Tíminn - 21.02.1963, Síða 3
Þingi EFTA er nýlokið í Geneve. Hér sjást nokkr ir ráWherranna, sem sátu þann fund, talið frá vinstri:
Gunnar Lange, viðskiptamálaráðh. Svíþjóðar; Veli Merikoski, utanríkisráðherra Finnlands og Per
Hækkerup, utanríkisráðherra Danmerkur. (Ljósm.: UPI).
Hiti í vökum
ES—Egilsstöðum, 20. febr.
Eins og áSur hefur veriS sagt
frá, hefur iarShiti fundizt í UrriSa
vatni hér á HéraSi. í frostunum í
vetur hafa haldizt þar auðar vakir
og hefur mælzt í þeim talsverSur
hiti.
í dag var enn farið að þessum
vökum og mældist þar þá 57 stiga
inti í einni vökinni og 46 stig í
annarri. Þá hafa menn einnig und
anfarið farið að veita athygli svo-
kölluðum Þrælavökum, sem eru
undan bænum Hreiðarsstöðum. Þar
eru nú þrjái vakir í ísnum, hver
um sig um einn metri [ þvermál
qg milli þeirra er um einn metri.
ísinn í kringum þær er 30—40
sentimetrar á þykkt. Fyrir fáum
dögum veittu menn því athygli, að'
gas streymdi þarna upp um vatnið
og hafði skænt lítils háttar yfir vak
irnar. Er gat var stungið á ísinn
og loft, sem safnazt hafði saman
undir skæninu, streymdi upp, var
að því borinn eldur. Gaus þá upp
Griðabandalag og eftir-
Eif rætt í Geneve
NTB-Geneve, 20. febrúar.
Sovétríkin lögðu fram í dag
tillögu um að Varsjárbanda-
lagið og Atlantshafsbandalag-
ið gerðu með sér samning um
að ráðast ekki hvort á annað,
beita ekki hótunum eða valdi
á þann hátt sem stríði gegn
markmiði og grundvallarregl-
um sáttmála hinna sameinuðu
þjóða.
Þetta er önnur tillagan sem
Sovétríkin ieggja fram á ráðstefn-
unni, síðan fundir hófust að nýju
12. febrúar. Fyrri tillagan var á
þá leið, að stórveldin drægju til
baka öll kjarnorkuvopn og tæki
til flutnings þeirra frá erlendum
lierstöðvum. Vesturveldin lýstu
sig mótfallin þeirri tillögu, þar
eð hún hefði raskað valdahlutföll
unum Rússum í hag.
Haft er eitir málsvörum Atlants-
bandalagsins í París í dag, að hin
:iýja tillaga Rússa sé einungis á-
róðursbragð og komi ekkert nýtt
fram í henni. Rússar hafa upp á
siðkastið flutt margar svipaðar til-
lögur. Þá var það einnig tekið
fram, að aðildarríki Atlantshafs-
bandalagsins hefðu ævinlega skoð-
að sig bundin af ákvæðum SÞ að
forðast valdbeitingu.
Meðal þeirra sem töluðu á ráð-
stefnunni í dag var sænski fuíl-
trúinn, frú Alva Myrdal. Hún vildi
að reynt yrði að leysa sjálfheld-
una, sem komið væri í, vegna
ágr'einingsins um fjölda eftirlits-
ferða með málamiðlun. Hún lagði
til að byrjað yrði með fleiri ferð-
um, en þeim smám saman fækkað
eidur um metershátt í loft upp.
í dag fóru nokkrir menn að vök
unum. Endurtók þá sama sagan
sig, að þegar gat var stungið á
ísinn og eldur borinn að uppstreym
mu, kom um metershár eldur.
Þarna var um 18 metra dýpi og
var botnhitinn mældur, en reynd-
isí aðeins vera tvær gráður.
í tilefni þessarar fréttar sneri
blaðið sér til Guðmundar Sigvalda
sonar, jarðfræðings, og spurði
hann, hvaða skýringu menn teldu
hklegasta. Guðmundur varðist
allra frétta um vakirnar á Lagar-
fljóti. Hann kvað ekki útilokað, að
þar væri um einhvern jarðhita að
ræða, en um slíkt væri ekkert
liægt að segja, fyrr en rannsókn
hefði farið fram. Myndi vísinda-
maður fara austur upp úr helg-
inni til rannsókna og safna gas-
sýnishornum. Guðmundur kvað
ekki útilokað, að vakirnar hefðu
haldizt vegna hreyfingar á vatn-
inu vegna gasuppstreymisins.
Sennilegast væri, að þarna væri
annaðhvort um methan eða vetni
að ræða, en fullyrðingar um það
biðu síns tíma.
Þess má geta, að þar sem methan
streymir úr jörðu, er yfirleitt um
emhverja rotnun að ræða, til dæm
is er það algengt á olíusvæðum og
þar sums staðar, eins og í Ung-
verjalandi, notað til upphitunar.
Sumir gárungar vilja koma með
þá skýringu, að þetta sé bara Lag-
arfljótsormurinn, sem nú hafi
sungið sitt siðasta og sé að rotna
á botninum, en búast má við að
vísindamennirnir verði tregir til
að fallast á þá skýringu.
FRÉTTIR í FÁUM ORÐUM
Reykjavík, 20. febr. — í siðustu
viku fóru nokkrir unglingspiltar um
borS í línuvelðarann Vísund, sem
liggur í Elliðaárvogi. Tóku þeir
traustataki ýmsa hluti úr góSmálmi
í vélarrúmi skipsins, höfðu á brott
með sér og seldu. Munu þeir hafa
haft samtals hátt á annað þúsund
krónur upp úr krafsinu. Eigendurn
Ir urðu skjóft varir við stuldinn og
FÆR REUMERT HEIDURS-
BljSTAD niels bohrs?
