Tíminn - 23.01.1963, Page 2

Tíminn - 23.01.1963, Page 2
 ii tM'! llh CHARLIE CHAPLIN óttast miög um framtíð dóttur sinnar, þar sem hann telur Líklegt, að hún hverfi í skugga hans sjálfs, ef ekkert verði að gert. En Ger- aldina er gædd miklum listhæfi- lcikum og á skilið að skapa sér sína eigin framtíð', öllum óháð. Geraldinu, sem nú dvelur við nám í ballettskóla í Englandi, hefur verið bannað að hafa nokk ur blaðaviðtöl, láta ljósmynda sig eða annað þess háttar, þar sem Chaplin telur, að það geti haft skaðleg áhrif á listferil henn ar. En allar fregnir af henni nú sem stendur byggjast á því, að hún er dóttir föður síns. — Myndin hér að neðan er af Gcr aldinu ásamt tvcimur öðriim ncmendum við ballcttskólann, þegar þær komu opinbcrlega fram í London fyrir skömimi. ChapSín og cSóttir saman í kvikmynd Charlie Chaplin á sem stendur i mjög harðri bar- áttu við sjálfan sig. Ástæð- urnar fyrir þessari baráttu eru Chaplin-nafnið og fram- tíð hinnar átján ára gömlu dóttur hans, Geraldinu, en hún er mikið uppáhald hjá honum. Nýlega töluðu þau bæði við biaðamenn á heimili Chaplins í Lausanne. Á meðan Geraldina lá makindalega í sólbaði í garðin- um skýrði Charlie blaðamönnum frá vandræðum sinum. Hann langar til að móta og þróa þá listhæfileika, sem Geraldina óneitanlega hefur, en hann er einnig hræddur um, að hún muni hverfa í skuggann fyrir frægð hans. — Við höfum á prjónunum, að gera stóra hluti saman, áður •en langt um líður, sagði hann. Ég hef næstum lokið við hand- rit að kvikmynd, sem Geraldina mun fara með aðalhlutverkið i. En ég mun um leið gera allt, sem í mínu valdi stendur til að koma í '-eg fyrir, að frægð mín eyðileggi framtíð hennar. — Það er erfitt fyrir hana, að standa sífellt í skugganum af mér, meðan hún er að reyna að skapa sitt eigið nafn, s4m hún ríkulega verðskuldar. — Ef '&g' væri ekki dálítið strangur, mundi hún aldrei fyrir gefa mér síðar meir. Ég vil að hún njóti æsku sinnar. Hún hef- ur rétt lokið við skólann, og það er engin'ástæða til þess, að hún kasti sér strax út í hringiðu lífsins. — Það gegndi öðru máli með mig, þegar ég var ungur, en ein- mitt þess vegna vil ég, að börn mín hafi það ekki á sama hátt. Þó að Chaplin sé svo mjög hræddur um að skemma börn sín, er honum næstum ómögulegt að neita þeim um nokkurn skap- aðan hlut. — Einn daginn neita ég þeim um eitthvað, og afleiðingin er svo sú, að ég sef ekki í margar nætur, þangað til ég gef mig og læt þetta eftir þeim. Þessar eru ástæðurnar fyrir því, að Charlie hefur hlaðið múr- vegg í kringum dóttur sína, en stendur sjálfan sig svo að því öðru hverju, að reisa stiga upp að veggnum. — Geraldina, heldur hinn 72 ill iljjpl |il iljl I I H ii Í3" ■ : : 11 m IHSH ".í'. ' ára gamli grínleikari áfram, ei fremst af þeim öllum, en þar á hann við þau átta börn, sem hann á í Lausanne: Ekki fullþroskuð — Hún kann miklu bctur við sig í gallabuxum, heldur en dýr- um kjólum, heldur hann áfram, og hann verður mjög æstur, þeg ar hánn talar um framtíðarmögu leika Geraldinu, en þeir eru ekki svo litlir. Með miklum útskýring um og handatilburðum sagði hann svo frá efni hinnar nýju myndar. — Þetta á að verða hárbeitt skopmynd í litum, fjallar um gamlan trúð, sem endurreisir frægð sína, og Geraldina leikur dóttur hans í myndinni. Síðan bætir hann hugsandi við: — Það er að segja, ef cg verð þá enn á lífi, og get séð um myndina. Eftir öllum kringumstæðurr ið dæma ætti Geraldina óhjá- kvæmilega að auka enn á frægð fjölskyldunafnsins. Hún er af- komandi tveggja mikilhæfra ætt stofna. Öðrum megin er hin feimna og gáfaða Eugene O’Neili