Tíminn - 13.06.1963, Blaðsíða 1
vum/m
TVOFALT
EINANGRUNAR -
GLER
20ára reynsla
hérlendis
SIMI11400
EGGERT KRISTJANSSON aCO HF
benzin eða díeset
LÁMD^
v^ROVER
HEKLA
129. tbl. — Fimmtudagur 13. júní 1963 — 47. árg.
AÐFLUGSKERFI EYKUR
FLUGORYGGIÐ VESTRA
Hver
vill
gull
plötu
H.F.-Reykjavík, 12. júní.
Einhver þeirra landsbúa,
sem á granunófón og kaupir
sér hljómplötuna A'll Stiar
Festival núna næstu daga,
á von á því, að mega velja
sér hundrað hljómplötur
hjá Philipps, alveg ókeypis.
Þetta er engin auiglýsinga-
brella, heldur er allt nndir
því komið, að verða svo
heppinn að kaupa milljón-
ustu hljómpQötuna.
Sala þesaarar plötu hefur
gengið óvenju vel hvarvetna
í heiminum, og nú er kom-
ið að því, að milljónasta ein-
takið seljiist og hefur ísland
verið valið sem sölustiaður.
Er þetta e'nstök viðurkenn-
ing fyrir Rauða krossinn
hér, þar sem skýrt er frá
þessu í blöðum úti um allan
heim í sambandi við gull-
iplötu, sem S.Þ. verður af-
hent af því iað platan hefur
þcgar se'lrt í milljón ein-
tökum.
Þcssi milljónasta plata er
ein af 350, sem nú eru á
markaðnum og sá, sem
verður svo lieppinn að fá
ha.na, er beðinn að snúa sér
til Rauða krossins, og þar
fær hann að velja sér, eins
og áður er saigt, 100 hljóm-
plötur frá Philips-fyrirtæk-
inu í Hollandi. Þegar hafa
selzt hér á Iandi um 1950
eintök af plötunni, og er
það meira en nokkru sinni
var gert ráð fyrir, og ekki
virðist* neitt lát á sölunni.
í sambandi við þetta má
getia þess, að Alþjóða Rauði
krossinn á hundrað ára af-
mæli í haust, og verður þess
minnzt í þeim 90 'löndum,
sem samtöki.n starfa í, en
félagar eru orðnir um 160
milljónir samtals. Hér á
landi verður aðalhátíðisdag-
urinn þann 1. september, o>g
starfar hátíðanefnd, en for-
maður hennar er séra Jón
Auðuns, dómprófastur, nii
að imdirbúningi hans.
KH-Reykjavík, 12. júní.
í sumar verður flugöryggi
til Vestfjarða bætt stórkost-
lega, þar sem flugmálastjórn-
ætlar að láta reisa sérstakt að
flugskerfi fyrir ísafjörð. Verð
ur reistur radíóviti í Ögri og
radartæki og viti í Hnífsdal.
Framkvæmdir hefjast seint í
þessum mánuði.
Flugmólastjórn er búin að fá
tækin, og verður í suimar _ unnið
að því að koma þeim upp. í fyrra
og í ár voru gerðar athuganir af
sérfræðingum, hvernig bezt væTÍ
að koma tækjunum upp. Leifur
Magnússon, radíóverkfræðinigur,
og Guðjón Tómasson, deildarstjóri
radíódeildar, önnuðust rannsókn-
irnar, en auk þess starfaði með
þeim í fyrra sérfræðingur írá Al-
þjóðaflugmálastofnuninini.
í Ögri þarf ekki að gera annað
en reisa lítið liús fyrir radíóvit-
ann og setja upp díeselriafstöð, en
á bænum í Ögri er aðeins heima-
rafstöð. í Hnífsdal þarf einnig að
reisa- hús fyrir tækin og reisa
ioftnetsmöstur. Radíóloftnetið er á
sérstökum stalli, en steypa þarf
stöpul undir hann. í Hnífsdal verð
ur svo staðsettur einn radiarflug-
umferðarstjóri.
Ætlunin er, að aðalflugkerfið á
ísafirði verði tekið í notkun í
haust, og batnar þá flugöryggi til
Vestfjarða stórkostlega, en að-
staða til flugs þang.að hefur verið
hin sama síðan 1946. ísafjörður
er þriðji staðurinn úti á landi, sem
fær radartæki. Fyrst voru slík
tæki sett upp á Akureyri haustið
1953, síðan á Bgilsstöðum 1959.
Innan skamms eiga líka að hefj-
ast framkvæmdir við flugvallar-
gerð í Önundarfirði, en til þessa
hafa flugvélar lent í fjörunni und
an bænum í Holti. Nýja flugbraut
in verður í Holtslandi. Til að
byrja með á að ýta upp og bera
ofan í 600 m-etra braut. Flugmála
stjórn hefur fullan hug á að braut
in verði fullgerð fyrir haustið, en
óvíst er, hvort það tekst.
