Tíminn - 30.04.1963, Blaðsíða 6
Kjartan Sæmimdsson
kaupfélagsstjóri
F. 6. aprfl 1911
D. 24. aprfl 1963
í aprilmánuði hefur að þessu
sinni orðið mikill mannskaði með-
»1 vorrar fáenennu þjóðar, þar
sem svo margir ágætir þegnar á
bezta aldri hafa látizt „á snöggu
augabragði“. Af þessum sökum
„reiflcar harmur í húsum og hryggð
á þjóðbrautum“.
Kjartan Sæmundsson, kaupfé-
lagsstjóri Kaupfélags Reykjavíkur
og nágrennis, kom heim úr nokk-
urra daga ferðalagi til útlanda,
miSlvikudagsmorgu'nilnn síðasta
vetrardag. Hann virtist heilbrigð-
ur og glaður og gekk þegar að
ýmsum störfum að venjulegum
hætti. Síðdegis sama dag, einni
stundu áður en hann ætlaði að
sitja fund ásamt stjóm kaupfélags
ins, var hann á leið til skrifstofu
sinnar, hné hann niður og var
iþegar örendur.
Kjartan fæddist 6. aprll 1911 í
Ófafsfirði, eonur Sæmundar
Steinssonar og konu hans Magneu
Magnúsdóttur. Þau vom bæði ætt-
uð úr Ólafsfirði.
Árið 1920 fluttust foreldrar
hans ásamt bömum sínum tíl Ak-
ureyrar.
Kjartan hóf störf hjá Kaupfé-
lagi Eyfirðinga 16 ára gamall, 1.
október 1927 og varð síðar deild-
arstj'óri búsáhaldadeildar kaup-
félagsins til 1942. Þá var hamj
lánaður til skrifstofu Sambandsins
í New York. Var búizt við að hann
yrði þar nokkra mánuði, en það
urðu fjögur ár.
í New York vann Kjartan eink-
um að innkaupum á búsáhöldum
og skyldum vörum fyrir Samband-
ig og íslenzku innkaupastofnun-
ina, sem þeir stjórnuðu Helgi Þor
steinsson framkvæmdastjóri og
Ólafur Johnsen konsull.
Hann kværitist 29. september
1947 Ástu Bjarnadóttur frá Húsa-
vík, Benediktssonar.
Fyrsta janúar 1947 varð hann
deildarstjóri í búsáhaldadeild inn-
flutningsdeildar Sambandsins í
Reykjavík. Var um skeið fulltrúi
framkvæmdastjóra deildarinnar,
Helga Þors>teinssonar og verzlun-
arstjóri fyrir S.Í.S. Austurstræti.
Hann varð kaupfélagsstjóri Kaup
félags Reykjavíkur og nágrennis
1. október 1957 og sama dag átti
hann þrjátíu ára starfsafmæli í
þjónustu samvinnufélaganna.
Á starfsárunum hjá Kaupfélagi
Eyfirðingj, varð Kjartan mjög
virasæll af dugnaði og mannkost-
um, bæði meðal félagsmanna og
starfsfélaga. Þessar vinsældir hafa
fylgt honum síðan í öllum hans
störfum.
Þau rúmlega 5Ms ár, sem Kjart-
an hefur stjórnað Kaupfélagi
Reykjavíkur og nágrennis, hefur
verið hin ágætasta samvinna milli
hans og félagsstjórnarinnar og
starfsmannanna. Kjartan hefur á
þessum árum unnið geysimikið
verk félaginu til hagsbóta og upp-
byggingar fyrir framtíðina. Hann
fylgdist mjög vel með öllum nýj-
ungum á verzlunarsviðinu og vann
af eldlegum áhuga og bjartsýni
að því að bæta verzlunaraðstöðu
félagsins í nútíð og framtíð, svo
að félagið gæti orðið félagsmönn-
um sem styrkust stoð í lífsbarátt-
unni. Árangur starfsins hefur
orðið vonum meiri, þegar tekið er
tillit til margs konar erfiðleika,
sem verzlunin hefur búið við um
árabil og engum voru ljósari en
Kjartani heitnum.
gerð, hugarfar og framkomu í
samskiptum við samferðamenn.
Kjartan v«r Ijós yfirlitum og
vörpulegur, ljúfur í lund, sam-
vmnuþýður og ágætur félagi og
vinur allra sinna samstarfsmanma.
Með vaxandi ábyrgðarstörfum
nau* hann vaxandi trausts og vin-
sælda allra þeirra, er hann hafði
viðskipti við. Það er því mikið
áfall fyrir Kaupfélag Reykjavíkur
og nágrennis og samvinnufélögin
í heild, að missa svo óvænt þenn-
a-n ágæta dreng, sem var tvímæla
laust einn af beztu starfsmönnum
samvinnufélaggnna í landinu.
Kjartan Sæmundsson verður
| jarðsunginn frá Dómkirkjunni í
dag. Við öll, sem þekktum hann
og höfum starfað með honum
lengur eða skemur, kveðjum hann
með sárum söknuði. Þó er ríkust
í hugum okkar innileg samúð með
eiginkonunni, börnunum fimm og
; aldurhnignum föður Kjartans,
sem dvalið hefur í skjóli sonar
síns og tengdadóttur allan þeirra
búskap. Öll eru þau harmi lostin
yfir missi ástkærs óg umhyggju-
ríks eiginmanns, föður og sonar.
