Tíminn - 15.05.1963, Blaðsíða 7
mmm
Utgefandi: FRAMSOKNARFLOKKURINN
Framkvæmdastjóri: Tómas Árnason. — Ritstjórar: Þórarinn
Þórarinsson (áb), Andrés Kristjánsson, Jón Helgason og Indriði
G. Þorsteinsson. Fulltrúi ritstjórnar: Tómas Karlsson Auglýs-
ingastjóri: Sigurjón Davíðsson. Ritstjórnarskriístofur í Eddu-
húsinu, símar 18300—18305 Skrifstofur Bankastraeti 7: Af-
greiðslusími 12323 Auglýsingar, sími 19523 — Aðrar skrif-
stofur, sími 18300. - Áskriftargjald kr. 65.00 á mánuði innan
lands. í lausasölu kr. 4.00 eint. — Prentsmiðjan EDDA h.f. —
Hvers vegna vilja
þeir innlimun?
SÚ YFIRLÝSING Morgunblaðsins, að það sé ábyrgð-
arleysi að hafna aukaaðild að Efnahagsbandalagi Evrópu,
hefur vakið mikla athygli.
Það er ljóst af þessum seinusiu ummælum Mbl.,
að forkólfar Sjálfstæðisflokksins ætla að sækja innlimun-
ina í EBE af miklum ákafa.
Menn velta því að sjálfsögðu fyrir sér, hvað valdi
því, að þeim er þetta slíkt áhugamál
Höfuðskýringin er sú, að þeir eru búnir að missa
trúna á landið. Þeir trúa ekki á landbúnaðinn, eins og
sést á því, að þeir vilja fækka bændum. Þeir trúa ekki
á sjávarútveginn, eins og sést á því að þeir vilja hefja
útgerð við Afríku. Þeir trúa því ekki, að íslendingar geti
búið hér af eigin rammleik, eins og sést á því að í
framkvæmdaáætluninni gera þeir ekki ráð fyrir nema
4% árlegum hagvexti, þ. e. aukningu þjóðarframleiðsl-
unnar, þótt hún yrði 5% á síðastl án, þrátt fyrir hinar
miklu vinnustöðvanir þá (togaraverkfallið, stöðvun síld-
veiðiflotans). Þeir trúa ekki á þá orku, sem felst í
sjálfsforræðinu. Þess vegna halda þeir að það sé eina
lausnin að fá hingað erlenda auðhringa til að stofna
hér til atvinnurekstrar og opna jafníramt aukna mögu-
leika fyrir íslendinga til að setjast að erlendis.
Þá trúa þeir því, að það gæti orðið styrkur fyrir
íhaldsstefnuna, ef erlent auðmagn næði fótfestu hér.
Þetta er það, sem ræður mestu um innlimunar-
stefnu stjórnarflokkanna. Forkólfar þeirra hafa sömu
trú og þeir íslendingar á seinustu öld, er töldu það
í'arsælast, að ísland væri hluti Danaveldis og nyti for-
sjár danskra kaupmanna og atvinnurekenda.
Sem betur fór, hafnaði þjóðin stefnu þeirra, sem
trúðu á Dani. Á sama hátt þarf þjoðin í kosningunum
9. júní að hafna þeim, sem trúa á forsjá auðhringanna
í EBE.
Tvö þjóðfélög
í KOSNINGUNUM 9. júní verður kosið um tvö þjóð-
félagsform — hvort hér eigi að vera þjóðfélag, sem
ailra flestra efnalega sjálfbjarga einstaklinga, eða þjóð-
félag fárra ríkra og margra fátækra.
Meðan Framsóknarflokkurinn liafði áhrif á stjórn-
arhættina á árunum 1927—1958 var markvisst stefnt
að því með margvíslegri löggjöf. að hér yrðu sem allra
ílestir efnalega sjálfstæðir einstaklingar. Þetta bar
þann árangur, að óvíða voru tiltölulega fleiri
efnalega sjálfstæðir einstaklingar en hér.
