Tíminn - 02.03.1963, Síða 2
FRÓÐLEIKUR UM KOSSA
Bob Lowery gegnir líklega
einhverju furðulegasta starfi í
heimi. Hann dxegur nefnilega
fram lífið á því að kyssa. Auð-
vitað býr hann í Hollywood, en
nafn hans sést samt aldrei í
hliítverkaskrám kvikmyndanna,
þar sem að hann er „kissing
stand-in“. í hvert skipti, sem ein
hver kvikmyndaleikkonan á að
kyssast verður hann að hlaupa
undir bagga, og það er ekki fyrr
en kossaatriðið cr fullleikið, að
hin raunverulega kvikmynda-
hetja kemst að. Glæslkvendi kvik
myndanna halda því allar fram,
ag kossar Bobs séu óviðjafnan-
legir. Hann hefur sjálfur reikn-
að út, að hann kyssi hlnar frægu
leikkonur mörg þúsund kossa á
ári, og hann tekur 20 dollara
fyrir stykkið.
HvaS er koss?
Segið ekki að þetta sé ónauð-
synleg spurning. Sprenglærðir
sérfræðingar hafa lagt mikla
vinnu og erfiði í að finna
svarið við þessari spurningu. —
Sumir hafa komizt aö stuttum
gagnorðum niðurstöðum, en aðr-
ir hafa skrifað um málið langar
ritgerðir.
í orðabók einnl er koss skil-
greindur á eftirfarandi hátt:
Snerting (við munninn á ein-
hverjum, kinnina, ennið, hend-
ina, eða við aðra persónu, mynd
eða hlut) með munninum. Oftast
útrás fyrir hlýjar tilfinningar,
ást, vináttu, þakklæti, virðingu,
tilbeiðslu, gleði yfir endurfund-
um eða kurteisistákn.
Hljóðfræðingurinn og prófes-
orinn Ernst W. Selmers skil-
greinir fyrirbrigðið á nokkuð
skemmtilegri hátt. Koss, segir
hann, er hljóðfræðilega séð, sog-
hljóð myndað með vörunum, eða
smellur, og í geðshræringu
myndast innblásjnn sogstraumur.
En til allrar hamingju cru
það ekki eingöngu visindamenn,
sem fengizt hafa við að rann-
saka kossa. Org ljóðskáldsins
Paul Verlaines eru til dæmis
dálítið viðkunnanlegri fyrir
unga elskendur, en fyrrgreindar
lýsingar. Hann segir að kossinn
sé falleg rós í garði ástarinnar,
og þegar kossinn leiki á tenn-
umar myndist fallegir söngvar,
þeir söngvar, sem ástin syngi í
brennandi hjörtum. Og Lord
Byron óskaði, að allar konur á
jörðinni hefðu einn rósamunn
til samans, svo ag hann gæti
kysst þær allar í einu.
Sören Kierkegaard lítur aftur
hversdagslegri augum á kossinn,
þar sem hann segir, að heimilis-
koss hjóna komi í staðinn fyrir
munnþurrku, til að þurrka hvort
öðru um munninn með, um leið
og þau segja: Verði þér að góðu.
Tveir menn hafa að því er
menn vita orðið prófessorar í
kossum. Vísindamaðurinn Pat
Newman varð dr. phil. í menn-
ingarsögu kossins frá háskólan-
um í Oxford. Og læknirinn Tom
Durante varð dr. phil. í vanda-
málinu: Stytta kossar lífið?
Hann hefur komizt ag þeirri
niðurstöðu, að kossar séu óheilsu
samlegir, þar sem að þeir beri
sjúkdóma, reyni á hjartað og
ótal margt fleira. Hann styðst
aðallega við rannsóknir, sem
hann hefur gert á skólanemend
um og öðrum 500 manns úr
öllum stéttum þjóðfélagstns. —
Hann fylgist með æðaslögum,
hjartastarfseminni og álagi ým-
issa tauga, meðan viðkomandi
par kyssist. Rannsóknir hans
leiddu í ljós, að allt of ástríðu
fullir kossar komi í veg fyrir al-
menna vellíðan, einkum ef við-
komandi er yfir þrítugt. Fólki
til huggunar má bæta því við,
að kenningar hans hafa mætt
miklum mótmælum.
Hverjir kyssa?