Þann missi bætir enginn mann-
Allá sína starfsævi vann Kjart-jlegur máttur. Einnig systkinum
an hjá samvinnufélögunum. Þau ^ Kjartans og öllum öðrum vanda-
og starfið hjá þeim voru hans mönnum vottum við ‘ innilega
skóli, bæði á kreppu- og velgengn j samúð.
isárum, mótuðu áhuga hans, skap- Hallgrímur Sigtryggsson.
Oöf Jannim
Áttræð í dag:
Þegar mér var sagt nýlega, að
frú Guðríður Guttormsdóttir frá
Stöð í Stöðvarfirði yrði áttræð
30. apríl í ár, trúði ég því varla,
því að ég hafði hitt hana ný-
lega, og sýndist hún þá svo em
og ungleg. En kirkjubókinni verð-
ur að trúa, ekki hvað sízt þegar
um eigin börn prestanna er að
ræða. En Guðríður er eitt af börn-
um þeirra ágætu prestshjóna, séra
Guttorms Vigfússonar í Stöð og
Þórthildar Sigurðardóttur konu
hans. Þar hlaut frú Guðríður hið
bezta uppeldi í hópi margra og
myndarlegra systkina, og þar fékk
hún það vegarnesti, sem vel hefur
dugað á langri og athafnasamri
sevi. Ekki var um skólagöngu fyrir
stúlkur að ræða á þeim ámm, en
séra Guttormur var ágætur kenn-
ari, sem kunnugt er, og kenndi
mörgum piltum undir skóla og
börnum sínum kenndi hann að
sjálfsögðu eftir því, sem tími
vannst til Frú Þórhildur var fyrir
myndar húsmóðir, bæði fjölhæf
til verka og afkastamikil, svo að
ungar stúlkur, sem hjá henni
dvöldu, hvort sem það voru henn-
ar eigin dætur eða aðrar, lærðu
þar vel þau fræði, sem konum er
nauðsynlegt að kunna. Allar dæt-
ur frú Þórhildar urðu líka fyrir-
myndarhúsmæður. Annars var
það ekki ætlun mín að segja hér
ævisögu frú Guðríðar. Hún hefur
sjálf sagt lesendum þessa blaðs frá
nokkmm þáttum am sinnar, í
skemmtilegu blaðaviðtali, sem
birtist í Lesbók Tímans 19. ágúst
s.l. Þá grein munu margir hafa
lesið sér tíl mikillar ánægju. Og
í henni felst góð mannlýsing. Frá-
sögnin sýnir ágætar gáfur frú
Guðríðar, glögga eftirtekt og frá
bært minni. Það er enginn meðal-
maöur, sem getur sagt jafnvel frá
74 ára gömlum atburðum, ems 05
■frú Guðríður gerir í viötalinu. Þaö
minnti mig á föður hennar sr.
Guttorm, þegar hann var að segja
frá ýmsu, sem á dagana haíði
drifið. Ég var svo heppinn, að
dvelja ,í Stöð nokkur ár, á æsku-
árum mínum og kymitist þá þess-
ari ágætu fjölskyldu meðal ann-
Framhald á 13. siðu.
Jörð til sölu
Jörðin Kolbeinsstaðir í Koibeinsstaðahrepp fæst til
kaups og ábúðar í næstu fardögum 800—900 hesta
tún, hús sæmileg, mjög vel 1 sveit sett. Áhöfn
getur fylgt. Upplýsingar á staðnum og í síma
37200. Kauptilboð óskast fyrir 12. maí 1963 til
eiganda jarðarmnar Sigurrósai Guðmundsdóttur.
Réttur áskilinn til að taka hvaða tilboði sem er eða
hafna öllum.
Kópavogsbúar
sem óska eftir garðlöndum í sumar, eru beðnir
að hnúa sér til garðyrkjuráðunautar Kópavogskaup
staðar, hr. Hermanns Lundhólms. Hann veitir bæj-
arbúum enn fremur leiðbeiningar um garðrækt.
Viðtalstími kl. 13—14 á mánudögum, þriðjudög- •
um og miðvikudögum í Hlíðargarðinum.
Girðingarefni - Grasfræ
Norsku túngirðinganetin eru komin.
Finnsku girðingarstaurarnir væntanlegir á næst-
unni.
Grasfræblandanir og einstakar tegundir fyrir-
liggjandi.
MJÓLKURFÉLAG REYKJAVÍKUR
Útboð
Tilboð óskast í að framlengja hafnargarðana í
Ytri-Njarðvík. Uppdrættir go útboðslýsing fæst á
Vita- og hafnarmálaskrifstofunm, gegn þúsund kr.
skilatryggingu.
Vita- og hafnarmálastjórinn
Útboð
Tilboð óskast í að byggja 22 sumarhús fyrir ASÍ
í Hveragerði.
Tilboð óskast í þrennu lagi
1. Jarðvinnu
2. Steypuvinnu
3. Trésmíði
Uppdrátta og skilmála má vitja á skrifstofu ASÍ
Laugavegi 18, gegn 2000,00 kr. skilatryggingu.
Alþýðusamband fslands
Stúlkur óskast
Duglegar og ábyggilegar stúlkur óskast til
afgreiðslustarfa í veitingasal og sælgætisbúð.
Enn í'remur stúlkur til eldhússtarfa.
Upplýsmgar í
Hótel Tryggvaskála, Selfossi.
TÍMINN, þniðjudaginn 30. aprfl 1963 —
b