Tíminn - 22.03.1963, Page 5
RITSTJORI HALLUR SIMONARSON
Frá aðalfundi Glímufélagsins Ármanns
UmlO
anm
Aðalfundur Glímufélagsins
Ármanns var haldinn 18. des.
1962. FormaSur félagsins,
Jens Guðbjörnsson, setti fund
inn og bauð fundarmenn vel-
lcomna. í upphafi fundarins
minntist form. látinna félaga
á starfsárinu og rakti störf
þeirra í þágu félagsins, en fé-
lagar þessir voru Björn Rögn- \
valdsson, Ólafur Ólafsson og j
Erla Larsdóttir. Fundarmenn;
heiðruðu minningu þeirra j
með því að rísa úr sætum.
Fundarstjóri var kjörinn Gunn-
laugur Briem, en fundarritari
Guðbrandur Guðjónsson. Starf-
skýrsla félagsins lá frammi fjöl-
rituð og einnig reikningar félags-
ins. Reikningar báru með sér, að
síðan félaginu var skipt niður í
sjálfstæðar deildir, hefur fjárhag-
ur félagsins stórlega batnað. Starf
Það er mikill hugur kominn
í knattspyrnumenn okkar, enda
nálgast sá tími óðum, að þeir
skrýðist knattspyrnubúning-
um og fari að heyja baráttu ;
sín á milli. Æfingar úti eru
löngu hafnar — þeir sem fóru
fyrst af stað byrjuðu um miðj-
an janúar — og er það algeng
sjón núorðið, að sjá fáklædda
iknattspyrnumenn sprikla um
alla velli í góða veðrinu —
sumir telja þá sjón reyndar
fyrsta vorboðann.
Myndina að ofan tók Sveinn
Þormóðsson á Framvellinum
um síðustu helgi, — en þá stóð
yfir æfing hjá Fram — og sýn-
ir hún tvo Framara kljást um
boltann, Baldur Scheving, til
hægri, og Amór Sveinsson. —
Það er greinilega komið keppn
isskap í menn.
Enska
knattspyrnan
í gær fóru fram nokkrir leikir
i ensku knattspyrnunni. Helztu úr-
stit urðu þessi:
1. deild:
Blackpool—Burley
I.iverpool—WBA
Wolves—Bolton
0:0
2:2
4:0
knattleik í dag
í dag hefst í íþróttahúsi Há-|
skólans hið árlega körfulcnatt-
leiksmót skólanna, sem stjórn
ÍFRN gengst fyrir. — Mótið
telst jafnan til mikilla við-
burða í íþróttalífi skólanema,
enda er körfuknattleikur sú
íþrótt, sem nýtur mestra vin-
sælda meðal þeirra — og er
í rauninni eina íþróttin, sem
hentar vel aðstæðum í leik-
fimissölum hérlendis. Að
venju er þátttaka mikil í mót-
inu og senda um 14 skólar lið
til þátttöku að þessu sinni —
sumir tvö lið, eða fleiri — og
eru keppendur því um tvö
hundruð talsins.
— Varla er hægt, að segja, að
í þessum stóra hóp fyrirfinnist
oingöngu nýliðar — óhætt er að
fullyrða, að keppendur séu yfir
höfuð félagsbundnir — og sumir
ekki af verri endanum, en margir
Framhald á 13. síðu
skýrslan bar það hins vegar með
sér að' mikið og ötult starf hefur
verið hjá félaginu og margir
íþróttamenn félagsins hafa staðið
í fremstu röð íþróttamanna hér á
landinu. Iljá félaginu æfa nú 972
félagar og mun það vera lang
hæsta tala íélaga er æfa hjá einu
félagi.
Fastakennarar félagsins voru
15 talsins, en að auki voru margir
af beztu íþróttamönnum félagsins
þeim til aðstoðar. Á vegum félags
íns voru haldnar 21 sýning á árinu
og tókust þær allar vel, og voru
félaginu til sóma. Glímudeild Ár-
manns sýndi 12 sinnum á árinu,
bæði glímu og hráskinnaleik. Hrá-
skinnaleikur er nýendurvakinn
hér á iandi og mun hann hvergi
vera iðkaður nema hjá Ármanni,
leikur þessi var mikið iðkaður til
forna.
Hin unga Júdó-deild félagsins
hefur sýnt á nokkrum stöðum og
ávallt við mikla hrifningu, enda
er íþrótt þessi fögur og hrein og
krefst mikiilar leikni.
