Tíminn - 03.05.1963, Side 3
7-16 ÁRA DRENGIR
SAMAN / BREIDUVlK
Drengir á aldrinum 7—16
ára hafa að undanfömu verið
hafðir saman á vistheimilinu í
Breiðuvík, en sett aldurstak-
mörk míðast við 10—16 ára.
Flestum má ljóst vera það
gerræði ag hafa 10 ára börn
saman við drengi, sem hafa
gerzt brotlegir um fermingu,
eða standa á mörkunum að ná
lögaldri sakamanna, en fáa
mun hafa rennt grun í, að 7
ára drengir væru settir undir
sama þak. Ástæðan er blátt
áfram sú, að drengirnir hafa
verið teknir af vandræðaheim-
ilum og engin önnur stofnun,
sem veitir þeim viðtöku, fyrir
finnst á þessu landi.
Þetta kom fram á fundi, sem
Lionsklúbburinn Þór boðaði
með fréttamönnum í dag. Ætl
un klúbbsins er að halda
skemmtun í Sjálfstæðishúsinu
n.k. laugardag og sunnudag kl.
3—5 til ágóða fyrir heimilig í
Breiðuvík, en þar er margt ó-
gert. Klúbburinn hélt í fyrra
skemmtun til ágóða fyrir Bláa
bandið og safnaði þá yfir 40
þúsund krónum. Sú skemmtun
fór fram í Háskólabíói og þótti
takast vel.
Forráðamenn klúbbsins
minntu á, að árig 1947 voru
samþykkt lög á Alþingi um tvö
vistheimili fyrir unglinga, ann
að fyrir drengi, hitt fyrir telp-
ur. Heimilið á Breiðuvík tók til
starfa 1952, cn þar hafa 15 ára
drengir aðsetur. Heimili fyrir
telpur er ekki komið á laggirn
ar og gerir það að líkindum
ekki fyrir atbeina þess opinbera
eins og fjárveitingum er hagað
nú. Hins vegar er milljónum
króna ráðstafað til hegningar-
húsa og vistheimila fullorðinna,
sem jafnan eru fullsetin, í stað
þess að reyna að koma í veg
fyrir, að unglingarnir taki vísa
stefnu þar inn.
Þeir sem hafa valizt til að
styrkja fjársöfnun klúbbsins
meg því ag koma fram á
skemmtuninni í Sjálfstæðishús-
inu, eru þessir:
Helgi Sæmundsson, formað-
ur Menntamáláráðs, sem flyt-
ur ávarp. Þá verður tízkusýn-
ing, dömur og herrar; fatnaður
sýndur frá Guðrúnarbúð, Klapp
arstíg og Herraverzlun P.Ó.
Nemendur úr Verzlunarskóla ís
lands sýna. H.Á.S. kvartettinn
undif stjórn Haraldar Á. Sig-
urðssonar; Friðfinnur Ólafsson
rabbar; Brynjólfur Jóhannesson
fer með gamanvísur og H.Á.S.
endurtekur söng sinn.
Mdtmælaályktun
. maí-fundar
FYRIR 40 ÁRUM var auri og
grjóti varpað að fyrstu kröfu-
•göngu verkalýðsins í Reykjavík.
— Þar var íhaldið að verki.
Fyrir 30 árum eða svo, skar
óaldarlýður íhaldsins niður fána
samtakanna og torveldaði fram-
kvæmd hátíðahalda verklýðsins
1*. maí á ýmsan hátt — oftast úr
launsátri.
En þar kom, að ríkisvaldið á ís-
landi viðurkenndi til fulls, að
verkalýðurinn og samtök hans
ættu sjálf að ráða framkvæmd
hátícSa'halda hins alþjóðlega há-
tíða og barattudags hins vinn-
andi fólks. Árin liðu: — Öll sæmi-
leg blöð tóku að minnast dagsins.
Ríkisútvarpið var helgað deginum.
