinn geti orðið öSrum
sveiiúitjórnum til viðvörunar.