Tíminn - 20.12.1962, Qupperneq 3
HLUPU AFTUR INN I ELDINN
NTB—Stokkhólmi, 19. des.
Níu konur létu lífið, er kvikn-
oði í geðveikraspítala fyrir
konur rétt utan við Östersund
um miðnætti á þriðjudag.
Eftir hádegi í dag höfðu að-
eins fundizt lík fjögurra
kvenna, en talið er útilokað,
að hinar fimm séu enn á lífi.
Eldurinn kom upp í einni af
þremur timhurbyggingum geð-
veikraheimilisins Locknegárden,
sem er um það bil 3 km. utan við
Östersund. Brann byggingin til
kaldra kola, en vegna mikils dugn
aðar umsjónarkonu heimilisins
tókst að bjarga flestum þeirra 30
kvenna, sem í byggingunni voru.
Eldurinn mun hafa komið upp
rétt fyrir miðnætti, og örskammri
stundu síðar stóð hið tveggja hæða
timburhús í ljósum logum. Sjúkl-
ingarnir voru allir á annarri hæð-
inni, en á fyrstu hæð var matsal-
ur, eldhús og íbúð umsjónarkon-
unnar.
Einn sjúklinganna tók eftir því,
að gnei^jaði út úr loftræstingar-
kerfi hðisins á annarri hæð, og
hljóp þegar niður og skýrði um-
sjónarkonunni frá þessu. Mikil
MONA LISA KOM BROS-
ANBI TIL NCW YORK
NTB—NEW YORK, 19. des.
í morgun kom til New
York-borgar konan, sem
brosir heimsins dýrasta
og mest umrædda brosi ver
aldarsögunnar, en til Banda
ríkjanna er hún komin til
þess að gefa þúsundum
Bandaríkjamanna tækifæri
til þess að virða hana fyrir
sér og dást að henni.
Konan er engin önnur en
Mona Lisa, Leonardos da Vinc-
is. Hún kom frá Le Havre í
Frakklandi með farþegaskipinu
France, og hafði í ferðinni til
umráða tveggja herbergja íbúð
í skipinu. Auk þess voru með
henni fylgdarmenn, sem gættu
þess, að enginn fengi að sjá
þetta bros, sem öldum saman
svo margir hafa árangurslaust
reynt að skýra.
Málverkið verður fyrst til
sýnis í Natíonal Gallery í Was-
hington, og þar opnar sjálfur
Kennedy forseti sýninguna. Til
þess að komast hjá því að loft
lagsbreytingar gætu eyðilagt
myndina, á meðan á ferðinni
yfir Atlantshafið stóð, var búið
um hana í sérstöku hylki, sem
ekki verður opnað, fyrr en
myndin verður hengd upp í
safninu í Washington.
Sex opinberir starfsmenn,
franskir, og fjórir varðmenn,
fylgja Monu Lisu, og skal fara
með þá sem háttsetta erlenda
gesti, og eru þeir m.a. undan
þegnir tollskoðun.
BLOÐUG ATOK I FANG-
ELSI I BUENOSAIRES
NTB-Buenos Aires, 19. des.
Samtals 29 manns féll í
einhverri heiftarlegustu upp-
reisn, sem gerð hefur verið í
Villa de Voto-fangelsinu rétt
utan við Buenos Aires í dag.
Meðal þeirra sem féllu var for
ingi fanganna, sem höfðu ætl-
að sér að brjótast út úr fang-
elsinu.
Uppreisnin hófst kl. 13 í dag
eftir þarlendum tíma, og um leið
fóru fram vaktaskipti í fangelsinu.
Nokkrir fangar komu akandi á
Flugslys í Póllandi
NTB-Varsjá, 19. des.
í kvöld hrapaði flugvél í
nánd við Warsjá og fórust
allir, sem í henni voru. Með
vélinni voru 27 farþegar,
auk 5 manna áhafnar.
Hittast í janúar
NTB-París, 19. des.
Ákveðið hefur verið, að
þeir Charles de Gaulle
Frakklandsforseti og Kon-
rad Adenauer forsætisráð-
herra Vestur-Þýzkalands
hittist enn á ný í janúarnián
pði n. k. Það var upplýsinga
ráðherra frönsku stjórnar-
innar, Alain Peyrefitte, sem
skýrði frá þessu í dag, eft-
ir að haldinn hafði verið
ráðuneytisfundur. Ekki hef-
ur verið ákveðið, hvar fund -
urinn verður haldinn, né
heldur hvaða dag hann á að
fara fram, sagði Peyrefitte.