Tveir amerískir sálfræðingar,
Anny Heller og Peter Sucker
hafa gefið 600 síðna bók, sem
fjallar um kossasálfræði. í henni
úir og grúir af tölum, sem segja
meðal annars, ag það séu einung
is karlmenn innan átján ára ald-
urs, sem halda að kossinn hafi
eitthvað mikið að segja fyrir ást-
ina. Svo þegar maðurinn er kom
inn yfir fertugt, byrji hann aft-
ur að verða hrifinn af kossum,
en þá vilji hann bara hclzt kyssa
konur, sem eru undir 24 ára. Ef
konan er komin yfir þritugt, eru
þag aðeins 45% af mönnunum,
sem vilja kyssa hana.
Konurnar eru aftur á móti
hrifnari af kossum. 77% af öll-
um konum á aldrinum 16 til 40
ára, svöruðu þvi til, að kossinn
veitti þeim mikla ánægju. Árs-
tíminn kemur þessu máli ekkert
við, svo þessl ástarrómantik í
sambandi við vorið er ekki nema
vitleysa. Það voru mjög margir.
sem helzt kysstust á veturna.
Það er ekki bara nú á dögum
sem visindamonn fást við að
rannsaka kossa. Frægur vísinda-
maður lagði stund á kossarann-
sóknir fyrir 60 árum og hann
hélt þvj fram, að uppruni koss-
HÉR er stutt bréf um vegi og vega
mál á Austurlandi og mun tilefnið
umræður, sem nýlega hafa farið
fram á Alþingi um nýiar brýr á
Lagarfljót:
„EF EINHVERJUM kæmi til hug-
ar að ferðast í bíl um beztu héruð
landsins með það í huga að gleði-
ast yflr samgöngubótum síðustu
áratuga og vildi haga því svo til,
að gleðin yfir framförunum yrði
stígandi frá byrjun t.il loka ferð-
arinnar, þá vildi ég ráðleggia þeim
manni að byrja ferð sína á Fljóts-
dalshéraði, kanna síðan héruðin
á Norðurlandi og enda á Suður-
landi.
Eg segi þetta vegna þess, að
ins væri ókunnur. Ef reynt er
að leysa gátuna með því að rann
saka siði og lifnaðarhætti frum-
stæðra þjóðflokka, kemur ekkert
frckar í Ijós, þar sem flestir
þessara þjóðflokka þekkja ekki
kossinn.
Aftur á móti er nefkossinn
mjög frumstæður siður, og ástæð
una fyrir honum hlýtur að vera
ag finna í þefnæminu. Fyrir ut-
an þá nautn, sem sjálf snerting-
in gefur, þá hafa bragð og lykt-
arskyn einnig mjög mikið að
segja.
í nokkrum ættflokkum heils-
ast fólk með því að lykta af
hvort öðru. Nefl og munni er
þrýst að kinn viðkomandi per-
sónu, og heilsandinn dregur
djúpt ag sér andann. í þeirra
máli er ekki sagt, kysstu mig,
heldur lyktaðu af mér. Þar sem
nefkeðjan hefur orðið tjl fyrir
lykt, þá er mjög líklegt að koss-
inn hafi orðið til fyrir bragð, eða
kannski hvort tveggja.
Hve gamall er kossinn?
Það veit enginn, hve gamall
kossinn er. Þær heimddir, sem
við höfum um eldri tíma, gefa
engar upplýsingar um kossinn.
Sumir segja að kossinn sé jafn
gamall ástinni, að án ástar sá
enginn koss til.
Kanadískur vísindamaður hef-
ur nýlega haldig því fram, að
það 'hafi verið þörf líkamans fyr-
ir salt, sem leitt hafi til fyrsta
kossins. Hann komst að þeirri
órómantískri niðurstöðu, að
frummennirnir hafi sleikt hvom
annan í framan, þegar þeir upp-
það er ekki sársaukalaust fyrir
manit af FljótsdalshéraSi að bera
saman samgöngukerfi þess við önn
ur hliðstæð héruð.
ALLTAF ER BORIÐ við féleysi,
en Alþingi hefur engan rétt tll að
hundsa vissa landshluta, og ekki
sízt þegar í hlut á eitt stærsta
og veigamcsta hérað landsins.
