Tíminn - 17.02.1963, Side 7
I
Utgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN
Framitvænidasljóri Tómas Arnason Ritstjórar: Pórannn
Þórarinsson (ábi. Andrés Knstjánsson. Jón Helgason og Indriði
G Þorsteinsson Fulltrúi ritstjórnar: Tómas Karlsson Augiýs
ingastjóri: Sigurjón Davíðsson Ritstjórnarskrlfstofui I Eddu
liúsinu Afgreiðsla. auglýsingai og aðrai skrifstofui l Banka %
stræti 7 Símar 18300—18305 - Auglýsingasími: 19523 Al-
greiðslusími 12323 — Askriftargjald kr 65.00 á mánuði innan
lands t lausasölu kr 4.00 eint - Prentsmiðjan Edda h.f —
Biáa Skjóna
Ár og dagar eru nú liðnir síðan ríkisstjórnin sagði
framkvæmdaáætlunina svonefndu á næstu grösum. í
fyrstu var sagt að hún ætti að koma til framkvæmda
þegar á árinu 1962 og síðar a.m k. á árinu 1963. Þessi
f.ramkvæmdaáætlun er samt ekki farin að sjá dagsins
Ijós enn þá, hún mun áreiðanlega koma fyrir kosningar.
Um það skyldi enginn efast, því að hún á ekki að vera
annað en kosningaplagg. Hún verður sniðin í samræmi
við bláu bækurnar, sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur gef-
ið út fyrir hverjar bæjarstjórnarkosningar í Reykjavík
og fleytifullar hafa verið af loforðum um auknar fram-
kvæmdir og myndskreyttar mannvirkjum sem aldrei hafa
verið byggð — og fullyrða má um sum þeirra að aldrei
hafi hvarflað að meirihlutanum að reisa.
Það er engin tilviljun, að á skrifstofunni, þar sem unn-
ið er að hinni margboðuðu og marglofuðu framkvæmda-
áætlun, gengur hún undir nafninu Bláa Skjóna.
Ekki þarf að draga í efa, að það verður lofað stór-
kostlegum nýjum framkvæmdum og uppbyggingu hvers
konar í Bláu Skjónu. Á miklum framkvæmdum er vissu-
lega mikil þörf í nær öllum greinum og möguleikarnir
eru margir og ónotaðir enn. Framkvæmdir hafa dregizt
stórlega saman á þessu kjörtímabili og t.d. hefur ekki
verið ráðizt í neina nýja stórframkvæmd, eins og t.d.
orkuver eða verksmiðjur til jafns við Sementsverksmiðj-
una, Áburðarverksmiðjuna og síðustu virkjanir við Sog-
ið, svo fátt eitt sé nefnt af þeim stórvirkjum, sem ráðizt
var í, áður en núverandi valdasamsteypa tók við völd-
um. Framkvæmdir, sem ekki verður komizt hjá að ráð-
ast í en setið hafa á hakanum, verður að ráðast i á næst-
unni og vinna upp þær tafir, sem orðið hafa í uppbygg-
írigunni á þessu tímabili, eins og t.d. íbúðarbyggingar,
en húsnæðisskortur er nú að verða mjög tilfinnanlegur
•/iða — ekki sízt í Reykjavík.
En Bláa Skjóna mun lofa bót á öllum sviðurn, ekki
sízt þeim, þar sem ástandið er hvað bágbornast, því að
reynslan af Dláu bókunum sannar, að því verra sem
ástandið verður, því stórkostlegri verða loforðin.
Það var eitt af markmiðum „viðreisnarinnar" að draga
úr fjárfestingu og framkvæmdum Þeú’ ,,viðreisnarmenn“
töidu fjárfestinguna allt. of mikla. Þer lýstu yfir. er þeir
hækkuðu Vextina, að það væri m.a. ráðstöfun til þess að
draga úr hinni „óeðlilega miklu fjárfestingu í landinu“.
Sparifjárfrystingin var til hins sama og mörg önnur úr-
væði, sem ríkisstjórnin greip til og miðuðu að því að
draga peninga sem mest úr umferð. Enn þá hafa stjórn-
arflokkarnir ekki fengizt til að létta þessum hömlum af.
