Tíminn - 02.03.1963, Blaðsíða 5
IÞRDTTiR
IS
RITSTJORI: HALLUR SIMONARSON
Hrafnhildur setti íslands-
met í 100 m bringusundi
Hrafnhildur Guðmundsdóttir
móti KR.
með bikara þá, sem hún hlaut á sund-
(Ljósm.: Sv. Sæmundsson).
Öskar Halldórsson
formaður Hauka
Þann 11. febrúar s.l. var hald I
inn aðalfundur Knattspyrnufé
lagsins „Haukar" í húsnæði
sem félagið hefur tekið á leigu
að Vesturgötu 2, en það er
eign Kaupfélags Hafnfirðinga.
Félagið hyggst reka þar fé-
lagsheimili næstu ár og einnig
hafa þar skrifstofu.
Formaður félagsins, Óskar Iiall
dórsson, setti fundinn, sem var
mjög fjölmennur og minntist í
upphafi fundarins Garðars S.
Gíslasonar, sem lézt á s.l. ári, en
sem kunnugt er, var Garðar heit
inn þjálfari félagsins um nokkurt
skeið.
Þá flutti formaður skýrslu
stjórnar fyrir s.l. ár og sýndi
skýrslan, að starfsemi félagsins
hefur aukizt mjög mikið. Siðan
las gjaldkeri reikninga. sem svndu
talsvert batnandi fjárhag félags-
ins.
Sú breyting hefur orðið á knatt
Körfubolti
íslandsmótið í körfuknattleik
heldur áfram um helgina og mæt-
ast í meistaraflokki á sunnudags-
kvöldið ÍR og KFR í fyrri umferð-
inni, en einnig fer fram leikur i 2
flokki sama kvöld — Á sunnudag
inn fyrir hádegi fara fram nokkrir
leikir í yngri flokkunum i fþrótta-
húsi Háskólans, og hefst fyrstij
leikurinn kL 9,30. !
spyrnulífi bæjarins, að tekið var
upp að frumkvæði Hauka, að hald
ið var haustmót í knattspyrnu i
öllum flokkum. Leikar fóru þannig
að Haukar sigruðu í 1., 2., og
5. flokki, en FH í 3., og 4. flokki.
Áætlað er að bæði vor og haust-
mót fari fram árlega milli þessara
félaga. Þá sigraði 5. fl. í þriggja
liða keppni: Haukar; Stjarnan,
Silfurtúni og Breiðablik, Kópa-
vogi. Á fundinum voru mættir all
:r liðsmenn 5. fl. og voru þeir
heiðraðir fyrir árangur sinn á ár-
inu 1962.
Á síðastliðnu ári og nú, er aðal
þjálfari fólksins í knattspyrnu,
Sigurður Sigurðsson úr Val, en
hann er nú búsettur í Hafnarfirði.
Þá var og nokkur æfingasókn í
handknattleik. Eftir nokkurra ára
hlé sendu Haukar meistaraflokk
karla, og tók flokkurinn þátt í
2. deildarkeppni með góðum ár-
angri. Einnig sendi félagið 2. og
3 fl. A og B.
Að lokum fór fram stjórnar-
kosning, en fráfarandi stjórn var
öll endurkosin. en hana skipa:
Óskar Halldórsson, formaður; Eg-
ill Egilsson, varaform.; Rut Guð-
mundsd., ritari; Jón Egilsson,
gjaldkeri; Þorsteinn Kristjánsson
fjármálaritari. Meðstjórnendur
Jón Pálmason, Guðsveinn Þor-
björnsson og Bjarni Jóhannesson
Þá skipa sæti í stjórninni for-
menn binna vm=' ’oilda þeir
Viðar Símoaarson Garðar Krist
mnsson og Sigurðut Jóakimsson
Húsnefnc) skipa jurgen Guð
mundsson skólastjóri, Egill Egils
son og Jón Jóhannesson.
Sundmót KR, sem fram fór
í Sundhöll Reykjavíkur í fyrra
kvöld, varð nokkuð sögulegt
— ekki fyrir það að árangur
í hinum ýmsu greinum væri
sérlega góður, heldur vegna
þrætu Guðmundar Gíslasonar
við leikstjórann Einar Hjart-
arson um mótsreglur og lykt-
aði þeirri deilu með því, að
Guðmundur tók ekki þátt í
200 m. skriðsundinu, sem
hann var skráður í og neit-
aði einnig að taka á móti verð
launapeningum, sem hann
hafði unnið, í mótmælaskyni
— Þetta atvik setti nokkuð
leiðinlegan blæ á mótið, en
eftir því sem bezt verður vit-
að, mun leikstjórinn hafa haft
lögin sín megin — þrátt fyrir
allár venjur og hefð — og
því ekki ástæða fyrir Guð-
mund að koma þannig fram,
a. m. kosti gat hann tekið við j ®
verðlaunapeningunum, þótt
hann neitaði að taka þátt í
sundinu vegna deilu sinnar
við leikstjórann.
