Tíminn - 17.01.1963, Page 6
TÓMAS KARLSSON RITAR
ÞINGMALAGLEFSUR
Afurdalan landbún-
aðaríns í Seðla-
bankanum
1. nóvcmber síðastl. bar Ás-
geir Bjarnason fram fyrirspurn
til landbúnaðarráðherra um af
urðalán út á birgðir landbún-
aðarafm'ð'a. Lýsti Ingólfur Jóns
son því þá yfir, ag ákveðið
væri, að afurðalán Seðlabank
ans nú myndu nema 55% og
enn fremur myndi ríkisstjórn-
in ætla að sjá svo um að land-
búnaðurinn fengi sambærileg
viðbótarlán I viðskiptabönkum
og sjávarútvegurinn fær, þ.e.
15%, — eða samtals 70% af
heildsöluver®i birgðanna. Síð-
an 1959 höícYi heildarútlán
Seðlabankans út á landbúnað
arafurðir staðið í stað a® krónu
tölu, þrátt fyrir miklar verð-
hækkanir og framleiðsluaukn-
ingu. Bændur hafa gert marg
ar áskoranir um að fá aukin
afurðalán og hefur landbúnað
arráðherra marg oft lofað öllu
fögru um það.
Á árunum 1956 til 1959 lán-
aði Seðlabankinn 67% af veríf
mæt; landbúnaðarafurða en í
tíð núverandi ríkisstjórnár
hefur prósentan hrapað veru-
lega vegna reglunnar um að'
heildarkrónutalan eigi að
standa í stað. Nú mun siávarút
vegurinn fá 55% lán út á afurð
ir sánar í Seðlabankanum en
að auki fá fyrirtæki sjávariit-
vegsins 15% viðbótarlán í við-
skiptabönkunum og er þa® al-
gild regla, þannig að sjávarút-
vegurinn fær í öllum tilfellum
70% lán út á sínar afurðir.
Gód orö
Er Ingólfur Jónsson lýsti því
yfir í haust/ að afurðalán Seðla
bankans myndu nema 55%, var
ekki hægt að skilja það öðru
vísi en svo, en ríkisstjórnin
hefði nú ákveðið að hverfa frá
hinni fráleitu reglu sinni um
að heildarfjárhæð afurðalána
Seðlabankans til landbúnaðar
ins megi ekki vera hærri en
hún var 1959. Jafnframt lýsti
þá ráðherrann yfir, að hann
hefði rætt við bankastjóra við
skiptabankanna og kvaðst ætla
að landbúnaðurinn myndi
verða látinn sitja við sama borð
og sjávarútvegurinn, hvað
snertir viðhótarlán.
í orði en ekki á borði
Raunin er hins vegar sú, að
ekki hefur enn verlð' horfið
frá krónutölureglunni og heild
arútlán Seðlabankans til land
búnaðarins eru enn ekki hærri
en þau voru 1959. Enn fremur
hafa enn ekki verið lánuð full
55% út á allar afurðategund-
ir landbúnaðárins. Engin skipu
leg og örugg viðbótarlán hafa
heldur enn ekki verið tekin
upp. Má því segja, að málið sé
enn í svipuðum ólestri og áð-
ur, þrátt fyrir góð orð land-
búnaðarráðherra í nóvember-
byrjun.
Erfiðleikar fyrirtækja
landbúnaðarins
Fyrirtæki landbúnaðarins
eiga í miklum erfiðleikum af
þessum sökum. Bændur standa
höllum fæti og mega ekki við
neinum drætti á útborgunum
og fyrirtæki landbúnaðarins
hafa því reynt eftir fremsta
megni að láta útborganlr tii
bænda vera jafn háar og áður
og reynt að láta þær ekki drag
ast á langinn. Til þess að
standa í skilum með útborgan-
ir til bændanna hafa landbún-
aðarfyrirtæki því neyðzt til að
taka fjármagn frá öðrum
rekstri sínum. Vegna þessa
hafa mörg fyrirtæki lent I hin-
um mestu erfiðleikum og þetta
ástand stendur þeim orðið fyr
ir þrifum og tefur eðlilega
uppbyggingu. — Á þessu verð-
ur því að ráð’a bót hið fyrsta.
Hlý orð landbúnaðarráðherra
á Alþingi duga ekki ein til að
ráða bót á þessu, ef eftir þeim
fylgja ekki raunhæfar aðgerð-
ir ríkisstjómarinnar til að
láta landbúnaðinn njóta jafn-
réttis við sjávarútveginn í
þessum efnum.