Sagan sækir um
skilnað
NTB-París, 19. des.
Francoise Sagan, hin
þekkta franska skáldkona,
hefur sótt um skilnað frá
manni sínum, Bandaríkja-
manninum Bob Westhoff.
Sagan er 27 ára gömul, en
maður hennar 32. Þau
gengu í hjónaband í janúar
s. 1. og eignuðust son í sum
ar. Nú hefur Sagan farið
fram á að mega hafa dreng-
inn hjá sér.
PolarisskotiS
heppnaðist
NTB-Canaveralhöfða.
f dag heppnaðist að skjóta
á loft eldflaug af gerðinni
Polaris A2, og er hér um
endurbætta gerð að ræða,
og á síðar m’eir að nota
stjórntæki þessarar eldflaug
ar í Polaris A3.
Áður hafa verið gerðar 6
misheppnaðar tilraunir með
þessa gerð eldflauga.
Segist eySa Katanga
NTB-Elísabethville, 19. des.
Tshombe forseti Katanga
lýsti yfir þvj á blaðamanna-
fundi í dag, að hann myndi
gefa skipun um að leggja
Katanga í eyði, ef tilraun
yrði gerð lil þess að þvinga
það til þess að sameinast
Kongó og komast undir
stjórnina i' Leopoldville.
vörubíl, og vörpuðu þeir sprengju
að vörðunum.
Síðan réðust 400 öskrandi fang
ar að fangavörðunum, og tókst að
ná 30 þeirra á sitt vald, og héldu
þeim síðan sem gíslum. Starfsfólk
fangelsisins flýtti sér strax á varð
staði sína, en fangarnir lokuðu
sig inni í fangelsinu á meðan kall-
að var á liðstyrk frá lögreglunni.
Nokkra menn skutu fangarnir
með köldu blóði og köstuðu þeim
síðan út um gluggana á þriðju
hæð fangelsisins. Óeirðirnar stóðu
samfleytt í 12 klukkustundir, en
þá tókst dómsmálaráðherra lands
ins að fá fangana til þess að semja
um vopnahlé. Létu þeir af hendi
vopn sín og slepptu þeim, sem í
gíslingu höfðu verið. í óeirðum
þessum féllu 19 fangar og 10 fanga
verðir.
snjókoma var síðastliðna nótt, og
lýsti eldurinn upp næturhimininn,
og mátti sjá hann langar leiðir.
Slökkviliðið kom strax frá Öster
sund, og auk þess fjöldi fólks úr
nágrenninu, sem lrafði orðið elds-
ins vart. Tókst að bjarga flestum
sjúklinganna, og koma þeim á ör-
uggan stað, en nokkrir þeirra áttu
erfitt með að gæta sín sjálfir og
'hlupu fram og til baka. Einnig
hlupu nokkrar konurnar aftur inn
í brennandi bygginguna, og munu
það vera þær, sem létu lífið.
Umsjónarkonunni hafði í upp-
hafi tekizt að vekja alla sjúkling-
ana í byggingunni, og koma þeim
fram á ganga, en henni tókst ekki
að hindra nokkrar þeirra í að
fara aftur til herbergja sinna. Kon
umar, sem létu lífið voru á aldr-
inum 24 til 72 ára. í LocknegSrdcn
voru samtals 72 sjúklingar, en eld
urinn náði ekki að eyðileggja
nema eina af þremur byggingum
heimilisins.
Þegar síðast fréttist, var enn
ekki vitað, hver upptök eldsins
voru, önnur en þau, að sjúklingur
sá neista í loftræstingarkerfinu.
Stuttu eftir að eldurinn hafði ver
ið slökktur, fundust lík fjögurra
kvenna, sem orðið höfðu eftir inni
í húsinu, og um stund héldu menn
að verið gæti, að hinar, sem sakn
að var, hefðu hlaupizt á brott
vegna hræðslu. Gagnger leit var
gerð í nágrenninu og fannst eng
in sjúklingur, og er því álitið, að
hinar konurnar fimm hafi einnig
farizt í eldinum.
FA BRETAR
SKYBOL
NTB—Nassau, 19. des.
