Tíminn - 17.01.1963, Side 3
Ekkert nýtt í Berlínar-málinu í ræðu Krustjoffs
Geta ei notað stærstu
sprengju sína í Evrópu
NTB-Berlín, 16, janúar.
í ræðu, sem Krustjoff for-
sætisráðherra hélt á flokks-
þingi austur-þýzka kommún-
istaflokksins í Berlín í dag,
sagði hann, að stærsta kjarn-
orkusprengja Sovétríkjanna
væri of stór til þess að henni
yrði beitt í Vestur-Evrópu,
myndi það hafa alvarlegar af-
leiðingar bæði fyrir lönd Aust-
ur-Evrópu og einnig fyrir
Sovétríkin sjálf.
Hafa áhuga á
Narvíkur-höfn
NTB-Stokkhólmi, 16. jan.
Stór iðnaðarfyrirtæki,
bæði í Norður-Svíþjóð og
Norður-Finnlandi, hafa lát-
ið f ljós áhuga á að nota
höfnina í Narvík sem út-
flutningshöfn. Narvíkur-
nefndin, sem umsjón hefur
með höfninni þar, telur
hana vel til þess fallna að
taka á móti slíkri starfsemi.
Lufthansa flýgur
til Noregs
Þýzka flugfélagið Luft-
hansa’ muri að öllum likind-
um hefja áætlunarflug til
Óslóar vorið 1964. Fyrr get-
ur ekki orðið af þessu áætl-
unarflugi ve'gna skorts á
flugvélum, en félagið hefur
pantað 12 vélar af gerðinni
Boeing 707.
Nilsson heimsækir
Lange
NTB-Osló, 16. jan.
Torstein Nilsson utanrík-
isráðherra Svíþjóðar er
væntanlegur í opinbera
heimsókn til Halvards
Lange utanríkisráðherra
Noregs, dagana 31. janúar
og 1. febrúar n.k.
Fyrsti negrinn
í Clemson-bún-
adarháskólann
NTB-Alexandria, Virginiu,
16. jan.
Sambandsdómstóllinn í A1
exandríu í Virginíu-ríki,
hefur ákveðið að svertingja
stúdentinn Harvey B. Gannt
skuli fá inngöngu í landbún
aðarháskólann í Clemson í
Suður-Carolínu. Fram til
þessa hefur engum negra-
stúdent verið veitt inn-
ganga í skóla þennan.
Ræða Kasmír-
deiluna
NTB-Nýju Dehlí, 16. jan.
Viðræður hófust í dag
milli fulltrúa Indverja og
Pakistana vegna deilunnar
um Kasmír. Eftir fund
samninganefndanna rædd
ust formenn nefndanna,
Singh frá Indlandi og
Bhutlo frá Pakistan óform-
lega við í nokkra stund
Krústjoff hélt tveggja og hálfs
tímá langa ræðu, og sagði hann
m. a., að sovézkir vísindamenn
hefðu framleitt kjarnorkusprengju
sem væri 100 megalestir, en hern-
aðarsérfræðingar hefðu komizt að
þeirri niðurstöðu, að alls ekki
væri hægt að nota þessa sprengju
í Evrópu. Væri sprengja af þessari
Þyrla sækir sjúkan
mann til Arnar-
fjarðar
TK—Reykjavík, 16. jan.
Ákveðið var í kvöld, að þyrla
frá varnarliðinu færi vestur í Arn-
arfjörð í fyrramálið til að sækja
Ragnar Guðmundsson, bónda á
Hrafnabjörgum. Er hann mikið
sjúkur og þarf að komast í sjúkra-
hús hér syðra sem fyrst. Enginn
sjúkraflugvöllur er í námunda við
Hrafnabjörg og getur Björn Páls-
son því ekki tekið að sér þennan
sjúkraflutning. Talið er að veður
verði að vera gott til þess að þyrl-
an geti lent vestra.
stærð sprengd í Vestur-Evrópu
myndi það hafa alvarlegar afleið-
ingar í för með sér fyrir önnur
lönd í Austur-Evrópu.
