Tíminn - 17.01.1963, Blaðsíða 5

Tíminn - 17.01.1963, Blaðsíða 5
GUNNAR í dag er þess minnzt víða um heim, að liðin eru hundrað ár frá þvf að Konstantin Ser- geyevíts fæddist, sá maður, sem með leikhússtarfi sinu olli öðrum mönnum fremur á síð- ustu og þessari öld, breyting- um og byltingu í leikhúsmennt un, ekki aðeins í heimalandi sínu, heldur beggja vegna Atl- antshafs’ins og raunar í flestum álfum. Hann hét réttu nafni Kon stantin Sergevevíts Alexeyef, en tók sér síðar listamanns- nafnig Stanislavski. Ungur fór hann að taka þátt í leiksýning- um og söngleikjum og ætlaði um skeið að leggja fyrir sig ó- perusöng, og snémma vakti hann athygli fyrir sjálfsgagn- rýni og sjálfstæð og kerfis- bundin vinnubrögð. Árið 1888 stofnaði hann í félagi við Komisarjevski og Fedotov Lista- og bókmennta- félagið, sem hafði það að mark miði að safna saman listamönn um úr öllum greinum til að setja á svið úrvalsleikrit. Fyrst í stað fór Stanislavski með leikhlutverk í áhugamanna- hópi félagsing, en ekki íeiS á löngu áður en hánn fór að taka að 'sér leikstjórn, og var fyrsta leikstjórnarverk hans að setja á svið leikritið Ávexti upp- fræðslunnar eftir Tolstoj og Sela Stepanchikof eftir Dostoj- evsky, árið 1891. Leikstjórn hans á þessum verkum vakti strax athygli, en nokkur ár liðu unz hann varð verulega frægur sem leikstjóri. Hann vann enn •að mestu undir áhrifum frá Meininger-leikfélaginu, sem frægt var fyrir sviðbúnað og nákvasmni, einkum í hópatrið- um. Þó leitaðist hann við að móta einfaldari og raunsann- ari leik. En árið 1898 er sögulegasta og örlagaríkasta árið á lista- mannsferli Stanislavski, þegar hann ásamt Nemirovits-Dan- sjenko stofnaði Listaleikhús Moskvu, sem nöfn þeirra voru um áratugi tengd við. Með stofnun þessa leikhúss hefst nýtt tímabil í leikmenntum Rússlands og raunar heimsins. Á fyrsta leikári stjórnaði Stanislavski leikritunum Feo- dor Ivanovits keisari eftir Tol- stoy og Mávinum eftir Tjekoff. Og það var einmitt stjórn hans á leikritum hins síðarnefnda, sem sköpuðu báðum frægð um víða veröld, leikskáldinu og leikstjóranum. Stanislevski varð fyrstur til að kynna heim inum leikritin eftir Tjekoff, ný af nálinni. Það var Mávurinn 1898, Vanja frændi 1899, Þrjár systur 1901, Kirsuberjagarður- inn 1904. En af öðrum frægum leikhúsverkum Stanislavskis frá þessum árum voru Makt myrkranna eftir Tolstoy 1902 og Júlíus Sesar 1903. S anislav- ski velti um koll hinni stein- gerðu hefg leikhússins, skraut- inu og tilgerðinni, en innleiddi raunsæisstefnuna á leiksviðð. list hans þroskaðist ört með ár- unum, hann lagði ekki alla rækt við ytra borðið, heldur kannaði kjarna verkanna, sneri sér frá „sögulega sannleikan- um“ og siðvenjunum, að til- finningunum, geðbrigðunum og túlkun þeirra. Þess vegna tók hann fegins höndum hin- um nýju leikritum Tjekoffs, færði lei'kritin upp á lýriskan hátt, og notaði gjarna tónlist til áherzlu, leiddi fram sál- fræðileg einkenni verkanna á eins einfaldan hátt og frekast var unnt. Á fyrstu leiksýning- um Stanislavskis f Listaleik- húsinu skiptust áhorfendur í tvo hópaj með og móti hinni nýju Teiklist, sem þar birtist. En Stanislavski vann skjótan sigur, frægð hans fór víða, og um áratugi beindist athygli heimsins að þessu leikhúsi og hinni miklu list Stanislavski, bæði leik hans og leikstjórn. Eftir hina misheppnuðu upp reisn 1905 ríkti mikil óvissa meðal fólks, og ekki sízt lista- og menntamanna í Rússlandi, og þetta hafði einnig áhrif á starf Listaleikhússins. Leikrita valið einkenndist af dulspeki- legum verkum og óraunsæjum, um tíma af symbolismanum. Stanislavski sá á bak tveim vinum sínum og eftirlætisleik- skáldum, Tjekoff var látinn, og Gorki varð að hverfa í út- legð. En Stanislavski lét sér ekki lynda symbolismann til lengdar, cnillibilsástandið varð með tímanum til að raunsæis- list hans færðist í aukana, sjón hans varð skarpari. Hann fór utan í leiksýningaferðalög og frægð hans fór stöðugt vax- andi. Mestu leikhúsmenn Evr- ópu, eins og Max Reinhardt í Þýzkalandi, urðu fyrir miklum áhrifum af list hans, sem á næstu áratugum síuðust inn i og mótuðu starf beztu leikhúsa Evrópu og Ameríku, og þau búa að um ófyrirsjáanlegan tíma. Stanislavski skrifaði endur- minningar sínar, er hann var á ferð í Ameríku, þær, sem þýdd- ar hafa verig og komið út á íslenzku og nefnast „Líf í list- um“. Einnig ritaði hann fleiri bækur, þar sem hann lýsir s’arfi sínu og setur fram kenn- ingar um leiklist og leikstjórn, sem eru meðal víðiesnustu og gagnlegustu bóka á sínu sviði. Leikskáld og leikarar hvaðan æva úr heiminum sóttu Stanis- lavski heim, þegar heilsu hans fór að hraka og hann átti ó- greitt um ferðalög. Hann and- aðist í Moskvu 1938, 75 ára að aldri. Einn kunnasti leiklistarfræð- ingur Englands, Allardyce Ni- coll, kemst að orði á þessa leið i einu riti sínu: „Við getum haft það fyrir satt, að f leik- húsum á tímum Shakespeares hafi leikstjórnarstíll eins leik- rits ekki verið að neinu marki frábrugðinn stíl annars leik- rits. Nú á dögúm eru stíl- brigðin takmarkalaus. Leik- stjórar eiga það til að hvetja leikara til að breytast frá kvöldi til kvölds. Sumir binda sig við fast og ákveðið form og hvika ekki frá því. Á öðru leit- (Framhald á 15. síðu) Stanislavski og Lilina kona hans í leikritinu „Kabale und Liebe" eftir Sehiller. Stanislavski í hlutverki Astroffs í „Vanja frænda" eftlr Tjekof. T í M I N N, fimmtudagur 17. jan. 1963. — 5

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.