Með ,,viðreisnarstefnunni“, sem kom til sögu 1960,
var algeriega breytt um stefnu. Með tveimur stórfelld-
um gengislækkunum og mörgum óðrum ráðstöfunum,
nafa orðið stórfelldar breytinger a skiptingu þjóðar-
auðs og pjóðartekna, er allar hafa miðað í þá átt, að
draga auðinn og völdin í fáar hendur. Aðstaða efnalítilla
manna hefur og mjög versnað til sjálfbjargar. Hér er
bví óðum að myndast þjóðfélag hinna fáu ríku og
mörgu efnalitlu.
í kosningunum 9. júní verða menn að svara því
hvort þessara tveggja þjóðfélaga þeir vilja heldur efla.
— Þeir kjósa Framsóknarflokkinn, ef þeir vilja efla
hér þjóðfélag hinna mörgu efnalega sjálfstæðu einstakl-
mga. Annars kjósa þeir stjórnarflokkana.
T í M I N N, mið'vikiulagui inn 15. maí 1963.
ORÐ 0G EFNDIR
Brigðmælgi og svik má ekki launa mgg trausti, heldur réttlátri refsingu
Nú þegar kjörtímabil er á
enda og velja á þingmenn að
nýju, er það bein skylda að
gera sér grein fyrir, hver voru
Ioforð frambjóðenda og flokka
við síðustu kosningiar og þá
fyrst og fremst núverandi
stjórnarflokka, sem hafa haft
aðstöðu til að standa við og
fiamkvæma loforð sín. Ber því
að athugia, hverju stjórnarflokk
arnir Iofu'ðu og hvemig þeir
hafa haldið þau loforð. Eftir
efndum skulu kjósendur dæma
verk þeirra eða verkleysu.
Flestum munu í fersku minni
loforð stjórnarflokkanna. Þau
voru að vísu mörg, en í megin-
málum og sem aðalatriði þessi:
Alþýðuflokkurinn iagði meg
ináherzlu á STÖÐVUN VERÐ-
BÓLGU OG DÝRTÍÐAR ÁN
HÆKKUNAR SKATTA og
sagðist myndu gera það skilyrðj
fyrir því, að hann stæði að rík-
isstjórn, að þessum skilyrðum
yrði fullnægt. Auk þess nefndi
hann ýmis fleiri mál, er alþýðu
varðar, svo sem tryggingamál.
Nú vita allir, að efndimar á
þessum loforðum Alþýðuflokks
ins öl'lum, nema tryggingunum,
hafa engar orðið, heldur hið
gagnstæða. Meiri dýrtíð, meiri
verðbólga, meiii álögur, marg-
faldir söluskattar og meiri
óvissia og ringulreið í kaup
gjaldsmálum en nokkru sinni
fyrr. Nú skal því ekki haldið
fram, að Alþjðuflokkurinn eða
þingmenn hans eiigi ejnir sök-
ina á þvi, að svo.oa hefur farið
og loforð hans runnið út í
sandinn og verra en það. Þar
eiga margir hlut að máli og þá
fyrst og fremst framkvæmd
stijórnarstefnunnar og honum
sterkari samstarfsflokkur,
Sjá'lfstæðisflokkuri.nn. Hitt er
sök hans, að liann hefur baldið
áfram stjómarsamstarfi við
Sjálfstæðisflokkinn og núver-
andi stjórnarstefnu eftir að
Ijóst var á miðju kjörlímabili,
að öll aðalloforð lians frá síð-
ustu kosningum voru svikin.
Þiað eru svik Alþýðuflokksins
við sína kjósendur og þjóðina
í heild. Og það sem bítur höf-
uðið af skömminni er það, að
hann segist muni styðja áfram
óbreytta stjórnarstefnu og ver
hana á alla Iund, þrátt fyrir
það að hún gengur þvert í veg
fyrir það, sem hann Iofar sín-
um kjósendum fyrir kosningar.
Slíkum flokki geta kjósendur
ekki treyst aftur.
