Tíminn - 21.02.1963, Síða 15

Tíminn - 21.02.1963, Síða 15
Frá Alþingi Það kunna ýrnsir að verða til' þess að segja, að á þessari end | urskoðun sé ekki mikil þörf. Allt hafi komizt vel af til þessa, þótt ( gilt hafi sú ófullkomna löggjöf, sem nú gildir. Þetta er rétt svo | langt sem það nær. Þess hefur ■ ekki gætt svo mjög að útlend-: ingar hafi sótt hér eftir fasteign-1 um eða réttindum til atvinnureksl urs. En þess ber að gæta, að víða erlendis, þar sem þessari ásælni útlendi.nga hefur heldur ekki gætt, eru nú ýmsar blikur á lofti. Við höfum og lifað í skjóil ein- angrunarinnar, einnig ' að þessu lcyti. Nú er því ekki lengur að heilsa, þar sem við erum komnir svo að segja í þjóðbraut. Það er og fleira breytt í hinum ytri að- stæðum. Við eigum áreiðanlega — og sem betur fer — þau auð- æfi í fasteignum og þá aðstöðu til atvinnurekstrar, sem getur freistað útlendinga, og þeir mundu telja sér mikinn hag af að ná í. En hvað sem þessum bollalegg-, ingum líður, er eitt víst. Það er of | seint að byrgja brunninn þegar barnið er dottið ofan í. Og það er áreiðanlega varhugavert, á þeim1 tíma, sem nú er, þegar auðfélög ■ fullsetinna landa eru hvarvetna í leit að aðstöðu, að hafa land okk-* ar opnara fyrir slíkri ásælni en aðrar þjóðir voga sér að hafa. — 7 ára í óperu Framhald af 16. síðu. kenndi mér þangað til hann lézt, þá var ég 17 ára. Hann stjórnaði líka fyrstu óperunni minni, sem ég niinntist á. Já, hann hét Heinrich Seefried. — Hvenær hófst söngferill yðar j fyiir alvöru? — Þegar ég var tvítug 1939 var ég fyrst fastráðin sem söngkona,! það var í Aachen, en nú í nær tutt-! ugu ár, eða síðan 1943, hef ég verið ! helzt viðloðandi ríkisóperuna í Vín, þó að ég haíi sungið tíma og tíma f óperuhúsum í öðrum löndum, var um tíma í Bandarikjunum og söng viff Metropolitan í New York, íyrst 1953, auk þess sem ég hef sungiff í óperum og óratoríum víð- ar, og haldið ljóðatónleika, fyrst á Norðurlöndum 1948, og það sama ár giftist ég Wolfgang. — Finst yöur ekki meira til þess koma að syngja ljóð en annan söng? Eða eigið þér eftirlætis- tónskáld? Mozart? — Eg held ég taki ekki eitt lónverkaform fram yfir annað, þykir jafn skemmtilegt að syngja lióð og í óperum og óratóríum. Annars mundi ég ekki gera það. Auðvitað dáist ég að Mozart, en bau eru svo mörg tónskáldin, ég veit varla. hvert ég met mest. Það er hver dásamlegur og mikill á sína vísu og í rauninni erfitt um samanburð á þessu sviði. — Urðuð þér fyrir vonbrigðum að sjá íslar.d eftir að maðurinn yðar hafði dásamað það svo við yð- ur? — Nei, ég er viss um, að hann nefur ekki iofsungið það um of. Mér fannst það fallegt við fyrstu sýn og gott að koma hingað úr öll- um kuldanum úti á meginlandinu. Við höfum haft óskaplega kulda í Vin í Vetur, og alls staðar var kalt á Norrttrtóndti"; þar t'l ég kom hingað. Eftir tónleikana á .fóstudag ædum við Wolfgang að dveljast hér nokkra daga og rey/ia að ferðast eitthvað um og skoða jandið. Það sem ég dáist mest að hér, er hvað loftið er tært. Eg sijgi það satt, hér er alveg himn- eskt andrúmsloft. Þórskaffi Framhald af 16. sfðu. Fulltrúi lögreglustjóra skýrði biaðinu frá máli þessu í dag, og sagði aff ástandið innanhúss hefði batnað mjög eftir að eiganda voru sett fyrrneínd skilyrði, en utan húss vantar talsvert á, að það geti talizt