Dagskráin bar hátiða- og baráttu-
söngva verkalýðsins til hlustenda
strax að morgni 1. maí. — Sam-
felld dagskrá samtakanna var
Kínversku skipi sökkt
í fyrstu feri tii Japan
NTB-Tokyo, 2. maí I skipið Yue Jin sökk á dular-j skipsins varir, og sendar voru út
Japanska útvarpsstöðin fui|an hátt í aær loftmyndir af skipupum. Japanska
NHK sagði í dag, að tvö her- ‘ sjóferðaeftirlitíð tilkynnti síðar,
i • u r* , jNHK sagði í sjónvarpsdagskra I að hvorki japanska strandgæzlan
skip nefou sest a peim slooum, ag fréttamenn stöðvarinnar, sem J ré her Bandaríkjanna í Japan
þar sem kínverska flutninga-j flugu yfir staðinn, hefðu orðið I hefði orðig var við skip á þeim
Frakkar flýta heim-
flutningi frá Álsír
NTB—Algeirsborg 2. maí
Frakkland hefur fallizt á að
flýta brottflutningi herliðs síns
frá Alsír um meira en hálft ár eð'a
frá 1. júlí 1965 til síðari hluta
árs 1964, segir í opinbemi tHkynn
ingu, sem birt var í Algeirsborg
í dag.
í tilkynningunni segir að her-
sveitirnar vig Constantine verði
fluttar heim enn þá fyrr, eða í
árslok 1963. Hins vegar hefur enn
ekki verið endanlega ákveðið,
hvenær Frakkar fara á brott
með lið sitt frá kjarnorkustöðvun
um í Sahara. Mouloud Belahoune,
upplýsingamálaráðherra Alsír
sagði á blaðamannafundi í dag,
Hví var blaðamanna-
þátturinn styttur?
Hr. ritstjóri.
Magnús vinur minn Bjarnfreðs-
son harmar það í greinarkorni hér
í blaðinu í fyrradag að úr síð’asta
blaðamannaþætti í útvarpssal hafi
ég klippt nokkrar spurningar, sem
hann bar fram við skipaskoðunar-
sijóra. Leggur hann þetta að
jöfnu við ritskoðun og telur að
„óþægilegustu“ spurningarnar
hafi fallið fyrir skærunum.
í því tilefni langar mig til þess
<?ð geta þess, að áður en upptaka
þáttarins fór fram beindi ég þeim
tilmælum til Magnúsar og þeirra
annarra blaðamanna, sem að þætt-
iuum stóðu, ag þeir reyndu að tak
marka þáttinn við 35—40 mínút-
ur. Ella væri óhjákvæmilegt að
stytta hann, þar sem þættinum
væru aðeins ætlaðar 35 mínútur í
dagskrá útvarpsins. Reyndin varð
þó sú, að fundurinn stóð í 63 mín-
útur. Var því óhjákvæmilegt að
stytta þáttinn nær því um helm-
ing.
Eftir fundinn átti Magnús tal
Framhald á 15. síðu.
að hann vonaðist til að geta skýrt
frá ákveðnum degi um þann brott
flutning innan fárra daga.
Tilkynning þessi var gefin út að
loknum viðræðum þeirra Ben
Bella og franska Alsírmálaráðherr
ans, Jean de BrogHe, og segir þar,
að brottflutningur hersveita
Frakka muni líklega fara fram
síðustu mánuði ársins 1964, en vel
geti þó svo farið, að því verði
flýtt enn frekar.
Petrosjan
aftur yflr
NTB—Moskva, 2. maí.
í 16. umferð í heimsmeistara-
J mótinu í skák milli hcimsmeistar
| ans Botvinniks og samlanda hans
Pctrosjan fóru leikar þannig, að
keppinautarnir sömdu jafntefli eft
ir 54 leiki. Keppnin hefur það
sem af er verið mjög jöfn, en í
15. umferð náði Petrosjan aftur
forastunni eftir að jafnt hafði
staðíð um skeið. Petrosjan hefur
nú 8V2 vinning, en Botvinnik 7Va
vinning. Eftir er aS tefla 8 skákir.
og verður næsta skák tefld á laug
1 ardag.
slóðum, sem fréttamennirnir sögð
ost hafa tekið myndirnar.
Yue Jin sökk út af Suður-Kóreu
á leið sinni írá Kína til japanskrar •
hafnar. Þetta er fyrsta stóra flutn j
ingaskipið, sem byggt hefur verið
i Kína kommúnista og fyrsta kín-
verska skipið, sem fara átti til hafn
ai í Japan Á skipinu var 59 manna
ahöfn og björguðust allir skip-
verjar. Þeir skýrðu svo frá, að
skipið hefði verið skotið niður af
þremur tundurskeytabátum. Kín-
verjarnir eru nú lagðir af stag til
Shang Hai.