Sjálfstæðisflokkurinn iofaðj
að vísu hinu sama og Alþýðu-
flokkurinn í síðustu kosning-
um, en hafði þó sem aðalatriði
að bæta lífskjörin og breyta
um efnahagsmálastefnu. Þess-
ar nýju cfnahagsráðstafanir
lágu ekki Ijóst fyrir í síðustu
kosningum, þó að allir þekki
þær nú, og líka hitt, að nokkur
hluti af kjósendum hans mun
telja sig hafa fengið nokkuð
bætta aðstöðu til að bætia lífs-
kjör sín á kostnað fjöldans í
skjóli núverandi stjóraarstefnu,
sem beint miðar að því að
skipa þjóðartekjunum misjafn.
ar en áður, en jafna aftur álög
uiium sem jafnast á alla. Og
svo hefur góðæri og aukinn
afli aukið á gróða þessara
sömu manna.
En stjórnarstefnan, „við-
reisnin", sem báðir stjómar-
flokkarnir bera ábyrgð á, eru
stórsvik við meginþorra þjóð-
arinnar. Svik Sjálfstæðisflokks
ins við þjóðina eru því jafnmik-
il og Alþýðuflokksins, en hins
vegar eðlilegt að liann skyldi
halda aamsfarfinu áfram út
kjörtíniabilið, því að einstakir
gæðingar hans auðguðust á
stjórnarstefnunni og það var
ráðherrum og þingmönniini
flokksins nóg.
Skulu hér nefnd nokkur at-
riði um svik stjórnarflokkanna
í einstökuni máluin:
1. Stjórnarflokkarnir fengu
sig kosna mpp á það loforð að
bæta lífskjörin. Efndir: Sam-
kvæmt útreikningum Hagstof-
unnar getur meðalverkamanna-
fjöiskylda ekki lengur dregið
fram Iífið nema með stórfelldrj
yfirvinmi árið um kring. Og
Alþýðublaðið segir, að hver,
sem rcyni nú áð Iifa af átta
stunda vinnudegi, muni svelta
i hel.
2. Stjórniarflokkarnir lofuðu
að Iækka skattana. Efndir; Á-
lögurnar hafa verið auknar
um 1300—1400 miílj. króna,
eða um 150%.
3. f kaupgjaldsmálum lofaði
ríkisistjómin að láta þau af
skiptalaus. Fram áttu að fara
frjálsir samningar milli verka
manna og atvinnurekenda
Efndir; Núverandi ríkisstjórn
hefur hvað eftir annað tekið
í símar hendur ákvörðn.n kaup
gjalds, með bráðabirgðniögum.
gerðardómum, gengisfellingum
og fleiri þvingunarráðstöfun
um.
4. Stjórnarflokkarnii lofuðu
hátfðlega, að stöðva ve>-ðbólgu
og dýrtíð. Efndir: Meiri verð-
bólga og aukin dýrtáð en í
nokkru öðru Iandi Evrópu.
5. Stjórnarflokkamir lýstu
yfir fyrir síðustu kosningar, að
þeir ætluðu áð stækka landhelg
ina. Efndir: Landhclgin minnk-
uð um árabil me'ð samningi við
Breta.
Svo koma stjórnarflokkarnir
nú til kjósenda og hæla sér af
því, að þeir hafi staðið ve1! sam
an allt kjörtímabilið. Þó að
þeir hafi þannig svikið flest
loforð sín frá síðustu kosning-
um, sem kjósendur kusu þá tiJ
áð framkvæma. Og dæmin, sem
hér hafa verið nefnd, sýna, að
þeir hafia unnið öfugt við það,
seni þeir lofuðu Hver þorir að
treysta þeini flokkum, sem
þannig haga sér og þykir beint
sómi að því að svíkja gefin
loforð?
Áhrif kjósenda og vald til að
ráða stefnu og framkvæmd
mála verða ekki mikil, ef stjórn
arflokkarnir fá aftur aðstöðu t'l
að halda áfram að svíkja gefin
ioforð.