fjölskylda og hinum megin Chaplinfjölskyldan með sína ólmu og fjörugu, skapgerð. Uppstökk í bili hugsar Chaplin aðallega um það, að hæfileikar Gerald- inu eyðileggist ekki og að hún njóti góðrar þjálfunar. í þeim tilgangi stundar Ger- aldina nám við The Royal Sehool of Ballet og lifir áhyggju lausu lífi. Hún er uppstökk eins og faðir hennar, en hún er líka fljót að jafna sig aftur. Hún er feimin, en hún hefur' járnvilja. Hún hefur þegar kom izt að raun um það, að það að bera Chaplinnafnið i London hefur í fylgd með sér heilan her skara af ljósmyndavélum. En Charlie segir, að enn þá þurfi þau mikið á Geraldinu að halda heima við. Fer í opinberar heimsóknir Þegar Oona, hin 38 ára gamla Framhald a 15. síðu Skálda hin nýja I Furðu lítið er enn rætt um hina svokölluðu framkvæmda áætlun, sem stjómiarflokkam- ir hafa verið að tönnlast á allt kjörtímabilið, að væri í smíðum og væri alveg að koma til framkvæmda. Nú er sagt, að hún sé á næstu grösum og er full ástæða til að ætla að hún komi fyrir kosningiarmar, því flesrtum er nú Ijóst odðið, að þessi „framkvæmdaáætlun“ á að vera ný tegund af „blárri bók“ — útfærsla á bláu bók- inni, sem íhaldið hefur gefið út fyrir hverjar bæjarstjórnar- V kosn.ingar { Reykjavík. Auð- vitað á allt það, sem kemur í þessari nýju Skáldu ,að fram- kvæmiast eftir koslningar — og efndirnar á loforðunum verða sjálfsagt mjög í sam- ræmi vi'ð efndirnar á loforð- um bláu bókarinnar i Reykja- vík. Því verra sem ástandið verður, hví sfórkost- legri veróa loforðin Þessi nýja Skálda er úr- ræðið, scm stjórnarflokkarn- ir eygja nú til að fleyta sér yfir kviksyndi næstu kosn- in,ga. Þeir finna að straumur kjósenda liggur frá þeiin vegna hins mikla samdráttar í framkvæmdum cg mikillar kjaraskerðingar almennings. Þess vegna verður að lofa bót og betrun á öllum sviðum og festa rækilegia á blað — hæfi- lega myndskreytt stórvirkj- um. í bláu bókunum f Reykja- vík hefur það nefnilega sann- azt, að því verra sem ástandið verður, því stórkostlegri verða loforðin. Það er þegar komið fram, að „framkvæmdaáæflunón“ á aðeins að verðia blekkingar- plast. Það er sem sé ekki veitt ein einasta króna til hinnar nýju framkvæmdaáætlunar á fjárfögum þessa árs, sem inarg oft var lofað í fyrstu að kæmi til fnamkvæmda á síðasta ári og síðan og nú, að komi til framkvæmda á þessu ári. — Sumir mundu vilja segja, að brezka lánið ætti að nota í framkvæmdaáætlunina. Það hrekkur þó skammt til að full- nægja hinni miklu þörf, sem orði.n er á Iánsfé eftir allar dýr tíðarráðstafanir ríkisstjórnar- inmar og vegna samdráttar í nauðsynlegustu framkvæmdum eins cig húsnæðisbyggingum og framleiðslutækjum, Sem ekki ve-ður komizt hjá að leggja mikið fé í á .næstunni. Menn gera sér bezt ljóst, hve ger- samlega er búið að gerbreyta öllum grundveWinum í þjóðar- búskapnum, þegar borið er saman annars vegar 240 millj- ón króna Iánið frá Bretlandi og hins vegar, hvað kosta myndi nú að koma upp mann- virkjum eins otg Áburðarverk- siniðjunni, Sementsverksmiðj- unni og síðustu virkjuninni við Sogið, svo fátt eitt sé nefnt af stórátökunum áður en núvera.ndi valdasamsteypa tók við völdum. — Brezka lánið er sem krækiber í dýrtíðarhít- inni. JákvæHa leiðin Til að leysa þennan vanda, sem nú er komið í, þarf meira en nýja kosninga-Skáldu. Til að mæta vandanum og þeim hækkunuin, sem óhjákvæmi- lega h'ljóta að vera fram undan, þarf stórt, átak. Það verður að fara hina jákvæðu leið til jafn- vægis. Enginn skyldi halda, að Framhuló a bls 13 T í M I N N , miðvikudaginn 23. janúar 1963 2

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.