viðunanlegt. Þar kemur til, að margir bílsjórar, einkum leigubílstjórar, leggja þaff í vana sinn að hanga fyrir utan Þórskaffi, þegar hleypt er út, valda umferðar truflunum og hafa drukkið fólk meðferð'is. Lögreglan hefur stað- ið í miklu stímabraki þess vegna, en nú hefur verið ákveðið að skrifa upp þá bílstjóra, sem mest stunda þetta og kæra þá sem halda upp- teknum hætti og óhlýðnast fyrir- mælum. Fuiltrúinn sagði, að þess- ar aðgerðir byggðust á óskoruðu valdi lögreglunnar til umferðar- stjórnar. Álafoss Framhald a) 9 sríðu neyti er einnig fyrir starfs- fólkið og selur fyrirtækið fæði undir kostnaðarverði. Látið er i té ókeypis húsnæði fyrir dag- heimili barna og konum á staðn um greidd laun fyrir að taka að sér gæzlu barna þeirra mæðra, sem vinna j verksmiðj- unnj eða þurfa á þeirri aðstoð að halda af öðrum orsökum Barnaheimilið hefur starfað komið börnunum þar í gæzlu lengri eða skemmri tíma. Hús- rýmið er ekki mikið fyrir jafn stóran hóp og var þar, þegar ég ieit inn, en útileikvangur er stór í skjólríkri brekku. Þá var mér sagt, að sumar húsnjæðurnar tækju vinnu frá verksmiðjunni heim til sín, t. d. við frágang á ábreiðum og treflum, svo að vinnuaflið ætti að nýtast vel, auk þess sem tekjur heimilanna drýgjast verulega vegna þessarar góðu aðstöðu. Sem dæmi um ársframleiðslu á Álafossi í einstökum grein- um má nefna, að s. 1. ár voru framleiddir þar 40 þúsund fer- metrar af gólfrenningum, um 140 tonn af bandi og 9—10 tonn af lopa og mun þó naum- lega hafa verið fullnægt eftir- spurn eftir neinni af þessum vörutegundum. Eftir að við höfðum skoðað verksmiðjuna, skilaði Guðjón verkstjóri okkur heim til frú Sólveigar konu sinnar, en þau EIKKARITARI Vér viljum ráða vana skrifstofustúlku, sem gæti tekið að sér einkantarastarf hjá oss. Málakunnátta er nauð^ynleg ásamt góðri æfingu i vélritun, hraðritunarkunnátta er æskileg eða æfing i að vélrita eftir segul- bandi. Nánari upplýsingar get'ur starfsmannahald SÍS, Sambandshúsinu. STARFSMAN NAHALD eiga' einstaklega skemmtilegt íbúðarhús í brekkunni norðan við verksmiðjuna. Þar var einnig stödd frú Ingunn, kona Ásbjarnar verksmiðjustjóra og nutum við ánægjulegrar stund ar hjá þeim við rausnarlegar veitingar. Þessar ungu húsfreyjur voru sammála um það, að gott væri að búa í Mosfellssveitinni. Fólkið væri félagslynt og létt yfir því og einkum væru kon- ur þar samtaka í sínum félags- málum, yngri sem eldri, enda er kvenfélagið þar með þeim starfsömustu á landinu. Að endingu vil ég svo þakk; gestrisni og skemmtun, sem ég hafði af heimsókninni. Sigríður Thorlacius. Þorskanót Framhald sl 1 siðu. veiðar, því ungviðið væri alls ekki á hrygningarstöðvunum á þessum tíma, svo neinu næmi. Jón vakti einnig athygli á því, að sá fiskur, sem veiddist í nótina væri úrvals- vara, kæmi spriklandi upp úr sjón- um óskaddaður. Ekki er ósennilegt, að þeim bát-1 um fjölgi nú mjög ört, er taka! þorskanót um borð. Hver veit,' r.ema þarna sé veiðiaðferð fram- líðarinnar hér við land að mótast? Thalodomide Framhald al 1 siðu setja fyrirtækiff á höfuðið. Ríkis- saksóknarinn í Aachen. Havertz, hcfur birt opinberlega nákvæman lista yfir þessar eignahreyfingar. | Chemie Briinenthai er þekkt j íyljagerð, sem m. a. fann penisilín j upp sjálfstætt, nokkru eftir að j enskir vísindamenn höfðu fundið það upp. Lyfið