Tíminn - 20.04.1963, Blaðsíða 16
HEIMIUSAÐSTOB
VIÐ ALDRAÐ FÓLK
í borgarstjórn Reykjavíkur í
gær voru afgreiddar og samþykkt-
ar tillögur þær, sem frestað var
á næsrtsíðasta bæjarstjórnarfundi
um aðstoð við aidrag fólk til þess
að geta búið sem lengst í heima-
húsum. Voru samþykktar nokkrar
breytingartillögur frá Einari
Ágústssyni við ályktunina.
Borgarráð lagði þessa tillögu fyr
ir næstsíðasta fund borgarstjóm-
ar, en henni var þá frestað að
tillögu borgarfulltrúa Framsóknar
flokksins. Tillagan er um það, að
borgarstjórn beini því til ríkis-
stjómarinnar og Tryggingarstofn-
unar ríkisins að stuðla að því, að
aldrað fólk geti sem lengst búið
í heimahúsum. Einnig skuli borg-
arstjóm reyna að leysa húsnæðis-
mál aldraðs fólks með sérstökum
aðgerðum og byggja íbúðir, sem
leigðar séu öldruðu fólki eða seld-
ar með sérstökum kjörum. Þá er
og gert ráð fyrir, að skrifstofa fé-
lags- og framfærslumála annist
Merkjasala
Ijðsmæðra
Ljósmæðraféiag Reykjavíkur hef
nr hinn árlega merkjasöludag á
morgun, sunnudag, til ágóða fyrir
Hvildarheiniilið í Hveragerði, og
einnig verður varið því sem hægt
er til að varðveita hús Þorhjargar
Sveinsdóttur, Ijósmóður, sem stend
nr við Skólavörðustíg.
Þorbjörg Sveinsdóttir var mjög
meridleg kona á sinni tíð, ekki að-
eins sem mikil og góð ljósmóðir,
Framhald á 15. síðu.
htimilishjálp fyrir aldrað fólk og
sérstök ráðgefandi nefnd fjalli
Framhald á 15. síðu.
íbúðarhúslð á Stóra-Vatnsskarði, eins og það leit út fyrlr brunann. Nú eru þar rústir einar.
Fólkið komst naumlega út
á náttfötum einum klæða
GÓ-Sauðárkróki, 19. apríl
Bærinn á Stóra-Vatnsskarði brann
til kaldra kola í nótt og varð engu
bjargað af innanstokksmunum. —
Fólk slapp naumlega út á náttföt-
um og skarst Benedikt Benedikts-
son illa á höndum, er hann braut
glugga til að komast út.
Þáð var á fjórða tímanum í nótt,
sem eldsins varð vart. Er talið að
kviknað hafi í út frá kolakyntri
miðstöð. Húsið á Stóra-Vatnsskarði
er ein hæð og ris. Hluti hússins var
gamalt timburhús en við það hafði
síðar verið byggt steinsteypt hús.
Niðri svaf Kristín Pétursdóttir, en
uppi fjórir karlmenn, bræðurnir
Benedikt Pctursson og Árni Árna-
son, Benedikt Benediktsson Péturs
sonar og gestkomandi maður, Ólaf
ur Pétursson frá Álftagerði.
Húsið varð alelda á svipstundu
og komst fólkið nauðuglega út á
náttfötunum einum klæða og varð
engu bjargað af innanstokksmun-
um. Benedikt yngri skarst illa á
handlegg við að brjótast út um
glugga og hjálpa hinu fólkinu út.
Var strax gengið í það að bjarga
K.úm og hænsnum út úr húsum,
ei voru áföst við íbúðarhúsið.
Svo vel vildi til, að bíl bar að
austan úr Húnavatnssýslu í þann
mund er fólkið stóð á hlaðinu og
tók bílstjórinn Benedikt yngri þeg
ar upp í bílinn og ók með hann
rakleitt út á Sauðárkrók, en hann
hafði þá misst mikið blóð. Liggur j
Benedikt þar enn. Hitt fólkið fór j
að Álftagerði í jeppa, fáklætt sem
fyrr segir, og þangað sótti læknir j
þá Benedikt eldri og Áma í dag
og liggja þeir nú einnig á sjúkra
húsinu á Sauðárkróki, enda roskn
ir menn og hedsulitlir.
Slökkviliðinu hér á Sauðárkróki
var einhverra hluta vegna ekki
gert aðvart um eldsvoðann fyrr en
klukkan hálf níu í morgun og fór
það þá á staðinn og slökkti í rúst
unum.
ÞVERÁRVIRKJUN STÆKKUD
MB-Reykjavik, 18. apríl
Samkvænit upplýsingum Asgeirs
Sæmundssonar á Raforkumálaskrif
stofunni er nú verið að vinna að
verulegri aukningu á Þverárvirkj-
un við Hóltnavík. Verður rafstöð-
in þar stækkuð úr 460 kw í um
1150 og fyrii hendi eru möguleik-
ar til meiri stækkunar.
Framkvæmdir við stækkunina
hófust um mánaðamótin. Verður
ný vélasamstæða, rúmlega 1150
kw sett þarna niður, en gamla sam
Trúbadúrinn 17. söng-
leikur Þjóðleikhússins
GB-Reykjavík, 19. apríl.
Sautjándi söngleikurinn, sem
Þjóðleíkhúslð’ flytur og síðasta
verkefnlð á leikárlnu, er Trúba
dúrinn eftir Verdi, og fer frum
sýning fram 11. eða 12. maí.
