Tíminn - 25.06.1963, Qupperneq 7

Tíminn - 25.06.1963, Qupperneq 7
Útgefi ndl: FRAMSÓKNARFLCKKURINN Framkvæmdastjóri Tómas Árnason _ Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (ábi. Andrés Kristjánsson, Jón Helgason og Indriði G. Þorsteinsson. Fulltrúi ritstjórnar: Tómas Karlsson. Frétta- stjóri: Jónas Kristjánsson. Auglýsingastj.: Sigurjón DavíESsson. Ritstjómarskrifstofur í Eddii húsinu, símar 18300—18305. Skrif stofur Bankastr. 7 Afgr.sími 12323. Augl., sími 19523. Aðrar skrifstofur, '!mi 18300. Áskriftargjald kr. 65.00 á mán, innan- lands f iausasöiu kr 4.00 eint. — Prentsmiðjan EDDA h.f — Ný yfirlýsing Ólafs um aukaaðild Hinn 21. þ.m. birtist í danska blaðinu „Politiken“ við- lal við Ólaf Thors, er hann hafði átt við norrænu blaða- riennina, sem voru hér um það leyti, er kosningarnar fóru fram. Viðtal þetta fór fram eftir að úrslit kosninganna voru kunn. Meðal spurninga, sem blaðamennirnir lögðu fyrir Ólaf var sú, hvort ísland ætli að standa utan markaðsbanda- laganna í Evrópu (uden for de europæiske markedsdann- elser). Svar Ólafs er það, að ísland hafi ekkert að gera í Frí- verzlunarbandalagið, og viss ákvæði Rómarsáttmálans séu þannig, að full aðild að EBE sé útilokuð. Ólafur segir síðan orðrétt: „Vi vil derfor undersöge muligheden af en eller anden form for associering, saaledes at vi bliver med- lem, uden at vi tiltræder de betingelser, som máske for andre nationer synes at være ret naturiig . . ." Hér segir Ólafur það umbúðalaust, að ísland ætli að athuga möguleika fyrir einhvers konar aukaaðild, þannig að það verði meðlimur bandalagsins. Þó vilji það fá und- anþágur frá vissum kvöðum, er hann tilgreinir síðar í viðtalinu. Undanþágurnar, sem hann nefnir, eru þær. að útlendingar fái ekki aðgang að fiskveiðilandhelginm né ótakmarkaðan rétt til atvinnurekstrar og atvinnu i landinu. í viðtalinu kemur hvergi fram, að ríkisstjórnin telji það annan möguleika að gera aðeins tolla- og viðskipta- samning við EBE, eins og hún hélt fram í skýrslu sinni til Alþingis og áréttaði mjög sterklega í kosningabarátt- unni. Ólafur virðist nú ekki sjá annað eða stefna að öðru en aukaaðild. Af þessu má bezt ráða, að það var rétt, sem Fram- sóknarmenn héldu fram í kosningabaráttunni, að stjórn- arflokkarnir stefndu að aukaaðild íslands að EBE, en væru í rauninni andvígh’ tolla- og viðskiptasamningi, þótt þeir nefndu þá leið til málamyndar, til að draga athygli frá meginstefnu sinni. Þessi yfirlýsing Ólafs sýnir enn fremur, að stjórnar- ílokkarnir munu nú eftir kosningar ieggja aukið kapp á ínnlimun íslands í EBE í aukaaðildarformi. Því þarf þjóð- in að vera betur á verði nú en nokkru sinni fyrr. Farið í slóðina Fjögur launþegafélög hér syðra, Dagsbrún, Iðja, Verzl- unarmannafélag Reykjavíkur og Hlíf í Hafnarfirði hafa nú gert samning við atvinnurekendur um svipaða kaup- Jiækkun og hliðstæð félög á Akureyri og á Siglufirði voru búin að semja um við atvinnurekendur áður. Þetta er í fjórða sinn á rúmum