Tíminn - 23.01.1963, Síða 15
V erkamannaíélagið
Dagsbrún
Féiagsfundur í Gamla Bíé
Verkamannafélagið Dagsbrún heldur félagsfund í
Gamla Bíó fimmtudaginn 24. þ.m. kl. 9 síðdegis.
Dagskrá:
SAMNINGAMÁLIN OG
KOSNINGARNAR
Dagsbrúnarmenn! — Fjölmennið á fundinn og
sýniö skírteini við innganginn.
Stjórnin
V örubílst jóraf élagið
Þróttur
Fundur verður haldinn í húsi félagsins í kvöld kl.
20,30.
Fundarefni: — Félagsmál.
Stjórnin
UTSALA -
Okkar árlega útsala hefst í dag.
Lífstykkjavörur — Undirfatnaður
Ótrúlega lágt verð.
(Bdqjamjpm
Laugaveg 26 — Sími 15-18-6
RÆSTINGAKONA ÓSKAST
Viljum ráða konu til ræstinga i einni af verzlunum
vorum.
Nánari upplýsingar gefur Starfsmannahald SÍS,
Sambandshúsinu.
Aðstoðarstúlka óskast
Óskum að ráða stúlku til aðstoðar í vélasal.
Æskilegt að umsækjandi hafi áður unnið í prent-
smiðju eða bókbandi.
Prentsmiðjan EDDA h.f.
Þökkum auðsýnda samúð vegna fráfalls
MAGNÚSAR VERS ÓLAFSSONAR
SeySlsflrSI
Fyrir okkar hönd og annarra aðstandenda
Vigdís Ólafsdóttir
Ólafur Guðjónsson
Hjartkær móðir okkar og tengdamóðir
INGVELDUR BENEDIKTSDÓTTIR
frá Selárdal,
andaðist að sjúkradeild Hrafnistu, 21. jan. s.l.
Börn og tengdabörn.
SAS
i ramhald at 8. sfðu.
íljúga fyrir sérlega lágt verð' milli
Reykjavíkur og New York.“
„Verðeinokunin útvegar Loft-
leiðum stöðugt aukinn hluta af
fluginu yfir Atlantshaf. Félagið
hefur látið uppi, að 1961 hafi það
fíutt ca. 52.000 farþega. Veruleg-
ur hluti þeirra fer millj Norður-
landa og USA. Hve margir far-
þegar hafa flogið með Loftleiðum,
af því einu að verðið er lægra en
hjá IATA-félögunum, eða hve
margir hefðu að öðrum kosti val-
ið önnur samgöngutæki, er atrið'i,
sem nær ógerlegt er að vita.“
„Auk þess mun flugfélagið, sem
er í IATA, fljúga allt að tíu sinn-
um á viku milli Norðurlanda og
íslands. Loftleiðir nota þessar
ferðir, sem bein og óbein framhöld
ferða sinna til og frá Reykjavík.
Flutningurinn, milli Norðurlanda
16 mm filmuleiga
Kvikmyndavélaviðgerðir
Skuggamyndavélar
Flestar gerðir sýningarlalnpa
Odýr sýningartjöld
Filmulím og fl.
Ljósmyndavörur
Filmur
kramköllun og kópering
Ferðatæki (Transistpr)
FILMUR OG VÉLAR
Frevjugötu 15
Sími 20235
FISKABÚR
90 lítra fiskabúr meS gróSri
í til sölu.
Sími 1-61-69.
ÞAKKARÁVÖRP
Hjartanlegar þakkir til ykkar allra, er munduð mig
fimmtugan. — Lifið heil.
Ingólfur Helgason
og USA verður því meiri yfir ís-
Ir.nd, en þau 36.000, sem nefnd
voru áður.“
„SAS hefur allt frá árinu 1954
gert fjölda tilrauna til að leysa
þennan aukna vanda, sem tekju-
missirinn af völdum Loftleiða er
félaginu. SAS hefur ekki búið til
vandann, en SAS hefur orðið að
búa við' þessa örðugleika í áratug
cg telur sér nú ekki fært að gera
það lengur.“
„Loftleiðir hafa að eigin sögn
getað greitt 15% arð til hluthafa
sinna. f því sambandi hefur þess
verið getið, að Loftleiðum er fært
með aðeins fimm vélar og fátt
starfsfólk að fljúga ellefu sinnum
í viku yfir* Atlantshaf, og þetta
hefur verið tekið sem dæmi um
betri rekstur en hjá SAS, sem hef
ur 58 flugvélar og 12 þúsund
starfsmenn. Hér er því fyrst
til að svara, að SAS flýgur um
heim allan, og að félagið notar til
Atlantshafsflugsins aðeins 3%
flugvél í 22 ferðir á viku. Auk
þess kaupa Loftleiðir tæknivinnu
hjá öðrum, og þurfa því færri
tæknistanfsmenn, en sem kunnugt
er, eru flugvirkjar drjúgur hluti
starfsmanna flugfélaga. Flugstöðv
ar SAS á Norðurlöndum annast
afgreiðslu fyrir fjölmörg erlend
flugfélög, sem fljúga til Norður-
landa, og verkstæði SAS annast
í verulegum mæli verk fyrir
aðra. Loftleiðir, sem hafa verð-
einokun, þurfa heldur ekki að
halda umfangsmiklu sölukerfi er-
lendis, heldur hafa umboðsmenn,
og starfsmenn þeirra eru ekki
taldir til starfsmanna félagsins,
en SAS hefur eigið sölukerfi um
heim allan.“
„Með tilliti til alls þessa, hefur
SAS orðið að leggja áherzlu á,
að áframhaldandi þróun einokun-
arsamkeppninnar milli USA og
Norðurlanda getur ekki gengið
lengur. SAS fer þess vegna fram
á að fá að taka upp samkeppni
og losna undan þeim misrétti sem
ríkir við núverandi aðstæður.