Þeir Kennedy forseti og
Macmillan forsætisráðherra
hófu viðræður sínar snemma
í morgun í Nassau á Bahama-
eyjum. Ræddu þeir aðallega
ákvörðun Bandaríkjamanna
að hætta við framleiöslu Sky-
bolt-eldflauganna, en áður
hafði verið samþykkt, að
Bandaríkjamenn framleiddu
þessar eldflaugar fyrir Breta,
sem hugðust nota þær sem
kjarnann í uppbyggingu kjarn
crkuhers síns.
Varnarmálaráðherrar beggja
landanna,' McNamara og Thorney-
croft tóku einnig þátt í viðræð-
unum, en þeir hittust í síðustu
viku, og ræddu þá einnig um Sky-
bolt-eldflaugamar.
Mcmillan forsætisráðh. er sagð
ur hafa gert Kennedy það ljóst,
að Bretar hygðust halda áfram
að hafa yfir að ráða sjálfstæðum
atómher og gæta kjarnorkuvopna
sinna sjálfir, en um leið, eru þeir
fúsir að vinna með bandamönnum
sinum.
Kennedy og Macmillan ræddu
því næst þá ákvörðun Bandaríkj-
anna að láta stöðva frekari fram-
leiðslu á umræddum eldflaugum,
er. Bandaríkin höfðu lofað að af-
Albert Schweitz-
erstyðurKatmga
NTB—Brussel, 19. des.
í viðtali, sem birtist í dag í blað
inu „La Derniere Heure“ í Brussel,
við Albert Schweitzer tekur hann
málstað Katanga og styður rétt
þess til þess að vera sjálfstætt ríki,
óháð öðrum hlutum Kongó.
Schweitze1- sem fékk friðarverð-
að fá það tii að greiða enn öðru
ríki skatta. Maður furðar sig á
því, að menningarríki, skuli geta
tekið þátt í slíku, segir Schweitz-
er.
Þá segir hann sjálfstæðj Kat-
anga byggjast á því, að það sem
e;nu sinni hafi verið Belgíska
Kongó, sé nú ekki lengur til. Rétt
lrun Nobels árið 1952, segir í við- arfarslega séð sé Katanga sjálí-
talinu, að það sé óskiljanlegt,
lievrnig erlent ríki (Bandaríkin)
geti á vorum dögum farið með
stætt ríki liurtséð frá því, hvort
Paul-Henri Spaak utanríkisráð-
herra Belga eða einliverjir aðrir
strið á hendur Katanga til þess' neiti að viðurkenna það.
ViSurkenna Jemen
NTB-Washington, 19. des.
Bandaríkjastjórn viður-
kenndi í dag stjórn upp-
reisnarmanna í Jemen. Um
leið og þetta var tilkynnt,
var frá því skýrt, að haldið
yrði áfram að veita Jemen
hjálp, eins og áður hafði
um samizt.
Mótmæltu flugi
pyrlunnar
NTB-Berlín, 19. des.
So.vétríkin hafa sent
Bandaríkjamönnum mót-
mælaorðsendingu vegna
þess að snemma í dag flaug
bandarísk þyrla í hálftíma
yfir Austur-Berlín. Sam-
kvæmt túlkun Vesturveld
anna á fjórveldasamningn-
um um Berlín er flugvélum
allra fjögurra hernámsaðil-
anna heimilt að fljúga yfir
borginni, þ. e. a. s. innan
hrings með 35 km radíus,
sem dreginn er út frá flug-
eftirlitsstöðinni í Berlín.
Ná yfirráðum meö
valdi
NTB-Jakarta, 19. des.
Sukarno Indónesíuforseti
lýsti yfir því í dag, að Indó-
nesar væru reiðubúnir að
ná yfirráðum yfir Veslur-
Nýju Guineu með valdi, ef
ekki verður staðið við samn
inginn, sem gerður var með
Indónesum, Hollendingum
og Sameinuðu þjóðunum út
af eyjunni í haust.
henda Bretum mikiS magn þeirra,
en þær átti síðan að nota við
uppbyggingu brezks atómhers. Til
mála hefur komið, að Bretar taki
sjálfir að sér framleiðslu eldflaug
anna, og þá fyrir eigin reikning,
en Kennedy forseti og Mc Namara
varnarmálaráðherra eru mótfalln-
ir framleiðslu þeirra í Bandaríkj-
unum sökum þess, hversu dýrar
þær eru, og einnig vegna ýrnissa
tæknilegra galla, sem fram hafa
komið við tilraunir með þær.
T í M I N N, fimmtudagurinn 20. ies. 1962.
3