Forsætisráðherrann kallaði þá
menn Stalínista, sem héldu því
fram, að kommúnisminn gæti því
aðeins sigrað heiminn, að styrjald
ir yrðu háðar. Hann kvað ýmsa
hafa stungið upp á því, að viðræð-
ur yrðu teknar upp milli foringja
kommúnista um allan heim, til
þess að draga úr misklíð þeirri,
sem komið hefur upp, en viðræð-
ur sem þessar sagði hann yrðu til
þess eins að auka á missættið,
yrðu þær látnar fara fram nm
Um Berlínar-málið og Þýzka-
lands-málin í heild sagði Krústj-
off, að þau væru alþjóðamál, en
friðarsamningurinn við Austur-
Þýzkaiand væri ekki eins knýj-
andi nú og hann hefðj verið áður
en múrinn hefði verið reistur í
Berlín. Þó væri dráttur á undir-
ritun samningsins til þess eins að
draga á langinn úrlausn annarra
mikilvægra heimsmála, og ekki
yrði hægt að binda endi á vopna-
vígbúnað í heiminum fyrr en samn
ingurinn hefði verið undirritaður.
Krústjoff minntist á Kúbu-deil-
una, og sagði, að hún hefði verið
mikill sigur Sovétríkjanna, og ó-
sigur fyrir Bandarlkin. Hann
sagði þó, að Sovét-stjórnin hefði
SNYR ADENAU-
ER OE GAULLE?
NTB-Bonn, 16. jan.
Aðeins fáir dagar eru þar
fil Adenauer kanzlari heldur
til Parísar til þess að ræða þar
við de Gaulle Frakklandsfor-
16 mm filmuleiga
K\-ikmyndavélaviðgerðir
Skuggamyndavélar
Flestar gerðir sýningarlampa
Odýr sýningartjöld
Filmulím og fl.
Ljósmyndavörur
Filmur
Framköllun og' kópering
Ferðatæki (Transistor)
FILMUR OG VÉLAR
Freyjugötu 15
Sími 20235
seta, en ekkert bendir til þess,
að hann hafi í hyggju að beita
áhrifum Vestur-Þýzkalands f
þá átt, að Frakkar styðji aðild
Breta að Efnahagsbandalag-
inu.
Karl Giinther von líase blaða-
fulltrúi vestur-þýzku stjórnarinn-
ar sagði í Bonn f dag, að aðal-
málið, sem rætt yrði af þeim Ad-
enauer og de Gaulle, væri nánari
samvinna Frakklands og Þýzka-
lands, en aðild Breta að EBE yrði
því aðeins rædd, að Frakklands-
forseti óski þess. Adenauer verð-
ur í París 21. og 22. janúar.
Formaður Sósíal-demókrata-
flokksins í Vestur-Þýzkalandi,
Erich Ollenhauer, hefur í bréfi tii
kanzlarans beðið hann um að
beita áhrifum sínum til þess að
fá de Gaulle til að vinna að frek-
ari einingu Evrópu. Frönsk-
þýzk vinátta, sem styddi ekki að
einingu Evrópu, væri ekki tímun-
um samkvæm.
Samningaviðræðurnar héldu á-
fram í Briissel í dag, og báðir að-
ilar sýndu nokkra undanlátssemi,
enda þótt greinilegt væri, að það
uæri ósk Frakka, að viðræðurn-
ar færu út um þúfur hið bráð-
asta. Allar sendinefndirnar, að
undantekinnj þeirri frönsku, virð-
ast ætla að láta yfirlýsingu de
Gaulles sig engu skipta, og halda
áfram viðræðum, þar til málin
hafa skýrzt meira.
aldrei hugsað sér að leggja út í
kjarnorkustríð við Bandaríkin. —
Við óskuðum þess að koma í veg
fyrir aðra innrás á Kúbu.
Stjórnmálamenn í Berlín segja
að ræða Krústjoffs hafi einkennzt
af gætni og mildi. Enda þótt hann
hefði sagzt standa fast við allar
fyrri uppástungur sínar og tillög-
ur, þá væri greinilegt, að hann
hefði ekkf í hyggju, að koma með
nýjar tillögur, sem kynnu að
verða til þess að breikka bilið
milli Austurs og Vesturs.
Á jeppa
Framtalsfrestur
FramhaJd aí bls 1.
1. júní og yrði reynt að framfylgja
því ákvæði, en undanfarin ár hafa
skattskrár víða verið til muna síð-
búnari.
Ríkisskattstjóri kvað sér vel
ljóst, að mörgum væri illgert að
skila framtölum á réttum tíma,
en enn væri ekki vitað, hvort ann-
ar frestur yrði veittur en sá, sem
væri á valdi einstakra skattstjóra.