—■ á sundmóti KR í fyrrakvöld. Leiðinlegur blær var
yffir mótinu vegna deilu Guömundar Gíslasonar við
mótstjórann.
Á mótinu vakti Hrafnhildur Guð
mundsdóttir, ÍR, mesta athygli, en
hún setti nýtt íslandsmet í 100 m
bringusundj — synti vegalengdina
á 1,21,8 mín. — en gamla metið
sem hún átti sjálf var 1,22,5 mín.
Guðmundur Gíslason náði ágætum
árangri í þeim þremur sundum
sem hann tók þátt í:
Guðmundur Guðnason, KR 35,2
Guðberg Kristinsson 36,8
Ar iars urðu helztu úrslit þessi:
200 ni skriðsund
Davíð Valgarðsson, ÍBK 2,19,3
Júlíus Júlíusson, SH 2.35,4
Ómar Kjartansson, SH 2.47,8
100 ni skriðsund kvenna
Hrafnhildur Guðm.dóttjr, ÍR 1,10,4
Ásta Ágústsdóttir, SH 1,28,5
100 m bringusund karla
Guðmundur Gíslason, ÍR 1,16,0
Ólafur Ólafsson, Ármanni 1,17,8
Erlingur Jóhannsson, KR 1,18,0
50 m .flugsund karla
Guðmundur Gíslason, ÍR 30,3
Pétur Kristjánsson, Ármanni 30,9
Davíð Valgarðsson, ÍBK 33.0
100 m bringusund kvenna
Hrafnhildur Guðm.dóttir lR 1,21,8
(íslandsmet)
| Auður Guðjónsdóttir ÍBK 1,32,6
1 Matthildur Guðm.dóttir 1,33,8
50 m baksund karla
Þorsteinn Ingólfsson, ÍR
3x50 m þrísund karla
Sveit ÍR 1,32,8
KR a-sveit 1,38,5
35.0 Ármann 1,40,1
innanhússmót Vík-
ings í knattspyrnu
Pjálfara-
námskeið
Á sunnudaglnn efnir unglinga-
nefnd KSÍ til námskeiðs fyrir
knattspyrnuþjálfara yngri flokk-
anna og verður námskeiðið haldið
í samráði við tækninefnd KSÍ í
Gagnfræðaskóla Austurbæjar. —
Þetta er í annað sinn á stuttu tíma
bili, sem efnt er til námskeiðs fyr-
ir knattspyrnuþjálfara, en fyrir
hálfum mánuði var haldið nám-
skeið fyrir þjálfara meistaraflokks
liðanna og tóks' það mjög vel.
Búast má við, að námskeiðið á
sunnudaginn verði fjölsótt, en nú
þegar hafa allmargir þjálfarar til-
kynnt þátttöku — bæði hér úr
Reykjavik og utan af landi.
Námskeiðið verður ivíþætt —
fræðilegt og verklegt og verða
rækilega sýndar þjálfunaraðferðir
og flutt erindi um unglingaþjálf-
n almennt.
Námskeiðið hefst kl 2 stundvis-
lega og verður eins og fyrr segiri
í Gagnfræðaskóla Austurbæjar. [
N.k. mánudag og þriðjudag fer
fram að Hálogalandi innanhúss-
mót Víkings í knattspyrnu. Þátt-
taka er mjög góð og senda sjö
félög lið til keppni — tvö hvert,
a og b lið. Um útsláttarkeppni er
að ræða, þannig að l.ið sem tapar
leik er úr keppni. Nú hefur verið
dregið um hvaða lið mætast í
fyrstu umferð, en hún verður leik
in á imánudagmn.
Þessi lið mætast { fyrstu um-
ferð:
Hafnarfjörður A — Víkingur B
Valur B — Keflavík A
KR A — KR B
Valur A — Fram B
Keflavík B — Hafnarfjörður B
Þróttur A — Þróttur B
Víkingur A — Fram A.
Handbolti
íslandsmótið í handknattleik
heldur áfram um helgina og verð
ur leikið bæði í yngri og eldri
flokkunum. — Á morgun fara
þessir leikir fram að Hálogalandi.
— í 3. flokki karla A leika ÍA og
KR, í 2. deild mætast ÍA og Breiða
blik og Valur og ÍBK. Fyrsti leik
ur hefst kl. 8,15.
Á sunnudaginn heldur mótið a-
fram og fara þessir leikir fram
eftir hádegið: í 2. flokki karla B!
Víkingur og Þróttur; í meistara-
flokki kvenna mætast Ármann og;
Breiðablik. Leikirnir sem á eftir
koma eru allir í karlaflokki í 3
flokki: Víkingur—Valur Þróttur
—Fram og Haukar—ÍA í 2.
flokki leika ÍA—Fram og Valur—
Ármann. í 2. deild leika Haukar,
—ís. — Fyrsti leikur hefst kl. 2. |
BIKAR, sem Tryggingamið'stöðún
gaf til keppninnar. Hann vinnst
til eignar. (Ljósm.: TÍMINN-ÁÁ).
T f M I N N, laugardagur 2. marz 1963,
5