Tíminn - 25.06.1963, Page 9

Tíminn - 25.06.1963, Page 9
Guðbrandur Magnússon: Arbækur Ferða félags Islands Ferðafélag íslands var stofn að 27. nóvember 1927, og voru stofnendurnir 63 að tölu. Fyrir fundarboðum hafði gengizt Björn Ólafsson stórkaupmaður og nokkrir menn með honum en fyrsti forseti félagsins var kjör inn Jón Þorláksson verkfræð- ingur, síðar ráðherra, en með honum í stjórn ellefu menn. Fyrsta árgjald var 5 krónur en er nú 100 krónur. Félag þetta hefir komið miklu í verk. Það hefur lagt megináherzlu á kynnisferðir um landið, og er það mikill manngrúi samtals sem tekið hefir þátt í þessum ferðalögum. En einnig hefur félagið gefið' út Árbók, eitt hið merkasta rit. Kom hin fyrsta út 1928 og var helguð Þjórsár- dal. En bókin hófst að sjálf- sögðu með því að formaður þess, Jón Þorláksson gerði grein fyrir stofnun og tilgangi þessa nýstofnaða félags. En síð ar er í þessari fyrstu árbók lýsing á Þjórsárdal eftir Jón Ófeigsson og vandaður upp- dráttur af dalnum eftir Jóhann Briem ásamt 45 örnefnum, eft ir skrá sem með tölumerkjum, eru staðsett á sjálfan uppdrátt inn. Þá er í þessari fyrstu ár- bók þáttur eftir Sigurð Nor- dal sem hann kallar „Gestrisni byggða og óbyggða". Einnig þættir um útbúnað á ferðalög- um og annar um Hjálp í við- lögum. Árbókin 1929 er helguð Kjal- vegi, 1930 Þingvöllum. Árbók- in 1931 Fljótshlíð og Eyjafjöll- um. Árbók 1932 fjallar um Snæ- fellsnes. 1933 um Leiðir að fjallabaki þ. e. milli Rangár- vallasýsiu og Skaftártungu. Einnig eru í því riti tvær grein ar um Hvannalindiir. Árbók 1934 er leiðalýsing um Þing- eyjarsýslu, en bókin 1935 er um lönd og leiðir í Vestur- Skaftafellssýslu. Árbók 1926 er helguð nágrenni Reykjavíkur og landnámi Ingólfs Arnarson- ar, en bókin 1937 Austur-Skafta fellssýslu, bók 1938 Eyjafjarð- arsýslu Að upphafi þessarar bókar er minnzt 150 ára afmæl- is Bjöms Gunnlaugssonar snill ingsins mikla, sem gjörði upp- drátt af íslandi af furðumik- illi nákvæmni, henni hafði ekki verið fyrir að fara neitt þvílíkri, í eldri uppdráttum. Aftast í þessum árgangi eru vandaðar landslagsmyndir á tólf heil- síðum. Árbókin 1939 er hin merkasta, og heitir fugla bók Ferðafélags íslands, eftir Magnús Björnsson, fuglafræð- ing 216 bls. að stærð. Árbókin 1940 fjallar um Veiðivötn á Landmannaafrétti og sæluhús sem þá voru til í landinu. 1941 er helguð Kelduhverfi og Tjör nesi Arbók 1942 er um Kerling arfjöll. Bókin 1943 Ferðaþættir eftir átta höfunda með mynd- um eftii enn fleiri ferðalanga Árbók 1944 er öll um Fljóts- dalshérað. Bókin 1945 öll um Heklu, sem þakkaði þá heldur en ekki fyrir sig, um það leyti sem landsmenn höfðu lokið við að lesa þessa mestu árbók sem Ferðafélagið til þess tíma, hafði gefið út. Árbók 1946 ein hin fyriríerðarmesta er öll helguð Skagafirði. Bókin 1947 er ein- vörðungu um Dalasýslu. Bókin 1948 með sama hætti öll helg- uð Vestmannaeyjum, sem ein- hver sagði um, að mundu vera orðnar frægar fyrir feguiðar- sakir, væru þær í Ameríku. Bók in 1949 er um Norður-ísafjarð- arsýslu Þessar tvær árbækur eru hvor um sig á þriðja hundr- að blaðsíður. Árbók 1950 er helguð Boi'garfjarðarsýslu. Bók in 1951 Vestur-ísafjarðarsýslu, en árbók 1952 er öll um Stranda sýslu. Árbók 1953 er um Mýra- sýslu en bókin 1954 um Borg- arf jarðarsýslu. Árbókin 1955 er Framhalú a bls 15 Jökulháls á Snæfellsnesl Landmannalaugar á FiallabaksleiS. Skálinn I Langadal á Þórsmörk. Hvftárnes vlS Hvltárvatn, Fyrsti skálinn. Hveravellir á Kjalvegl. Hagavatn á Biskupstungnaafrétti Þjófadalir á Langjökll T í M I N N, þrtðjudagimn 25. júní 1963. — 9 I

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.