Tíminn - 17.02.1963, Page 6

Tíminn - 17.02.1963, Page 6
Búnaðarþing var sett um s.l. helgi og hefur nú setið á rökstólum elna viku. Þar ber afkomu bænda og búnaðar hæst mála og afstöðuna til Efnahagsbandalags Evrópu. A m iðsvetra rprófi Þessa dagana er miðsvetr- arprófum að ljúka i barna- skólum og unglingaskólum, og síðan koma foreldradagar. Þá sitja börnin heima, en foreldrar koma í skólana og ræða við kennarana. Þetta er mikilvæg venja, sem tek- in var upp fyrir nokkrum árum og hefur vafalítið auk- ið gagnkvæman skilning, enda eru foreldrar nú farnir að sækja vel skólana á for- eldradögum. Á Alþingi hafa líka staðið yfir eins konar miðsvetrar- próf, þó að þingmenn hafi ekki enn fengið einkunnir — nema þessar, sem þeir gefa hver öðrum svo að segja dag- lega og ekki eru alltaf háar. en nærri liggur að segja, að ríkisstjórnin hafi fallið á sínu miðsvetrarprófi.Og 1 vik unni sem leið hélt þingið sinn foreldradag — þ. e. a. s. leyfði bömunum að vera heima á föstudaginn. Sjálfstæðismál á dagskrá Þingfríið var talið stafa af því, ag fá mál og ekki nijög brýn lægju fyrir, og vafalaust hafa þingmenn verið vel að dagsfríi komnir eftir skorpu þá, sem staðið hafði í þing- sölum framan af vikunni. Þær umræður gátu á engan hátt talizt veigalitlar. enda fjölluðu þær um mál. sem: vafalaust er viðurhlutameira en flest mál, sem þing- menn hafa borið sér á góma, síðan lýðveldið var stofnað, og að líkindum mun óhætt að taka undir með Þorsteini Sigurðssyni, forseta Bunað - arfélags íslands, er hann sagði í set'úingarræðu búnað- arþings, að „hér vœri komiá á dagskrá eitt mesta sjálf- stœðis mál, sem íslendingum liefði að höndum borið um a.ldir“. Hér er að sjálfsögðu átt við Efnahagsbandalag Evrópu, afstöðu íslands til þess og viðhorf, meðan stofn- un bandalagsins er í deigl- unni úti í löndum. Þetta var framhald um- ræðna, sem hófust á þihgi fyrr í vetur um málið, en þau undarlegu tíðindi gerðust, er málið var tekið upp að nyju, að ríkisstjórnin og talsmenn hennar vildu helzt vikja því frá, töldu það varla á dag- skrá lengur og eiginlega úr sögunni. Allir sjá, að slikar viðbárur eru reykur eínn. en í þeim reyk felast aðrar veiga meiri ástæður, sem stjórnar- flokkamir vilja ekki segja berum orðum. Ríkisstjórnin er smeyk um sig i miklum umræðum um þetta mál, eink um umræður, sem snúast um vinnubrögg þau, sem hún efur viðhaft í því. Raunar er málið í þeim þáttaskilum núna, ag miklu nær hefði verið, að ríkisstjórnin fagn- aði því að geta gefið Alþingi og þjóðinni ýtarlega skýrslu um aðgerðir sínar og viðhorf til málsins, og slíka skýrslu á Alþingi og þjóðin fulla heimt ingu á að fá. En hún hefur ekki legig á lausu. Þær litlu upplýsingar, sem fengizt hafa hjá ráðherrum, hefur orðið að toga út úr þeim með töngum, og oftast ekki feng- izt önnur svör en þessi: Við viljum ekki ræða málið, það er ekki á dagskrá núna, því hefur verið vikið frá. Má ekki kjósa um málið Þessi undarlega og ein- stæða afstaða ríkisstjómar í stórmáli hlýtur að vekja hverjum manni illan grun. í slíku örlagamáli væntir þjóð in þess að sjálfsögðu, að rík- isstjórn hennar leggi sig alla fram um að gæta sjálfstæð- isins og beita allri vizku sinni til réttrar afstöðu og heppi- legrar málafylgju, og hefði stjórnin talið, að þetta hefði allvel tekizt hjá sér, hefði henni mátt vera sönn ánægja að þvi að rekia gang málanna sem gleggst fyrir þingi og þjóð og draga ekki af rétt- mætum