Óperan verður sungiin á ítölsku,
en söngvarar alHr islenzkir
nema aðalsöngkonan kemur frá
óperunni í Stokkhólmi. Leik-
stjórinn er eirrnig þaðan og kom
til landsins í fyrirkvöld, Lars
Runsten. Hljómsveitarstjóni
verður Gerhard Sehebeler frá
Danmörku og kemur hann 28.
apríl.
Hlutverkaskipting verður sem
hér segir: Luna greifi (Guð-
mundur Jónsson); Leonora
(Ingeborg Kjellgren); Azucena,
sigaunakona (Sigurveig Hjalte-
sted); Mancico, trúbadúrinn
(Guðmundur Guðjónsson); —
Lars Runsten.
Ferrando (Jón Sigurbjörnsson)
og Ines (Svala Nielsen).
Þessi ópera var fyrst flutt í
Róm árið 1853 og síðan' verið
í tölu vinsælustu ópera hjá flest
um óperuhúsum heims. Þetta er
þriðja óperan eftir Verdi, sem
hér er flutt, hinar voru Rigo-
letto og La traviata. í haust
verði liðin 150 ár frá fæðingu
tónskáldsins. Sem áður segir
er þetta 17. söngleikurinn, sem
Þjóðleikhúsið flytur; áður flutt
ar átta óperur og átta óperett-
ur, en nokkrir útlendir óperu-
flokkar hafa komið í heimsókn
og flutt óperur hér.
Lars Runsten er einn af
helztu leikstjórum við Stokk-
hólmsóperuna, þótt ungur sé.
Ekki hefur hann áður sett
Trúbadorinn á svið, en í haust
kveðst hann eiga að stjórna
Aida á afmælissýningum tón-
skáldsins. Runsten hefur sett
nokkrar óperur á svið í Kaup-
Framhald á bls 15
stæðan látin vera kyrr, þannig að
með meira vatnsmagni verður unnt
að framleiða þarna enn meira raf-
magn siðar meir. Gamla virkjun-
ir. verður 10 ára nú í haust, en
áætlað er að sú nýja verði komin
í gagnið fyrir áramótin næstu.
Ekki mun orkuveitusvæðið
stækka að mun á næstunni, þó
munu einhverjir bæir tengdir að
sunnanverðu. Nú nær það norð-
ur í Drangsnes, suður í Króks-
fiarðarnes og vestur í Reykhóla.
Ekki mun að sinni veitt meira
vatni til virkjunarinnar, en áætl-
að er að gera það síðar meir, m.a.
með því að veita Húsadalsá í
Þverá og jafnframt að hækka stífl-
una, svo unnt sé að miðla vatni
meir. Kemur þá gamla samstæðan
í góðar þarfir.
Samkvæmt upplýsingum Ásgeirs
hefur ekki verið rafmagnsskortur
þama, en hins vegar staðið í járn-
um undanfarið, þar eð notkun hef-
ur farið mjög vaxandi s.l. tvö ár.
F. í. SKIPULEGGUR
101FERÐ í SUMAR
Ferðafélag Islands hefur gefið
út áætlun sína fyrir vorið og silm
a’ið 1963. Alls eru áætlaðar 101
íeið, og skiptast þær þannig: 1
fimm daga páskaferð (þegar af-
stað'in). 3 tveggja og hálfs dags
ferðir um hvítasunnuna, 18 fjög-
urra til tólf daga sumarleyfisferð-
ir. 37 fastar helgarferðir, 5 tveggja
og hálfs dags ferðir um verzlunar-
inannahelgina, og 37 aðrar helgar-
ferðir. AuK þess verða alls sex
skíðanámskeið í Kerlingarfjöllum.
E'ns og að undanförnu verður
fólki gefinn kostur á ag dveljast
i sæluhúsum félagsins milli helga,
en þau eru nú orðin 8. Vegna
rúmleysis er ekki unnt að nefna
alla þá staði, sem Ferðafélagið
Framhald á 15. síðu.
Ærðu eldhúsdagsum
ræðurnur hundinn ?
HRT-Haganesvík, 19. apríl
Nokkrir bændur komu hér í
verzlun í gærkvöldi í smá erinda-
gjörðum. Einn þeirra þurfti að
skreppa inn á lagerinn og fylgdi
h:nn ferfætti förunautur hans hon
um fast á eítir. Þar dvaldist hund
urinn eitthvað lerigur en efni
3'tóðu til og varð enginn hans var,
begar verzlunin var yfirgefin. Um
nóttina komst hundurinn svo fram
í verzlunina og hefur látið ófrið-
iega mjög. Það sem fyrst varg á
vegi hans urðu útvarpstæki, sem
voru útstillt i hillu, og ruddi hund
urinn þeim niður á gólf. Verið
getur, að hundurinn hafi verið
að hlusta a stjórnmálaumræðurn-
ar um kvöldig og annað hvort vilj
að heyra meira, eða þá viljað ná
í eitthvað léttara úr viðtækinu og
þá væntanlega Luxemhurg. Þegar
það hefur ekki tekizt, hefur runn-
ið eitthvert æði á hundinn og hann
farig í loftköstum um hillur verzl-
unarinnar. Tók hann til að brjóta
og ryðja ýmsu, er þar var geymi,
um koll. Eftir slíkt erfiði sr eðli-
iegt, að hundurinn gerðis'. svaeff-
ur mjög og var því lán fyrir ha.'m.
að einhver höfðingi hsfði skííið
eftir kjötpakka fyrir framan bú'-
arborðið og lá beint fyrir, *5
Framhald á 15. síðu.