Mér var það gleðiefni, þegar ég
heyrði það á ölduni Ijósvakans, að
hreyft væri nú því máli að brúa
Lagarfljót utar á Héraðinu. Það
hljómar líkt og lygasaga, hve lengi
þetta hefur dregizt. Það má nefna
sem dæmi, að þurfi maður frá
Húsey í Hróarstungu að skreppa
til Borgarfjarðar, þá þarf hann að
götvuðu ag svitinn var saltur.
Síðar varð þeim Ijóst, að þetta
hafði aðrar aðlaðandi hliðar, og
það hafði í för með sér hinar
mestu tilfinningaflækjur. Þann-
ig litur þá efnafræðingur á til-
komu kossins.
Gömul helgisaga segir á efUr
fnrandi hátt frá því, hvernig
fyrstu mannverurnar fundu upp
kossinn. Eva hafði lagt sig til
svefns undir skuggsælu tré, þeg
ar býfluga flaug fram hjá. Flug-
an svelmaði í kringum hinar
rauðu varir Evu og settist síð-
an niður til að sjúga úr þeim
hunang. En Adam, sem gætti
Evu dyggilega, rak fluguna i
burtu. Og anaðhvort af for-
vitni eða afbrýðisemi, þá fylgdi
hann dæmi flugunnar, beygði sig
niður að Evu, og þrýsti vörum
sinum að hennar.
Forfeður okkar höfðu mikla
hjátrú á kossinum. Ef maður
vildi vernda sig gegn eldingu,
átti hann að krossa sig þrisvar,
og kyssa svo jörðina þrisvar. f
Frakklandi kysstu þeir spilin til
þess að verða heppnari. Ef ein-
hver missti brauð á gólfið, átti
hann að kyssa það, um leið og
hann tók það upp. Kossinn var
einnig mjög gott læknismeðal,
ef einhver hafði tannpínu, átti
hann að kyssa asna á snoppuna.
. Finnskt máltæki sgir, að munn
urinn fari ekki illa á því að
kyssa, og höndjn ekki illa á því
ag heilsa. Kossinn er aðeins byrj
unin, segja Svíarnir. Einhver
sagði, að fyrir ungu stúlkuna
væri kossinn heil ópera, en fyrir
piltinn aðeins forleikurinn. í
Englandi voru fyrir hundrað ár-
um kvenhattar í tízku, sem hlutu
nafnið „kiss-me-quick“, og þeir
kvenhattar, sem voru í tízku í
kringum aldamótin, og voru með
stóru barði, voru kallaðir ,,kiss-
me-if-you-can“.
Hvers vegna lokar fólk
augunum?
Hvers vegna lokar fólk aug-
unum, þegar það kyssir? Þetta
er spurning, sem margir hafa
velt fyrir sér. Vikublað nokkurt
hélt fyrir nokkrum árum verð-
launakeppni um bezta svarið við
spurningunni. Og verðlaunasvar
ið, sem kom frá konu var á þessa
leið: Af þvi að við kunnum það
utan að.
Svar númer tvö var: Af þvi að
ástin blindar fólk. Og þriðja var:
Fólk lokar augunum, af því að
það er í 7. himni og mundi svima
ef það lyti niður á jörðina. EðUs
fræðingur nokkur komst að
þeirri niðurstöðu, að þar sem
straumur ástarinnar hefði þrjá
loka, augun og munninn, lokuð-
um við tveimur þeirra, augunum,
ef við vildum ná sérstaklega
sterkum straum. Og guðfræðing
ur hefur bent á það, ag við eig-
um að elska maka okkar, og
loka augunum fyrir göllum hans.
Yfir flesta eru haldnir reikn
Framhald á 13. siðu.
taka á slg 200 km. krók, ef bor-
iS er saman viS vegaiengdina,
vserl brú komin á þeim slóSum,
sem nú er talaS um. Um þaS má
della, hvar sú brú er bezt staS-
sett, viS Stelnboga, Lagarfoss eSa
annars staSar.
ÉG VILDI aðeins skjóta því að sem
athugasemd, að mér hefur sýnzt
bezt brúarstæSi undan Gcirastöð-
um við svonefndan Bjarnaklett,
sem er austan fljótsins. Þar hef-
ur mér sýnzt það mjóst og aSstað
an bezt við bæðl lönd. Mllli Stein
boga og Bjarnakletts eru um þrir
kilómetrar.
Halldór Pétursson".
