Tíminn - 23.01.1963, Qupperneq 7
mmm
Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN
Framkvæmdastjóri: Tómas Arnason Ritstjórar: Þórarinn
Þó.rarinsson (áb), Andrés Kristjánsson, Jón Helgason og indriði
G Þorsteinsson Fulltrúi ritstjórnar: Tómas Karlsson, Auglýs-
íngastjóri: Sigurjón Davíðsson Ritstjórnarskrifstofur 1 Eddu-
húsinu Afgreiðsia. auglýsingar og aðrar skrifstofur i Banka
stræti 7. Símar: 18300—18305. - Auglýsingasimi: 19523 Ai.
greiðslusími 12323. — Askriftargjald kr 65.00 á mánuði innan-
lands. í lausasölu kr. 4.00 eint — Prentsmiðjan Edda h.f. —
Tvö íslenzk Evrópumet
í mánaðarblaði Félags íslenzkra iðnrekenda, íslenzkur
iðnaður, birtust nýlega tölur um hækkun í % á fram-
íærslukostnaði í nokkrum Evrópulöndum á tímabilinu
júlí 1961 — júlí 1962. Tölur þessar voru teknar úr októ- berhefti International Financial Statistics.
Þessar tölur líta þannig út:
Belgía 2%
Bretland 5%
Danmörk 8%
Finnland 6%
Frakkland 6%
Holland 2%
ísland 11%
Ítalía 5%
Noregur 6%
Sviss 5%
Svíþjóð 6%
Vestur-Þýzkaland .... 4%
Þetta yfirlit bar það ótvírætt með sér að ísland er það Evrópulandið, þar sem dýrtíðin eða framfærslukostnað- urinn hefur aukizt mest á þessum tíma og stafar það fyrst og fremst af hinni tilefnislausu gengislækkun stjórn-
arinnar í ágúst 1961.
En „viðreisnarstjórnin” á íslandi á fleiri Evrópumet.
Síðastliðinn föstudag skýrði danska blaðið ,,Politiken“ frá því, að tvö Evrópuríki hefðu lækkað hjá sér forvexti, Svíþjóð úr 4% í 3V2% og Grikkland úr 6% í 5V2%. Blað- ið rekur síðan hverjir forvextir séu annars staðar í Evrópu.
og byrjar þá upptalningu með því, að , ,rekor4diskontoen
(metforvextirnir) er den islandske”. Taflan í ,,Politiken“
lítur annars þannig út:
ísland 9%
Danmörk 6V2%
Finnland 6%
Austurríki 5%
Frakkland 3V2%
Belgía 3V2%
Ítalía 3V2%
Holland 3V2%
Noregur 3V2%
Svíþjóð 3V2.%
Vestur-Þýzkaland .... 3%
Portúgal 21/2%
Svifis 2%
öllum má vera ljóst hvaða áhrif þetta Evrópumet i
vaxtaokri hefur á getu fyrirtækja og einstaklinga til að
auka atvinnurekstur sinn og greiða sanngjarnt kaup.
Framsýnin
Stjórnarblöðin ráða sér ekki fyrir yfirlæti síðan de
Gaulle gerði sig líklegan til að bregða fæti fyrir inn-
göngu Breta í EBE. Þau segja: Þarna sjáið þið, hvað ís-
lenzka stjórnin var framsýn að ákveða að bíða átektá
og fresta fram yfir kosningar að taka ákvörðun um hver
afstaða íslands til EBE ætti að vera'
En á þessari sögu eru nokkrir smíðisgallar.
Hinn fyrsti er sá, að Sjálfstæðisflokkurinn vildi strax
láta sækja um fulla aðild sumarið 1961, en því var frest-
að þá, m.a. vegna andstöðu Framsóknarmanna.
Hinn annar er sá, að Alþýðuflokkurinn vildi láta sækja
um aukaaðild strax í fvrravetur, en því var frestað, enn
m.a. vegna andstöðu Framsóknarmanna.