Slíkt væri á valdi fjármálaráð-
herra, og væri það mál í athugun.
Kvaðst ríkisskattstjóri vonast til
þess, að ákvörðun yrði tekin á
morgun, fimmtudag.
Bingó
Fulltrúaráð framsóknarfélaig.
anna í Reykjavík heldur bingó
sunudaginn 20. janúar kl. 8:30 e.h.
f Glaumbæ. Bimgóskemnitanir
framsóknarfélaganna hafa verið
mjög vinsælar og mikið sóttar. Nú
eins og áður eru margir góðir
vinninga rí bo'fti. Aðgöngumiðar
verða seldir í Tjarnargötu 26,
síma 1 55 64 og 1 29 42.
Framhald aí 1. síðu.
á og var færð góð. Komu þeir að
ánni kl. 4 á sunnudag.
Skeiðará var hins vegar ekki
á haldi. Þar sem venjulega er yf-
ir hana farið reyndist með öllu
ófært. Leituðu þeir þá upp með
ánni, en útlit fór þar versnandi
Þá var haldið niður með ánni og
fundu þeir loks stað, sem var all
álitlegur, vatn frekar lítið og botn
sléttur, en sá hængur samt á, að
bakkar voru háir beggja vegna ár-
innar. Áræddu þeir þó að steypa
jeppanum fram af bakkanum og í
ána og spiluðu bílinn svo upp á
bakkann hinum megin. Til sama
ráðs tóku þeir félagar við næstu
kvísl. Var þá klukkan að verða 10
og komið svarta myrkur og þeir
uppgefnir orðnir. Lögð'ust þeir þá
til svefns í bílnum.
Upp risu þeir í birtingu á mánu-
dagsmorgun og kom þá í ljós, að
þeir voru komnir yfir verstu tor-
færurnar og voru komnir eftir tæp
lega klukkustundar akstur niður
að Svínafelli í Öræfum. Fengu
þeir þar góðár viðtökur. Þaðan
var haldið áfram austur að Fagur-
hólsmýri. Þar var þeim ráðlagt að
hafa samband við Kvískersbræð-
ur. Sögðu þeir, að Hrútá myndi
vera allvarasöm. Svo reyndist þó
ekki. Hún var á ágætu haldi. Yfir
Fjallsá var svo farið á brú og þá
var eftir Jökulsá á Breiðamerkur-
sandi og vonuðust þeir til að geta
komizt yfir hana á ís. ís var hins
vegar mjög ótryggur á ánni og
ekki hættandi á að fara á bíl út
á hann. Kvískersbræður átti hins
vegar pramma við ána, sem not-
aður hefur verið til að ferja bíla
yfir — og vildi svo heppilega til,
að hann var réttum megin árinn-
ar. Férjuðu þeir jappann yfir á
prammanum. Var þá greiðfært í
Höfn í Hornarfirði og komið þang
að á mánudagskvöld kl. 9,30.
Þaðan var haldið áfram áleiðis
til Egilsstaða. Skiptust þeir félag-
ar á um að sofa og aka. Óku Jökul-
dal og Möðrudalsöræfi og þræddu
þar í slóðir bíla. Undir kvöld tók
að skafa og skefld; í hjólförin. Til
Möðrudals náðu þeir samt kl. 8
um kvöldið og fengu hlýjar við-
tökur. Kl. 9 héldu þeir upp aftur
niður að Mývatni og var blind
skafrenningur alla leið. Úr því má
segja, að ferðin hafi verið stórtíð
indalaus og hingað til Reykjavík-
ur komu þeir félagar svo kl. 6,40
eir.s og fyrr sagði — allþrekaðir
og þreyttir eins og nærri má geta.
Vicon áburðardreifarar
Eins og að undanförnu munum við útvega hina
landskunnu Vicon áburðardreifara fyrir tilbúinn
áburð. Þessir kastdreifarar hlutu silfurverðlaun
í Bretlandi fyrir skömmu. Dreifibreidd er upp i
sex metra og áburðargeymirinn rúmar 300 kg.
Fjöldi dreifara í notkun hér á landi og varahlutir
ávallt fyrirliggjandi. Verð um kr. 7900.00.
WiNI GESTSSON
Vatnsstíg 3 — Sími 17930.
T I M I N N, fimmtudagur 17. jan. 1963. —