FramkvæmdalániS
f sambandi við frumvarpið
um töku 240 milljón króna fjár
festingarlánsins í Bretlandi
urðu allmiklar umræður í báð-
um deildum um fjárfestingar
málin almennt og lögðu Fram-
sóknarmenn til að þessu fram
kvæmdafé yrði skipt með sér-
stökum lögum frá Alþingi, en
ríkisstjómin hefði ekki alræðis
vald um skiptingu þess. Reynd
ar má telia það biræfna ó-
svífni af ríkisstjóminni svo
mikið sem fara fram á að fá
ein að höndla með allt þetta
fé, því að það er ein undirstöðu
regla þingræðisins, að Alþingi
ákvarði fjárframlög til fram-
kvæmda og ætti í því sambandi
ekkj að skipta máli hvort um
lánsfé er að ræða eða um bein
framlög af tekjum ríkissjóðs.
Ekki vildi stjórnarliðið þó
gera sér ýkja hátt undir þing-
höfðinu og beygði sig fyrir ein
ræðistilhneigingum ráðherr-
anna. Ma þingræðið teljast i
nokkurri hættu þegar þing-
menn sofa svo fast á verðin
um um virðingu Alþingis. —
Eftir nokkurt þóf féllst þó rík
isstjórnin á að hafa „samráð
vi® fjárveitinganefnd Alþingis“
um skiptingu fjárins. Dró það
aðeins úr sársaukanum og kann
að hafa friðað samvizku ein-
hverra þingmanna stjórnar-
flokkanna.
Tylliástæðan fyrir
kjaraskerðingunni
Þegar rætt er um lántöku
sem þessa verður ekki komizt
hjá að geta yfirlýsinga núver-
andj stjómarflokka, er þeir
vom að Iögfesta liina svo-
nefndu „viðreisn“. Þá var gerl
ákaflega mikið úr greiðsluhali
anum við útlönd. Töldu þeir
viðreisnarmenn hann geigvæn
lega mikinn, og nefndu háar
tölur. Sögðu þeir að þensi
greiðsluhalli við útlönd hefði
verið jafnaður með erlendum
lántökum og væri það vottur
þess að þióðin hefði lifað um
efni fram, eins og kallað var.
Nú ætti að hætta því og þess
vegna yrði þjóðin að herða
mjög að sér og því væri kjara
skerðíngin ekki umflúin.
Stórvirkín
Umræddur greiðsluhalli við
útlönd stafaði þó fyrst og
fremst af því að tekin höfðu
verið erlend lán til ýmissa
stórvirkja, stórkostlegra fram
kvæmda, sem þjóðin hafðí ráð
izt í, og má þar nefna t.d. virkj
anirnar við Sogið, Áburðar-
verksmiðjuna, Semcntsverk-
smiðjuna, skipakaup og fl. —
Hér var síður en svo um lán-
tökur að ræða, sem gerðu þjóð
inni erfiðara fyrir og átti eng-
in kjaraskerðing að geta stafað
af þessum lántökum, þvi að
þjóðin stóð miklu betur að
vípi eftir þessar framkvæmd-
M' en fyrir.
Fékk ekki staðizt
Þjóð eins og íslendingar, sem
þarf að byggja upp talsvert
hratt og notfæra sér mikla ó-
notaða möguleika, en býr við
fjármagnsskort, verður og á að
taka erlend lán til að koma
nauðsynjaverkum í fram-
kvæmd, því annars stöðVast
framleiðsluaukningin og upp-
bygging í mörgum greinum og
atvinnuvegir staðna. Reynslan
hefur og sýnt, að stefna sú,
sem rikisstjórnin kvaðst myndi
fylgia varðandi lántökur erl^nd
is, fékk ekki með nokkru móti
staðizt. Skuldirnar við útlönd
hafa ekki lækkað. Margar lán-
tökur hafa átt sér stað í stjórn
artíð núverandi ríkisstjórnar,
þótt hin síðasta sé þeina
stærst. Að hætta að taka er-
lend lán samtímis því að' fram
kvæmdakostnaður í öllum
greinum og þar með lánsfjár-
þörf er tvöfölduð er vitanlega
stefna, sem hlýtur að leiða til
stöðvunar, ef framkvæmd væri
— og væri ríkisstjórninni óvirð
ing ger með því að halda því
fram, að henni hafi nokkru
sinni svo mikið sem komið það
til hugar að fylgja fram þess-
ari stefnu — jafnvel ekki Gylfa
Þ. Gíslasyni.