Þrjú ný plön
á Seyðisf irði
IH-Seyðisfirði, 11. júní. I er af kappi að því að undirbúa
sildamrtíðina, og meðal annars
í sumar verða 10 söltunarstöðv- cr verið að endurbyggja og lag-
ar á Seyðisfirði, eða þremur stöðv færia sildarverksmiðjuna, sem enn
um fleiri en í fyrrasumar. Unniðl Framhald á 15. sfðu.
5 SKOTHVELLIR FRÁ ÓÐNI
MB-Reykjavík, 12. júní.
í gærkvöldi stöðvaði varðskipið
Óðinn 4 humarveiðibáta frá Vest-
mannaeyjum, skammt austan við
Dyrhólaey. Samkvæmt upplýsing-
um frá fréttaritara blaðsins í Vest
mannaeyjum, SK, segjast skipverj
ar hafa verið á siglingu er þeir
sáu reyk af púðurskotum frá varð
skipinu og heyrðu andartaki síðan
skothvellina. Skaut varð'skipið alls
íimm púðurskotum. Skipstjórarnir
voru kallaðir yfir í varðskipið en
síðan leyft að halda áfram.
Samkvæmt upplýsingum Péturs
Sigurðssonar, forstjóra Landhelgis
gæzlunnar voru skýrslur um at-
burðinn sendar sjávarútvegsmála-
ráðuneytinu í morgun. Hér er ekki
um að ræða landhelgisbrot af I notuð, en humarveiðibátar mega
neinu tagi, heldur spuming um, toga upp á sextíu faðma dýpi utan
hvort humarleyfi hafi verið mis-1 fjögurra mílna markanna.
UNGFRÚEVRÓPAÍÁR
ÞESSI glæsilega stúlka varð sigurvegari í keppninni um titilinn Ung-
frú Evrópa, sem fram fór í Beirut um síðustu helgi, og af myndinni
að dæma, er hún vel að sigrinum komin. Mette Stenstad heitir hún,
21 árs, frá Skien í Noregl. Norðurlöndin virðast hafa vandað val feg-
urðardroftninga sinna mjög í þessari keppni, þvi að í þrlðja sæti varð
ungfrú Danmörk, ungfrú Svíþjóð varð fjórða f röðinni og ungfrú
Finnland sú fimmfa. í öðru sætl varð hins vegar ungfrú Sviss. —
Engar fréttir hafa borizt af gengi Líneyjar Frlðfinnsdóttur, sem var
fulltrúi íslands í þessari keppni.
■ I
ffllli
1
iBH
Litið kal af páskahretinu
MB-Reykjavík, 12. júní.
Samkvæmt. upplýsingum dr.
Sturlu Friðrikssonar hefur minua
borið á kali hérlendis heldur en
í fyrra og viirðist páskahretið ekki
ítafa gert gróðri eins mikið mein
c-g margir óttuðust í fyrstu, en
þó væri spretta allmiklu selnnl á
ferðinni en oft áðúr. Vegna hinna
miklu hlýinda, sem verið hefðu
uudanfarl'ð, hefði gróðri hins veg-
ar farið mjög vel fram og væri
ekki ástæð'a tll að óttast annað,
en spretta yrði yflrleitt sæmileg,
ef ekkert sérstakt kæml fyrlr úr
þessu.
Að vísu eyðilagðist nýgræðing-
ur mjög viða af völdum þess, en
rótarskemmdir virðast yfirleitt
ekki hafa verið mjög miklar, þann
ig að gróður mun ná sér. Dr.
Sturla kvað sér ekki kunnugt um
að neinn sérstakur landshluti'
hefði orðið illa úti, hvað þetta
snerti.
Hann kvað lingerðar grasteg
undir eðlilega hafa orðið verr úti.
Til dæmis hefði Randagras farið
illa í tilraunareitum. Randagras er
.,landnemi“ hérlendis og við það
hafa verið bundnar talsverðar von
ír í sambandi við nýrækt á mýra-
svæðum. Hins vegar hefðu aðrir
stofnar sýnt mikið viðnám. Bæri
þar fyrst ag nefna norska stofna
af vallarfoxgrasi, þeir hefðu stað
ið mjög vel í frostunum. Þessir
stofnar hefðu verið talsvert not-
aðir í grasfræblöndur, þó hefði
ekki fengizt eins mikið af þeim og
æskilegt hefði verið, en það stæði
allt til bóta.
Dr. Sturia kvað sprettu yfirleitt
muni vera heldur seinna á ferð-
inni en oft áður vegna páskahrets
ins, því gróður hefði þá verið kom
inn óvenju langt, en þar eð rótar
skemmdir hefðu yfirleitt ekki ver
ið mjög miklar, væri ástæða til að
vona, að hann myndi ná sér og
síðustu dagana hefði gróðri farið
mjög yel fram.
dir frá Profumo-réttarhöldunum á bls. 8