Kommúnistablaðið New Even-
ing Post í Hong Kong sagði í dag,
■'i trúlega hefðu æsingamenn, —
kannski Bandaríkjamenn, sökkt
skipinu. Bandarikjamönnum væri
tiúandi til þess, þar eð þeir væru
mótfallnir viðskiptum milli Kína
Framhalíl á 15 siðu
flutt klukkustundum saman. —
Síðan kom vönduð barnadagskrá í
anda dagsins, dags vinnunnar —
dags pabba og mömmu. Alþýðu-
samband íslands réð einnig kvöld-
dagskrá útvarpsins. Forseti Al-
þýðusmbandsins, hver sam hann
var, hélt ræðu kvöldsins.
Og þjóðin fann, að þannig átti
þetta að vera. Þannig er þetta og
hjá öllum nágrannaþjóðum vorum.
En andi íhaldsins var óbreyttur
undir niðri. Og þegar það fékk
ríkisvaldið í hendur, sagði hann
til sín.
Samfelld dagskrá um verkalýðs-
mál og verkalýðsbaráttu, féll nið-
ur. Barnadagskrá þurrkaðist burt.
Alþýðusambandið fékk stutta
kvölddagskrá tH umráða. Ræðu-
menn kvöldsins urðu þrír. Full-
trúi ríkisvaldsins og Bandalags
starfsmanna ríkis og bæja komu,
en Alþýðusambandið hélt ræðu-
tíma að einum þpðja hluta.
Næsta skrefið var að neita Al-
þýðusambandi íslands um að ráða
nokkurri kvölddagskrá 1. maí, og
nú er lokaskrefið stigið. Rödd Al-
þýðusambands íslands skal ekki
heyrast 1. maí. Rödd Bandalags
starfsmanna ríkis og bæja skal
einnig þagna, enda samtökin ekki
l’engur undir íhaldsstjórn.
Þessum svívirðilegu og ólýð-
ræðislegu vininubrögðum mót-
mælir verkalýður Reykjavikur
harðlega á útifundi sínum 1. maí
1963.
Fundurinn fordæmir árás þá,
Framh á bls. 15.
Kossar og
kampavín
SK—Vestmannaeyjum 2. maí.
Leikfélag Vestmannaeyja hefur
undanfarið sýnt hér franska gam
anleikinn „Kossar og kampavín“
við ágætar undirtektir og munu
hér hafa séð leikinn um 1200
manns. Leikstjóri er Hólmfríður
Páisdóttir. Nú er fyrirhugað, að
leikfélagið fari í leikför til lands
og verður fyrsta sýningin á Hvols
velli laugardaginn 4. maí, síðan
verður leikritið sýnt í Aratungu
sunnudaginn 5. maí; Kópavogi
mánudaginn 6. maí og í Keflavík
þriðjudaginn 7. maí.
STÓRVERKFÁLL I
Y.-ÞÝZKALANDI
NTB—Bonn, 2. maí
Forseti Vestur-Þýzkalands, Hein
rich Liibke, skoraði í dag á deilu-
aðila í verkfalli því, sem síðustu
daga hefur geysag í fylkinu Baden
Wurtenberg, að hefja þegar í
stað samningaviðræð'ur, sem mi*;
að því að Ieysa ágreininginn.
Liibke kom með þessa áskorun
eftir ag hann hafði rætt í hálfa
aðra klukkustund við Ludwig Con
stantin Pouissen, forseta þýzka al-
þýðusambandsins. Forsetinn
kvaðst vera mjög áhyggjufullur
vegna þeirra afleiðinga; sem verk
fallið gæti haft fyrir efnahag lands
ins og þýzku þjóðina.
j Fyrr í dag skoraði Luwvig Er-
hard efnahagsmálaráðherra á
deiluaðila að senda fulltrúa til
ráðstefnu um málið í Bonn. Tals-
maður efnahagsmálaráðuneytisins
sagði, að Erhard bæri ugg í
brjósti vegna áhrifa verkfallsins
á efnahagslíf landsins og tilgangur
ráðstefnunnar væri sá, að ræða,
'•aða áhrif verkfallið hefði á efna
t Igslífið. Hins vegar væri það
ekki ætlun Erhards _að miðla mál-
um.
Vinnudeilurnar hafa nú komið
vig 460 þúsund námuverkamenn
Vinnuveitendur hafa sett á verk
bann nær 320 þúsund verkamanna
t eftir að 140 þúsund námuverka
! menn hófu verkfall á mánudaginn.
! Verkfallsmenn krefjast 8% kaup
hækkunar, en vinnuveitendur vilja
I ekki fallast á nema 3Vz % hækkun.
T í MIN N, föstudaginn 3. maí 1963 —
3