Hinn þriðji og mikilvægasti er svo. að stjórnin ákvað
að fresta ákvörðunum fram yfir kosningar, því að hún
vildi ekki sýna stefnu sína ljóslega fyrir þær.
MYND þessi var tekin af þeim WILSON (tii vinstri) og BROWN á flugvellinum í London síðastliðinn
laugardag. Wilson var þá að koma úr fyrirlestrarferð um Bandaríkin, en Brown var að leggja upp
í ferðalag ti> atvinnuleysbhéraða í N-Englandi, til að kynnast ástandinu þar.
Mikil atliygli beinist nú að
því, hver muni verða eftirmað-
ur Gaitskells sem formaður
þitiigflokks brezfea Verkamanna
flokksins og þá jafnframt for-
sætisrá'ðherra 'Bretlands, ef
flokkurinn sigrar í næstu kosn-
ingum, en það er talið vel
sennilegt.
Fyrst um sinn mun varafor-
maðurinn, George Brown,
gegna formannsstöðunni eða
þangað til að formannskjör hef
ur farið fram, en líklegt er tal-
ið, að því verði alltaf lokið fyr-
ir 15. febrúar.
Brown mun að sjálfsögðu
gefa kost á sér sem formanns-
efni og það styrkir aðstöðu
hans. að hann hefur verið vara
formaður undanfarin ár. Það
styrkir einnig aðstöðu hans, að
hann hefur náin tengsli við
verkalýðshreyfinguna og hefur
verið foringi þeirra þing
manna Verkamannaflokksins,
sem eru í tengslum við hana
Brown byrjaði ungur að vinna
fyrir verkalýðshreyfinguna, ei
m. a. styrkti hann til verzlun
arskólanáms. Henni á hann þa?
lika að þakka, að hann var ko?
inn á þing 1945. en þar hefur
hann átt sæti síðan Brown
sem er 48 ára gamall, er góðui
ræðumaður, þægilegur op
spaugsamur í kynningu, þykir
laginn samningamaður, en á
það til að vera ógætinn í orð-
um og hefur því stundum tal-
að af sér. Hann er því umdeild-
ur sem forsætisráðherraefni,
þótt hann þyki hafa marga
kosti s.em flokksforingi. Hann
hefur verið talinn heyra til
hægra armi fokksins, en það
hefur þó nokkuð breytzt í
seinni tið.
Líkegasti keppinautur
Browns er Harold Wilson, sem
hefur keppt við hann um vara-
formennskuna undanfarin ár.
JAMES GALLAGHAN
Hann er 46 ára gamall, hag-
fræðingur að menntun, var um
'Skeið verzlunarmálaráðherra í
stjórn Attlees, en fór úr henni
með Bevan. Hann hefur til-
heyrt vinstra armi flokksins.
Wilson er talinn skarpgáfaður
og mesti ræðumaður Verka-
mannaflokksins. Meðal almenn-
ings er hann miklu þekktari en
Brown. Hann þykir því yfir-
leitt álitlegri sem forsætisráð-
herraefni en Brown. Það mun
hafa verið ráðið, að Wilson
yrði utanríkisráðherra, ef
Gaitskell myndaði stjórn.
Sú skoðun mun eiga talsvert
fylgi i Verkiamannaflokknum,
að heppilegt gæti verið að forð
ast baráttu milli Browns og
Wilsons og skipa sér því um
einhvern þriðja manninn. Þá
mun helzt koma til greina
James Callaghan, sem hefur
verið talinn fjármálaráðherra-
efni flokksins. Hann er 50 ára
að aldri, háskólamenntaður
Hann er hins vegar litið þekkt-
ur meðal almennings.
Sum ensku blöðin virðast
hallast að því, að Wilson verði
fyrir valinu, því að hann sé
vænlegastur til að vinna sér
álit sem forsætisráðherraefni
Þegar þeir Brown og Wilson
kepptu um varaformennskuna
síðastl. haust, fékk Brown 133
atkv., en Wilson 103:
TÍMINN, miðvikudaginn 23. janúar 1963
J
z