tveimur árum, er félög- in hér syðra fylgja þannig í slóð norðanfélaganna. Ástæðan til þess, að norðanfélögin hafa þannig rutt brautina, er ekki fyrst og fremst sú að þau séu vem lega árvakrari en sunnanfélögin. Ástæðan er sú, að sam- vinnufélögin eru i hópi sterkustu atvinnurekenda norð- anlands og hafa beitt áhrifum smum til að veita laun þegum réttmætar kauphækkanir Launþegum má vissulega vera þetta sönnun þess, hve mikilvægt það er. að tii sé öflug samvinnuhreyfing i land nu. Þvi þurfa þeir að fylgjast vel með ef reynt verður að beita hana hefndaraðgerðum fyrir réttsýni hennar og n-jálslyndi í kaupgjaldsmálum. Mikilvæg Evrópuför Kennedys Verður gerð róitæk tilraun tíl að draga úr kalda stríðinu? KENNEDY KENNEDY forseti lét það ekki hafa nein áhrif á sig, þótt ýmsir áhrifamiklir aðilar —, þar á meðal stórblöðn „The New York Times“ og „The Times“, — hvettu hann til að fresta hinni fyrirhuguðu Evr- ópuferð sinni um óákveðinn tíma. Rök þessara aðila voru þau, að Kennedy myndi aðal- lega hitta ; ferðalagi sínu for- ustumenn, sem væru á förum eins og Adenauer og Macmill- an, eða rétt til bráðabirgða, líkt og hinn nýi forsætisráð- herra í ítalíu. Þessum mót- bárum vék Kceö£% tð hliðar og hóf Evrópuferð sína um helgina, eins og ráðgert hafði verið. Hann dvelur nú j Vest- ur-Þýzkalandi, en mun síðar heimsækja ftalíu, Bretland og írland. Á morgun mun hann heimsækja Vestur-Berlín. Ástæðan til þess, að Kenn- edy frestaði ekki för sinni, er vafalaust sú, að hann er ekki aðeins að heimsækja forustu- menn þessara landa, heldur engu síður fólkið þar. För hans er ekki aðeins farin til að ræða við stjórnmálamennina, held- ur einnig til að fá liðveizlu al- menningsálitsins í Evrópu. At- hugulir blaðamenn hafa jafn- vel líkt þessu ferðalagi Kenn- edys við kosnjngaferð. EJ’JNDl Kennedys til Evr ópu er að fá bæði stuðning stjórnmálamanna og almenn- ings þar við þá stefnu. sem hann beitir sér nú fyrir j al- þjóðamálum. Með verulegum rétti má segja, að erindi hans sé tvíþætt. í fyrsta lagi er það erindi Kennedys að reyna að treysta samvinnu Atlantshafsríkjanna. sem hefur gliðnað mjög að und- undanförnu, svo að ekki sé sterkara til orða tekið. Undir forustu de Gaulle er að skapast ný hreyfing í Evrópu. sem leggur fyrst og fremst áherzlu á samvinnu meginlandsþjóð- anna í Vestur-Evrópu og lítur á Efnahagsbandalap Evrópu sem kjarna nýrrar rík.iasam steypu, sem verði óháð Banda ríkjunum með tíð og tíma. Ef þessi hreyfing næði því marki. sem hún stefnir að, myndi Atl- antshafsbandalagið brátt verða hvorki fugl né fiskur og sam- vinna Atlantshafsríkjanna leys- ast upp. í stað tollasamvinnu gæti skapazt tollastríð milli Vestur-Evrópu og Bandaríkj- anna. Þessi hreyfing hefur þeg- ar stórlamað Atlantshafsbanda lagið, sem m.a. kemur fram í því, að sum Evrópumálin krefj- ast þátttöku kjarnorkuvörn- um þess, en neita jafnframt að leggja nægilegt af mörkum til hinna venjulegu varna. Ef svo heldur áfram, getur Atl- antshafsbandalagið