í sambandi við erlendar lán-
tökur er rétt að minna á, að
enn heldur ríkisstjórnin fast
við það að loka inni í frysti-
húsi Seðlabankans hluta af
sparif járaukningunni í land-
inú. Þrýstingurinn af hinum
óguriega stofnkostnaði, sem
orðinn er vegna efnahags-
aðgerða ríkisstjórnarinnar,
hlýtur að verða til þess að taka
verður meira af erlendum lán-
um til fjárfestingarinnar svo
hún stöðvist ekki alveg í viss-
um greinum, og þeim mun
meira af erlendum lánum því
lengur sem við er haldið hinni
fráleitu sparifjárfrystingu.
Qtti vi$ dém
kfésenda
Fjárfestingarmálin eru kom
in í algera sjálfheldu og það
veit ríkisstjórnin ekki síður
en aðrir og því hefur hún ráð-
izt í þessa Iántöku af ótta við
dóm kjósenda um stiórnarstefn
una, Nú á að reyna að sníða
af verstu agnúana. Með þessu
láni verður samt ekki komist
fram úr vandanum. Það eitt
dugir ekki til að mæta hinni
ofsalegu dýrtíðarþenslu. sem
orðin er í landinu og þeim
hækkunum, sem óhjákvæmi
lega hljóta að' vera framund-
an.
i’ákvæfta I@i9in
f ræðu, sem Eysteinn Jóns
son hélt við umræður um þessa
lántöku, Iagði hann áherzlu á,
að fara yrði jákvæðu leiðlni
út úr vandanum, sem við væri
að glíma. Með því að auka
framleiðsluna og framleiðnina
í landinu en til þess þarf meirn
fjármagn til fjárfestingar en
áður hefur verið fyrir hendi
og það verðum við að fá með
Framhald á 13 síðu
Áthugasemd við trúmála
greinar Hárbarðs og
Halldórs Kristjánssonar
Á undanföraum vikum hefir í
blöðum talsvert verið rætt um
trú- og kirkjumál, _og má segja,
að það sé góðs viti. í skrifum þess-
um gætir þo margra furðulegra
grasa, þótt ekki verði hér rakið,
en ég get ekki á mér setið að gera
stutta athugasemd við skrif Tím-
ans um þessi efni nú í vikunni,
þar sem birtist í senn hrokakennt
yfirlæti og takmarkalítil vanþekk-
ing á eðli kristinnar trúar og
kirkju.
Það er að visu ekkert nýtt,
að einn eða annar segi sem svo,
að kirkjan eigi að gera þetta eða
hitt á þennan hátt eða hinn sem
tiltekinn er, í stað þess að vera
stöðugt í sömu hjólförunum. Stund
um er þetta af einlægum umbóta-
hug gjört, en ósjaldan tala þeir
hæst um slíkt, sem minnsta fyrstu
handar þekkingu hafa á raunveru-
legu starfi og boðskap kirkjunn-
ar, og er svartletraður sunnudags-
pistil Hárbarðs í Tímanum 6. jan.
Ijóst dæmi um slíkan málflutn-
ing.
Hárbarður kvartar yfir því, að
lítt hafi nýsköpunar gætt í jólaboð
skap kirkjunnar á nýafstöðnum
jólum og finnst það hinsegin, að
prestarnir skuli endilega tala út
frá Biblíunni, en ekki einhverju
öðru, t. d. bókmenntum samtíð-
arinnar.
Nú hefi ég að vísu ekki lesið
nema takmarkað af „jólabókun-
um“ síðustu, — vafalaust má ýmis
iegt af þeim læra, en af þeim kynn
um, sem ég hefi af þeim haft,
held ég þó að vafasamur ágóði
váiri að þvi fyrir söfnuðina, að
prestarnir sæktu sinn boðskap í
þær í stað Biblíunnar, burtséð
frá þeirri staðreynd, sem Hárbarð-
ur virðist ekkert um vita, að prest-
arnir eru ekki til þess kallaðir að
boða þetta og hitt, sem menn
kunna að telja sér henta, heldur
þann boðskap, sem Biblían birtir,
að í Betlehemsbarninu gengur
Guð til móts við mennina með ein
stæðum hætti og býður þeim hlut-
deild í sínu lífi, — býð'ur sína
hjálp til þess að þeir megi verða
það sem þeim er ætlað.
Þeir, sem eru svo miklir af sjálf
um sér, að þeir telja sig ekki
hafa þörf fyrir þennan boðskap
og það sem i honum felst, hljóta
auðvitað að verða fyrir vonbrigð-
um i kirkjunni, en án þess að
hætta að vera kirkja, getur hún
ekki horfið frá þeim boðskap, sem
hennj er trúað fyrir til þess að
þjóna duttlungum manna, sem
vilja, að hún tali i samræmi við
þeirra heimatilbúnu hugmyndir.