Aðils — Kaupm.h. 20. febr.
Heiðursbústaður Carls-
bergsverksmiðjanna, þar
sem Niels heitinn Bohr pró-
fessor bjó árum saman,
verður nú laus innan tíðar,
og blöðin eru farin að ræða,
hver muni sóma sér þar
bezt framvegis. í dag skrif-
ar Frederik Nielsen prófess
or grein í Aktuelt og segir
þar meðal annars:
— Nöfn eru nefnd og mörg
eru stór á danskan mælikvarða,
en fá eru það, sé miðað við
álfuna alla. Ég hef ekki meiri
rétt en aðrir Danir að leggja
fram uppástungur. En ég voga
mér að nefna þann mann, sem
að mínu viti er sá eini sem
hægt er að stinga upp á, og
geri það vegna þeirra lærdóma
sem ég hef haft af höfuðsnili-
ingum danskrar Jeiklistar. —
Núna búa vísindi og listir Dan
merkur ekki yfir nema einum
manni, sem myndi ekki vera
heiðraður, heldur heiðra heið-
ursbústaðinn með að flytjast
þangað. Það er Poul Reumert.
í lok greinar sinnar segir
Nielsen prófessor: Enginn veit
hvort Poul Reumert myndi sam
þykkja þetta á efri árum sín-
um. Enginn er svo djarfur að
ætla, að Reumert þarfnist þess
heiðurs, sem það er að búa í
heiðursbústaðnum. En okkur
leyfist að segja, að við höfum
þörf á að hann geri þjóð sinni
þann greiða að búa þar. Vegna
þess hafa þessar línur verið rit
aðar.
Information skriíar hins veg-
ar varðandi heiðursbústaðinn,
að sumir hafi rætt þann mögu-
leika, að fyrrverandi forsætis-
ráðherra landsins, Viggo Kamp
mann, flytti þangað, og yrði bú
staðurinn þá um leið gerður
að miðstöð fyrir starfsemi Dana
til styrktar þróunarlöndunum.
fundu hina horfnu muni hjá brota-
járnskaupendum og þaðan voru
sporin rakin tll drengjanna. Hafa
þeir játað brot sitt.
Reykjavík, 20. febr. — Á mánudags
kvöldið voru tveir drengir, 9 og 12
ára, að leika sér með loftriffil, er
eldri bróður annars þeirra átti. —
Skutu þeir í mark í húsagarði ein-
um í Hlíðunum. Er annar þeirra
missti marksins, fór biýkúla riffils-
ins yfir á næstu lóð og lenti þar
í bakl lítillar telpu, er var að leik.
Ekki mun s'túlkan hafa skaddivt
verulega, en lögreglan fékk málið
[ til meðferðar og tók riffilinn í sína
■ vörzlu.
| Reykjavík, 20. febr. — Á samkomu
Náttúrufræðifélagsins i I kennslu-
stofu Háskólans mánudaginn 25.
febr. kl. 20,30 mun Páll Bergþórs-
son veðurfræ?iingur flytja erindi:
Lofthiti á íslandi síðan um land-
nám. — Þetta efnl hefur fyrlrlesar-
: inn rannsakað eftir sögulegum heim
j ildum og áætlar hann hitastigið á
liðnum öldum eftir þeim á töluleg-
an hátt (s'tatistfskt). Heimildirnar
eru einkum um hafís við ísland, en
t.d. mannfellir af hungri er einnig
veigamikil vísbending um hltastlglð.
Önnur atriði, srm fyrirlesarinn mun
ræða og styðst vlð f ályktunum sín-
um, eru t.d.: hitamælingar á Eng.
landi frá 1681, athuganir próf. Jóns
Steffensens á mannabeinum. korn-
rækt á íslandi, breytingar jökla hér
og erlendis. íslandslýsing Gfsla
biskups Oddssonar og vitnisburður
bókmennta um loftslagsbreytingu
eftir 1600.
BÓ-Reykjavík, 20. febr. — Nokkur
ný inflúenzutilfelli komu upp í dag,
en upplýsingar um fjölda þeirra eru
ekki fyrlr hendi. Borgarlæknisem-
bættið mun fylgjast með útbreiðslu
veikinnar gegnum vaktþjónustuna.
— Veikin hefur nú herjað á EIII-
heimilinu og. Alþýðublaðinu, og
kunnugt er að allt að fjórðungur
starfsliðs Ofnasmiðjunnar lasnaðist
f dag, og var flenzunni kennt um.
Sprauf uðu skað-
legum vökva í
augu drengsins
Poul Reumert
Um hálftíuleytið á þriðjudags-
kvöldið varð sá atburður. að 4
unglingspiltar, 16—20 ára, komu
að 14 ára pilti, sem var að leik
á Gnoðarvogi, og sprautuðu fram-
an í hann vökva. Ekki er vitað
hvers konar vökvi pað var, en
drengurinn fékk hann i augun og
skaddaðist annað auga drengsins
allmjög, en ekki er enn vitað,
hvort um varanlegar skemmdir
a auganu er að ræða — Þjáist
hann af sárum sviða í augum.
Ekki hefur enn tckizt að hafa
uppi á unglingspiltum þeim, sem
stóðu að þessu ljóta verki. Þar
sem drengurinn blindaðíst eftir að
hann fékk vökvann i andlitlð, hef
ur hann ekki getað gefið lýsingu
a píltunum. Þeir, sem gætu gefið
einhverjar upplýsingar, er að
gagni mættu koma við að hafa
uppi á pörupiltum þessum, eru
beðnir að hafa samband við rann
sóknarlögregluna í Reykíavík.
TÍMINN, fimmtudaginn 21. febniar 1963
3