bráðlega orðið lítið annað en nafnið eitt ANNAR aðaltilgangurinn með Evrópuferð Kennedys er því að reyna að treysta sam- vinnu Atlantshafsríkjanna að nýju. Þess vegna heimsækir hann Vestur-Þýzkaland og ítal íu, því að þessi tvö riki hafa nú eins konar lyklavöld j þess um málum, einkum þó Vestur Þýzkaland. Ef það gengur til fylgis við stefnu de Gaulle, er vestrænt samstarf raunveru- iega úr sögunni í þeirri mynd, sem það hefur verið hugsað Því mun ekki sízt veitt at- hygli í sambkndi við ferð Kennedys, hvaða móttökur hann fær í Vestur-Þýzkalandi eða réttara sagt, hvort hann verði hylltur þar af almenningj meira eða minna en de Gaulle. er hann heimsótti Vestur Þýzkaland í fyrra. De Gaulle hlaut þá mjög glæsilegar mót tökur. Fyrir Kennedy skiptir það höfuðmáli, að honum verði ekki lakara tekið. Treyst hefur verið á, að hann verði sérstak- lega hylltur af yngri kynslóð inni j Vestur-Þýzkalandi. Viðkoma Kennedys í Bret- landi er miklu þýðingarminni en heimsókn hans til Ítalíu og Vestur-Þýzkalands. í Ítalíu skiptir það ekki sízt máli, að Kennedy hafi góð áhrif á hinn nýja páfa. í þeim efnum er það honum mikill styrkur, að hann er katólskur. EFLING Atlantshafssam starfsins er ekki nema annað aðalerindi Kennedys til Ev- rópu. Hitt erindi hans er að fá liðveizlu stjórnmálamanna og almennings þar við nýja tilraun til að bæta sambúðina milli austurs og vesturs í Evr- ópu eða réttara sagt, reyna að draga úr kalda stríðinu milli vesturveldanna og Sovétríkj anna. Eins og nýlega var rætt um þessum þáttum, flutti Kennedy snemma i þessum mánuði ein- hverja hina beztu ræðu, sem hann hefur nokkru sinni hald- ið um utanríkismál í ræðu þeirri tilkynnti hann ekki að- eins hina fyrirhuguðu þrívelda ráðstefnu í Moskvu, þar sem ræða á til þrautar um bann gegn kjamorkuspreng;ngum. Kennedy boðaði jafnframt nýja sókn fyrir bættri sambúð Sovétríkjanna og vesturveld- anna. Hann fór viðurkenningar- orðum um Rússa og viður- kenndi ýmis sjónarmið þeirra, þótt hann tæki ákveðna afstöðu gegn kommúnisma. Hvað sem ollurn stjórnarfonnum l.iði. væri það þó sameiginlegt hags- munamál vestrænu ríkjanna og Sovétríkjanna, að ekki kæmi til styrjaldar, og að dregið yrði úr vígbúnaðarkapphlaupinu Þess vegna ætti að herða sókn- ina fyrir samkomulagi um af- vopnun. FÖR Kennedys til Evrópu er g ekki sízt farin til að afla fylgis n við þessa stefnu hans í þeim R efnum er þýðingarmikið. að S hann fái stuðning Þjóðverja R Undirstaða þess, að spennan fi milli vesturveldanna og Sovét- 1 rikjanna mmnki, er samkomu- | lag um Þýzkalandsmáljn Fyrir | Kennedy skiptir miklu að hann S geti fengið Adenauer til liðs » við sig, því að hann verður á- ja hrifaríkur áfram. þótt hann Pj láti af stjórnarstörfum Þvi « var rétt ráðið af Kennedy að P fara í þessa för áður en Aden í auer hætti, svo að hann móðg I aðist ekki. Margt bendir til, að Vestur ) Framhald á 13 siðu. r í M I N N, þnðjudaginn 25. júní 1963. — 1

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.