Þá talar Hárbarður um það, að
prestarnir ættu að taka Krist sér
til fyrirmyndar og tala um at-
vik liðandj stundar í stað þess að
sækja texta sína i fornar skræður.
rins og hann kemst að orði.
Þar til er þvi að svara, að
augljóst er af Nýja testament-
inu, að á helgum dögum sótti
Kristur reglulega guðsþjónustur
samtíðar sinnar, þar sem uppistað
an var einmitt hin fomhelgu rit
þióðarinnar, og sjálfur sótti hann
sér texta þangað, ekki aðeins að
ræðum, er hann hélt við form-
legar guðsþjónustur. — heldur eru
og sumar dæmisögur hans sagð-
zr með biblíulegan texta að for-
sendu og sums staðar beint út
frá þeim gengið. sbr. t d. söguna
um Miskunnsama Samverjann, er
gerð er að umtalsefni í annarri
grein Tímans um trúmái nú í vik-
unni.
Vissulega á boðskapur kirkjunn
r að vera raunhæfur og fluttur
á þann veg að verða megi að liði
í vandamálum samtíðarinnar, og
vafalaust tekst okkur prestunum
það misjafrilega, en víst er, að
textaraðir kirkjuársins búa yfir
slíkri fjölbreytni og auði, að út
frá þeim gefast ærin tækifæri
til þess að ræða hvers konar
vandamál mannlegs lífs, jafnt ein
staklings sem heildar, en auðvitað
getur verið mjög undir hælinn
lagt um eftirtekjuna af kirkju-
göngunni, sé þangað aðeins kom-
ið einu sinni eða tvisvar á ári.
Ég vil ekki eyða rúmi blaðsins
í að ræð'a þessa grein Hábarðs
frekar, en mér fannst þar svo
mikið af yfirborðslegum sleggju-
dómum, að ekki væri unnt að láta
hana fram hjá mér fara athuga-
semdarlaust.
Hér að framan var aðeins vikið
að grein Halldórs Kristjánssonar
í miðvikudagsblaðinu, 9. jan. og
væri freistandi að ræða hana nokk
uð, en þar sem ég geri ráð fyrir,
að henni verði svarað af öðrum,
skal ég hér aðeins víkja mjög
stuttlega að því, sem mér virðist
meginatriði í því sambandi.
Á grein Halldórs er nokkuð ann
ar blær en ritsmíð Hárbarðs, en
einnig hjá honum virðist mér
byggt á næsta takmörkuðum skiln
ingi á eðli kristindóms og kirkju
og birtist þetta strax í fyrirsögn
greinarinnar, er þannig hljóðar:
Geta spíritistar verið kristnir?
Sannleikurinn er nefnilega sá,
og það ætti áð vera alveg augljóst,
að kristinn máður hefur ekkert
til spíritismans að sækja, hvað
sem eðli hans að öðru leyti líður.
Spíritisminn gengur út á það
fyrst og fremst að sanna það með
ýmsum tilfæringum, að til sé líf
eftir dauðann, en hvernig í ósköp
unum er hægt að tala um það, að
maður eigi kristna trú, án þess
að ganga út frá því?
Að vera kristinn maður er sam-
kvæmt Nýja testamentinu ekki í
því einu fólgið að aðhyllast í ein
hverjum mæli siðaboðskap Jesú
Krists, þar í felst og hitt að á
hann sé trúað og móti honum tek
ið sem Frelsara, er sé eini vegur-
inn til lífsins, — þess lífs sem Guð
vill gefa öllum mönnum hlutdeild
í. bæði þessa heims og annars.
Halldór vill rök og víst' eru rök
ræður góðar svo langt sem þær
ná, en öruggt er að þær duga
engum til þess að eignast þessa
trú, — til þess verður að rækja
samfélagið við Jesúm Krist, eins
og hann líka sjálfur bendir á, —
og það er hlutverk kirkjunnar aö
gera mönnum þetta fært, hún er
líkami hans á jörð.
í spíritismanum er lögð megin-
áherzla á samband við framliðna
menn, — að boðskap Nýja testa-
mentisins er Jesús Kristur hins
vegar hyrningarsteinnn trúarinn
ar, viðmiðun og markmið.
Bolungarvík, 10. jan. 1963.
Þorbergur Kristjánsson.
^ - Útsala -
Útsala á ullargarni og fleiri
i vörum hefst í dag.
Verzlunin Spegillinn
Laugavegi 48.
6
T f M I N N, fímmtudagur 17. jan. 1963. —