fyrir tvær barnfóstrur, tólf
manna þjónalið, þá fer Gerald-
ina j opinberar heimsóknir með
föður sínum. — Þið megið samt
ekki halda, segir Chaplin, að ég
ætli að binda Geraldinu yfir
heimilinu. Það er langt frá því.
— Ég veit, að öll börn okkar
hafa einhverja leikhæfileika, en
vandamálið er, hvenær ég á að
ýta undir þá. Það er tímaspurs-
mál.
Og þegar betur er að gáð, þá
veit Charlie Chaplin líklega bet
ur um það málefni en flestir
aðrir.
2. síðan
eiginkona Chaplins, er upptekin,
þá hugsar Geraldina um heimil-
ið. Og þegar frúin kemst ekki í
burtu frá heimilishaldinu, þrátt
Skrifaði í „Tímann“
Framhald aí 16 síðu
götu 15, í dag, en það kaffi er
í dýrasta flokki á heimsmark-
aði og aðalútflutningsfram-
leiðsla þjóðarinnar, um 90%.
Ekki kvaðst Þórir hafa teflt
mikið vestur þar, en sagðist þó
hafa rifjað upp mannganginn
á nokkrum skólaskákmótum.
Aftur á móti skrifaði hann
skákþætti í „Tímann“ í Colum
bíu (E1 Tiempo). Þórir lét vel
yfir dvöl sinni og rómaði mjög
landið, sem er stærra en Eng-
land, Frakkland og Þýzkaland
til samans og býður upp
á öll hugsanleg stig
af gróðurfari og loftslagi.
Mannfólkið er fjölbreytt eins
og gróðurinn, Spánverjar, Indí
ánar, Svertingjar og blanda
allra þessara kynþátta, hvítir,
rauðir og svartir með öllum
verðanlfegum blæbrigðum. íbúa
talan er 14 milljónir, spánsk-
indianskir blendingar eru yfir-
gnæfandi. Þeir hafa töglin og
hagldirnar, sem ljósastir eru á
hörund, og mikið ættarríki er
í landinu. Stjórnarfarið j Col-
umbíu er ótryggt eins og s
fleiri Suður-Ameríkuríkjum,
sagði Þórir. Landið slapp þó
við byltingar þau fimm ár, sem
hann var þar.
Frú Elvira lét vel yfir endur-
komu þeirra til Reykjavíkur,
og strákarnir sögðu meira gam-
an hér en f Bogotá)
Þórir vinnur nú í skrifstofu
Loftleiða.
BÁTUR TIL SÖLU
Tilboð óskast í varðbátinn Gaut, einkennisbók-
stafir TFOA, í því ástandi, sem hann er við bryggju
í Reykjavíkurhöfn.
Báturinn verður til sýnis þar hvern virkan dag til
hádegis, og munu allar nánari upplýsingar gefnar
um borð eða í síma 19400.
Tilboðum sé skilað á skrifstofu vora, Seljaveg 32,
Reykjavík, fyrir 10. febrúar n.k.
Landhelgisgæzlan
Góð bújörð
í Rangárvallasýslu
Góð bújörð í Rangárvallasýsíu fæst til kaups og
ábúðar á komandi vori. Jörðin er í þjóðbraut, raf-
magn frá Sogi, sími. Mikil ræktun, góðar bygg-
ingar.
Upplýsingar hjá Grími Thorarensen, kaupfélags-
stjóra Hellu og Ragnari Jónssyni, síma 38473.
Orðsending
til hafnfirskra verkamanna og sjómanna
Öll ákvæðisvinna er bönnuð a íélagssvæði voru,
nema tilkomi samþykkt stjórnar Hlífar eða Sjó-
mannafélags, hvors á sinu svæði.
Verkamannafélagið Hlif
Sjómannafélag Hafnarfjarðar
TÍMINN, mitfvikudaginn 23. janúar 1963
15