Tíminn - 02.03.1963, Síða 16
Laugardagur 2. marz 1963
52. tbl. 47. árg.
65% útsvarshækkun á Akranesi á 2 árum
12 TÍMA
EINAR EYSTEINSSON
— formannsefni.
ALDA ÞÓRÐARDÓTTIR
— varaformannsefnl.
BÆJARSTJÓRNARFUNDUR var
haldlnp á Akranesi föstudaglnn 15.
febrúar s. I. Hófst hann kl, 5 og
stóð til kl. 5 á laugardagsmorgun.
Aðalmál fundarins voru relkningar
bæjarútgerðarinnar og fjárhagsá-
ætlun bæjarlns fyrir árið 1963 —
síðari umræða.
Alögð útsvör og aðstöðugjöld
eru áætlug kr. 18 millj. og hækka
á þessu ári um kr. 3 millj. í fyrra
hækkuðu gjöld þessi um kr. 4
rriillj. Hækkunin nemur því kr. 7 ,
millj. eða 65% á 2 árum. Sjálf-'
siæðismenn og Alþýðuflokksmenn
sem skipa meirihluta bæjarstjórn
arinnar gáfu báðir út hátíðlegar
yfirlýsingar fyrir kosningarnar s.l.
vor um lækkun útsvara. Nú hafa
efndirnar komið greinilega í ljós.
Jafnframt er áætlag að söluskatt-,
ur frá jöfnunarsjóði og landsút-
svör hækki um kr. 1,6 millj. og J
fasteignaskattur um 43%.
Tekjumar eru alls áætlaðar kr.
22,3 millj. á móti kr. 16,3 millj.
1962 eða 37% hækkun. Stjórn
kaupstaðarins er áætluð kr. 1,3
millj., en var kr. 66.0 þús. 1960.
Er hér um 100% hækkun að ræða
frá því núverandi meirihluti tók
við. Annað er eftjr þessu.
Minnihlutinn gerði að tillögu,
sinni að lækka kostnað við' stjóm
kaupstaðarins um 200 þús., annan
Framh. á bls. 15.
ÞoRÐUR GUÐNASON
— gjaldkeraefni.
Fékk árs fangelsi
FYRIR nokkrum dögum voru
kveðni upp í sakadómi Reykjavík-
ur af Þórði Björnssyni sakadómara
dómar í eftlrtöldum málum:
1. Máli ákæruvalds'ins gegn
Gísla Guð'nasyni, Kambsvegi 23 og
Einari Guðbjartssyni Ingibjörns-
FLOKKSÞINGINU FRESTAD
EINS og frá frá sagt í blaðinu í gær, hefur verið ákveðið að
fresta 13. flokksþingl' Framsóknarmanna fram yfir páska. Var
þessi ákvörðun tekln vegna influenzufaraldursins, sem nú geiisar
í Reykjavík.
Enn hefur ekk'i verlð gengið endanlega frá því, hvaða dag
flokksþingið' hefjist, en mestar líkur fyrir því, að það verðt um
helgina 20. apríl n. k.
syni, Efstasundi 6; báðum hér í
borg. Sannað var með játningu
þeirra og öðrum gögnum að að-
faranótt 4. apríl s.l. tóku þeir ó-
frjálsri hendi bifreiðalykil og pen
ingaveski frá sofandi manni á
heimili sínu hér í borginni. Gísli
ók bifreiðinni og var undir áhrif
um áfengis og hafði eigi ökuleyfi.
í peningaveskinu reyndust vera
um kr. 2.500,00 í reiðufé og 17
tékkar, samtals að fjárhæð rúm-
lega kr. 100.700,00. Ákærðu eyddu
reiðufénu og höfðu einnig falsað
framsal á 4 tékka og selt þá og
eytt andvirði þeirra, þegar komst
upp um brot þeirra um þremur
vikum síðar. Ákærði Gísli hafði
árið 1961 sætt 6 mánaða fangelsi
skilorðsbundið fyrir auðgunarbrot
og voru nú málin dæmd í einu
Fr'amh. á bls. 15.
IÐJU-
KJÖR
í DAG
f dag hefst stjórnarkosningin f
Iðju, félagi verksmiðjufólks, og
verður kosið í dag frá kl. 10—7
og á morgun frá kl. 10—10. Kosn-
ingin fer fram á skrjfstofu félags-
ins að Skipholti 19.
Þrír listar eru í kjöri og er listi
lýðræðissinnaðra vjnstri manna
C-listi.
Á fundi, sem Iðja hélt í fyrra-
dag, kom fram mikill stuðningur
við ræðumenn C-listans, er þar
; löluðu, en það voru þau Einar Ey-
stejnsson, Alda Þórðardóttir og
Hannes M. Jónsson. Var máli
þeirra mjög vel tekið.
Stuðningsfólk C-listans er beðið að
hafa samband við skrifstofu list-
ans í Tjarnargötu 26, símar 15564,
12942, 19613 og 16066.
Togari með
tátinn mann
MB—Reykjvík, 1. marz.
Þýzki togarinn Albertros kom
inn hingað til Reykjavíkur f gær-
dag um fimmleytið með látinn
mann. Var það fyrsti vélstjóri
skipsins, sem látizt hafði af hjarta
bilun er skipið var að veiðum hér
við land. Skipið fór aftur á veið-
ar í dag.
í dag kom svo hingað annar
þýzkur togari, Christian Homann,
en skrúfa hans hafði laskazt í ís
við Grænland. Mun togarinn fara
hér í slipp.
AKRANES
FRAMSÓKNARFÉLAG Akraness
heldur skemmtisamkomu í félags-
heimili sínu, Sunnubraut 21, n. k.
sunnudag kl. 8,30. Splluð verður
framsóknarvist og sýndar kvik-
myndir. Aðgöngumiðasala verður
vig innganginn.
Oánægðir meS tillögurnar
Aðalfundur haldinn í Félagi
ílugmálastarfsmanna ríkisins 26.
febr. 1963, lýsjr yfir óánægju sinni
með framkomnar tillögur samn-
inganefndar ríkisstjórnarinnar í
yfirstandandi samningum um
kaup og kjör ríkisstarfsmanna,
þar sem þær ganga að dómi félags
ins of skammt til móts við tillög
ur kjararáðs og vjrka sem bein
kauplækkun á um 50% félags-
manna. miðað við núverandi föst
laun.
Fundurinn vill einnig benda á
úð störf flugmálastarfsmanna, þau
er að fluginu lúta, eru í flestum til
tellum vandasöm tæknistörf, sem
krefjast sérhæfni og nákvæmni.
Virðjst óeðlílegt að meta slík störf
til jafns við þau, sem hver og einn
getur gengið inn í.
Fundurinn fordæmir árásir dag
blaða á formann BSRB og telur
að kjaramálum starfsmana ríkisins
sé betur borgið í einjngu samtak-
anna en að verða bitbein milli
stjórnmálaflokka.
MYND ÞESSA tók Ásmundur Guðjónsson fyrir Tímann, er varðsklpið Albert og Lóðslnn voru að draga þýzka togarann Trave inn á Vestmannaeyja-
höfn i fyrradag. Sjópróf í máli togarans hafa staðið yfir í allan dag og aflanum verið skipað upp. Réttarböldum er ekki lokið.
KLUBBFUNDUR
KLÚBBFUNDUR verður hald-
dnn í félagslieimilinu, Tiarnargötu
26, mánudaginn 4. marz kl. 8,30.
LISTI LÝÐRÆÐISSINNAÐRA VINSTRI MANNA 1 IÐJU ER: C-L JSl n