Eftir hina miklu síldarhrotu s.l sumar lýsti einn
helzti hagspekingur ríkisstjórnarinnar því yfir í nafni
Seðlabankans. að nú væri mikil hætta á „ofþenslu“ í
þjóðfélaginu og því yrði að herða enn á inndrættinum og
útiánahömlunum. Það eitt hefur komið í veg fvrir. að
ríkisstjórnin hafi látið af þessu verða er það. að rikis-
stjórnin óttast fylgisaukningu Framsóknarflokksins og
sigur hans í kosningunum í sumar, bví að hún finnur
og veit, að barátta hans fyrir auknum framkvæmdum og
auknum útlánum og fjármagnsútvegun í hinar þjóðhags-
lega mikilvægu og nauðsynlegu framkvæmdir, á sterk-
an hljómgrunn með þjóðinni
Það er þess vegna. sem Bláa Skjóna verður lögð fram
nú fyrir kosnmgarnar Stjórnarflokkavnír ætla með henni
að reyna að blekkja kjósendur tl að trúa. að stefna stjórn-
zrflokkanna i fjárfestingar- og framkvæmdamálum sé
hin sama — eða iafnvel helzt til róttækari en stefna Fram
sóknarflokksins. — Af reynslu munu kjósendur þó tak?
Bláu Skjónu næfilega nátíðlega Blán Skióna getur alr!»
ei gert „viðreisnina" að framkvæmdastefnu.
JOHN DANSTROPs ... .................
Nasser færir sig upp á skaftið
Fyrir dyrum eru ef tii víii stjórnarbyltingar
í mörgum ríkjum Miðausturlanda.
Nasser og Aref saman eftir uppþotið í írak 1958, er þelr héldu báðir,
að valadatka Kassems mundi leiða til samstarfs við Egyptaland. í dag
er sá draumur á traustari fótum, en þó á nú að fara að öllu með
Þegar Kassem forseta í
írak var rutt frá völdum fyr
ir rúmri viku og síðan skot
inn í Bagdad, varð útvarpið
í Kairó fyrst til þess að
senda byltingarforingjan-
um Aref ofursta hamingju
óskir. Nú er hann orðinn
forseti íraks. í sömu andrá
beindu Egyptar mikilli árás
gegn furstunum í Jórdan
og Saudi-Arabíu, og sendu
núverandi stjórn í Sýrlandi
kalda kveðju, en það ríki
reif sig úr tengsium við hið
sameinaða arabíska lýð-
veldi
1 Miðausturlöndum er inn
anlandsbaráttan líka í nán-
um tengslum við utanríkis-
sambúðina. Þaö, sem eftir-
tektarverðast er, hlýtur að
teljast það, að Nasser skyldi
telja sig svo sterkan að sjá
sér fært að sýna „löngu lín-
una“ í egypzkri utanríkis-
stefnu einmitt á sama degi
og stjórnarbyltingin í írak
varð. Það er enginn vafi á
því, að sé mat Nassers á bylt-
ingunni í Irak raunhæft, líð
ur ekki á löngu þangað til
fleiri stjórnir velta úr sessi
í Miðausturlöndum.
Hvers vegna? Það munu
menn skilja, þegar betur er
skoöuð núverandi valdaskipt
ing þar, en virðist nú hafa
lifað sitt fegursta.
Alla tíð síðan síðari heims
styrjöldinni lauk hefur
nyrzta og næststærsta
Arabaríkiö — írak — verið
eins og gagnstæðuskaut og
mótvægi við fyrirætlanir
stjórnendanna í Kairó um
§ að safna öllum Arabaríkjun-
um í Miðausturlöndum undir
væng sinn og gera Egypta-
land að forysturíki þeirra
samsteypu. Þetta „jafnvægi“
sem stórveldin studdu beint
og óbeint, leiddi frak inn í
Bagdad-samninginn 1955, en
Egyptaland stóð utan hans.
Þessi jafnvægisstefna var
komin til sögu áður en Nasser
kom til valda og einnig eftir
að Kassem tók við stjórnar-
taumunum í írak. En upp-
reisnin í Bagdad 1958 losaði
þó ríkið undan ákvæðum
samningsins, og Nasser á-
leit, að það mundi leiða þessi
tvö stærstu Arabaríki á þess
um slóðum til nánara sam-
starfs. Sú von brást þó. Kass
em hélt mótvæginu við og
snerist gegn Nasser-sinnum.
sem voru undir forystu Arefs.