ÞEGAR karlmenn eru komnir yflr fertugt, byrja þelr aftur að verða
hrifnlr af kossum, en galHnn er bara sá, að þeir vllja helzt kyssa
stúlkur, sem eru yngri en 24 ára gamlar.
Á FÖRNUM VEGI
2
Angur kommúnista
Það er margt, sem angrar
kommúnista núna síðustu daga
og vikur. Þcir komast ekki hjá
að flinna, að fylgi þeirra fer
minnkandi, og allt gasprið um,
að þeir séu skeleggir andstæð-
ingar íhaldsins og hlnir einu
og sönnu vfnstri menn í land-
Inu fær ekki lengurliljómgrunn
hjá frjálslyndu og lýðræðlslega
sinnuðu fólki. Er auðséð, að
kommúnistar óttast mjög úr-
slit næstu þingkosniinga, enda
cru allar horfur á, að þelr
verði að ganga tH kosninganna
í sama gervinu og þeár hafa
borið' að undanfömu, og nú er
orðlð svo gatslitið, að engan
blekkir lengur.
Þegar þetta er haft í huga,
er skiljanlegt geðvonzkunöld-
ur Þjóðviljans, sem allt virðtst
hafa á homum sér um þessar
mundir. Beinlr hann skap-
vonzku sinnl einkum að Fram-
sóknarflokknum, þar sem kom
múnistar óttast mjög, að hann
muni mjög laða til sín fylgl í-
haldsandstæðitiga í næstu
kosnlngum.
Eitt nýjasta dæmlð um þetta
mátti sjá á baksíðu Þjóðvnj-
ans s. 1. þriðjudag, þar sem
gerðar voru að umtalsefnl at-
kvæðagreiiðslur um þær tillög-
ur, sem fulltrúar kommúntsta
í borgarstjóm Reykjavíkur
fluttu þar á fundi h'inn 21.
febrúar.
Telur Þjóðviljinn að það
beri vott um mikla íhaldsþjón-
ustu en Iitla vinstrtmennsku,
að Einar Ágústsson og Krlst-
ján Benediktsson sátu hjá við
afgrelðslu annarrar þeirrar tll-
lögu en fylgdu hins vegar frá-
vísunartillögu, sem fram kom
vlð hina.
Málefnin ráða
Fulltrúar Framsóknarflokks-
Ins í borgarstjóm hafa ávallt
fylgt þeirri reglu að Iáta mál-
efnl ráða afstöðu sinnii. Og það
er á algerum misskilningl
byggt hjá Þjóðvlljanum, ef
hann lieldur, að þeir Einar og
Krlstján muni hafa þar önnur
vhmubrögð. Þetta hafa þetr
einmitt sýnt glögglega þann
stutta tíma, sem þeir hafa átt
sæti í borgarstjórninnl. Hafa
þeir jafnan tekið afstöðu tH
máiefnanna en ekki hins, hverj
ir flytjendurnir voru, né hver
afstaða annarra borgarfulltrúa
hefur verið á hverjum tíma. —
Þetta væri vtssulega lærdóms-
ríkt fyrir Þjóðvlljann að hug-
lelða og bera saman við vlnnu-
brögð sumra annarra fulltrúa
f borgarstjóminni.
Að lokum er fullkomin á-
stæða til þess að óska Þjóðvili-
anum til hambigju með þá
dæmalausu niðurstöðu, að það
geti hvorki verlð mlklir „frarn
farasinnar“ né „vinstri menn“,
sem ekki viljt fylgja kommún-
istum í því að leggja nlður
störf einstakra borgarstarfs-
manna að lítt athuguðu máll,
eða telja aðra möguletka koma
til greina varðand! húsnæði
fyrir væntanlegt ltstasafn borg
arinnar en þann einan að
yflr það sé reist sérstakt hús.
Hugsjónir Gylfa
Menn tala nijög um þá dæma
iausu ræðu, sem menntamála-
ráðlterra, Gylfi Þ. Gíslason,
flutti á 100. ára afmælii Þjóð-
mlnjasafnsins. Boðaði ráðlterr-
ann þar þá skoðun, að smá-
þjóðir og ríki ættu ekkl lengur
rétt á sér sem slík, boðaði enda
lok þelrra og taldl lítt athuga-
vert við þetta. Þctta væri eðli-
Framhald á 13 síðu
T í M I N N, Iaugardagur 2. marz 1963. —