Sunddeild Ármanns, hefur tek-
ið þátt í öllum mótum hér í Reykja
vík og nágrenni og sundknattleiks
flokkur deildarinar, hefur verið
íslandsmeistari óslitið síðan 1941
og Reykjavíkurmeistarar hafa þeir
verið í tugi ára. Auk þess hefur
fiokkurinn unnið öll aukamót í
sundknattleik, sem haldin hafa ver
ið.
Á vegum Ármanns koma hingað
til landsins í vor handknattleiks-
flokkur frá Hellas í Svíþjóð og er
það einn þátturinn í tilefni 75
ára afmælis' félagsins, Handknatt-
leiksflokkar félagsins hafa tekið
þátt í öllum handknattleiksmótum
hér í Reykjavík, en auk þess far-
ið nokkrar ferðir til keppni út á
land.
Skíðamenn félagsins hafa staðið
rnjög framarlega í íþrótt sinni og
hefur félagslíf hjá deildinni stað-
Framhald á 13. síðu.
V erður lsland með?
2. deild:
Berby—Plymouth 3:2
Southampton—Huddersf. 3:1
Simderland—Norwich 7:1
í skozku bikarkeppninni urðu úr
slit þessi:
Aberdeen—Dunfermline 4:0
Rangers—East Stirling 7:2
Queen S.—Hamilton 3:0
Athyglisverðast af þessum úr-
siitum er hinn mikli sigur Sunder-
isnd gegn Norwich — en undan-
farið hefur Norwich unnið hvern
stórsigurinn á fætur öðrum —
komið í 6. umferð í bikarnum og
unnið Stoke 6:0 og Newcastle 5:0.
„Hvad tænker Island pá“ —
Já, hvað er ísland eiginlega að
hugsa — hefur þátttaka íslands
í heimsmeistarakeppninni í 11
manna handknattleik, sem
fram fer í Sviss á næsta sumri,
verið ákveðin? — Að minnsta
kosti heldur danska blaðið
„EKSTRABLADED" því fram
í grein, sem birtist í blaðinu
nýlega og skýrir jafnframt frá
hvaða þióðir verða með í keppn
inni.
Blaðið skýrir frá, að í allt hafi
3 lönd tilkynnt þátttöku í
keppnina — að sjálfsögðu
mátti búast við löndum eins og
Austur og Vestur-Þýzkalandi,
Sviss. Hollandi og Austurríki
meðai þátttakenda en þau hafa
stundað þessa íþrótt í langan
tíma, enda verða þau 811 með
— en hitt vekur furðu, heldur
blaðið áfram að þrjú lönd til-
kynna nú þátttöku, sem aldrei
hafa verið með í keppninni áð-
ur — og þessi lönd eru ísland.
Pólland og Bandaríkin.
Framkvæmdastjórn keppninn
ar raðaði þessum 8 löndum í
tvo riðla — a og b riðla og eru
fjögur lönd í hvorum. í a riðl-
inum eru þessi lönd: V-Þýzka-
Iand, Sviss, Holland og Banda
ríkin. — í b riðlinum eru hins
vegar A-Þýzkaland, Pólland,
Austurríki og íslancl.
Þessari niðurröðun er hins
vegar tækninefnd keppninnar
ekki ánægð með og hefur gert
vad fœnker
land
’ærkdigc aninehlelser lil VM i markiiámlito
tillögu um að Austur- og Vest-
ur-Þýzkaland verði saman í
riðli, svo útilokað sé, að þessi
lönd mætist í úrslitum, en það
er þó jafnframt telcið fram, að
þátttaka íslands geti sett strik
í reikninginn.
Þannig skýrir Ekstrablaðið i
stuttu máli frá hinni fyrirhug-
uðu heimsmeistarakeppni í
Sviss og setur sem fyrirsögn:
„Hvad tænker Island pa“.
Ekki er okkur kunnugt hvort
nokkur fótur er fyrir þessari
frétt í hinu danska blaði, en
þess má geta, að hinn svokail-
aði 11 manna handknattleikur
hefur lítið verið stundaður hér
á íslandi — og alls ekkert síð
ari árin. þannig að sennilegt
er, að fréttin sé byggð á mis
skilningi.
T í M IN N, föstudaginn 22. marz 1963 —
5