afrekum, einkum þar sem kosningar eru ekki langt undan. En i þess stað skríður stiórnin i skel sína, vill ekki ræða málið, ásakar aðra harg lega fyrir að vilja ræða það og telur það nærri því glæp, ef aðrir flokkar telja rétt- mætt að kosningaumræður snúist að töluverðu leyti um það og þjóðin hafi það ofar- lega í huga við kjörborðið. Þó hafa talsmenn stjórnarinnar margsinnis viðurkennt, að þetta sé eitt örlagarikasta mál, sem nú sé á dagskrá með þjóðinni, og hvar er þjóðin stödd, ef taka á örlaga mál hennar af dagskrá í kosn ingum? Hvers konar iýðræðis flokkar eru það, sem beita sér fyrir slíku? Þöglir o? viðskotaillir Talsmenn stiórnarinnar hafa helzt fært þau „rök“ fram fyrir því að taka málið af dagskrá hér, að það sé úr sögunni. þar sem samning- arnir við Breta hafi strandað. En þetta er fávíslegur fyrir- sláttur. því að augijóst er, að hér er aðeins um stutta frestun að ræða. og af fregn- um utan úr Evrópu kemur i Ijós, að þessi samningsslit hafa einmitt leitt til enn ákaf ari umræðna um málið í ýms um löndum, og hefur þá ým- islegt komið upp, sem skýrir gang þess á ýmsum stigum fram til þessa. Ráðherrar annarra landa keppast um að flytja ræður og skýrslur um það. En íslenzku ráðherr arnir eru allt í einu orðnir þöglir, niðurlútir og viðskota- illir. Þeir voru ekki svona orð tregir fyrir einu eða tveimur misserum, þegar þeir prédik- uðu eins og heittrúarmenn um það fagnaðarerindi að komast í EBE og pöntuðu meg hraði jáyfirlýsing'ar frá öll- um þeim samtökum. sem beitt varð til slík.s Og svo átti að senda inngöngubeiðni með hraðskeyti. Hvers vegna var um- sókn ekki send? Það vill svo til, að ýmsar upplýsingar, sem fram hafa komið hjá ráðamönnum EBE eftir viðræðuslitin við Breta, hafa varpað":.nnkktu:ídi^l á vinnubrögð ' ísleiazkuu tókis- stjórnarinnar á þessu tíma- bili. Málið var komið á það stig í ríkisstjórninni, og flokk ar hennar og hún sjálf höfðu gefið um það svo sterkar yf- irlýsingar, að nú yrði að sækja um aðild, að flestir bjuggust við, að stjórnin mundi senda umsókn hvaða dag sem væri, enda augljóst, að hún taldi sig hafa grænt ljós í því efni. Framsóknar- menn sögðu stjórninni að vísu skýrt og skorinort, að þeir væru á móti aðild og því lfka á móti umsókn um hana, en litla von mátti kalla, að stjómin léti það hefta för sína. Hins vegar fór það svo, að umsókn var ekki lögð fram, og eftir ráðherrafarir til Bonn og Parísar tók stjórn in að hægja á sér, draga í land og svo að hnika söðlin- um til. Mönnum þótti þetta þokast til hins betra og töldu að skynsemi og forsjá hefði vikið til hliðar hættulegri hvöt um, sem áður réðu mestu, og að hér væri aðeins umaðræða sigur hins góða í ráðherr- unum sjálfum. Vafalaust ber enn að líta svo á, en fram- burðir þýzkra og franskra ráðherra slðustu daga hafa gefið til kynna, að hinn betri maður íslenzkra ráðherra hef ur í þessu efni fengið nokk- urn bakstuðning til viðreisn- arinnar í ráðuneytum þessara landa, þar sem það var gefið fyllilega í skyn, að það væri alveg óþarfi fyrir íslendinga að hafa fyrir slíkum bréfa- skriftum, þvi að kannske yrði ástarbréfið endursent óopn- áð. En þó að bréfið væri aldr- ei skrifað hafði gamli maður- inn í Bonn þótzt skilja það fullvel, að það stæði ekki á íslendingum að senda bréfið, og þess vegna hefur hann a. m. k. þrisvar sagt það hik- laust, að íslendingar hafi raunar sótt um og vilji óvæg- ir komast i bandalagið. Svona hafði hann (mis)skilið Is- lenzka ráðherra, og það hef- ur reynzt furðulega örðugt að leiðrétta þann misskilning. Það má því segja, að ekki þurfi að fara í grafgötur um það lengur, að íslenzka ríkis- stjórnin ætlaði og vildi sækja um aðild, en það strandaði á einhverju öðru en henni. Og um þetta vill hún alls ekki gefa þingi og þjóð neina skýrslu og um fram allt forð ast öll hámæli um afrek sín í, málinu. Bonn og París er valt að treysta Það er allt þetta, sem gef- ur þjóðinni fullkomna ástæðu til þess að hafa þessi mál of- arlega 1 huga í kosningunum í vor, og vlssulega er því ekki að treysta, að stjómin okkar fái ætíð úti i Bonn eða París leiðbeiningar um bá málsmeð ferð, sem yrði fslendingum farsælust. Þjóðin veit, að þessari stjóm er ærið trúlof- unarhætt erlendis, og það er einmitt vegna ferils hennar i þessu örlagamáli, að þjóðin mun kjósa um það i vor, og það verður lika skiljanlegt, að stjórnin vilji helzt að mönnum sé það ekki mjög ferskt i minni á kosningadag- inn. í hinni rökföstu ræðu, sem Hermann Jónasson flutti í vikunni sem leið um málið á þingi, rakti hann vandræða- feril ríkisstjórnarinnar i þessu máli stig af stigi, svo myndin blasti við og einnig sú hætta, sem þjóðinni hefur verið stofnað i með þessu fálmi. Hann sýndi fram á, hvernig stjórnin hefði veikt málstað okkar með því að vera að fitla við að sækjast eftir inngöngu og gefa í skyn, að við vildum semja um „við- kvæm mál“, i stað þess að lýsa yfir skýrt og skorinort, hvað það væri, sem við mund um alls ekki fórna. Hann sagði m. a.: „Við eigum einmitt nú þeg- ar að lýsa yfir því, að við af- sölum okkur aldrei þeim réttl, sem viðskiptamálaráðherra hefur rætt um og fitlar við, að við kynnum að þurfa að afsala okkur, og við munum þá fremur kjósa að standa utan bandalagsins, heldur en að gangast undir slíkt rátt- indaafsal. En við eigum jafnákveðið að segja: Við viljum tengjast bandalaginu með viðskipta- og tollasamningum“. Sönnunin á borðinu Alþýðublaðið fer oft með hlutverk einfeldningsins í stjórnarliðinu og upp úr því gloppast stundum það, sem slægðaríhaldið forðast að segja upphátt og á almanna- færi. Þannig fór einu sinni enn í forystugrein Alþýðu- blaðsins í fyrradag. Hún heit- ir De Gaulle og Hermann. Þar gýs upp sá sanni hugur, sem í stjórnarherbúðunum býr um þetta mál. Þar er ver- ið að reyna að gera stefnu Framsóknarflokksins í mál- inu tortryggilega með þvi að segja, að það sé sama sjónar- miðið og kom fram hjá de Gaulle, að vilja ekki leyfa fs- lendingum aðild en telja „ein hvers konar tollasamning“ líklegri leið. í bamalegum tilraunum sínum til að tor- tryggja afstöðu Framsóknar- manna með því að líkja henni við afstöðu de Gaulle, gætir ritstjórinn ekki að sér, og upp gýs sú gremja og reiði. sem augsýnilega hefur verið alllengi innibyrgð í stjórnar- herbúðunum, við de Gaulle fyrir það að hafa brugðið fætj fyrir aðildarumsókn ís- lands. Það kemur l Ifós, að ríkisstjómin er fokreið yfir því, að hafa ekki komið að- ildarrannsókn fram, og þarna liggur á borðinu skýr sönnun um það, hvað hún vildi í mál inu,, og hvað hún ætlaði að gera, þó að hún hafi slðar sett upp nýja grimu. Búnaðarþing Búnaðarþing hefur nú set- ið á rökstólum eina viku. Stór mál þess eru varla komin tii umræðu enn, en það eru kjaramál bændanna og af- Framhald á 15. síðu. UM MENN OG MÁL 6 T í M 1 N N, sunnudagur 17. febrúar 1963. —

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.