Af þessum sökum gat Nass
er ekki nálgazt Araba-sam-
sameiningu sína meira að
sinni, og ýmsir töldu að þessi
draumur hans væri að engu
orðinn.
Stefna Kassems hafði einn
ig þau áhrif, að furstarnir
í Jórdan og Saudi-Arabíu
sýndu Nasser meiri mótþróa
vegna bakstuðnings þess, er
þeir hlutu hjá Kassem — þó
að Kassem vildi á hinu leit-
inu alls ekki styrkja sjálf-
stæði beirra ríkja Hið sama
gerðist í- Sýrlandi. þar sem
Kassem efldi eftir mætti
j andstöðu gegr Masser án t.il
•j lits til álit.s á stiórninni í
Sýrlandi
' rsWsem+LOíZfíf&tí. rjvwuwn
meiri gát.
Vegna togstreitunnar, sem
varð milli tilrauna Nassers
til þess að sameina Araba-
ríkin undir væng Egypta-
lands, og viðleitni Kassems
til þess að treysta vald sitt
yfir írak öllu, allt frá Kúrda-
landi i norðri til olíusvæð-
anna við Persaflóa í suðri og
að auka forystu sína fyrir ná
grannaríkjum, tókst furst-
unum í litlu ríkjunum að
halda allvel hlut sínum. Fyr-
ir nokkrum vikum skaut
þeim orðrómi upp, að Kass-
em ætti nú í vök að verjast
og leitaði jafnvel stuðnings
og betri sambúðar við Kuw-
ait og Jórdan.
En síðasta misserið hafa
ávextirnir á tré Nassers tek-
ið mjög að þroskast — og
staða hans styrkist jafnt og
þétt. Heima hefur hann hert
mjög á umtaótaaðgerðum sín
um og tekið málin æ meira í
eigin hendur. Aswan-stífl-
unni miðar vel áfram og þær
framkvæmdir eru taldar
fremur á undan áætlun. Jafn
framt hefur hann farið að
knýja æ meira á til úrslita
við furstana og fleiri ráða-
menn í nágrannaríkjunum.
Honum hefur tekizt skref fyr
ir skref að styrkja aðstöðu
Egyptalands til forystunnar
Þetta hefur komið í ljós á
ýmsum ráðstefnum þar
eystra og eins í afstöðunni til
styrjaldardeilu Indverja og
Kínverja. En forsenda þess
í baráttunni fyrir yfirráðum
í Arababandalaginu var sú,
að hann ætti ekki í neinum
teljandi útistöðum við stór-
veldi eða önnur áhrifaríki.
Hann hefur því reynt að
jafna öll ágreiningsmál við
þau og m. a. greitt alla Súes-
skuld sína. Einnig var mikil-
vægt að bæta sambúðina við
Bandaríkin, og Kennedy kom
honum þar til hjálpar með
því að fara að athuga mögu-
leika á því að kippa í lag því,
sem úrskeiðis hafði gengið í
sambúðinni í Súes-deilunni
1956, en Bandaríkin höfðu
verið þar meðábyrg.
Undanfarið hafa Banda-
ríkin því veitt Nasser vax-
andi fjárstuðning og gert
honum m. a. fært að greiða
skuldirnar við Súes-félagið.
Þannig hafa Bandarikin sjálf
greitt nokkuð af þeim skaða,
sem varð af því, að þau
kipptu að sér hendinni með
fjárhagshjálp til Aswan-stífl
unnar. Þar að auki virðast
Bandaríkin orðin því hliðholl
að sameiningarstefnan — í
einni eða annarri mynd —
hæfi bezt i Miðausturlöndum
Nasser og stefna hans hafa
því hlotið meiri stuðning hin
siðari missiri, en áður var.
Þetta hefur allt saman
treyst Nasser í sessinum á
vettvangi alþjóðastjórnmála, §
og hann hefur því séð sér I
færi á að snúast að næstu |
verkefnum. Fyrsta skrefið i
Framhald á 13 síðu
ið Nasser eæt.i beitt sér vel
T f M I N N, sunnudagur 17. febrúar 1963. —
1