thalidomid var fundið upp af vísindamönnum Chemie Briinenthal árið 1954, og varð fljótt rnjög útbreitt. Thali- domid er enn notað, þar sem marg ir telja það mjög virkt í baráttunni krabbameihi.'Og það cr ein- ungis talið hættulegt í sambandi við barnsburði. IR vam íslandsmótið í körfuknattleik hélt áfram að Hálogalandi í gær- kvöldi og fóru fram tveir leikir í meis'araflokki. í seinni leiknum mættust ís- j laiidsmeistararnir ÍR og KR og i með 51-—44. í seinni leiknum mættust fs- > landsmeistararnir ÍR og KR, og vann ÍR naumlega með 54—51, eftir spennandi leik fram á síð- ustu sekúndur. Nánar verður skýrt frá leikjun-! um á morgun. RORCTSRÐINGAR j Framsóknarfélag Borgarfjarðar og F.U.F. í Borgarfjarðarsýslu halda almennan fund að Brún ' Bæjarsveit n.k. sunnudag, og hcfst hann kl. 3. Dagskrá: 1. Kosnir fulltrúar á flokksþing, 2. Rætt um stjórnmálavi'ðliorfið. Frummæl endur verða alþingismennirnir Halldór E. Siguhðsson o*g Skúii Guðmundsson. Stu'ðningsfólk Framsóknarflokksiins i Borgar- fjarðarhéraði er hvatt til að fjöl- menna á fundrnn. Framsóknarfélag Kópavogs held iti almennan félagsfund að Álf j hólsvegi 4 a, fimmtudaginn 21 j 'ebrúar og hefst hann kl. 8,30 síð I dcgis. Dagskrá: 1) Inntaka nýrr j félaga. 21 Kosnir fulltrúar á flok' oitig 3' lón Skaftason alþingí .uaðtii og Valtýi Guðjónsson, for 't.jóri i Keflavík. f|ytja ávörp. 4) I ttnnur mál. — Stjórnin. Víðivangur vei'ði fram hjá honum komizt og hann muni knýjia fram þær umbætur á næsta kjörtímabiii, sem muni minnka vaxtarskil- yrði kommúnistaflokksins. Það ber einmig að vekja athyglj á því, að samtímis því, að Einar Olgeirsson sannfærir Rjarna um það á Alþingi ,.að afstaða ísl. kommúnista til Sjálfstæðis- flokksins sé að þessu leyti ó- breytt, söðlar Bjarmi um og liættir með öllu að tala um „þjóðfylkingu Framsóknar og kommia“, sem verið hefur uppi staðan í áró'ðri Mbl. undanfar- in misseri. Húsainnréttingar S M í Ð U M : eldhús og svefnherbergis- innréttingar. Sólbekki á glugga Járning og ísetning á hurð- um. Vönduð vinna. Sími 10256 eftir kl. 7 Loftpressa til leigu á bíl með vökva- krana Tökum að okkur fleyga og sprengivinnu. 16 mm filmuleiga Kvikmyndavélaviðgerðir Skuggamvndavélar Flestar gerðir sýningarlampa Odýr sýningartjöld Filmulím og fl. Ljósmyndavörur Filmur Framköllun og kópering Ferðatæki (Transistor) FILMUR OG VÉLAR Freyjugötu 15 Sími 20235 EIMJlEfOfN Áskriftarsími 1-61-51 Pósthólf 1127 Reykjavík Pósísendum Vélsmiðjan KYNDILL Sími 32778. Jðrð til sðlu Jörðin Miklaholt í Mýrasýslu er til sölu á næsta vori. — Byggingar allar nýjar og nýlegar. Mjög góð lán áhvílandi. Bústofn og vélar geta fylgt. Semjið við undirritaðan eiganda jarðarinnar. Davíð Sigurðsson, Miklahoiti VÉLRITUNARSTÚLKtSR Vér viljum ráða nokkrar vanar vélritunar- stúlkur strax. -iamvinnuskólamenntun. verzlunarskóla eða nnur hlíðstæð menntun æskileg. Jmsóknareyðublöð fás^ hjá Starfsmanna- naldi SÍS. í Sambandshúsinu. sem geíur Þökkum innilega samúð og vinarhug við andlát og jarðarför konu mlnnar. móður, tengdamóður og ömmu Guðrúnar Jónsdóttur Skáleyjum, Breiðafirði. Þorbjörn Sveinsson, Júlíana Sveinsdóttir, Guðmundur Guðmundsson, Vilheimína Tómasdóttir, Jón Guðmundsson og barnabörnin. T í M I N N , fimmtudaginn 21. febrúar 1963

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.