Brigðmælgi og svik má ekki
launa mcð trausti, heldur rétt-
látri refsingu.
Upp úr áramótum í vetur var
uppgötvaður jarðhiti á botni
Urriðavatns í Fellahreppi. Menn
hafa veitt því athygli, sjálfsagt um
langan aldur, að á vatninu hald-
ast opnar vakir þó að annars stað-
ar séu komnir traustir ísar.
Áhugamenn um jarðhitamál á
Austurl'andi létu gera athugun á
þessu fyrirbæri, og kom þá í ljós,
að við botn vatnsins reyndist vera
nær 60 stiga hiti. Þetta vakti
mikla um'hugsun og umtal á Hér-
aði, og íbúar hins ört vaxandi
sveitakauptúns við Egilsstaði fóru
að láta sig dreyma um hitaveitu
í náinni framtíð. Hver veit nema
þarna leynist nægur jarðhiti, ef
borað er eftir honum? Um þetta
var rætt fram og aftur, ýmist í
gamni eða alvöru. Um allar jarðir
á Héraði, sem aðra landshluta, er
mergð þessara vaka. sem sjaldan
leggur eða aldrei, þótt í aftökum
iiggi, enda rnikið um kaldavermsl.
sem étur af sér ísa, þó að leggi í
svip. Þegar uppskátt varð um jarð
hita í Urriðavatni. fóru menn að
leiða hugann að því að á Leginum
undan Hreiðarsstöðum. scm i-aun
ar víðar, eru oft á tíðum .'nnar
vakir og ótraustur ís. Þes, e>' getið
Jón fi
JARÐHIT! k
i Fljótsdælu, að Hreiðar bóndi á
Hreiðarsstöðum lét brynna naut-
um sínum við vakir þar í ísnum,
og er sýnt, að strax til forna var
mönnum kunnugt um miklar afæt-
ur þarna, og því auðvelt að halda
þar opnum brunnum.
Eins og um getur í alltof enda-
sleppum fréttapistli í ísafoid 20.
febrúar, er frá því skýrt, er nokkr
ir félagar fyrir norðan Fljót lögðu
leið sína að áðurnefndum vökum
undan Hreiðarsstöðum með það
fyrir augum að athuga, hvort nokk
uð benti þar til jarðhita. Vakirnar
voru skændar, er þeir komu að,
og stungu þeir gat á þunnan ís-
inn en upp streymdi loft, er þar
hafð' safnazt undir ísnum Datt
þeirri félögum bá það snjallræð* í
hug að tend.ra Ijós a eld'pýtu og
bregða vfir uppstreymið oe und
■r skeði Blár o.g fagur togi reis
U'ð uppslreymi þessu Það leyndi
scr ekki. að þetta var gas Upp frá
I. Kjerólf:
AUSTliRLANDI
botni vatnsins stigu Joftbólur, sem
okkur er sagt, að hafi að rannsókn
lokinni um eða yfir 50% gas. Víð-
ar um Löginn eru svona vaka-
svæði, t. d. er Buðlungavíkin mjög
athyglisverð. Um miðjan febrúar
átti fólk frá Hrafnkelsstöðum leið
þar fram hjá og veitti eftirtekt
kringlóttri vök, er helzt leit út fyr
ir að syði í. Þarna var um mjög
mikið uppstreymi að ræða af loft-
tegund þessari
Frá unga aldri minnist ég þess,
er við krakkar á Hrafnkelsstöðum
vorum að vasla í lygnum lónum
á leirum meðfra'in Jökulsá t'yrir
neðan bæinn, að okkur þótti
skemmtun í að láta loftbólur sem
hér og þar streymdu upp úr sendn
’im botninum. hrislast um færur
■iVkqr Fkkt óroð bá netnr fyrir
því. sð þes=ar saklevsidegu loft-
bólur væru svo gott eldsneyti.
sem raun ber vitni En nú vita
Framhald a 13 síðu
7